Morgunblaðið - 26.05.1994, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BORGAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGARNAR
Ingibjörg Sólrún
í draumalandi
INGIBJÖRG Sól-
rún Gísladóttir hefur
oftar en einu sinni
verið spurð að því
hvaða möguleikar séu
á því að R-listinn lifi
af eitt kjörtímabil án
þess að klofna aftur
í frumeiningar sínar.
Ingibjörg hefur nú
ekki aldeilis haft
' áhyggjur af þessu og
hefur bent almenn-
ingi á það að allir
þeir flokkar sem
standi að framboði
R-listans hafi lagt svo
mikið undir að ekki
sé nein hætta á því að framboðið
klofni. Hún hefur einnig lagt á
það áherslu að einstaklingarnir
sem bjóða nú fram fyrir R-listann
séu sammála um að kominn sé
tími til að Sjálfstæðisflokkurinn
fari frá völdum og það sameini
þá í baráttunni. Þetta er það strá
sem Ingibjörg Sólrún býður kjós-
endum sínum að halda í.
- Árið 1978 komust til valda í
borgarstjórn þrír vinstri flokkar
sem þá buðu fram sameiginlega
vegna þess að þeir höfðu fengið
sig fullsadda á Sjálfstæðisflokkn-
um. Frambjóðendur þessa lista
voru allir sammála um að koma
Sjálfstæðisflokknum frá völdum
og voru sannfærðir um að það
eitt myndi sameina þá. Stað-
reyndin varð hins vegar sú að
loks þegar búið var að koma Sjálf-
stæðisflokknum frá völdum vökn-
• uðu menn upp við vondan draum,
þeir höfðu gleymt málefnunum
eða að minnsta kosti gleymt að
ná samkomulagi um málefnin. Því
varð það svo að skyndilega stóð
bandalag vinstri flokkanna á
brauðfótum þegar Sjöfn Sigur-
bergsdóttir frambjóðandi Alþýðu-
flokks sagði sig óformlega úr
samstarfi við sameig-
inlega framboð vinstri
flokkanna með því
vera „óþekk“.
Framhaldið er öll-
um Reykjavíkurbúum
í fersku minni því
kjörtímabilið 1978-
1982 var eitt það
versta í sögu Reykja-
víkurborgar frá upp-
hafi. Kjósendur létu
heldur ekki plata sig
aftur og árið 1982
fékk Sjálfstæðis-
flokkurinn 9 menn
kjörna en vinstri list-
arnir 6. Þetta segir
Staðreyndin varð hins
vegar sú, segir Þórir
Kjartansson, að loks
þegar búið var að koma
Sjálfstæðisflokknum frá
völdum vöknuðu menn
upp við vondan draum;
þeir höfðu gleymt mál-
efnunum eða að
minnsta kosti gleymt að
ná samkomulagi um
málefnin.
margt um trúverðugleika fram-
boðs R-Iistanna og sannleiksgildi
orða Ingibjargar Sólrúnar.
Höfundur er verkfræðingur.
Þórir Kjartansson
Horft um öxl
NÚ STYTTIST
óðum í borgarstjórnar-
kosningar hér í
Reykjavík. Báðir listar
sem í boði eru hafa
lýst áhyggjum sínum
vegna atvinnuástands-
ins í þjóðfélaginu en
höfum við kjósendur
gert okkur ljóst að það
er ekki aðeins þorskin-
um að kenna hvernig
komið er?
Til kjósenda
Alþýðuflokks
Þegar Jón Sigurðs-
son var ráðherra iðn-
aðarmála í síðustu vinstristjórn
reyndi hann af fremsta megni að
fá erlenda aðila til að reisa hér
nýtt álver sem átti að nýta raforku
frá Blönduvirkjun enda var nýtt
álver það eina sem réttlæti bygg-
ingu virkjunarinnar á sínum tíma.
En hvernig fór? Alþýðubandalagi,
Kvennalista og Framsókn tókst að
koma af stað illindum á milli lands-
hluta um staðsetningu álvers sem
töfðu málið nógu lengi til að koma
í veg fyrir samninga.
Hefði Alþýðuflokknum tekist að
fá hér byggt nýtt álver væri at-
vinnuástandið á höfuðborgarsvæð-
inu allt annað og betra. Mörg
hundruð ný störf hefðu orðið til í
verinu sjálfu og utan þess í þjón-
ustu.
