Morgunblaðið - 26.05.1994, Side 17

Morgunblaðið - 26.05.1994, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 17 Norska stjórnin verst NORSKA stjórnin hélt velli með 83 atkvæðum gegn 80 er van- trauststillaga fjögurra flokka kom til atkvæða í Stórþinginu í fyrrinótt. Deilt var á stjórnina og þó einkum Sigbjorn Johnsen fjármálaráðherra fyrir að skipa Torstein Moland í stöðu seðla- bankastjóra þrátt fyrir að ólokið var rannsókn á meintum skatt- svikum hans. 960 ára fang- elsisdómur FJÓRIR múslimskir öfgamenn hafa verið dæmdir í 240 ára fangelsi hver fyrir aðild að sprengjutilræði í skýjakljúfi við- skiptamiðstöðvar í New York í febrúar í fyrra. Lengd dómsins byggist á því hve langt sex menn sem biðu bana í spreng- ingunni voru taldir hafa átt eftir ólifað. Walesa tilbú- inn að vitna LECH Walesa forseti Pól- lands sagðist í gær tilbúinn til að segja rannsóknar- nefnd pólska þingsins frá „grimmdar- legum sann- leikanum" varðandi setningu herlaga í Póllandi í desember 1981. Walesa var leiðtogi Sam- stöðu, óháðu verkalýðssamtak- anna, er Wojciech Jaruzelski herstjóri greip til herlaga til þess að bijóta Samstöðu á bak aftur. Walesa var fangelsaður og haldið föngnum í 11 mánuði. Norðmaður til SÞ TERJE Roed Larsen, Norðmað- ur sem átti stóran þátt í að frið- arsamningar ísraela og Frelsis- samtaka Palestínumanna (PLO) varð að veruleika, var í gær ráðinn aðstoðarframvkæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Er það æðsta embætti innan stofnunarinnar sem Norðmanni hefur hlotnast frá því Trygve Lie gegndi starfi framkvæmda- stjóra. Góma mafí- ósa í vegg ÍTALSKA lögreglan handtók í gær Vincenzo Lauretta leiðtoga næst stærstu glæpamafíu Sikil- eyjar, Stidda. Fannst hann í feluhólfi í húsvegg á heimili sínu eftir að hafa farið huldu höfði í sjö ár. Hann hefur verið kærð- ur fyrir morð, fjárkúganir, rán og aðra glæpi. Leiðtogakjör í næsta mánuði NÝR leiðtogi Verkamanna- flokksins í Bretlandi verður út- nefndur 21. júlí en leiðtogakjör hefst 10. júní. Veðmangarar telja líklegast að annað hvort Tony Blair, talsmaður flokksins í innanríkismálum, eða Gordon Brown, talsmaður flokksins í fjármáíum, erfi leiðtogahlult- verk Johns Smiths sem lést úr hjartaslagi 12. maí. Þeir teljast til hægri í flokknum en helsta von vinstri armsins er John Prescott, sérfræðingur flokksins í atvinnumálum. Walesa Bækur með marglitum abstraktmyndum seljast eins og heitar lummur Töfrarnir búa í augum lesenda London. The Daily Telegraph. TVÆR bækur, uppfullar af marg- litum abstraktmyndum, hafa farið mikla sigurför um löndin að undanförnu. í fljótu bragði virðast þær þó ekki hafa neitt inni að halda nema litskrúðið eitt en þær leyna á sér. Ef horft er nógu lengi leysast myndirnar upp og í ljós kemur lifandi þrívíddarmynd — t.d. andlit, dýr, blóm — sem áður var falin í punktum og hringjum frummyndarinnar. Þegar menn sjá þessa ummynd- un í fyrsta sinn verða þeir yfirleitt furðu lostnir og fyrstu viðbrögðin eru löngun til að deila upplifuninni með öðrum. Þeir sjá því um að auglýsa bækurnar útgefendum að kostnaðarlausu. 10 vikur á toppnum „Töfraaugað“, önnur bókanna, var efst á lista yfir söluhæstu bækurnar í New York í 10 vikur og í Japan seldust 750.000 eintök á átta mánuðum, 200.000 á einum mánuði í Suður-Kóreu og í Þýska- landi seljast nú um 2.000 eintök á dag. Þá hefur hún einnig selst vel í Bretlandi. Mark Gregorek í Ramsey í New Jersey, sem hefur einkaleyfi á myndunum, segir, að allir eigi að geta komið auga á þrívíddarmynd- irnar fylgi þeir leiðbeiningunum en þó tók það hann sjálfan þrjár vikur. „Ég náði því loks þegar ég var eins og annars hugar og starði út í bláinn. Þá hlýt ég að hafa beitt augunum rétt,“ sagði hann en kúnstin er að horfa í gegnum myndina án þess þó að stara. Sem dæmi má nefna, að í fyrsta „Töfra- auganu" breyttist mynd af rauðum rósum á hvítum grunni í risastórt hjarta í þrívídd. Blómabarn Maðurinn á bak við þetta allt saman er Tom Biccel, fyrrverandi