Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 61
BREF TIL BLAÐSIIMS______
Hver eru málefni R-listans?
Frá Gunnlaugi Eiðssyni:
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir er
R-listinn í Reykjavík. Aðrir fram-
bjóðendur á listanum skipta ekki
máli, þeim er ekki hampað. Alþýðu-
flokkur, Alþýðubandalag og Fram-
sóknarflokkur eru endanlega horfn-
ir úr Reykjavíkurpólitíkinni. Ein-
staka konur á listanum reyna enn
að skræmta, en það verður ekki
nema persónulegur rógur og slef-
burður.
R-listinn malar mikið, en segir
ekkert. Hann tekur enga afstöðu.
Fólk man hvað R-listinn sagði um
EES á Alþingi. En þegar til átti
að taka og greiða atkvæði, þá þorði
R-listinn ekki. Hans atkvæði féll
dautt og þannig yrði um allt í
Reykjavík. Og hveijum dettur í
hug, að framkvæmdirnar verði
meiri en þetta ef R-listinn verður
borgarstjóri? Þá byijar skæklatogið
og valdastríðið milli frúnna, sem
skríða fram úr skotunum á R-listan-
um og minna á sig. Því R-listinn
er sannarlega ekki nýr. Þar er allt
gamla sjúskaða liðið frá 1978-
1982, m.a. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir. Og enn er sama stefíð sung-
ið: íhaldið frá. Það er allt og sumt.
Hugsjónir R-listans eru engar,
hugmyndirnar engar, enda auglýsti
R-listinn eftir stefnumálum í blöð-
um og nokkurs konar stenfuskrá
varð til núna um miðjan maí.
Sjálfstæðisflokkurinn er öðruvísi.
Þar er mikið af ungu og fersku
fólki, sem lítur lífið öðrum augum
en þeir sem mörkuðu sporin.
Áherslurnar eru nýjar, nú er kenn-
ari í forsæti Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. Og kennaranum er mik-
ið niðri fyrir, hann vill láta verkin
tala: Auk margs konar þjónustu-
verkefna eins og gatna- og holræsa-
gerðar, reksturs dagheimila og
skóla, þjónustu við roskið fólk og
aldrað; auk alls þess hefur Árni
staðið fyrir framkvæmdum, sem
styrkja atvinnu í bænum. Því
Reykjavík hefur orðið fegurri og
glæsilegri með ári hveiju. Það er
hveijum manni yndi að koma hing-
að: Miðbakkinn, Arnarhóll. Lauga-
vegur, Ingólfstorg, Gijótaþorp,
Ráðhúsið, Ijörnin, Oskjuhlíð, Perl-
an. Allt er þetta aðlaðandi og skap-
ar atvinnu. Og auðvitað má ekki
gleyma görðunum í Laugardal og
því góða fólki, sem þar vinnur,
göngustígunum með Sketjafírðin-
um, hreinsun strandarinnar, sund-
laugarnar allar o.s.frv. Allt þetta
gerir borgina okkar að ferða-
mannabæ og það skapar atvinnu.
Svona að íhaldinu slepptu: Hver
er stefna R-listans í Reykjavík?
GUNNLAUGUR EIÐSSON,
Lindargötu 42,
Reykjavík.
Sundurleysi vinstri flokkanna
Frá Karli Ormssyni:
RAUÐA liðið svokallaða hefur
ákveðið að bjóða fram hræðslu-
bandalag í Reykjavík. Þetta skraut-
litla fyrirbæri sex flokksbrota,
framsóknar, krata, allaballa, Birt-
ingar, Kvennalista, Nýs vettvangs,
Jafnaðarmannaflokks íslands og
hvað allt þetta lið heitir þorði ekki
að koma fram fyrir kjósendur undir
réttum nöfnum. En yfírkjörstjóm
Frá Önnu Gunnarsdóttur:
í TÍMARITINU Mannlífí, sem kom
út fyrir stuttu, gat að líta svör
Árna Sigfússonar og Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur við spurning-
um blaðsins um ýmis málefni. Hér
var forvitnilegt efni að ýmsu leyti,
þótt kannski kæmi ekki margt á
óvart. Með því athyglisverðasta,
sem þar var að finna, var að Ingi-
björg Sólrún sagðist fylgjandi
flutningi Reykjavíkurflugvallar úr
Vatnsmýrinni.
