Morgunblaðið - 26.05.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 19
LISTIR
KRISTINN Sigmundsson og Jónas Ingimundarson halda tón
leika í Borgarleikhúsinu n.k. mánudagskvöld.
Kristinn
og Jónas í
Borgar-
leikhúsinu
KRISTINN Sigmundsson og Jónas
Ingimundarson halda tónleika í
Borgarleikhúsinu n.k. mánudags-
kvöld þann 30. maí kl. 20.30.
Kristinn er nýkominn frá Þýska-
landi, eftir þriggja vikná dvöl.
Hann söng hlutverk Raphaels og
Adams í Sköpuninni eftir Haydn í
Musikhalle í Hamborg. Síðan lá
leiðin til Dresden, þar sem hann
söng hlutverk Alidorors í Öksu-
busku Rossinis. Að lokum söng
hann ljóðaflokkinn „Die Schöne
Magelone" eftir Brahms á listahá-
tíðinni í Wiesbaden.
Á efnisskránni á mánudags-
kvöldið verða Rellstab-ljóðin úr
Svanasöng Schuberts og aríur eft-
ir Rossini, Berlioz, Gounod, Mozart
og Verdi.
Forsala aðgöngumiða er í
Borgarleikhúsinu.
Skagfirska söngsveitin komin heim frá írlandi
Tók þátt í aðalkeppni
sönghátíðarinnar í Cork
SKAGFIRSKA söngsveitin í
Reykjavík er nýkomin heim úr
söngferðalagi frá írlandi, þar
sem hún tók þátt í alþjóðlegri
kórakeppni, „Cork Internat-
ional Coral Festival". Dansarar
og söngvarar frá ýmsum lönd-
um taka þátt í hátíðinni og í
ár komu 5.500 manns þar við
sögu.
Keppnin í ár var margþætt,
segir í fréttatilkynningu frá
Skagfirsku söngsveitinni. Þar
komu fram skólakórar, bland-
aðir kórar, kvenna- og karla-
kórar og keppt var í mismun-
andi greinum tónlistar.
Aðalkeppni hátíðarinnar,
Trophy International Compet-
ition, var sá Iiður sem Skagf-
irska söngsveitin tók þátt í. Af
þeim tuttugu kórum sem sóttu
um rétt til þátttöku í þeirri
keppni, komust níu að og einn
af þeim var Skagfirska söng-
sveitin. Keppniskórarnir fluttu
þjóðlög frá heimalöndum sín-
um til að undirstrika þjóðlegan
blæ. Kvöldið eftir var keppnis-
dagskráin flutt og fékk Skag-
firska söngsveitin mjög góðar
undirtektir á öllum tónleikun-
um, segir ennfremur.
Auk þess að taka þátt í sjálfri
keppninni, sungu allir kórarnir
víðsvegar um borgina; á götum
úti, í stórmörkuðum og í kirkj-
um. Einnig ómaði allt af hljóm-
sveitarleik og dansi, þannig að
borgin iðaði öll af söng og
dansi og mikilli gleði.
Vetrarstarf Skagfirsku
söngsveitarinnar hefur verið
mjög öflugt í vetur og búið er
að halda 15 tónleika á starfsár-
inu. Auk þess er stefnt að út-
gáfu geisladisks með haustinu,
sem verið er að vinna að þessa
dagana.
E g bið að heilsa
TÓNLIST
Islcnska ópcran
EINSÖNGUR
Einsöngur: Sigríður Ella Magnús-
dóttir. Píanóleikari: Jónas Ingi-
mundarson. Islensk einsöngslög.
24. maí 1994.
TÓNLEIKAR Sigríðar Ellu
Magnúsdóttur og Jónasar Ingi-
mundarsonar vpru haldnir undir
yfirskriftinni „Ég bið að heilsa“
og hugsaðir auk þess sem af-
mælisgjöf, vegna 50 ára afmæl-
is endurreisnar lýðveldis á Is-
landi. Efnisskrá tórtleikanna var
sótt til 20 íslenskra tónskálda,
með sönglagasnillinginn Sig-
valda Kaldalóns í heiðurssæti,
með fimm lög.
Um valið á lögunum ritar
söngvarinn í efnisskrá eftirfar-
andi: „Það er vandi að velja lög-
in sem ég syng í kvöld. Sum
hef ég ætlað að syngja árum
saman en ekki komið í verk,
önnur eru uppáhaldslögin mín
og nokkur eru lítt þekkt og því
forvitnileg. Val mitt er ekki
ætlað sem yfirlit eða gæðamat
á íslenskum sönglögum, aðeins
lög úr ýmsum áttum sem mig
langar að flytja ykkur þessa
kvöldstund.“
Það var einmitt þessi „löng-
un“, sem einkenndi tónleikana,
að syngja og tjá það litróf til-
finninga, sem býr í ljóði og lagi.
Ást söngkonunnar á söngvum
þessum kom hvað sterkast fram
í Ég bið að heilsa eftir Inga T.
