Morgunblaðið - 26.05.1994, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. MAÍ1994 31
BORGARSTJÓRNARKOSNINGARNAR 28. MAÍ
Barnsfeður R-listans
ÞAÐ VORAÐI
skyndilega í ár — birt-
an flæddi yfir land og
lýð, margt varð aug-
ljósara en áður og
mörgum varð erfiðara
að forðast þessa mis-
kunnarlausu birtu,
ekki síst þeim sem
höfðu eitthvað að fela.
Úrkostir hinna ljós-
fælnu urðu færri og
færri.
Fyrir tveimur árum
var svo komið, að for-
ustuliði Alþýðubanda-
lagsins varð ljóst að
fylgishrun blasti við
og að „ekki dugði að
hjakka í sama farinu“, þeir hlutu
að koma með eitthvað nýtt, ný
andlit og „nútímalegt viðhorf“.
Leið félagsbræðra þeirra í Rúss-
landi var ófær hér á landi, en eins
og vitað er, þá hófu fyrrverandi
valdaklíkur kommúnista í Rúss-
landi ábatasama glæpastarfsemi,
komu upp voldugri „mafíu". Hér
á landi var tekið á það ráð að
smeygja sér inn í ríkisstofnanir
og vinna að því að hremma bráð-
ina, sem var ríkisvaldið með aðstoð
einfeldninga úr öðrum flokkum.
Þeim tókst að læða sér inn í ríkis-
stjórn um tíma og meðan setið var
þar, var unnið ótæpilega að því
að fjölga sem mest starfsfólki í
ríkisgeiranum. Einn ráðherra
þeirra vann að því að fjölga um
1.600 manns innan skólakerfisins,
ekki kennurum, heldur skriffinn-
um og öðru óþörfu starfsliði. Þann-
ig átti að afla sér atkvæða og
tryggja öruggt setulið flokksins
innan ríkisgeirans.
Svo tók að líða að borgarstjórn-
arkosningum í Reykjavík. í eitt
og hálft ár var unnið að því að
koma á samfýlkingu
vinstri afla og loks
tókst að sjóða saman
R-listann í svartasta
skammdeginu. For-
ustulið Alþýðubanda-
lags, sem er jafnframt
forustulið Kennara-
samtakanna, Náttúru-
skoðarafélagsins,
BSRB og BHMR, stóð
að þessari skötusköp-
un ásamt hinni svo-
nefndu ’68 kynslóð og
öldruðum hippum
fyrri tíðar. Og fylgilið-
ið var blauthyggju-
söfnuður úr Alþýðu-
flokki, Framsóknar-
flokki og blauthyggjukonur af
Kvennalista. Þessu liði var slegið
saman við barnsmæður R-listans
í Alþýðubandalagi sem voru settar
í framsveit listans. Þannig var
tryggt liði stjúpsona Stasi og vina-
fólks Nikolae Ceausescus tryggt
lykilvald á lista þessum og þar
með hugmyndafræði Alþýðu-
bandalagsins.
Nú er stutt til kosninga og það
kemur alltaf betur og betur í ljós
hvaðan málfar baráttusveitar R-
listans er ættað og því meir sem
þær tala því gleggri verður til-
gangurinn með þessu framboði.
Hann er að sigla Alþýðubandalag-
inu undir fölsku flaggi og koma á
Alþýðubandalagsvænni borgar-
stjórn í höfuðborg lýðveldisins.
Hin opna borg, borgarstjórn sem
tryggir borgarbúum frelsi og
stendur vörð um grundvallarrétt-
indi og persónulfrelsi til athafna
í anda vestrænnar menningar, er
eitur í beinum hinna Alþýðubanda-
lagsvænu. Áhrifa barnsfeðranna
gætir beint, þeirra hugarheimur
er sá sami og baráttuaðferðirnar
Siglaugur Bryn-
leifsson
Markmið R-listans, seg-
ir Siglaugur Brynleifs-
son, er að koma á Al-
þýðubandalagsvænni
borgarstjórn!
