Morgunblaðið - 08.10.1994, Síða 1

Morgunblaðið - 08.10.1994, Síða 1
72 SÍÐUR LESBÓK/C/D 229. TBL. 82. ÁRG. LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Irakar með mikla liðsflutninga við landamærin að Kúveit Clinton forseti setnr her- sveitir í viðbragðsstöðu Washington, Lundúnum, Kúveit. Reuter. Flugmóðurskip sent til Kúveits Heimalið Kúveita kallað út Reuter Mandela heiðraður NELSON Mandela, forseti Suður- Afríku, var sæmdur heiðursdokt- orsnafnbót við elsta háskólann fyrir blökkumenn i Bandaríkjun- um, Howard, og myndin var tekin við það tækifæri. Hann hvatti bandaríska fjármálamenn til að aðstoða við að byggja upp fyrir- tæki í eigu blökkumanna í Suður- Afríku. Atta daga Bandaríkja- heimsókn Mandela lauk í gær. BILL Clinton Bandaríkjaforseti fyr- irskipaði í gær bandarískum her- sveitum að vera í viðbragðsstöðu vegna hugsanlegra hernaðaraðgerða í Kúveit eftir að stjórnin í írak hafði sent hermenn og skriðdreka í átt að landamærum ríkjanna. Banda- ríska flugmóðurskip George Was- hington og fjögur herskip með 2.000 hermenn voru send til Persaflóa. Stjórn Kúveits efndi til neyðarfundar og kallaði út liðsmenn heimaliðsins vegna hugsanlegrar innrásar íraka, sem eru sagðir hafa sent tvær her- deildir í átt að landamærunum. Bandaríkjamenn, Rússar, Frakk- ar og Bretar hafa gert tíu ára varn- arsamning við Kúveita eftir stríðið við íraka árið 1991. Bandaríkjamenn eru með skriðdreka, stórskotavopn og bryndreka fyrir um 5.000 her- menn í Kúveit og talið er að hægt verði að flytja þá þangað með flug- vélum á tveimur til þremur dögum. Tólf fullhlaðin herflutningaskip hafa einnig fengið skipun um að sigla til Persaflóa eða vera undir það búin. Bandarískir embættismenn sögðu að innan við 15.000 hermenn væru í viðbragðsstöðu. Stjórnarerindrekar í Kúveit sögðu að írakar hefðu sent tvær herdeildir áleiðis til landamæranna að Kúveit og hugsanlega hermenn úr úrvals- sveit Irakshers, Lýðveldisverðinum. Talið er að írakar séu nú með um 40-50.000 hermenn í suðurhluta ír- aks. Eftirlitsmenn Sameinuðu þjóð- anna í Kúveit sögðu að allt væri með kyrrum kjörum við landamærin og ekki sæist til hersveitanna. Viðskiptabanni mótmælt Stjórnin í írak hefur að undan- förnu látið í ljós mikla óánægju með að viðskiptabanni Sameinuðu þjóð- anna, sem sett var á landið eftir innrásina í Kúveit árið 1990, skyldi ekki enn hafa verið aflétt. Stjórnin sagði í gær að matvælabirgðirnar í landinu væru að ganga til þurrðar vegna viðskiptabannsins og hótaði að grípa til hefndaraðgerða ef írök- um yrði ekki heimilað að flytja út olíu að nýju. Hún sagði síðar um daginn að Vesturlönd hefðu engan rétt til að skipta sér af liðsflutning- um innan landamæra íraks. Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráð- herra íraks, flutti ræðu á allsheijar- þingi Sameinuðu þjóðanna í gær og gagnrýndi Bandaríkjastjórn fyrir að koma í veg fyrir afnám viðskipta- bannsins með því að leggja sífellt fram ný skilyrði fyrir því. Olíuverð hækkar Breska stjórnin sagði að stjórn- völd í Kúveit hefðu óskað eftir að- stoð samkvæmt tvíhliða varnar- samningi ríkjanna og því hefði verið ákveðið að senda freigátu til Kúveits. Verð á olíu á heimsmarkaði hækk- aði vegna tíðindanna og hefur ekki verið jafn hátt í átta vikur. Reuter Konungi vísað burt MIKJÁLL, útlægur konungur Rúmeníu, reyndi í gær að fara til heimalandsins þrátt fyrir að þarlendir ráðamenn hefðu hafn- að beiðni hans um vegabréfs- áritun. Konungurinn fékk ekki að fara til landsins og varð að fara aftur um borð í flugvél sína innan við klukkustund eftir að hún lenti í Búkarest. Hundruð