blómabarn, trésmiður og hermað- ur í fiughernum, en eitt af áhuga- málum hans hefur lengi verið þrívíddarljósmyndun. Fyrsti fundur nýkjörins þings Suður-Afríku Liðsmaður Mussolinis formaður þingnefndar Róm. Reuter. MIRKO Tremaglia, 67 ára nýfas- isti sem barðist í seinna stríðinu í sveitum Benitos Mussolinis var kjörinn formaður utanríkisnefndar neðri deildar ítalska þingsins í gær. Líklegt þykir að kjör Tremaglia eigi eftir að valda ráðamönnum á Vesturlöndum áhyggjum og sá efa- semdum um ríkisstjórn Silvios Ber- lusconis forsætisráðherra. Hann er í harða kjarna flokks nýfasista og í forystu þeirra sem reynt hafa aðhalda merki Mussolinis á lofti. Tremaglia barðist 1943-45 í sveit- um fasistaríkisins Salo sem Mus- solini stofnaði á hernámsvæðum Þjóðveija á Norður-Ítalíu. ítalskir fréttaskýrendur líta á kjör hans sem sárabót fyrir að hann varð ekki ráðherra. Tremaglia var kjörinn formaður utanríkisnefndarinnar með at- kvæðum 24 nefndarmanna en mótframbjóðandi hans Emma Bonnino hlaut 23 atkvæði. Hann olli stjórnvöldum í Slóveníu og Króatíu áhyggjum í síðasta mánuði með yfirlýsingum um að ítölum bæri að fá aftur land sem þeir misstu eftir stríð meðfram Istrian- ströndinni og Dalmatíuströnd fyrr- um Júgóslavíu. aeuter Frelsi og bætt kjör Höfðaborg. Reuter. FYRSTI fundur nýs þings allra kynþátta í Suður-Afríku kaus í fyrradag Cyril Ramaphosa, framkvæmdastjóra Afríska þjóðarráðsins, forseta stjórnarskrárþingsins en verkefni þess verður að semja nýja stjómarskrá. Nelson Mandela, forseti S-Afríku, hét í ræðu sinni að koma á fót ríki, sem hefði manninn og frelsi hans í öndvegi, og boðaði útgjöld í því skyni að uppræta afleiðingar aðskilnaðarstefnunnar. Stjórnarskrárþingið kom saman til síns fyrsta fundar nokkrum klukkustundum áður en Mandela flutti sína fyrstu ræðu á þingi en stefnt er að því að ný stjómar- skrá liggi fyrir ekki síðar en eftir tvö ár. Kvaðst Ramap- hosa, sem er 41 árs gamall, líta á kjör sitt sem forseta sem mikinn virðingarvott við sig og um leið kvaðst hann gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð, sem starfinu fylgdi. Mandela sagði í ræðu sinni, að stjórnin myndi tryggja pólitísk réttindi og mannréttindi allra landsmanna og tilkynnti, að hátt í 50 milljörðum ísl. kr. yrði varið til að bæta heilsugæslu, húsnæðismál og menntun þeirra, sem mest hefðu liðið fyrir aðskilnaðarstefnuna. Þá hét að koma á ókeypis heilsugæslu fyrir börn undir sex ára aldri og ófrískar konur á fyrstu 100 dögum stjórn- arinnar. Reuter Ræða um náðun fanga FERDl Hartzenberg, leiðtogi íhaldsflokksins í Suður-Afríku (t.h.), ræðir við Nelson Mandela, forseta Suður-Afríku. Þeir ræddu meðal annars náðun hægrisinnaðra pólitískra fanga og hug- myndir um aukna sjálfstjórn Búa. Minnast Títós í Sarajevo KONA í Sarajevo kyssir styttu af Josip Broz Tító, leiðtoga fyrrverandi Júgóslavíu, eftir að hafa lagt blómsveig að stytt- unni. Afmælis Títós var minnst í fyrrverandi lýðveldum Júgó- slavíu í gær en dagsins er jafn- framt minnst í ríkjum fyrrum Júgóslavíu sem dags æskunnar. VONTAR *. i. í BIL 03313 111:130 BUESH£BUR SÝNIMfiABSftlUB Saab 9001, árg. '87, 5 gra, ek. 114 þs. km, sóllga, álfelg. Góð kjör. Verð 650.000,-. Subaru stw 4x4 dl,árg. '90,5 gra, ek. 71 þs. km. Sk. mögul. Verð 930.000,-. MMC Pajero, árg. '90, turbo, diesel, intercooler, 5 gra, ek. 79 þs. km. Góö kjör. Verö 1.650.000,-. Nissan Micra GL.árg. '89, 5 gra, ek. 69 þs. km. Verð 480.000,-. MMC Galant gls, árg. '88, 5 gra, ek. 94 þa. km. Sk. mðgul. Verð 780 þs. Mazda 626 glx station, árg. '89, sjálfsk., ek. 89 þs. km. Verö 890 þs. Toyota Hilux, árg. '90, Double cab diesel, 5 gra, ek. 81 þs. km. V6rð 1450 þs. Renauit Express, árg. '90, m/gluggum, ek. 80 þs. km. Wrð 620 þs. Subaru station 4x4, árg. '88, ek. 118 þs. km. Verð 780 þs. Mazda E2200 diesel, árg. '88, pallbll. Verð 390 þs. BÍLASALAN BÍLFANG HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK © 91 -879333

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.