Morgunblaðið - 26.05.1994, Page 8

Morgunblaðið - 26.05.1994, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR OECD sefirir vmisleert benda til breytinera í Áfram að moka góði, vorið kemur ekki fyrr en árið 2000 ... Verð íbúða við Miklubraut lægra vegna mengnnar og hávaða Verið er að kanna hávaðamengxin við götur borgarinnar FORSTÖÐUMAÐUR borgar- skipulags, Þorvaldur S. Þorvalds- son, segir að verið sé að kort- leggja borgina og skoða hávaða- mengun við götur og hvað Miklu- braut snerti verði reynt að leggja bestu og skynsamlegustu tillögur fram til úrbóta. Endanleg ákvörð- un sé hins vegar af pólitískum toga. Björn Stefánsson, fasteigna- sali hjá Þingholtum, segir ekki óalgengt að lækka þurfi verð Lögregla um viðbrögð við árás á nýstúdent Bílsins var leit- að um nóttina FRIÐRIK G. Gunnarsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að sér virðist sem viðbrögð lögreglumanna sem sendir voru á vettvang þegar ráðist var á tvítugan nýstúdent, Viðar Þór Guðmundsson, við heimili hans aðfaranótt sunnudags, hafi verið eðlileg miðað við þær upplýsingar sem þá lágu fyrir. Friðrik segir að hins vegar hefði mátt hefja rannsókn málsins strax á mánudag þegar ljóst var að meiðsli Viðars voru meiri en talið vár í fyrstu. Guðmundur Sigurðs- son, faðir Viðars, hefur gagnrýnt að lögreglan hafi sýnt litla tilburði til að finna árásarmennina og rannsóknin hafi farið hægt af stað. Friðrik G. Gunnarsson segir að skýrslur lögreglumannanna beri með sér að bíls árásarmannanna hafi verið leitað strax um nóttina en án árangurs. Hins vegar telji hann að þegar í ljós kom á mánu- dag að Viðar var meira meiddur en í fyrstu var talið hefði verið ástæða til að hefja rannsókn máls- ins af krafti. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gæf er Viðar m.a. rifbrotinn, talinn kinnbeins- brotinn og með sjóntruflanir eftir að ókunnir menn réðust á hann, börðu og óku bíl á hann í þann mund sem stúdentsveislu var að ljúka við heimili hans. Aðspurður sagðist Friðrik ekki getað útilokað þann möguleika að þeir lögreglumenn sem sendir voru á staðinn hafi vanmetið alvöru málsins. Yfirheyrslur í málinu hófust í gær og var þá tekin skýrsla af Viðari, auk þess sem árásarmenn- irnir höfðu verið boðaðir til yfir- heyrslu en vitað er hveijir þeir eru. íbúða við götuna töluvert til þess að þær seljist. Þorvaldur segir að gert hafi verið ráð fyrir að hluti umferðar sem nú fer eftir Miklubraut færi eftir Fossvogsbraut, sem fram- kvæmdir hafa frestast við um óákveðinn tíma. Segir hann hafa verið skoðað að grafa Miklubraut- ina niður en það kosti mikla pen- inga. Aðspurður hvort til greina komi að ráðast í dýra framkvæmd íbúanna vegna segir Þorvaldur: „Ekki nema maður sæi það sem hluta af stærri heildarmynd, að bæta allt íbúðarsvæði Hlíðanna. Það þarf að meta þetta allt sam- an, ekki bara út frá peningunum. Ég vona að það sjónarmið verði ekki allsráðandi," segir hann. Meðvitaðra um mengun Björn Stefánsson fasteignasali segir að verðmunur á íbúðum við Miklubraut og annars staðar í Hlíðunum sé mikill. Til dæmis gæti 180 m2 íbúð á þessum slóðum selst á níu milljónir. „Þetta er van- kantur. Það hefur verið gífurlega erfitt að selja á þessum stað und- anfarið. Við fyrstu sýn virðast töl- urnar ekki háar en þessar íbúðir eru kannski 30-40 m2 stærri en fengjust fyrir sama verð annars staðar. Annars er þetta orðið svona á fleiri stöðum, til dæmis við Bústaðaveginn. Fólk er að verða sér _ meðvitaðra um þessa mengun. Ég er búinn að vera í þessu í 13 ár, það var ekki minnst á mengun fyrir um 10 árum,“ seg- ir Bjöm loks. Formaður Heimilis og skóia Vinnutími kennara verður að breytast Unnur Halldórsdóttir Við verðum að einsetja skólana, fjölga kennslu- stundum og semja við kennarastéttina um breyttan vinnutíma ef við ætlum okkur að fá góða skóla og gott skóla- starf, segir Unnur Hall- dórsdóttir formaður sam- takanna Heimili og skóli, en einsetinn skóli og lengri viðvera er eitt þeirra mála sem hæst ber í kosninga- baráttu framboðslistanna til sveitarstjórna. Hún bendir á að lausnin felist ekki eingöngu í fleiri skólastofum ef bæta á innra starf skólanna. Brýnast væri að taka upp samningaviðræður við kennarastéttina hið fyrsta um breyttan vinnutíma. Það mætti ekki dragast lengur ef takast ætti að einsetja grunnskólana. „Við viljum ekki að kosningaloforð um einsetinn skóla verði eins og nýr en stærri pottur með sömu súpunni," sagði Unnur. „Við fögnum því að skólamál skuli vera komin inn í umræðuna og teljum það enga tilviljun. For- eldrahreyfmgin er að eflast og styrkjast og fólk gerir kröfur um betri skóla.