Morgunblaðið - 26.05.1994, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 26.05.1994, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ BORGAR- OG SVEITARSTiÓRNARKOSIMIIMGARIMAR 28. MAÍ Svo skal böl bæta..! NÚ NÝVERIÐ horfði ég á fréttir á þeirri ágætu Stöð 2. Þar komu til viðræðna við fréttamann þær Guðrún Ágústsdóttir fyrir hönd Reykjavík- urlistans og Jóna Gróa fyrir hönd Sjálfstæðis- flokksins. Ein af spurningum frétta- manns var tengd hag ungra Reykvíkinga og hvað framboðin hefðu í hyggju varðandi þeirra hagsmuni. Jóna Gróa var fljót að svara því til að fjölga þyrfti leigubílum í miðbænum um helgar, þá sérstaklega með ungt fólk í huga! Guðrún Ágústsdóttir taldi brýnustu þörfína liggja í því að eyða atvinnuleysi meðal ungs fólks. Eg spyr: „Er stefna Sjálfstæðis- manna í Reykjavík virkilega svo tilviljanakennd að svarið sem borg- Ungir Reykvíkingar hafa valkost um stein- steypta stefnu Sjálf- stæðisflokksins, segir Grímur Atlason, eða manneskjuna í öndvegi. arbúar fá þegar spurt er um mál- efni ungs fólks, sé á þá leið að fjölga þurfi leigubílum?“ Það hefur einnig farið þó nokkuð fyrir þeim fullyrðingum að leiðir til bjargar atvinnumálunum í borg- inni séu engar hjá Reykjavíkurlist- anum. í Morgunblaðinu, nánar til- tekið í Reykjavíkurbréfi dagsettu 21. maí, segir: „Hér var það Árni Sigfússon, borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, sem setti fram raunhæfar hugmyndir í at- vinnumálunum, sem nú eru orðnar að veruleika en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem boðar í orði athafn- ir R-listans gagnvart aðgerðarleysi Sjálfstæðisflokksins, situr nú eftir án þess að hafa einu sinni sett á blað hugmyndir, sem hægt er að notast við.“ Hvernig er hægt að segja þetta í ljósi þess að í Reykjavík einni eru 3000-4000 einstaklingar án at- vinnu. Eru þetta kannski hinar raunhæfu hugmyndir Árna Sigfús- sonar sem nú eru orðnar að veru- leika? í þessu sama Reykjavíkurbréfi er rætt um kosningabar- áttu Reykjavíkurlist- ans: „Af þessum sök- um hafa þeir gripið til þess ráðs, sem vinstri menn hafa alltaf talið ógeðfellt, þ.e. til per- sónudýrkunnar. Kosn- ingabarátta þeirra hef- ur algjörlega snúizt um Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur en öðrum frambjóðendum haldið til hlés.“ Það er alveg ljóst að hér getur ekki ann- að verið en nafnaruglingur á ferð- inni því persónu Árna Sigfússonar hefur nær eingöngu verið haldið á lofti í baráttu þeirra „hægri manna“ til að viðhalda ólýðræðis- legum stjómarháttum hér áfram. Auglýsingar nú undanfarið eru gott dæmi _um dýrkunina þar sem myndir af Árna og konu hans hafa birtst í blöðum með undirskriftinni: „Við treystum Árna og Bryndísi." Sjálfstæðismenn treysta Árna og Bryndísi til að fara ein borgarmálin ein útaf fyrir sig. Hvergi hef ég séð auglýstan stuðning við aðra sem eru á þessum lista Sjálfstæðis- manna og má því segja að Sjálf- stæðismenn treysti aðeins Árna af listanum og síðan utanaðkomandi aðila honum til hjálpar - konu hans. Hvað er persónudýrkun ef ekki þetta? Reykjavíkurlistinn hefur komið fram með málefni og leiðir sem ég tel að höfundur(ar) Reykjavíkur- bréfs og aðrir hægrimenn ættu að kynna sér áður en þeir koma með fullyrðingar um annað. Leið Sjálf- stæðisflokksins er nú sem áður sú að rægja mótframbjóðendur sína, í von um að kjósendur blindist af ljótleika áróðursins og sjái ekki staðreyndir lífsins hér í borg. Orð eins af borgarskáldunum eiga vel við um kosningabaráttu Sjálf- stæðismanna: „Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað.