Morgunblaðið - 26.05.1994, Síða 12

Morgunblaðið - 26.05.1994, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Jónas Baldursson Verklok dragast VERKLOK við nýja íþróttahúsið á Grenivík áttu að vera 15. maí síðastliðinn en fyrirsjáanlegt er að afhending dregst eitthvað og verður verkinu væntanlega skil- að um mánaðamótin. I drögum að samningi sem fylgdi útboðs- gögnum er gert ráð fyrir dag- sektum en ekki er ljóst hvort þær verði innheimtar. Verklokin dragast af ýmsum orsökum, m.a. skorti um tíma efni og þá var verkið stöðvað tímabundið vegna óvissu í atvinnumálum á Greni- vík. Framkvæmdir eru komnar í fullan gang að nýju og hafa þeir Haukur Eríksson, Jón Matthías- son og Jón Björnsson verið að vinna þar af fullum krafti síðustu daga. Fyrirlestur Tími: Fimmtudagurinn 26. maí 1994, kl. 20.30. Staður: Háskólinn á Akureyri við Þingvallastræti, stofa 24. Flytjandi: Halldóra Arnardóttir, listfræðingur. Efni: „Minning um ítölsku borgina." Öllum er heimill aðgangur. Sjávarútvegsdeildin á Dalvík-VMA veturinn 1994-1995 m FISKVINNSLUDEILDIN DALVÍK SKIPSTJÓRNARNÁM: Kennt ertil skipstjórnarprófs, 1. og 2. stigs. FISKIÐNAÐARNÁM: Kennt er til fiskiðnaðarmannsprófs. ALMENNT FRAMHALDSNÁM: 1. bekkurframhaldsskóla. Heimavist á staðnum. Umsóknarfrestur til 10. júní. Upplýsingar í símum 61083, 61380,61160, 61162. Skólastjóri. HÁSKÓLINN A AKUREYRI Kosningadagskrá Leikfélags Akureyrar Kýmar leika við hvum sinn fíngur LEIKFÉLAG Akureyrar verður með opið hús á kosningadaginn, laugar- daginn 28. maí en þá verður flutt dagskrá í tali og tónum sem fengið hefur nafnið „Og kýrnar leika við hvurn sinn fíngur" og er það dregið af ljóðlínu Halldórs Laxness. Leikárinu er nú senn að ljúka og verður síðasta sýning á Óperu- draugnum á föstudagskvöld. Á laugardag vill leikféiagsfólk þakka Akureyringum samskiptin á leikár- inu með því að opna dyr sínar og bjóða til skemmtunar. Að undan- förnu hafa leikarar heimsótt stofn- anir og fyrirtæki og flutt stuttar dagskrár sem nú hafa verið felldar saman í eina heild. Þá hafa söngvar- ar sem sungið hafa í Óperudraugn- um æft nokkur létt lög sem þeir munu flytja en þeir kalla sig Ó.D. kvartettinn. Skralli trúður tekur á móti gestum og kynnir dagskránna með sínu lagi. Dagkráin í Samkomuhúsinu Vor á Akureyri „VOR á Akureyri", baráttufundur Alþýðubandalagsins, verður hald- inn í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14, í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30. Auk stuttra ávarpa verður boðið upp á fjölbreytta menningar- og skemmtidagskrá með tónlist, upp- lestri, gamanmálum og leiklestri. Auk frambjóðenda koma fram Þrá- inn Karlsson, Aðalsteinn Bergdal, Sigurþór Albert Heimisson, Jón Laxdal og Steingrímur J. Sigfússon. hefst kl. 16.00 á laugardaginn og segir í fréttatilkynningu frá LA að tilvalið sé að koma þar við á leið á eða frá kjörstað og njóta skemmt- unar listamannanna, en þeir sem fram koma eru Ágústa Sigrún Ág- ústsdóttir, Bergþór Pálsson, Marta G. Halldórsdóttir, Ragnar Davíðs- son, Aðálsteinn Bergdal, Dofri Her- mannsson, Rósa Guðný Þórsdóttir, Sigurveig Jónsdóttir, Sigurþór AI- bert Heimisson, Sunna Borg og Þráinn Karlsson auk leikhússtjór- ans Viðars Eggertssonar. Bærinn kaupir Að- alstræti 14 BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur samþykkt kaup á húsinu Aðal- stræti 14, gamla spítalanum með fyrirvara um að samning- ar takist við Læknafélag Ak- ureyrar og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Norður- landsdeild um rekstur hússins. Fyrir liggur uppkast að kaupsamningi um húsið milli Akureyrarbæjar og eigenda þess og einnig liggur fyrir að stjóm FSA kann að leggja fram nokkra fjárhæð sem styrk til endurbóta á húsinu. Morgunblaðið/Rúnar Þór Hraðakstri linni í Aðalstræti IBUAR við Aðalstræti eru langþreyttir á hraðakstri um götuna en í fyrrakvöld var ungur ökumaður tekinn á 95 kílómetra hraða þar. Byggð er beggja vegna götunnar og við hana búa mörg börn sem eru á ferðinni frani og til baka. Ibúar við Aðalstræti langþreyttir á hraðakstri um götuna Krafa um að dregið verði úr ökuhraða ÍBÚAR við Aðalstræti eru lang- þreyttir á hraðakstri í gegnum hverfið. Ofsaakstur ungs öku- manns sem lögregla tók á 95 kfló- • metra hraða í fyrrakvöld fyllti mælinn og krefjast íbúarnar þess að tekið verði á málum. Einar Sveinn Ólafsson, formaður Innbæj- arsamtakanna, segir að þeim til- mælum hafi verið beint til bæjaryf- irvalda að gripið yrði til einhverra ráða til að draga úr hraðakstri um götuna. Nefndi hann að hjá tækni- deild Akureyrarbæjar væri búið að hanna þrengingar á götuna og þá lægi einnig fyrir hugmynd að um- hverfi safnanna sem þama eru þar sem gert er ráð fyrir einhvers kon- ar hringtorgi sem án efa myndi draga úr hraðakstri. Barnafólk Einar Sveinn nefndi að á síð- asta ári hefði verið ekið á barn í Innbænum „og nú viljum við að eitthvað verði gert, við ætlum ekki að bíða eftir að eitthvað alvarlegt- gerist“, sagði hann. Kynslóða- skipti hafa orðið í þessum bæjar- hluta og þar býr nú mikið af fólki með börn. Byggð er beggja vegna götunnar og börnin á ferðinni fram og til baka. „Þetta er óviðunandi ástand eins og það er, við íbúam- ir erum til í að gera hvað sem er og leggja okkar af mörkum til að bæta úr en við verðum fyrst að fá einhver viðbrögð frá bæjaryfir- völdum," sagði Einar Sveinn. VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI SKÓLASLIT verða í íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 28. maí kl. 10 árdegis. Skólameistari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.