Morgunblaðið - 29.07.1994, Page 8

Morgunblaðið - 29.07.1994, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sundhöll- in brotin og bætt MIKLAR endurbætur standa nú yfir á Sundhöllinni í Reykjavík. Veggir hallarinnar eru illa farnir vegna frostskemmda og verða þeir steyptir upp að nýju að hluta. Áætlað er að veija 50 milljónum króna til verksins á þessu og næsta ári. Verkið er hluti af átaksverkefni á vegum borgarinn- ar og vinna m.a. menn af atvinnu- leysisskrá við það. Unnið hefur verið að múrbroti á veggjum Sundhallarinnar undanfar- inn mánuð. Mikill hávaði hefur fylgt þessu og er nánast útilokað að halda uppi samræðum í karlasturtunum. Guðmundur Kjerúlf, sundlaugavörð- ur, sagði að þrátt fyrir þessi óþæg- indi haldi fastagestirnir áfram að koma í laugina. Hann sagði að sum- ir hefðu haldið tryggð við Sundhöll- ina í nærri 50 ár og létu hávaðann ekki trufla sig. Vegna breytinganna hefur heitu pottunum verið lokað og sagði Guðmundur að gestir sem sótt hafa í pottana hefðu eðlilega farið annað. í þessum áfanga verður gert við austurvegg og suðurvegg Sund- hallarinnar. Heitu pottarnir verða lagfærðir. Þá verða gerðar endur- bætur á sólskýli og þau sameinuð, en fram að þessu hafa konur og karlar ekki fengið að sóla sig saman í Sundhöllinni. Hugmyndir eru um að setja upp gufubað við hlið heitu pottanna, en ákvörðun um það hefur ekki verið tekin enn þá. Morgunblaðið/Árni Sæberg VERIÐ er að laga veggi Sundhallarinnar í Reykjavík, en þeir eru illa farnir vegna frostskemmda. Oddrún Krisljánsdóttir með 15 punda nýgenginn hæng sem hún veiddi á Silver Blue nr.8 í Stekkjarfljóti í Norðurá í vikunni. Loka- spretturinn hefst senn ÞAÐ ER sama misskipting á afla- brögðum í gangi og verið hefur og fer eftir landshlutum. Ljóst er að þetta verður ekki eitt af bestu veiði- sumrunum, en víða stefnir þó í að það verði viðunandi, einkum Suð- vestan-, Sunnan- og Vestanlands. Aðeins fáar ár norðanlands og austan standa í stað miðað við síð- asta sumar og vafamál hvernig þeim reiði af á lokasprettinum. Við erum þá að tala um Vesturdalsá og Svartá. Gengur vel í Grímsá... „Það gengur vel hérna þessa dag- anna og það er nóg af laxi. Á þess- ari stundu eru komnir 717 laxar á land sem er mjög gott miðað við hve illa veiðin fór af stað. Þetta er einkum smálax, 4 til 8 pund, en það eru að veiðast 12 til 14 punda fiskar af og til,“ sagði Gunn- ar Jónsson okkur í veiðihúsinu við Grímsá í gærdag. 1. ágúst bytja maðkveiðimenn að bleyta færi í ánni á ný og sagðist Gunnar reikna með því að þá myndu tölurnar breytast hratt, að minnsta kosti í byijun. „Þetta verður ekkert bingósumar, en við getum þó ekki kvartað yfir Norðuránni. Þar hafa veiðst rúm- lega 1100 laxar og það er nóg af físki í ánni. vel hefur veiðst að undanförnu," sagði Jón Gunnar Borgþórsson framkvæmdastjóri SVFR í samtali í gær. Á dögunum gerðist það, að vel þekkt veiðihjón, Guðlaugur og Guðrún Bergmann veiddu 19 laxa á einni og sömu vaktinni, alla við Glitstaðabrú og í Hraunbollum. Mikill lax í Haffjarðará... „Það er gaman að þessu núna, veiðin hefur gengið mjög vel og það er mikið af laxi. Og hann er enn að ganga. Ég tók einn í Gretti í morgun og hann var svo lúsugur að það sá varla í bakið á honum,“ sagði Páll G. Jónsson á bökkum Haffjarðarár í gærdag. Hópur sem lauk veiðum 19. júlí fékk 78 laxa og voru þá komnir um 380 