“ Ungir Reykvíkingar á öllum aldri standa frammi fyrir tveimur val- kostum: Að kjósa yfir sig stein- steypta stefnu Sjálfstæðisflokksins í ljögur ár til viðbótar eða lýðræðis- lega stjóm Reykjavíkurlistans þar sem manneskjan er í öndvegi og talað er um atvinnusköpun en ekki „leigubíla"! Höfundur er nemandi í Þroskaþjálfaskóla íslands. Grímur Atlason. Ingibjörg Sólrún á móti frjálsri samkeppni og rýmri afgreiðslutíma A SIÐUSTU árum hafa reglur um af- greiðslutíma verslana í Reykjavík verið rýmk- aðar til muna. Kaup- menn og neytendur hafa tekið þessum breytingum vel og nú þurfa Reykvíkingar ekki lengur að fara í önnur bæjarfélög ef þeir vilja versla á kvöldin og um helgar. Fyrir átta árum rýmk- uðu sjálfstæðismenn í borgarstjórn, með Áma Sigfússon í broddi fylkingar, af- greiðslutíma verslana í Reykjavík. Rök þeirra voru meðal annars þau að breyttir atvinnuhætt- ir kölluðu á breytingar. Sífellt færri konur ynnu heima við og því þyrfti að gera fólki kleift að gera innkaup á kvöldin eftir langan vinnudag. Þá væri þetta einnig réttlætismál fyrir vaktavinnufólk. Gegn hagsmunum kvenna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóraefni R-listans, barðist harðlega gegn öllum tillögum sjálf- stæðismanna um rýmri verslunar- tíma og þar með gegn hagsmunum kvenna. í borgarstjórnarumræðu um rýmri verslunartíma árið 1986 sagði hún meðal annars: „Ástæðan fyrir því að ég hafnaði því er að ég er ekki sannfærð um að þetta sér spor í rétta átt að taka þessa reglugerð upp og rýmka verslunartím- ann.“ Neyðarverslun einokunarinnar í stað þess að rýmka afgreiðslutíma vildi Ingibjörg Sólrún að borgaryfirvöld kæmu á fót „neyðarverslun í Reykjavík" þannig að „á einhveijum einum stað sé hægt að versla eftir lokunartíma.“ Sem fyrirmynd að þessari neyðarverslun nefndi hún verslun á aðaljárnbrautarstöðinni í Kaupmannahöfn sem margir Is- lendingar þekkja. Ef Ingibjörg Sól- rún hefði verið borgarstjóri árið 1986 hefði hún því að öllum líkind- um leyst umrætt vandamál með því að stofna nýtt borgarfyrirtæki, ein- okunarverslun sem hefði verið opin utan hefðbundins afgreiðslutíma, sem þá var frá 9-18. Á móti samkeppni Fáir velkjast í vafa um að stór- aukin samkeppni í verslun á höfuð- borgarsvæðinu hafi leitt til lægra vöruverðs og meira vöruúrvals. Með því að búa verslun og öðrum at- vinnugreinum sem best skilyrði í Stóraukin samkeppni í verslun hefur lækkað vöruverð, að mati Þórð- ar Þórarinssonar, sem segir Ingibjörgu Sól- rúnu andstæðing frjálsrar verslunar. Reykjavík telja sjálfstæðismenn að tryggt sé að samkeppni fái notið sín neytendum til hagsbóta. Ingi- björg Sólrún hefur hins vegar verið andstæðingur fijálsrar samkeppni eins og sannaðist til dæmis þegar hún reyndi að bregða fæti fyrir byggingu Kringlunnar í borgar- stjórn. Arið 1987 tók hún hins veg- ar af allan vafa um viðhorf sitt til samkeppni en þá lét hún þessi orð falla í borgarstjórn: „Ég held að samkeppni sé dýr og almennt til leiðinda." Reykvíkingar þurfa ekki borgarstjóra sem kann ekki að svara kalli tímans um aukið fijáls- ræði í verslun og viðskiptum með þeim hætti sem Ingibjörg Sólrún gerði í borgarstjórn árið 1986. Höfundur er varaformaður Heimdallar, Félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Þórður Þórarinsson. Hvað er nýtt við Reykjavíkurlistann? EINA nýjungin á „Reykj avíkurlistan- um“ er nafngiftin. Þar bjóða sig enn einu sinni fram sömu gömlu and- litin og undanfarin ár og áratugi hafa lýst sig til þjónustu reiðubúin. Hver trúir því að nú sé á ferð ný og betri stefna; slæmir voru þeir hver í sínu lagi en - margfeldið af fjórum slæmum er ekki einn góður heldur íjórslæmur eða m.