Morgunblaðið - 26.05.1994, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 26/MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
PFAFF
ÞAR SEM
HEIMILISTÆKIN FÁST
CANDY PVOTTAVÉL 14 þvottakerfi,
5 kg, 800sn.vinda og sparnaðarrofi.
►
CANDY ÞURRKARI. Snýst i báðar áttir.
5 kg. Timarofi 0-120 mínútur.
CANDY KÆLI/FRYSTISKÁPUR.
Kælir 225 Itr. frystir 92 Itr. Mál.T63x60x60
CANDY UPPPVOTTAVÉL Hljóðlát
og sparneytin 8-12 manna, 5 kerfi
CANDY TR(Ó Eldavél 4 hellur, ofn/grill
og uppþvottavél 6 fnanna, (einu tæki.
Upplýsingar um
umboðsaðila
hjá Gulu línunni
! frll v^--Y rriió'h?! FrV>
PFAFF
; BORGARTÚNI 20
sími 626788
'A'/1 SAV‘A
LISTIR
Norðurljós
í fimmtíu ár
Norðurljós í fímmtíu ár er
yfirskrift sérstakrar menn-
ingardagskrár sem haldin
verður í London í maí og
júní í tilefni lýðveldisaf-
*
mælis Islands. Það er
Jakob Magnússon, menn-
ingarfulltrúi, sem staðið
hefur að undirbúningi há-
tíðarinnar. Á hátíðinni
kemur fram fjöldi íslenskra
listamanna en hún stendur
frá 26. maí.
Sverrir
Guðjónsson
FYRSTA atriði hátíðarinnar er
opnun á sýningu sex íslenkra
kvenna í The Barbican Concourse
Galleris. Það eru þær Hulda Há-
kon, Ráðhildur Ingadóttir, Guðrún
Hrönn Ragnarsdóttir, Inga Þórey,
Svava Björnsdóttir og Sólveig Að-
alsteinsdóttir sem taka þátt í sýn-
ingunni. Hún ber titilinn Visions
eða Sýnir og eru bæði málverk og
skúlptúrar á henni.
Sautján ungir listamenn halda
samsýninguna Outlawed í Shad
Thames Galleries sem opnar mið-
vikudaginn 1. júní. Titill sýningar-
innar kemur til af því að margir
þátttakendanna búa erlendis, í
Englandi, Skotlandi og Hollandi. Á
sýningunni kennir ýmissa grasa.
Þar verða m.a. höggmyndir, kvik-
myndir, myndbönd, bækur og ljós-
myndir.
Helgi Valgeirsson og Steinunn
Helgadóttir sýna saman í Shad
Thames Galleries og hefst sýningin
fimmtudaginn 9. júní. Sveinn L.
Björnsson hefur samið tónverk sem
ber titilinn Ripples eða Gárur til
að flytja með verkum Steinunnar.
Guðni Franzson leikur tónverkið
við opnun sýningarinnar.
Sýning á verkum Helga Þorgils
Friðjónssonar, Daða Guðbjörns-
sonar og Sigurðar Árna Sigurðs-
sonar verður í The Cork Street
Galleries.-Hún opnar 14. júní og
ber titilinn Well of Light. Hafdís
Bennet og Helga Lára Haralds-
dóttir opna sýningu með verkum
sínum sunnudaginn 19. júní. Sýn-
ingin verður í St. Martin’s Crypt
Gallery og er nefnd íslenskar list-
konur í London.
