Morgunblaðið - 08.10.1994, Side 16

Morgunblaðið - 08.10.1994, Side 16
16 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ Lífeyrissjóðslán eru misjafnlega hagstæð hjá lífeyrissjóðunum Nær helmings munur á kostnaði vegna lána Hvað kostar' ■ llrl o —[»ö “PÍL V- »0 hpé ihj fN— »o I |100 J l\r— K» o° £\ \—luo lífeyrissjóðslánið? , , Hámarkslán, Lifeynssjoour kr. Hámarks lánstími, ár Vextir áári Fjöldi afborgana áári Greiðslugjald fyrir hverja afborgun Lántökugjald og stimpilgjald Hlutf.afláni L. Verkfræðingafélags íslands 2.601.000 35 3,5% 1-4 725 2,5% L. starfsmanna Reykjavíkurb. 1.200.000 25 5,5% 1-2 0 1,5% L. starfsmanna ríkisins 1.400.000 25 5,5% 2 0 1,5% Lífeyrissj. verslunarmanna 1.300.000 15 6,0% 4 **0-150 2,5% Lífeyrissjóður sjómanna 1.700.000 15 6,0% 2 *690 2,5% L. Dagsbrúnar og Framsóknar 700.000 15 6,0% a.m.k. 2 ‘490-725 2,5% Lífeyrissjóður Sóknar 500.000 10 6,0% 2 725 2,5% Lífeyrissjóður lækna 2.000.000 15 6,0% 2 750 3,0% Lífeyrissj. Hlífar og Framtíðar 1.000.000 20 7,0% 2 650 2,5% Lífeyrissjóður bænda 1.100.000 15 8,1% 1 0 2,5% kostnaður á ári (árleg hlutfallstala kostnaðar) miðað við 500 þús. kr. lán til 10 ára.*** i 5,98% BBima uuMm .. 7,28% 7,43% ‘Fer eftir banka þar sem afborganir enr greiddar. Hjá Ufeyrissjóði sjómanna lækkar greiðslugjaldið I kr. 490 fyrir áramót. "Ef greitt er á skrifstofu eða á reikning i viðskiptabanka sjóðsins er ekkert greiðslugjald. Sé notaður greiðsluseðill er gjaldið 150 kr.~ "•Inn I kostnaðinn er reiknað þinglýsingargjald, 1.000 kr. af hverju láni. ET, j n Peningamir nýtast betur meðan fólk er að koma þaki yfir höf- uðið, segir Jón Halls- son framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Verk- fræðingafélags Islands í samtali við Brynju Tomer, en samkvæmt könnuninni eru lána- kjör sjóðsins þau hag- stæðustu sem völ er á. TÍU lífeyrissjóðir voru í úr- taki blaðsins í könnun á lánakjörum. Nær helm- ings munur er á árlegri hlutfallstölu kostnaðar, en sú tala segir hvað lánið kostar í raun á ári. Hugbúnaðarfyrirtækið Menn og mýs annaðist útreikninga á árlegri hlut- fallstölu kostnaðar og í síðasta dálki í meðfylgjandi töflu er miðað við 500 þúsund króna lán, sem tekið er til 10 ára og greitt af tvisvar á ári. Hjá Lífeyrissjóði Verkfræðinga- félags íslands eru veitt hæstu lán með lægstu vöxtum í lengstan tíma. í Morgunblaðinu sl. fimmtudag kom fram að raunávöxtun hjá Lífeyris- sjóði Verkfræðingafélagsins var 4,59% á síðasta ári, mun minni en hjá mörgum öðrum sjóðum. Jón Hallsson framkvæmdastjóri sjóðsins segir að litið sé á lífeyrissjóðslán sem einskonar fyrirframgreiddan lífeyri. Lífeyrissjóður Verk- fræðinga- félags íslands Til að öðlast rétt til hámarksláns hjá Lífeyrissjóði Verkfræðingafé- lagsins þarf að hafa greitt iðgjöld í 3 ár. Þeir sem hætta iðgjaldagreiðsl- um í sjóðinn geta samt haldið láni, sem þá bera 7% vexti. Hefur þú kynnt þér Lífeyris sjóðinn Einingu? f Hringdu í síma 689080 og fáðu upplýsingar KAUPÞING HF. - löggilt verðbréfafyrirtæki - „Þeir sem hafa iokið 90 eininga námi frá háskóla geta greitt í sjóðinn og er hann því ekki bundinn við verk- fræðinga," segir