Óraunsæ hugmynd
Þessi hugmynd hefur skotið upp
kollinum við og við og jafnvel verið
skoðuð ofan í lcjölinn af sérfræðing-
um. Jafnan hefur niðurstaðan orðið
sú, að kostnaðurinn við gerð nýs
innanlandsflugvallar væri óyfirstíg-
anlegur, auk þess sem hentugt flug-
vallarstæði væri vandfundið. Þá hef-
ur verið bent á, að staðsetning flug-
vallarins væri mjög mikilvæg fyrir
ferðaþjónustu, viðskipti og atvinnulíf
í borginni, og flutningur myndi leiða
til mikils óhagræðis fyrir það fólk
utan af landi, sem sækir þjónustu
hingað til borgarinnar.
Frá Ólafi Ragnari Ólafssyni:
ATHYGLI hefur vakið í kosninga-
baráttunni í Reykjavík hversu
frambjóðendur taka mismikla póli-
tíska áhættu í kosningunum. Árni
Sigfússon leggur borgarstjórastól-
inn að veði í baráttunni.
Þorbergur Aðalsteinsson, sem
skipar 8. sæti D-listans, nær sæti
í borgarstjórn ef vel gengur en
hefur ekki að öðru pólitísku emb-
ætti að hverfa nái hann ekki kjöri.
Öðru máli gegnir hins vegar um
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
borgarstjóraefni vinstri flokkanna.
úrskurðaði að felulitum þeirra
skyldi flett frá svo sjá mætti fram-
an í andlitin, þó glitt hafí í brúnu
hárin undan gærunni. Það er alveg
víst að fólk lætur ekki teyma sig
sem sauðfé í kjörklefann til að kjósa
þann flokk sem ákveðnir flokks-
broddar segja því. Fólk vill fá að
ráða hvernig það ver atkvæði sínu.
Það eru ekki svo mörg ár síðan
R-liðið fékk að spreyta sig við stjóm
Á að breyta aðalskipulagi?
En það var fleira, sem vakti
athygli í svari Ingibjargar Sólrún-
ar. Hún sagðist vel geta hugsað
sér Geldinganesið sem flugvallar-
staeði. Nú er það svo, að sam-
kvæmt aðalskipulagi borgarinnar,
sem gildir fram yfir aldamót, er
Geldinganesið hugsað sem at-
vinnuhúsnæði og byggð fyrir mörg
þúsund manns. Spyija má, hvort
Ingibjörg Sólrún hafi gleymt þeim
fyrirætlunum eða hreinlega aldrei
kynnt sér þær. Ef svo er ekki, hlýt-
ur spurningin að vera sú, hvort
Ingibjörg hafi uppi áform um að
breyta aðalskipulaginu í grundvall-
aratriðum og flytja fyrirhugaða
byggð á Geldinganesi eitthvað
annað. Sé það ætlunin eiga borg-
arbúar rétt á að fá upplýsingar þar
að lútandi. Einstaklingur, sem ætl-
ar sér að verða borgarstjóri, getur
ekki slegið fram svona hugmynd-
um án þess að hafa skoðað málið
ofan í ícjölinn.
ANNA GUNNARSDÓTTIR,
Suðurhúsum 1,
Reykjavík.
Fái listinn hennar átta menn kjörna
verður hún borgarstjóri og mun þá
láta af þingmennsku. Fái listinn
hins vegar sjö fulltrúa getur hún
látið borgarmálin lönd og leið og
haldið þingsæti sínu.
Fyrir hana sjálfa skiptir því engu
máli hver úrslitin verða. Hún er
gulltryggð í bak og fyrir. Hér hefur
gamla orðtakinu „vogun vinnur,
vogun tapar“ verið snúið við. Hér
er það „vogun vinnur, vogun vinn-
ur“ sem gildir.
ÓLAFUR RAGNAR ÓLAFSSON,
Hæðarseli 18,
Reykjavík.
Reykjavíkur með afleiðingum, sem
við erum enn að súpa seyðið af.
Hver man ekki hrossakaupin og það
skipulagsleysi sem einkenndi stjórn
borgarinnar árin 1978-1982? Er
fólk búið að gleyma hvernig heilu
byggðarkjörnunum var dreift eins
og af tilviljun um borgina?
Að bjóða Ingibjörgu Gísladóttur
sem borgarstjóraefni, er hugmynd
sem er dæmd til að mistakast,
vegna þess sundurlyndis sem vinstri
flokkunum er áskapað, hún fengi
engu ráðið.