laxar á land. „Algengt er að það veiðist 10 til 15 laxar á dag,“ bætti Páll við. Hallar í 800... Ágæt veiði hefur verið í Ytri Rangá að undanförnu, oftast þetta 30 til 40 laxar á dag og er nú áin farin að „halla í 800 laxa“ eins og leigu- takinn Þröstur Elliðason orðaði það. í fljóti bragði virðist hún vera DANSKUR ferðamaður féllst í gær á að greiða sekt að upphæð 15 þúsund krónur fyrir að hafa ekið utan vega við Hvannalindir á föstu- daginn var. Landvörður í Herðu- breiðarlindum kærdi Danann fyrir meintan utanvegaakstur fyrr í þess- á svipuðu róli og Grímsá og Laxá í Kjós. Kjósin „í lagi“ „Þetta er allt í lagi, það er Iax nánast út um allt, kannski ekki mikið magn, en alls staðar eitt- hvað. Við erum að fá þetta 10 til 15 fiska á dag, en vatnið er að minnka og það gæti róast á næst- unni. Á móti kemur, að enn er að koma inn nýr fiskur. Þá er miki! hreyfing á laxinum. Ósbreiðan í Bugðu var til dæmis pökkuð af fiski eitt kvöldið í vikunni, en morguninn eftir voru aðeins fáir fískar eftir. Sennilega hefur laxinn farið upp í vatn,“ sagði Jón I. Pálsson leið- sögumaður við Laxá í Kjós. Hann hafði ekki tölu haldbæra, en fregn- ir herma að veiðin nemi nærri 700 löxum. ari viku. Lögreglan á Seyðisfirði tók manninn síðan tii yfirheyrslu í fyrradag þegar hann hugðist fara úr landi með Norrænunni. Upphæð- in var ekki ákveðin hærri þar sem sönnunargögn þóttu ekki nægilega traust. Sektaður fyrir utanvegaakstur Slysavarnir um verslunarmannahelgi Fólk anar oft út í ár án þess að kanna aðstæður Slysavarnafélag ís- lands hefur nú fyrir þessa verslunar- mannahelgi sem fyrr varað ferðamenn við akstri yfir ár á hálendisvegum, en þessa dagana eru þeir allir að opnast. Undanfarna daga hafa verið allmörg útköll björgunarsveita vegna fólks sem lent hefur í vandræðum með bíla sína í ám, en mjög mikill snjór var á hálendinu og mikill vöxtur hefur því verið í ánum vegna mikilla hlýinda upp á síðkastið. Hálfdan Henrysson deildarstjóri björgunardeildar Slysa- varnafélags íslands segir að sérstaklega hafi orðið óhöpp undanfarið við Núps- vötn, en ástæður óhapp- anna hafi allt of oft verið vegna vanþekkingar viðkomandi á hegðun straumvatna og ofmats á getu bílanna. Biýnir Slysa- varnafélagið fyrir ferðamönnum sem ætla að fara yfir óbrúaðar ár að kanna vaðið vel áður en ekið er af stað, og hafa í huga að hjólför á bakkanum tákna ekki endilega að þar sé óhætt að aka út í ána. Aka skal skáhalt undan straumi og velja landtöku áður en lagt er út í ána, og þá ber að hafa í huga að jökulár eru að jafn- aði heldur vatnsminni á morgnana en að kvöldi. „Það er mikið í ánum núna og með tilliti til reynslu fyrri ára erum við svolítið smeykir við þetta. Það hafa árlega orðið óhöpp vegna aksturs yfir ár, og þau fleiri en eitt og fleiri en tvö. Algengast er að fólk ani út í árnar án þess að kanna vöð og aðrar aðstæður, og þá oft á illa búnum bílum, og einnig er það mjög algengt að fólk reyni að fara yfir ár sem ekki eru færar þeim bílum sem það er á. Ef fólk er á ferð á einum bíl er mjög nauðsynlegt að það bíði eftir að aðrir bílar komi áður en það fer yfir ár. Annað hvort til að fylgjast með þeim fara yfir eða þá að menn hafi samvinnu og hjálp sé til staðar ef eitthvað kemur upp á. - Hvernig á fólk að bera sig að þegar það kemur að vöðum yfír ár á hálendinu? „Regla númer eitt og sjálfsögð venja er að vaða