Morgunblaðið - 26.05.1994, Qupperneq 11
!: .h4
MORGUNBLAÐIÐ
SVEITARSTJÓRNARKOSINIINGAR
f-ííií! 1 / \r n:: Sj' U »/j (i JTJ/ 171 J' l * * f
í’IMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 11
Mýrasýsla
i
Laugardalshreppur
Kosið í samein-
uðu sveitarfélagi
Borgarnes. Morgunblaðiö
Hlutbundin kosn-
ing í fyrsta sinn
ÞAÐ SEM setur svip sinn á kosn-
ingarnar i Mýrasýslu er kosning
nýrrar níu manna sveitarstjórnar
fjögurra sveitarfélaga í Mýra-
sýslu sem ákváðu að sameinast.
Þau eru Hraunhreppur, Norður-
árdalshreppur, StaÖioItstungna-
hreppur og Borgarnesbær. Fjór-
ir flokkar bjóða fram og eru
upphéraðsmenn ofarlega á list-
um sjálfstæðismanna, framsókn-
armanna og Alþýðubandalags en
listi Alþýðuflokksins er aðeins
skipaður Borgnesingum.
Annað sem er merkilegt við þess-
ar kosningar er að flokkarnir ganga
að vissu leyti bundnir til þeirra að
því er varðar þá viljayfirlýsingu sem
gerð var milli sveitarstjórnanna við
sameininguna. Meðal annars er
ákveðið að leggja 20 milljónir á
þessu ári til sérstaks átaksverkefnis
til bættra samgangna í dreifbýlinu.
Á kjördag munu kjósendur taka
afstöðu til nafns á hinu sameinaða
sveitarfélagi. Eftirtalin nöfn voru
valin úr 60 tillögum sem bárust í
skoðanakönnun sem efnt var til,
Borgarbyggð, Borgarfjarðarbær,
Borgarfjarðarbyggð, Borgarfjarð-
arþing, Borgarnesbyggð, Borgar-
þing og Mýrabyggð.
Atvinnumál efst á baugi
Helstu mál flokkanna eru at-
vinnumálin, einnig eru mál Hita-
Fljótsdalshérað
Skoðana-
könnun
um sam-
einingu
Vaðbrekku, Jökuldal - Á sameig-
inlegum fundi hreppsnefnda Jökul-
dalshrepps, Hlíðarhrepps og Tungu-
hrepps nú á vordögum var sam-
þykkt að fram fari óbundin skoð-
anakönnun um sameiningu þessara
hreppa samhliða sveitarstjórnar-
kosningunum 28. maí.
í haust var felld tillaga umdæma-
nefndar um sameiningu alls Fljót-
dalshéraðs í eitt sveitarfélag með
miklum mun í þessum hreppum.
Þrátt fyrir þessa miklu andstöðu
við stóru sameininguna í haust þótti
hreppsnefndarmönnum full ástæða
til þess að gefa íbúum í þessum
hreppum kost á að segja hug sinn
T þessum efnum. Með því kemur í
Ijós hvort mönnum hugnist betur
smærri sameining eða hvort menn
vilji hreint enga sameiningu.
----♦ ♦ ♦---
Opið hús í
Verzlunar-
*
skóla Islands
OPIÐ hús verður í Verzlunarskóla
íslands laugardaginn 28. maí nk.
kl. 14—17. Nýútskrifuðum grunn-
skólanemum og aðstandendum
þeirra gefst þá kostur á að skoða
húsakynni skólans og ræða við
kennara og nemendur um skólalífið.
Kennarar verða til viðtals við
væntanlega umsækjendur og for-
eldra þeirra og nemendur skólans
kynna félagslíf sitt og nám. Bóka-
safn skólans, sérkennslustofur og
íþróttahús verða til sýnis fyrir gesti
sem og tækja- og tölvubúnaður
skólans.
veitu Akraness og Borgarfjarðar,
HAB, ofarlega hjá öllum flokkum,
enda greiða notendur eitt hæsta
orkuverð hérlendis og skuldastaða
HAB er alls ekki góð.