Alþýðubandalagið og
Kvennalistinn á móti
Þegar NATO óskaði eftir því á
sínum tíma að fá að byggja hér
radarstöðvar reyndu Alþýðubanda-
lag og Kvennalisti að sjálfsögðu
að koma í veg fyrir það en tókst
ekki. Hjá ratsjárstofnun urðu til
62 ný störf og þá eru ekki talin
störf í þjónustu sem verða til vegna
starfsemi hennar.
Jón Baldvin Hannibalsson á
þakkir skildar fyrir hvernig hann
hefur haldið á utanríkismálum okk-
ar á erfiðum tímum. Honum tókst
samt ekki að fá hér
byggðan varaflugvöll
fyrir erlent fé. Og
hveijum var þar um
að kenna? Jú þáver-
andi samgönguráð-
herra Steingrími J.
Sigfússyni með dyggi-
legri aðstoð Kvenna-
lista að sjálfsögðu.
Hefði NATO fengið að
byggja hér varaflug-
völl eins og þeir vildu
byggja hann, en ekki
þá ómynd sem nú er á
Egilsstöðum heldur
flugvöll með norður-
suður braut, sem og
austur- vestur braut. Flugvöll sem
veitti þjónustu allan sólarhringinn
með radarstöð, sendistöð, móttöku-
stöð, VOR, TACAN, ILS, veður-
stofu, snjóruðningsdeild, tækni-
deild, véla- og viðhaldsdeild, þyrlu-
björgunarsveit og svo mætti lengi
Fylgjendum Alþýðu-
flokksins ætti að vera
*
ljóst, segir Osvald
Gunnarsson, að Al-
þýðuflokkurinn á enga
samleið með hinum
vinstri flokkunum.
telja. Þarna hefðu orðið til mörg
hundruð ný störf sem öll væru
greidd af erlendum ríkisborgrum
NATO ríkja.
En Jóni Baldvini tókst að koma
í veg fyrir að niðurskurður á Kefla-
víkurflugvelli yrði eins mikill og til
stóð á sínum tíma og hlýtur hann
fyrir það þakkir allra nema Alþýðu-
bandalags og Kvennalista.
Ósvald Gunnarsson
Alþýðuflokkurinn á ekki
samleið með vinstri flokkunum
Ráðherrar Alþýðuflokks hafa
staðið í ströngu í öllum ríkisstjórn-
um sem þeir hafa setið í við að
veija hagsmuni neytenda gagnvart
landbúnaðarmafíu framsóknar og
náð þar nokkrum árangri. Því hlýt-
ur það að vera ömurlegt hlutskipti
fyrir dyggan stuðningsmann Ál-
þýðuflokksins að þurfa að kjósa
maddömuna frá Höllustöðum, Al-
freð, þtjár af Kvennalistanum og
tvo komma bara til að koma Pétri
einum að. Þvílík niðurlæging eða
trúir einhver að fylgi Alþýðuflokks-
ins sé þrisvar sinnum minna í
Reykjavík en fylgi Kvennalistans.
Hefði nú ekki verið nær að bjóða
fram lista Alþýðuflokks og tilkynna
kjósendum um leið að flokkurinn
væri um leið tilbúinn til að mynda
meirihluta með Sjálfstæðisflokkn-
um ef svo færi að flokkurinn tap-
aði borginni. Öllum kjósendum Al-
þýðuflokksins hlýtur að vera löngu
ljóst að Alþýðuflokkurinn á enga
samleið með hinum vinstri flokkun-
um í neinum þeim málum sem ein-
hveiju skipta fyrir þessa þjóð, svo
sem utanríkismálum, stóriðjumál-
um, landbúnaðarmálum og sjávar-
útvegsmálum.
Einhvern veginn hef ég það á
tilfinningunni að atvinnuástandið
sé ekki svo mikið áhyggjuefni Al-
þýðubandalags og Kvennalista,
vegna þess að eftir því sem það
er verra ánetjast fleiri þessum
flokkum. Þarna fara nefnilega ætíð
saman atkvæðamagn þessara
flokka og eymdin.
„Maður er jú alltaf að þroskast"
Ég var að hlusta á það í útvarp-
inu að okkar ástsæli forseti hefði
í opinberri heimsókn til Tékklands
heitið þarlendum stuðningi við ósk
þeirra um inngöngu í NATO. Ég
verð að viðurkenna að ég varð svo-
lítið hissa en minntist þá orða Kilj-
ans þegar hann var eitt sinn spurð-
ur hveiju það sætti að hann væri
ekki lengur kommúnisti. Hann
svaraði eins og honum einum er
lagið: „maður er jú alltaf að þrosk-
ast.“
Höfundur er loftskeytamaður.
Verður myrkur
um miðjan dag
í Reykjavík?