vöðin áður en ekið er út í ána og þá sérstaklega ef menn eru eitthvað smeykir um að vaðið geti verið varhugavert. Það er mikið minna um að þetta sé gert í dag en áður fyrr/og t.d. í Þórsmörk sér maður þetta ekki mikið gert. Þar er reyndar oft mikil traffík og alveg sjálfsagt að bíða eftir öðrum ef menn eru ein- bíla. Sjálfur hef ég tvisvar sinnum farið inn í Þórsmörk núna á Brýnt að hafa öryggisbúnað í bátum í lagi núna skömmum tíma og í annað skipti var mjög lítið vatn í ám, en í Hálfdan Henrysson ►Hálfdan Henrysson deildar- stjóri björgunardeildar Slysa- varnafélags Islands er fæddur 19. september 1943 í Reykjavík. Hann lauk prófi frá farmanna- deild Stýrimannaskólans 1967 og ári síðar lauk hann prófi frá varðskipadeild skólans. Hálf- dan var háseti hjá Landhelgis- gæslunni frá 1960, en eftir að hafa útskrifast úr Stýrimanna- skólanum var hann stýrimaður á varðskipum Landhelgisgæsl- unnar til ársins 1985, en einnig var hann kafari hjá Gæslunni og sprengjusérfræðingur frá 1978. Eftir störf hjá Landhelg- isgæslunni var hann fulltrúi hjá Siglingamálastofnun í tvö ár, en frá 1987 hefur hann verið deildarstjóri björgunardeildar Slysavarnafélags Islands. nýlega í svona óhappi í Núpsvötn- um barst hundruð metra niður eftir ánni, og var mikið lán að hann valt ekki á hliðina." - Er eitthvað fleira sem þú myndir vilja brýna fyrir fólki vegna ferðalaga um verslunar- mannahelgina? „Siglingar á vötnum og sjóferð- ir á skemmtibátum eru sífellt að færast í vöxt og því nauðsynlegt að brýna fyrir fólki að fara var- lega í þeim efnum. Gæta verður þess að hafa sjálfsagðan öryggis- búnað um borð í lagi, t.d. björg- unarbelti og björgunarbáta ef þeir eru til staðar. Þá á skilyrðis- laust að láta vita um ferðir sínar, og það sama á reyndar við um þá sem eru á ferðalögum á landi. Ágæt regla er að skilja eftir upp- lýsingar um ferðaáætlun heima hjá sér eða hjá einhverjum öðrum, þannig að eitthvað sé fylgst með _________ ferðum fólks. Hvað siglingarnar varðar þá hefur bátaeign farið ört vaxandi undanfarin ár. Yfirleitt þarf litlar áhyggj'ui' að hafa af seinna skipti voru aðstæður orðn- ar gjörbreyttar og verri, og á ein- um staðnum þorði ég ekki annað en að bíða eftir öðrum bíl.“ - Hvernig er háttað merking- um við vöð á hálendinu? „Yfirleitt eru merkingar við vöð, og allavega á hálendinu þar sem er einhver uinferð að gagni. Þar er mönnum einmitt bent á þessar varúðarregiur, nefnilega að fara gætilega og vera á vel búnum bílum með kveikjubúnað og annað varið. Það er aðallega sá búnaður sem bilar og ef sand- ur er í botninum þá er fljótt að grafa undan bílum ef þeir stöðv- ast úti í miðri á. Bíll sem lenti seglbátunum því þeir virðast vera mjög vel í stakk búnir og örygi hjá þeim í fyrirrúmi að minnsta kosti svona yfirleitt. En síðan er mikið um hraðbáta sem ekki eru vel búnir, og í þá vantar meðal annars bæði björgunarbelti og fjarskiptabúnað. Samkvæmt reglugerðum á allur slíkur búnað- ur að vera til staðar, en þetta eru oft bátar sem geymdir eru á landi allan veturinn og settir einu sinni til tvisvar á sjó á sumrin. Það er erfitt að fylgjast með þessum bátum og illmögulegt fyrir Sigl- ingamálastofnun að hreinlega vita um þá. Það er því ástæða til að brýna fyrir fólki að hafa öryggis- búnað um borð í bátum í full- komnu iagi.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.