Morgunblaðið - 26.05.1994, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ______________________________________
MINNINGAR
+ Trausti Jónsson
var fæddur 26.
júní 1907, sonur
lijónanna Jóns Run-
ólfssonar og
Kristínar Magnús-
dóttur. Hann lést 17.
maí síðastliðinn á
Hrafnistu í Hafnar-
firði. Trausti var
kvæntur Dagbjörgu
Jónsdóttur, f. 14.
desember 1906, d.
9. nóvember 1949.
Útför Trausta var
gerð frá Fossvogs-
kirkju 24. mai.
í HJARTA mínu hefur sautjándi maí
verið sérstakur dagur en einmitt
þann dag kvaddi Trausti afí okkur.
I huga mínum mun því minningin
um afa tengjast gleði og hamingju
og á það vel við. Trausti
afi fæddist að Skógi á
Rauðasandi árið 1907
en um tvítugt hleypti
hann heimdraganum og
hélt á vit ævintýranna.
Hann kvæntist ömmu
minni Dagbjörgu Jóns-
dóttur 19. maí 1934 og
saman áttu þau tíu börn.
Það elsta lést á unga
aldri en áður átti Dag-
björg amma einn son.
Ekkert okkar bama-
barnanna átti því láni
að fagna að kynnast
ömmu okkar því hún
lést langt um aldur
fram. Það má því kannski segja að
afi hafi verið á við tvo og lýsir það
einmitt vel hvern hug hann bar til
okkar allra, barnanna sinna, barna-
barnanna, langafabarnanna og
langalangafabarnanna. Þetta eru
löng orð en í huga afa voru þetta
börn og afabörn sem öllum þurfti
að sinna jafnt og tókst honum það
frábærlega vel þó hópurinn væri orð-
inn mjög stór.
Það er langur vegur frá torfbænum
á Rauðasandi til Hrafnistu en þar bjó
afi síðustu æviár sín. Það var sér-
kennileg tilfinning að aka niður snar-
bratta fjallshlíðina niður að Rauðas-
andi en öðruvísi varð ekki komist
landveginn að Skógi. Það lét ekki
mikið yfir bæjarrústunum og erfitt
var horfa til liðinnar tíðar og ímynda
sér hvemig hefur verið að búa á þess-
um afskekkta stað með engin þau
þægindi sem við þekkjum í dag. En
mér fannst ég kynnast afa á annan
hátt með því að skoða æskuslóðir
hans enda umhverfíð ólíkt því sem
ég átti að venjast. Fyrst var það
Brekkugatan, það var hlaupið niður
klettana og inn til afa þar sem alltaf
var eitthvað að fá. En enginn kom
til afa öðruvísi en að vera leystur út
TRA USTIJÓNSSON
GYÐRÍÐUR PÁLSDÓTTIR
+ Gyðríður Pálsdóttir var
fædd 12. mars 1897. Hún
lést 15. maí 1994. Útför hennar
var gerð frá Prestbakkakirkju
á Síðu 21. maí.
HÚN GYÐRÍÐUR í Seglbúðum hefur
kvatt þennan heim og leitað til ljóss-
ins heima þar sem veikur líkami heft-
ir ekki andann.
Lokið er langri ævi góðrar og
minnisstæðrar konu sem ávallt vildi
öðrum vel og trúði staðfastlega á
hið góða.
Listfengi handa hennar og hugar
var slíkt, að sama var hvort hún var
að rækta blóm og runna í garðinum
sínum undurfagra, fegra heimili sitt,
sat við -hannyrðir eða sauma á fatn-
aði, spilaði á orgel, tók á móti gestum
eða hvað sem var.
Við frændfólk hennar, sem ólumst
upp fyrir austan á árunum 1920-
1940 minnumst þessarar fíngerðu
blíðlegu konu með gleði og þökk.
Viðmót hennar var ósegjanlega milt
og vermandi hveiju barni, sem kom
að Seglbúðum eða þar sem Gyðríður
kom, gjarnan með börnin sín.
Við í Fagurhlíð vorum svo heppin
að Seglbúðabörnin voru á svipuðu
reki og við.
Þá voru gleði- og vinafundir, því
auk skyldleika, teljum við óhikað að
Gyðríður og Helgi í Seglbúðum og
foreldrar okkar, Elín og Þórarinn í
Fagurhlíð, hafi verið einlægir vinir
svo lengi sem líf entist.
Helgi og Þórarinn féllu báðir frá
langt um aldur fram. Gyðríður og
Elín ræktu sína vináttu til hárrar
elli, eða svo lengi sem heilsa þeirra
leyfði.
Mörg ógleymanleg atvik rifjast
upp þegar horft er til baka.
Eitt sinn stóð Gyðríður upp á
Ungmennafélagsfundi og sagðist
vera búin að koma upp birkihríslu-
plöntum sem hana langaði til að
gefa þeim félagsmönnum sem vildu,
en þar sem lítill tijágróður vex, var
þetta mjög kærkomið. Nú eru þessar
plöntur orðnar að stærðar tijám,
þannig óx og dafnaði það sem hún
gaf af gnótt hjarta síns.