I Tímanum 19. apríl segir Ingi-
björg: Ég er og verð í Kvennalistan-
um, Kvennalistinn eru mín samtök.
Svo mörg voru þau orð, hvernig
samrýmist þetta því sem hún segir
í Morgunblaðinu 6. maí? Þar segir
hún að hún sé óbundin af öllum
flokkum, flokksbrotum, og hags-
munasamtökum, nema stefnu R-
listans, eða þessara áðumefndu sex
flokksbrota.
R-iðið er sundurlaus vinstrihópur
sem kjósendur kannast vel við. Það
er núna smátt og smátt að koma
út úr skúmaskotum sínum er þeir
lýsa yfír stuðningi við R-liðana. Það
var skyssa hjá þeim að auglýsa með
stóru rauðu letri yfírlýsingu sína
um að þeir vildu breyta með Ingi-
björgu Sólrúnu. Hún er og verður
kvennalistakona eftir því sem hún
sjálf segir. Þetta fólk er margt búið
að vera áraraðir í borgarstjóm, og
er því engra breytinga að vænta
frá því.
KARL ORMSSON,
Huldulandi 5,
Reykjavík.
Nr. Leikur: Röðin:
Nr. Leikur:________________Röðin:
1. AIK - NorrkSping 1 - -
2. Degerfors - Trellcborg - X -
3. Ilalnistad - Haniniarby 1 - -
4. Landskrona - Helsingb. - X -
5. Frölunda - Göteborg - - 2
6. Östcr - Hackcn 1 - -
7. Brage - Vasalund 1 - -
8. Geflc - Luleá 1 - -
9. UMEA - BrommapoJ. I - -
10. Ilassleholm - Oddcvold 1 - -
11. Ljungskilc - Kabnar - - 2
12. Lund - GAIS - - 2
13. Slcipner - Jonscrcd - - 2
llcildan'hmlngsuppliæðbi:
87 milljón krónur
13 réttir: 1 62.150
12 rclllr: í '■ 2.370 |
11 rcttir: 1 1
10 réttir: r ■ 1
Borgarsijóraefn-
ið og flugvöllurinn
„ Vogun vinnur,
vogun vinnurí(
TIL LEIGU
1MIÐBORGINNI
Höfum til leigu skrifstofuhúsnæði
í miðborg Reykjavíkur (Austurstræti).
Um er að ræða bæði stök herbergi og stærri
rými. Hentar mjög vel t.d. fyrir lögmenn,
endurskoðendur og þess háttar starfsemi.
Nónari upplýsingar veih'r:
Gjaldskil sf
Lágmúla 7 Reykjavík, sími 681915, fax: 34570
Jóhanna
Sigurðardóttir,
félagsmálaráðherra,
heimsækir eftirtalda staði
f dag og næstu daga:
Miðvikudaginn 25. maí og
fimmtudaginn 26. maí:
Siglufjörður og Sauðárkrókur.
Föstudaginn 27. maí:
Húsavík og Akureyri.
íbúar sem æskja viðtals við ráðherrann hafi samband
á skrifstofu viðkomandi bæjarstjóra.
Félagsmálaráðuneytið
Tara Govinda Rose
ástralskur sálfræðingur og andlegur heilari
verður með eftirtalda fyrirlestra og nám-
skeið í Ljósheimum, Hverfisgötu 105,2. hæð:
Fimmtudaginn 26. maí kl. 20 „Tungumál hjartans1'.
Helgina 28.-29. maí námskeið „Opnun hjartans".
Fimmtudaginn 2. júní kl. 20 „Hinn sýnilegi og ósýni-
legi maður“.
Fimmtudaginn 9. júní kl. 20 „Undirvitundin og draum-
ar“.
Helgina 11.-12. júní námskeið „Reiði“.
í starfi sínu sameinar Tara sálfræði,
guðspeki og heilun.
Upplýsingar og skráning á námskeiðin
í símum 624464 og 674373.
KAUPMANNASAMTÖK
ÍSLANDS
Hádegisverðarfundur
verður haldinn fimmtudaginn 26. maí
nk. kl. 12.00 á Hótel Holiday Inn.
Dagskrárefni:
Fé án hirðis
Fundarstjóri verður Bjarni Finnsson, formaður K.í.
Framsögumaður verður Pétur H.
Blöndal, stærðfræðingur.
Félagsmenn fjölmennið og takið
með ykkur gesti, allir velkomnir.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku
í síma 91-687811.
Bjarni
Pétur