Tónlist
Á meðan á hátíðinni stendur mun
Langholtskirkjukórinn undir stjórn
Jóns Stefánssonar halda tónleika
víðsvegar um Bretland en tónlist
er stór hluti af menningardag-
skránni. Edda Erlingsdóttir, píanó-
leikari, verður með tónleika föstu-
daginn 3. júní. Hún mun m.a. flytja
verk eftir íslensk tónskáld eins og
Jón Leifs, Hjálmar Ragnarsson,
Atla Ingólfsson og Hafliða Hall-
grímsson. Sigríður Ella Magnús-
dóttir syngur í St. John’s Smith
Square sunnudaginn 5. júní og
Bjöm Steinar Sólmundsson orgel-
leikari leikur í St. Martin’s in the
Fields miðvikudaginn 8. júní. Cap-
ut ensemble leikur í Wigmore Hall
sama dag. Það eru þau Guðni
Franzson klarínettleikari, Kolbeinn
Bjarnason flautuleikari, Auður
Hafsteinsdóttir fiðluleikari og
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleik-
ari sem flýtja efni eftir íslensk
samtímaskáld.
Trio Nordica sem að standa
Auður Hafsteinsdóttir, Bryndís
Halla Gylfadóttir, og Mona Sandst-
rom píanóleikari halda tónleika í
St. Martin’s in the Fields föstudag-
inn 10. júní. Sama dag leikur Blás-
arakvintett Reykjavíkur í Wigmore
Hall. Miklir tónleikar verða síðan
haldnir í Regents Park sunnudag-
Einar Jóhannesson
inn 12. júní og koma þar fram
margir íslenskir listamenn. Mið-
vikudaginn 22. júní flytja síðan
Sverrir Guðjónsson, tenór, og
Snorri Örn Snorrason, flautuleik-
ari,_ miðaldatónlist í St. Martin’s.
Áhangendur rokktónlistar fá
einnig eitthvað fyrir sinn snúð af
því að hljómsveitin The Bubbleflies
spilar í the Soundshaft Club mið-
vikudaginn 15. júní. Tónlist verður
jafnframt stór hluti af skemmti-
dagskránni á þjóðhátíðardaginn
sjálfan 17. júní.
AUÐUR Hafsteinsdóttir,
Mona Sandstrom og Bryndís
Ýmislegt
Hluti af hátíðinni fer fram um
borð í skipinu Leifi Eiríkssyni.
Búið er að breyta skipinu þannig
að hægt er að halda bæði tónleika
og sýningar um borð og verður
boðið upp á fjölbreytta dagskrá á
meðan á hátíðinni stendur.
Arthúr Björgvin Bollason heldur
gamansaman fyrirlestur um ís-
lensku þjóðina í Cinema 3, Barbic-
an Centre 15. júní. Honum til að-
stoðar verður leikkonan Jórunn
Sigurðardóttir. Þessi fyrirlestur
verður ekki eina atriðið í kvik-
myndasölum Barbican Centre.
Kynning á myndum Hrafns Gunn-
laugssonar verður þar 18.-20. júní.
I tengslum við hátíðina verður
rekin útvarpsstöð, Radio Reykja-
vík, milli 10. og 26. júní. Dagskrá
hátíðarinnar verður kynnt í útvarp-
inu og eingöngu verður flutt ís-
lensk tónlist.
Dagskrá hátíðarinnar heldur
eitthvað áfram í júlí með tónleikum
með íslenskum listamönnum. Allir
verða tónleikamir haldnir í St.
Martin’s in the Fields. Sigurður
Halldórsson sellóleikari og Daniel
Halldórsson píanóleikari leika þar
föstudaginn 15. júlí, Auður Haf-
steinsdóttir fiðluleikari mánudag-
inn 18. júlí, Örn Magnússon píanó-
leikari þriðjudaginn 19. júlí og
Hallfríður Olafsdóttir flautuleikari
föstudaginn 22. júlí.
Kiósið réttu plönturnar!
stendur í blóma
Limgerðisplöntur, skógarplöntur, tré, sumarblóm,
áburður, trjákurl, verkfæri og margt fleira.
Nýtt: Lífmold, ljúf til ræktunar.
Opið 8-19 - um helgar 9-17
SKI
rEYXJAV
STOFNAÐ 194®
SKÓGRÆKTARFÉLAG REYKJAVÍKUR
Fossvogsbletti 1, fyrirneðan Borgarspítalann, sími 641770. Beinn sími söludeildar 641777