“ Unnur sagði að ef takast ætti að koma á einsetnum skóla yrði að taka upp samningaviðræður hið fyrsta við kennara um breytt- an vinnutíma og fjölgun stöðu- gilda. „Það eru þau grundvallar- atriði sem allt strandar á,“ sagði hún. Benti hún á að í Mýrarhúsa- sköla á Seltjarnarnesi hefði skól- inn verði einsetinn síðastliðin tvö ár og að þar væru kennarar ein- ungis í 75% starfi, þar sem öll börn eru farin úr skólanum fljót- lega eftir hádegi. Fullt starf fyrir kennara væri ekki í boði. Þess vegna yrði einnig með einsetnum skóla að lengja skóladaginn og skapa með nýjum samningum svigrúm fyrir kennarana til að vinna í skólunum. Breyttur vinnutími „Við viljum að vinnutíma þeirra verði breytt á þeirri forsendu að kennsluskyldan mun minnka í kennslustofunum, en viðvera kennarana eykst *»á vinnustað," sagði Unnur. „Þegar því er náð verður vonandi hægt að tala um góða skóla. Eins og fyrir- komulagið er núna gengur það ekki. Skólastjórar hafa ekki um- boð til að biðja kennara um að lengja viðveru sína í skólanum, þar sem slíkt stangast á við þeirra kjarasamninga." Að sögn Unnar er markmiðið betri skóli og til þess að ná því yrði að líta á kennslu sem fullt starf. í einsetnum skóla hefði kennarinn umsjón með einum bekk og gæti því sinnt betur hverj- um einstaklingi. Sagði hún að með auknu samstarfi kennara sköpuð- ust möguleikar til fjölbreyttari kennsluhátta. „Sveitarstjórnir vilja fá skólana til sín og þar með þessi yfirráð," sagði hún. „Ég hef ágæta trú á því en ég tel ekki gott að skólinn verði afhentur í því ástandi sem hann er. Sveitar- félögin eru misvel undirbúin og sum jafnvel ekki nægilega meðvit- uð um hvað það þýðir að taka við ► UNNUR Halldórsdóttir er fædd 3. júní 1953. Hún lauk prófi í uppeldisfræði frá Há- skólanum í Lundi í Svíþjóð árið 1983 og hefur starfað sem kennari og bóndi. Hún hefur verið formaður landssamtak- anna Heimilis og skóla frá því að samtökin voru stofnuð fyrir um tveimur árum síðan, en fé- Iagatal samtakanna er nú um 10 þúsund manns. Unnur er gift Hirti Árnasyni og eiga þau fjögur börn. skólunum. Stærri sveitarfélög eins og Reykjavík geta gefið tóninn um það hvernig til tekst ef þau hafa framsækna skólastefnu." Heilsdagsskóli þörf viðbót Unnur sagði að samtökin Heim- ili og skóli fyndu fyrir því að al- menningur væri ekki nægilega vel upplýstur um einsetinn skóla. Sumir teldu að með heilsdags- skóla væri bjömin unninn en svo væri ekki raunin. Hann væri þörf viðbót en kennslustundum þyrfti að fjölga. Hún segir að heilsdagsskólinn komi vel á móti þörfum fólks. Með tilkomu hans hafi málin hreyfst úr kyrrstöðu og hjólin farið að snúast. Með einsetnum skóla verði svo mun auðveldara að skipuleggja heilsdags- skólann, því eins og málum væri háttað nú þá væri ekki jafnræði til náms. Til dæmis hæfi barn sem væri í heilsdags- skólanum fyrir hádegi, skóladag- inn um hádegi, þá úrvinda. Unnur segir að heilsdagsskól- inn eigi svo eftir að þróast og batna og að verða sambland af námi og skemmtun. „Við viljum sjá í einsetnum skóla með lengdum skóladegi að þar sé svigrúm að hafa skemmti- legheitin. Þá verður hægt að búa til almennilegan skóla með fjöl- breyttu skólastarfi,“ segir hún. „Þegar að kennsluvikan er ekki nema 23 stundir á viku, þá þarf kennarinn að halda vel á spöðun- um til þess að komast yfir skradd- urnar. Hann má ekki einu sinni stelast út í Öskjuhlíð með börn- in.“ Þegar ekki veiti af tímanum í námið finnist krökkunum oft leiðinlegt í skólanum. Markmiðið er betri skóli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.