stuðningsmanna konungsins, sem er 72 ára, biðu hans á flug- vellinum, veifuðu mynduin af honum og kröfðust þess að hann fengi dvalarleyfi í landinu. Grunsamlegur dauðdagi sértrúarfólks Lögregla leit- ar leiðtogans Lausanne, Genf, Montreal. Reuter. LÖGREGLUYFIRVÖLD í Sviss gáfu í gær út handtökutilskipun á hendur Lucs Jourets, leiðtoga sértrúarsafnaðarins Reglu sólmusterisins, og nánasta samstarfsmanns hans vegna grunsamlegs dauðdaga 48 fylgismanna hans í tveimur þorpum í Sviss. Fimm lík hafa einnig fundist í húsi Jourets í Kanada. Lík hjóna og þriggja mánaða gamals sonar þeirra fundust þar í fyrrakvöld og talið er að þau hafi verið myrt áður en kveikt var í húsinu. Talsmaður lögreglunnar í Lausanne í Sviss sagði að Jouret og samstarfsmaður hans, Joseph di Membro, væru á meðal þeirra sem lögreglan leitaði vegna málsins. Lög- reglan réðst einnig til inngöngu í nokkur hús í Genf, þar sem söfnuð- urinn var með 'nöfuðstöðvar, yfir- heyrði nokkra menn sem tengdust söfnuðinum og gerði skjöl upptæk. Lögreglan sagði að fram hefðu komið vísbendingar um fjármálamis- ferli í tengslum við fjármuni frá meðlimum safnaðarins. Áður hafði svissneskur rannsókn- ardómari sagt að enn væri óvíst hvort Jouret og di Membro væru lífs eða iiðnir. Fyrstu niðurstöður krufn- inga bentu til þess að a.m.k. hluti þeirra sem biðu bana í þorpunum Salvan og Cheiry hefði fengið svefn- lyf- Jafnvel þótt um sjálfsmorð hafi ver- ið að ræða hlýtur fólkið að hafa verið knúið til þess með sefjun," sagði lögreglustjórinn í Salvan. Kanadíska lögreglan sagði að blóðugur hnífur hefði fundist nálægt líkunum þremur sem fundust í húsi Jouret í Kanada og talið er að fjöl- skyldan hafi verið myrt. Áður hafði lögreglan fundið lík hjóna og krufn- ing leiddi í ljós að þau voru lifandi áður en kveikt var í húsinu. Ráðist til inngöngu í skrifstofu Fininvest Fjöldamorð? „Hvað varðar kenninguna um hópsjálfsmorð er ýmislegt sem renn- ir stoðum undir hana en annað bend- ir til til fjöldamorðs. Hvort tveggja kemur til greina,“ sagði rannsóknar- dómarinn Andre Pillar. Hann sagði að fundist hefðu vísbendingar um að fólkið hefði dáið sjálfviljugt. Lögreglan í Salvan hafnaði hins vegar kenningunni um hópsjálfs- morð. „Það væri eðlilegra að tala um fjöldamorð en hópsjálfsmorð. Róm. Reuter. FJÁRMÁLALÖGREGLAN á Ítalíu réðst í gær til inngöngu í höfuðstöðv- ar fjölmiðlaveldis Silvios Berlusconis forsætisráðherra vegna rannsóknar á meintum mútugreiðslum. Aðgerðin er talin álitshnekkir. fyrir forsætis- ráðherrann, sem samkvæmt nýrri skoðanakönnun nýtur nú í fyrsta sinn minni vinsælda en Gianfranco Fini, sem hefur verið orðaður við nýfasisma. Heimildarmenn innan dómskerfis- ins sögðu að lögreglan hefði leitað að gögnum varðandi sjónvarpsstöð- ina Teleplu, sem hefur verið í eigu Fininvest, fyrirtækis Berlusconis. Hlutabréf, ríkisskuldabréf og líran lækkuðu í verði vegna vangaveltna um yfirvofandi stjórnarkreppu í kjöl- far lögregluaðgerðarinnar. Grunur um mútugreiðslur Lögreglan mun vera að rannsaka meintar mútugreiðslur til lögreglu- manna sem falið var að rannsaka eignarhlut Fininvest í Teleplu. Stjórn Berlusconis mótmælti á fimmtudag ummælum Francescos Saverios Borellis yfirsaksóknara þar sem hann gaf til kynna að rannsókn- ardómarar væru á góðri leið með að sanna að forsætisráðherrann væri sjálfur viðriðinn mútumálið. Samkvæmt nýrri könnun hefur stuðningurinn við Berlusconi minnk- að til muna. 35% aðspurðra vildu að Fini yrði forsætisráðherra en að- eins 27% töldu að Berlusconi ætti að gegna embættinu áfram.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.