Algjör bastarður!?
Allt frá því að sam-
þykkt var einróma í
borgarráði fyrir hart-
! nær fjórum áratugum
að ráðhús Reykjavíkur
skyldi reist við norð-
urenda Tjarnarinnar,
unz bygging Ráðhúss-
ins hófst fyrir sex
árum, var um fátt deilt
’’ eins mikið og staðsetn-
ingu þess, svo og húsið
sjálft eftir að sam-
þykktar teikningar
lágu fyrir. Gengu öldur
oft hátt, en undir það
síðasta voru tveir af
þremur oddvitum R-
listans einna háværastir í mótmæl-
unum. Mátti af málflutningi þeirra
ráða, að þeir teldu byggingu á núver-
andi stað hið svívirðilegasta tilræði
við Reykvíkinga, lífríki Tjarnarinnar
svo og gömlu Kvosina. Til að kóróna
> allt, töldu ýmsir nánustu stuðnings-
menn þeirra fyrirhugað mannvirki
vera forljótt og reyndar algjöran
bastarð til hins mesta vansa fyrir
þjóðina alla, einkum Reykvíkinga.
| Sem frekara dæmi um málefna-
; legan málflutning þessa mæta fólks
1 má nefna nokkur dæmi af handa-
hófí um þeirra eigin orð:
Krampakenndar framkvæmdir
kjarklausra manna ...
dapurlegt til þess að
vita að svo margir [voru
38 talsins] skuli hafa
eytt tíma í aðgera sam-
keppnistillögu að ráð-
húsi á svona vondum
stað. Ráðamenn ganga
í berhögg við vilja fólks-
ins ... ekki á móti því
að það verði byggt ráð-
hús einhvern tíma á
næstu öld. Ráðhúsið
nýja gæti ... orðið
banabiti borgarstjór,ans
um aldur og ævi.
Spádómsgáfa?
Menn vita nú hversu
forspátt þetta R-listafólk reyndist.
D-listinn vann einn af stærstu sigr-
um sínum í borgarstjórnarkosn-
ingunum fyrir fjórum árum og for-
kólfur Ráðhússins varð forsætisráð-
herra ári síðar. Staðsetning hússins
reyndist eftir allt saman hafa verið
hárrétt. Með tilkomu Ráðhússins er
Kvosin, milli Arnarhóls og Ingólfs-
brekku að austan og Hóiavallar og
Landakotshæðar að vestan, nú aftur
orðin að miðbæ Reykjavíkur. Ing-
ólfstorg — síðar Grófartorg — og
Geirsgata kóróna síðan verkið þannig
að hafi einhver velkst í vafa, eyðast
allar efasemdir þegar göngutenging
Ragnar S.
Halldórsson
Miðbærinn hefur verið
gæddur nýju lífi, segir
Ragnar S. Halldórs-
son, og Reykjavík er
nú fyrst höfuðstaður
með reisn.
gömlu hafnarinnar við Tjömina
gegnum Ráðhúsið er orðin staðreynd.
Miðbærinn hefur verið gæddur nýju
lífi. Fegurð hússins sjálfs og listrænt
gildi, m.a. með frábærri nýtingu
rennandi vatns á mósagrónum vegg,
hefur hlotið einróma lof innanlands
sem utan. Reykjavík er nú fyrst orð-
in höfuðstaður okkar íslendinga með
fullri reisn.
Hugleiðingar
Ráðhúsið fer prýðilega þarna við
norðvesturenda Tjarnarinnar í hjarta
borgarinnar. Þar blasir húsið mót
suðri og sól eins og sjá má á efri
myndinni, tekinni á fögrum sólskins-
degi skömmu eftir sólstöður í vetur.
Sólin endurspeglast í gluggum (aug-
um) hússins. Þannig sé ég Ráðhúsið
fyrir mér núna. Neðri myndin sýnir
aftur á móti ásýnd Ráðhússins, ef
ofangreint úrtölu- og öfundarlið tek-
ur sér bólfestu í því að afloknum
kosningunum á sunnudaginn og
verði þannig sál hússins. Sól sér
sortna, því að augun eru spegill sál-
arinnar.
Áskorun
Forðumst slíkt Iánleysi. Ég skora
á alla Reykvíkinga að fylkja sér á
sunnudaginn um D-listann, lista
djörfungar og dáða.
Höfundur er verkfræðingur.
RÁÐHÚSIÐ baðað í vetrarsól og Tjörninni.
Ljósmyndari/Margrét Dóra Ragnarsdóttir
SÓL tér sortna.