Guðmundur Guðmarsson skipar
efsta sætið á lista framsóknar-
manna. Að hans sögn leggja fram-
bjóðendur B-listans höfuðáherslu á
þrjú mál í kosningunum. Atvinnu-
málin skipti höfuðmáli fyrir byggð-
arlagið. „Við leggjum ríka áherslu
á að sú úrvinnsla á landbúnaðaraf-
urðum sem er í sveitarfélaginu verði
þar áfram og vaxi og dafni,“ segir
hann. „Einnig leggjum við áherslu
á að þau iðnfyrirtæki sem eru í
sveitarfélaginu búi við sem bestar
aðstæður." Þá leggur Framsóknar-
flokkurinn áherslu á að sameiningin
sem stendur fyrir dyrum takist sem
best. í þriðja lagi stefnir flokkurinn
að því að hefja vinnu í skipulags-
Sigrún Símon- Guðmundur
ardóttir Guðmarsson
málum, bæði í þéttbýlinu og við
svæðisskipulag alls héraðsins í sam-
vinnu við önnur sveitarfélög.
Sigrún Símonardóttir, forseti
bæjarstjórnar og fyrsti maður á
lista sjálfstæðismanna, sagði eftir-
farandi um áherslumál sjálfstæðis-
manna í komandi kosningum:
„Sjálfstæðismenn leggja áherslu á
að öll vinna vegna sameiningar
sveitarfélaganna takist sem best og
til hennar sé vandað. Við munum
setja atvinnumál og umhverfismál
í forgang á næsta kjörtímabili, auk
þess að lausn fáist á allra næstu
mánuðum á málefnum Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar, en það
er mikið hagsmunamál fyrir íbúa
Borgarness.“
Laugarvatni - í fyrsta skipti fer
nú fram hlutbundin kosning í
Laugardalshreppi. í framboði eru
þrír listar en aðeins 174 eru á
kjörskrá. K-listi er listi sitjandi
hreppsnefndar, L-listi er listi
áhugafólks um breyttar áherslur
og vinnubrögð og M-listi er listi
lýðræðisbandalagsins en á honum
eru tveir frambjóðendur.
Laugdælingar fá nú að velja í
fyrsta skipti um mismunandi lista
í hreppsnefndarkosningum um
næstu helgi. Hingað til hefur allt-
af verið um að ræða óhlutbundnar
persónukosningar. Listarnir sem
hér um ræðir eru þannig skipaðir:
K-listi: Þórir Þorgeirsson, odd-
viti, Árni Guðmundsson, garð-
yrkjubóndi, Guðmundur Rafnar
Guðmundsson, skólastjóri, Fanney
Gestsdóttir, hjúkrunarfræðingur,
Halldóra Guðmundsdóttir, hús-
stjórnarkennari, Snæbjörn Þor-
kelsson, byggingafulltrúi, Guðný
Grímsdóttir, bóndi, Pálmi Hilmars-
son, húsbóndi og Haraldur Har-
aldsson, járnsmiður.
L-listi: Elsa Pétursdóttir, bóndi,
Kári Jónsson, framkvæmdastjóri,
Theodór J. Vilmundarson, fram-
kvæmdastjóri, Kjartan Lárusson,
umsjónarmaður, Jóna Gestsdóttir,
umsjónarmaður, Hjördís Ásgeirs-
dóttir, garðyrkjubóndi, Yngvi Páll
Þorfinsson, menntaskólakennari,
Lóa Ólafsdóttir, snyrtifræðingur,
Hrafnhildur Eyþórsdóttir, starfs-
stúlka og Hilmar Bragason,
menntaskólakennari.
M-listi: Hreinn Ragnarsson,
menntaskólakennari og Ólafur
Sigurgeirsson, menntaskólakenn-
ari.
Kjörstaður verður á skrifstofu
Laugardalshrepps frá kl. 10 til 22.
fimmtudag til sunnudags
30 stjúpur
(í bakka)
aðeins
IIIII
(kr. 33,33 stk.)