Lárusson, sem var upphafslag
tónleikanna, Draumalandinu
eftir Sigfús Einarsson og Nótt
eftir Áma Thorsteinsson, er var
afburða fallega sungið. Önnur
lög, sem voru eftirminnilega vel
flutt, mætti tiltaka t.d. Máskin
eftir Eyþór Stefánsson, Við
Vatnsmýrina eftir Sigfús Hall-
dórsson, Hvert örstutt spor eftir
Jón Nordal, Vísur Vatnsenda-
Rósu og af lögum Sigvalda,
Svanasöngur á heiði, Vorvísur
(ekki rétt ljóð í efnisskrá) og
síðast en ekki síst, Betlikerling-
in.
Glaðlegri og leikrænni lögin
voru skemmtilega sungin en þar
mætti til nefna Afa gamla eftir
Atla Heimi Sveinsson, smellið
lag eftir Þorkel Sigurbjörnsson,
sem ber nafnið Hagamús, og
Spjallað við spóa eftir Karl O.
Runólfsson, en eftir hann söng
Sigríður Ella einnig söngperluna
I fjarlægð. Eitthvað, sem kalla
mætti raddlegt ósætti, ein-
kenndi söng Sigríðar Ellu í lagi
Jórunnar Viðar, Gestaboð um
nótt, og Lágnætti eftir Sigu-
svein D. Kristinsson. Sama má
segja um lag Leifs Þórarinsson-
ar, við vögguvísuna frægu Þei
og ró ró eftir Jóhann Jónsson.
Jónas Ingimundarson píanó-
leikari átti stóran hlut í fagurri
tónmótun laganna og það er
gróinn siður að þakka af alúð
fýrir góðar gjafir, sem þessir
tónleikar voru og biðja fyrir
kveðjur, eins og Jónas Hall-
grímsson forðum, er hann bað
þröstinn, vorboðann ljúfa, bera
kveðju sína heim til Islands.
Jón Ásgeirsson
Tímarit
■ ANNAÐ hefti Tímarits
Máls og menningar (2/1994)er
komið út. Uppistaðan í tímaritinu
er að þessu sinni þríþætt. 1) Þijár
greinar sem tengjast ljósmyndum
og eðli þeirra á einn eða annan
hátt. 2) Þijú ávörp sem flutt voru
þegar stílverðlaun Þórbergs Þórð-
arsonar voru afhent Þorsteini
Gylfasyni 30. mars sl. 3) Nýtt og
afar ítarlegt viðtal við franska
heimspekinginn Jacques Derrida.
í fréttatilkynningu segir:
Derrida er einn af þekktustu
hugsuðum samtímans, en hann
kom hingað til lands síðastliðið
haust í boði Háskóla íslands og
hélt m.a. fyrirlestur fyrir troðfullu
Háskólabíói. Derrida kemur víða
Við í viðtalinu og veltir fyrir sér
ýmsu sem er daglega til umræðu
nú um stundir, s.s. fréttum, frétta-
mati fjölmiðla, þjóðerni og kyn-
þáttahatri. Páll Skúlason, prófess-
or í heimspeki við HÍ, skrifar aðf-
araorð að viðtalinu við Derrida.
Af öðru efni í vorhefti TMM má
nefna ljóð eftir palestínska og lett-
neskar skáldkonur, ljóð eftir T.S.
Eliot og einn af síðustu textum
Samuels Becketts, en þeir Beckett
og Eliot eiga það sameiginlegt að
hafa hlotið bókmenntaverðlaun
Nóbels. Loks má nefna grein eftir
Gyrði Elíasson rithöfund um velska
skáldjöfurinn John Cowper Powys.
TMM frumbirtir að vanda tölu-
vert af íslenskum skáldskap, s.s.
tvö ljóð eftir Sjón til minningar
um Dag_ Sigurðarson, ljóð eftir
Kristján Árnason, Árna Ibsen, Jón
Stefánsson, Lárus Má Björnsson,
Hallgrím Helgason og sögu eftir
ungan höfund, Þórarin Torfason.
Auk þess eru vandaðir ritdómar á
sínum stað.
Verk á forsíðu TMM er eftir
Halldór Ásgeirsson myndlistar-
mann. Ritstjórí Tímaríts Máls og
menningar er Fríðrík Rafnsson.
Það er 120 bls., unnið íPrentsmiðj-
unni Odda hf. TMM kemur út fjór-
um sinnum á ári og kostar ársá-
skrift 3.300 krónur.
Gunnar
Bragi Arnór
Guðni Halla
KOPAVOGSBUAR
Við erum á kosningaskrifstofu okkar í Hamraborg 1,3. hæð , alla daga, enda nóg að gera. Þið eruð
velkomin í létt spjall og ávallt er heitt á könnunni.
Á kosningaskrifstofunni eru veittar allar upplýsingar um tilhögun kosninganna 28. maí.
Á kjördag keyrum við þá sem þess óska á kjörstað, pantið keyrslu í síma 644332.
Símar kosningaskrifstofunnar eru 40708, 40805, 644327, 644328, 644329, 644331, og fax 40708.
X-D
Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi.