Morgunblaðið - 26.05.1994, Qupperneq 52
52 FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
Smáfólk
NQTHERE1/5EDT0 5B A
CAMP6R01/NP P0WN5TREAM,
m IT'5 NOT THERE(/ANYMORE
Öí
Nei, einu sinni var tjaldstæði hér
niður með fljótinu, en það er ekki
þar lengur.
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1102 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Hveijar
eru fyrir-
myndir
ungvið-
isins?
Frá Ólafi Stefánssyni:
í UMRÆÐUNNI undanfarið hefur
mikið verið fjallað um reykingar
og skaðsemi þeirra. Forvarnir til
þeirra mála hafa aukist gífurlega
og fjármunir því tengdir einnig.
Ekki ætla ég að mæla á móti því,
síður en svo og eru stórvirki unnin
í þessum málum og allt gott um
það að segja. Mig langar til að
láta skoðun mína í ljós, á bæði
forvömum gegn áfengi og vímu-
efnum og því vandamáli sem snýr
að því. Mér hefur fundist það vera
útundan í umræðunni, þótt í raun
sé stærsta heilbrigðisvandamál
þjóðarinnar á ferð ásamt reyking-
um og liggur það í tölum á borðum
þeirra SAA-manna.
Blað brotið með stofnun SÁÁ
Alir þeir sem hafa kynnt sér
þessi mál, vita að blað var brotið
í áfengismálum þegar SÁÁ, sam-
tök áhugafólks um áfengisvanda-
málið voru stofnuð fyrir sautján
árum og vissulega hefur mikið
vatn runnið til sjávar síðan. Þess
vegna hefur það vakið furðu hjá
mér að fjárstyrkir frá ríkinu hafa
minnkað til þessara brýnu mála
hlutfallslega frá fyrri árum, þrátt
fyrir að aðstæður í þjóðfélaginu
hafí versnað.
Áfengisneysla hefur aukist og
meira frjálsræði ríkir meðal al-
mennings í þessum málum, t.d.
með tilkomu bjórsins og aukinna
vínveitingaleyfa. Það má segja að
þessar ákvarðanir okkar og stjórn-
valda, hafi verið undanfari að þeim
vanda sem við blasir núna.
Aldur áfengisneytenda hefur
lækkað síðustu árin, segir í
greininni.
Aldur vímuefnaneytenda
hefur lækkað
Aldur þeirra sem neyta áfengis
hefur lækkað og þekkt er að ungl-
ingar allt niður í tólf ára leiti sér
hjálpar vegna áfengis- og vímu-
efnavandamála. Ætlum við að láta
spamað ráða ferðinni þegar um
líf eða öllu heldur eyðileggingu á
lífí er að ræða. Þvílíkt sinnuleysi
er óviðunandi í heilbrigðu og hugs-
andi þjóðfélagi. Nýjustu stað-
reyndir sýna að um þrjú hundruð
manns voru í meðferð frá 1991-93
sem sprautuðu sig og þar af stór
hópur unglinga. Hefur tíðni þeirra
sem sprauta sig, aðallega með
amfetamíni, aukist frá árunum
’83-’93. Úr einu tileflli upp í þijú
hundruð.
Mun eyðni nú mjög sennilega
tvöfaldast á skömmum tíma að
sögn sérfræðinga og þarf ekki að
fara fleiri orðum um það.
SÁÁ voru’ nú með sína árlegu
álfasölu, nú til styrktar ungu fólki
og forvamarstarfi í þeirra þágu
og var nú þarft til málanna að
leggja. Því spyr ég, er ekki kominn
tími til að snúa blaðinu við og
gerast betri fyrirmynd komandi
kynslóða og láta okkur þessi mál
varða meira en við höfum gert,
með vakningu í þessum málum?
ÓLAFUR STEFÁNSSON,
Spóahólum 8, Reykjavík.
Göngum yfir brúna
Frá Gerði Einarsdóttur:
MIÐVIKUDAGINN 11. maí, um
kl. 14 lá leið mín um miðbæinn
og hugðist ég fara í Ráðhús
Reykjavíkur. Þar sem ég kom
gangandi frá Fríkirkjuvegi og
framhjá Iðnó lá beinast við að
fara yfír göngubrúna, sem ég og
gerði. Þegar ég átti eftir ófarna
örfáa metra í Ráðhúsið komst ég
ekki lengra þar sem þar voru tveir
Ijósmyndarar að störfum, sem
voru að mynda fjögurra manna
hóp með Ráðhúsið í baksýn. í þess-
um hópi voru tveir karlmenn og
tvær konur og var önnur þeirra
Sigrún Magnúsdóttir frambjóð-
andi R-listans. Þegar ég hafði beð-
ið stutta stund stöðvaði ljósmynd-
arinn vinnu sína og hugðist hleypa
mér fram hjá, þessu mótmælti
Sigrún Magnúsdóttir harðlega og
sagði orðrétt ac) ég gæti nú alveg
snúið við og farið annars staðar
inn í Ráðhúsið, allranáðarsamleg-
ast var mér þó hleypt í gegn fram
hjá fýldum frambjóðenda R-list-
ans, og þakka ég fyrir það.
Hitt er svo annað mál að ég sem
íbúi hér í borg hef jafnmikinn rétt
til notkunar á gönguleiðum og
borgarfulltrúinn Sigrún Magnús-
dóttir.
Að lokum þetta, Sigrún Magn-
úsdóttir, sá hroki sem þú sýndir
mér, með því að gera tilraun til
að hefta för mína í Ráðhúsið sl.
miðvikudag hefur gert mig afhuga
að kjósa R-listann sem ég þó hugð-
ist gera.
Er það von mín að Reykavíking-
ar kjósi ekki yfir sig fólk sem sýn-
ir meðborgurum sínum slíkan
hroka.
GERÐUR EINARSDÓTTIR,
Bergstaðastræti 46, Reykjavík.