Á fyrstu árum útvarpsins í Land-
brotinu bar það oft við, að okkur sem
ekki höfðum útvarp var boðið fram
að Seglbúðum til þess að hlusta á
messu og sátu þá allir á heimilinu
ásamt gestum, hljóðir sem í kirkju
væri.
Við minnumst jólaboðanna, þegar
allir fóru í betri fötin eftir kvöldverk-
in og foreldrarnir leiddu eða báru
börnin milli bæja og heim um stjörnu-
bjarta nótt.
Og þegar mæður og börn gengu
upp og niður lyngi vaxna hóla og
lautir Landbrotsins á sólbjörtum
sumardögum eða síðkvöldum (það
var oftast sólskin eða stjörnubjart í
■bernskutíð). Vinkonurnar ræddu trú-
mál, þjóðmál, böm og búskap og
nutu þess greinilega að eiga stundir
saman. Slík vinátta er dýrmæt, það
skiljum við enn betur þegar við eld-
umst. Okkur þótti raunar frændur
og vinir vera á hveijum bæ, sem var
mikils virði í uppvextinum, ekki síður
þar sem sveitirnar austan sanda voru
býsna einangraðar þá. Samvinna og
hjálpsemi milli bæja var mikil, það
fengum við meðal annars að reyna
þegar faðir okkar dvaldi á sjúkra-
húsi í Reykjavík sumarlangt og móð-
ir okkar var ein með börn um há-
bjargræðistímann. Þá var gott að
eiga góða sveitunga.
Að leiðarlokum færum við fram
þakkir fyrir allt og biðjum Gyðríðar
og afkomendum hennar guðs bless-
unar.
Systkinin frá Fagurhlíð.
FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 49
með gjöf. Seinna keypti afi sér lítið
hús á Vesturbrautinni sem hann
stækkaði lítiliega og var þá eins og
húsið væri komið inn í klettinn. Mörg
húsin byggði afí fýrir aðra yfir ævina,
meðal annars í Sandgerði. Þar bjuggu
afí og amma flest sín hjúskaparár og
afí síðan nokkur eftir lát hennar. Til
Hafnarfjarðar flutti afi 1956 og enn
hélt hann áfram að byggja en aldrei
byggði hann sitt eigið hús. Hugsan-
lega vegna þess að frítími hans fór í
að aðstoða aðra.
Öll ævintýri taka enda um síðir.
Þau eru þó mislöng og þetta hefur
verið nokkuð langt. Söguhetjan hefur
þurft að takast á við marga raunina
en alltaf staðið sterkari eftir. Það
hafa verið erfiðir tímar en margar
gleðistundir. Ævintýri afa er lokið en
það mun lifa svo lengi sem einhver
verður til að segja söguna. Elsku afi,
ég vil þakka fyrir góðvild þína og
hjartagæsku en það er eitt það besta
veganesti sem hægt er að fá í lífinu.
Gunnur Baldursdóttir.
smuTiuFmm
GLÆSIBÆ • S/MI812922
RAÐAUGi YSINGAR
IÐNSKÓUNN í REYKJAVÍK
Skólaslit
verða í Hallgrímskirkju föstudaginn 27. maí
kl. 14.00. Aðstandendur nemenda og velunn-
arar skólans eru velkomnir.
TÓNLISMRSKÓU
KÓPfcJOGS
Frá Tónlistarskóla Kópavogs
Inntökupróf í söng fyrir næsta starfsár fer
fram í skólanum föstudaginn 27. maí kl.
14-15. Byrjendum gefst kostur á að koma
til viðtals við söngkennarann Önnu Júlíönu
Sveinsdóttur á sama tíma. Boðið verður upp
á ýmsa valkosti í námi, t.d. hópkennslu.
Innritun og upplýsingar á skrifstofu skólans,
Hamraborg 11,2. hæð, sími 41066.
Skólastjóri.
Prufa/casting!
Sunnudaginn 29. maíkl. 14-16 fyrir væntan-
lega Ameríkuferð M.A.A.I. 1995.
Allir sem eru 170 cm á hæð og hærri og
hafa áhuga á módelstörfum mæti með mynd-
ir. Verið velkomin.
.Tohn Casablancas
MODELING 8 CAREER CENTER
Grensásvegi 7,
sími 677799.
Dómkirkjusöfnuðurinn -
aðalfundur
Aðalfundur dómkirkju-
safnaðar í Reykjavík
verður haldinn þriðju-
daginn 31. maí kl. 20.00
í safnaðarheimilinu við
Lækjargötu.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Sóknarnefndin.
Aðalfundur
Hraðfrystihúss Hellissands hf. verður hald-
inn á Hellissandi föstudaginn 3. júní næst-
komandi kl. 16.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Aðalfundur
Aðalfundur Almenna hlutabréfasjóðsins hf.
verður haldinn 15. júní kl. 17.00 á Laugavegi
170-172, 3. hæð.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 8. gr. sam-
þykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins.
Fyrir fundinn verða lagðar tillögur um að
afnema sérréttindi svonefndra A-hluta-
bréfa þannig að öll hlutabréf í félaginu
veita sömu réttindi. Þá verður lagt tll að
stjórnarmönnum verði fækkað í 3 en
stjórn félagsins skipa nú 5 og 5 vara-
menn.
3. Önnur mál.
Stjórn Almenna hlutabréfa sjóðsins hf.
Skandia