þær sömu sem iðkaðar hafa verið
af sameignarsinnum undanfama
áratugi, reyndar undir ýmsum
flokksheitum. Þeirra stefna er
söm, með þessu framboði R-list-
ans, að loka úti vorbirtuna, iðka
söguburð Leitis-Gróanna með
gamalkunnum rógi og draga vetr-
arhettu forpokaðra hugmynda-
fræðikenninga fram yfir eyrun og
tuldra. Opinn hugur og „nóttlaus
voraldar veröld" er erfið hinum
ljósfælnu barnsfeðrum og þeim,
sem hafa glæpst til fylgilags við
þetta ömurlega svartálfakyn.
Höfundur er rithöfundur.
in
S S LSSSSSYUES'vSEE
Suðurveri, Stigahlið 45. sími 34852
m rrí fílnm
> Amlúlcíirk-
Ljósmyndastofa
Gunnars Ingimarssonar
Sumarskólinn sf.
Sumarönn fró 30. mai-30. júní 1994
Nám fyrír framhaldsskólanemendur. Yfir 60
áfangar eru í boði. Námið er yfirleitt matshæft mflli
skóla. Þetta er kjöriö tækifæri fyrir þá sem vilja flýta sér
í námi eöa bæta fyrir gamlar syndir! Taka má tvo áfanga.
Verð kr. 16.900.
Nám fyrír starfsmenn fyrirtœkja í markaðs-
irsmr
frœðunyjffjjflstrarhagfrœði, stjórnun, sölu-
tœkni og þjóðhagfrceði. Námiö er ætlaö þeim sem
litla þekkingu hafa á þessu efni. Verð kr. 16.900.
Tölvunám fyrir starfsmeni&tfyrírtœkja í
Windows, Word Og Exc<$ NAmið er ætlað þeim
sem litla eöa enga tölvukunnáttu hafa. Verð kr. 16.900.
Nám fyrhþÁfaglœrt fólk á sjúkrahúsum í líf-
fœrai$j£%gi\ífeðlisfrceði, heilbrigðisfrœði og
skyndihjálp. Námið er matshæft í framhaldsskóla.
Verð kr. 16.900.
Nám fyrir ahnq00s$> í aðhlynningu aldraðra
og sjúkra í heimahúsum. Verð kr. 11.900.
Nám í uppeldisfræði fyrir foreldra, dcuukiffiur
og aðstoðarfólk á leikskólum. Verð kr. fir.900.
Reyndir kennarar eru í öllum námsgreinum.
Innritun er í Fjölbrautaskólanum í
Breibholti 17.-30. maí fró kl. 16:00-18:00.
hH
50 ÁRA AFMÆLIS
LÝÐVELDISINS
vmmi
ŒjöiHfom CfltJtdórsson • ifiiAhlJfortlieim * &</d! ólyjsson
f infiHin fjunnamdóUir • Ólyjlir fótHirín.uon • dujn 'in CfljáhnUjxdóllir
Utgáfa í tilefni af
50 ára afmæli
lýðveldisins.
CAPRICATARINA: Björgvin Halldórsson
STÍNA Ó STÍNA: Bubbi Morthens
ÞÚ EINA HJARTANS YNDIÐ MITT: Björgvin Halldórsson
ÁSTARDÚETT: Egill Ólafsson og Guðrún Gunnarsdóttir
í GRÆNUM MÓ: Sigrún Hjáhntýsdóttir
UNDIR STÓRASTEINl: Björgvin Halldórsson
UNDIR BLÁHIMNI: Ólafur Þórarinsson
BRÉFIÐ HENNAR STÍNU: Guðrún Gunnarsdóttir
ERLA: Egill Ólafsson
ÍSLANDSLAG: Sigrún Hjálmtýsdóttir
DAGNY: Björgvin Halldórsson