ö.o. alvondur. Einar S. Á sama tíma og níu Hálfdánarson þúsund Reykvíkingar völdu nýjan lista með nýju fólki með ferskar hugmyndir voru vinstri flokkslínurnar, hver í sínu horni, að velja sína frambjóðendur. Þar var greinilega gott fólk fyrir á listunum því að gamla settið var allt dregið fram en Sólrún fengin af Alþingi þar sem flokkssystur henn- ar hafa haft hana í pólitískri sóttkví út af EES. Hún vill augljós- lega flest til vinna að losna þaðan, meir að Gamla settið var dregið fram og Sólrún fengin af Alþingi, segir Einar S. Hálfdánarson, og framboð í felulitum varð til. segja að draga framsókn að landi. Astæða er til að hvetja kjósendur í borginni til að ná sér í lista með nöfnum hugsanlegra borgarfull- trúa „Reykjavíkurlistans" þótt hon- um sé skiljanlega ekki mikið haldið á lofti. Og mér er spurn: Ef þið gátuð ekki treyst þeim áður en þeir fóru í feluíitina, hvers vegna þá að treysta þeim núna? Höfundur er lögfræðingur og löggiltur endurskoðandi. l I I I ) I > ) ) \ > ) ) ) ) I I D — þá borgin dillar sér... MINNIHLUTAFLOKKARNIR í borgarstjóm hafa nú ruglað sam- an spilunum sem hver um sig hafði á hendi og eru nú í óða önn að leggja sinn sameiginlega kosn- ingakapal, sem gengur ekki upp. Það er vegna þess að t.d. spaða- drottningarnar eru allt í einu orðn- ar fjórar og þá er spurningin, hvaða vægi hver um sig á að hafa? Kóngamir hafa fjórfaldast éfns og drottningamar og fyrirsjáanleg er mikil togstreita og skoðanaágrein- ingur um ákvarðanir. Það er ekki gott að búa við rifrildi og ágrein- ing. Hlýtt og bjart um bæinn Reykjavíkurborg hefur þroskast og dafnað á undanförnum ámm enda ekki þurft við það að búa R — þá fer verr að taka út mikilvægt vaxtarskeið undir álagi ósamkomulags og þrætu. Þvert á móti. Enda er hún orð- in bráðmyndarleg. Mikil áhersla hefur verið lögð á að fegra hana og prýða. Gróð- ursetningarátak, fjöl- skyldugarður, hreins- un strandlengjunnar, Elliðaárdalur, göngu- stígar, endurnýjun skólalóða, uppbygging miðbæjarins, („af bemskuglöðum hlátri strætin óma“), hafn- arsvæðið, með mót- Margrét Theodórsdóttir á Perluna í Öskjuhlíð- inni, sem er mikið að- dráttarafl lands- manna jafnt sem út- lendinga. Áfram Reykjavík Samstilltur hópur sjálfstæðismanna hef- ur unnið af krafti að þessum málum og öðrum. Það var gott að starfa undir for- stu Markúsar Arnar. starfi borgar- stjórnarflokksins duldist mér ekki, að Markús er afar vel að sér um málefni borg- töku fyrir skemmtiferðáskip, Tjarnarsvæðið . .. og svo glampar arinnar. Hann hefur yfir mikilli reynslu að búa, bæði sem stjórn- málamaður og embættismaður og hann vann sér virðingu samverka- fólksins á stuttum tíma. Á þessum þremur árum sem hann sat í borg- arstjórastólnum kynntist hann vinnubrögðum hvers og eins. Hjartatromp Markús kaus að víkja fyrir Árna Sigfússyni. Hann gerði það með mikilli reisn. Sem reyndur stjóm- málamaður sá hann eflaust mpnna best hvers var að vænta af Árna. Ámi Sigfússon vinnur mjög skipulega, segir Margrét Theodórsdóttir, setur fram skýr markmið og nær árangri. Manni sem hann hafði unnið náið með að mörgum merkum upp- byggingarmálum í borginni, s.s. atvinnumálum og skólamálum. Markús lagði mikið traust á hinn glæsilega frambjóðanda til borg- arstjóra í Reykjavík. Árni stendur fyllilega undir því trausti. Meira í dag en í gær | í skólamálum hefur Árni sýnt I djörfung og dug. Heilsdagsskól- inn, tölvuvæðing, öflugt forvarn- arstarf með unglingum („Tilver- an“), en Reykjavíkurborg greiðir sem svarar tveimur kennslustund- um á viku til þessa verkefnis, þró- unarsjóður hefur verið stofnaður sem veitir styrki til þróunarverk- efna í skólum borgarinnar, mark- visst hefur verið unnið að áætlun um einsetningu skólanna og aukið sjálfstæði skóla er keppikeflið. Ámi vinnur ákaflega skipulega að sínum málum. Hann setur fram skýr markmið — og stefnir ótrauð- ur að því að ná árangri í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Undir áframhaldandi styrkri og samhentri stjórn sjálfstæðismanna tekst að láta Reykjavík brosa út að eyrum! Höfundur er varaborgarfulltrúi og situr í skólamálaráði Reykjavíkur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.