Jón. Helstu rök með hagstæðum lánakjörum á kostnað raunávöxtunar segir Jón vera þau að peningarnir nýtist betur meðan fólk er að koma þaki yfír höfuðið. „Þeir sem fá fullan ellilífeyri þurfa að greiða 42% tekjuskatt af honum. Með tilliti til greiðslna frá Trygginga- stofnun og uppbótar er skattlagning á ellilífeyri einstaklings 78%. Inni- stæður í banka og arður af hlutabréf- um rýra ekki lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun og er ekki sér- staklega skattlagður." Árleg hlut- fallstala kostnaðar miðað við há- markslán sjóðsins og hámarksláns- tíma er 3,76%. Lífeyrissjóður sjómanna Hjá Lífeyrissjóði sjómanna feng- ust þær upplýsingar að til að fá há- markslán, 1.700 þúsund kr., þyrfti að hafa greitt iðgjöld fyrir 4.000 daga sem samsvara um 11 árum. Til að fá 700 þúsund króna lán næg- ir að hafa greitt í lífeyrissjóð fyrir 700 daga vinnu, sem nemur 2‘/2-3 árum. Árleg hlutfallstala kostnaðar miðað við hámarkslán og hámarksl- ánstíma er 6,66%. Lífeyrissjóður Sóknar Til að öðlast lánsrétt í lífeyrissjóði Sóknar þarf að hafa greitt í lífeyris- sjóð í þijú ár og hafa a.m.k. 1,2 stig. Er þá hægt að fá 125 þúsund kr. að láni, en til að fá hámarkslán, 500 þúsund kr., þarf að hafa safnað 7 stigum, sem er hægt að ná með fullri vinnu í 5 ár. Arleg hlutfallstala kostnaðar miðað við hámarkslán og hámarkslánstíma er 7,28%. Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkur og ríkisins Þeir hafa lánsrétt í Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkur sem hafa greitt iðgjöld í þennan sjóð, Lífeyr- issjóð starfsmanna ríkisins eða Líf- eyrissjóð hjúkrunarkvenna fyrir 2'/2 ára vinnu og er þá miðað við fullt starf. Árleg hlutfallstala kostnaðar miðað við hámarkslán og hámarks- lánstíma er 5,69%. Hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins er sömuleiðis miðað við iðgjöld fyrir 2*/> ára fulla vinnu til að fá 1.400 þúsund kr. lán. Árleg hlutfallstala kostnaðar miðað við hámarkslán og hámarkslánstíma er 5,77%. Lífeyrissjóður bænda Sjóðsfélagar í Lífeyrissjóði bænda þurfa að greiða í þennan sjóð eða annan í 2 ár og hafa náð 3 stigum til að fá 800 þúsund kr. lán. Rétt til hámarksláns, 1.100 þús. kr., hafa þeir sem greitt hafa hámarksiðgjald í 14 ár, eða náð hafa 21 stigi. Arleg hlutfallstala kostnaðar miðað við hámarkslán og hámarkslánstíma er 8,69%. Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar Hjá Lífeyrissjóði Dagsbrúnar og Framsóknar fengust þær upplýs- ingar að hægt væri að fá 200 þús- und króna lán ef viðkomandi hefur greitt iðgjöld í 3 ár og náð einu stigi. Til að fá hámarkslán, 700 þúsund kr. þarf hins vegar að hafa 3‘/2 stig og hafa greitt í lífeyrissjóð í fjögur ár, þar af í síðustu 6 mánuði af 12 í þennan. Árleg hlutfallstala kostnað- ar miðað við hámarkslán og há- markslánstíma er 6;82%-6,94% eftir því hvort greitt er í Islandsbanka eða Landsbanka íslands. Lífeyrissjóður Hlífar og Framtíðar Eftir sjö ára greiðslu í lífeyrissjóði og 7 stig öðlast félagar Lífeyrissjóðs Hlífar og Framtíðar rétt til 1.000.000 króna láns. Gerð er krafa um að greitt hafi verið í þennan sjóð í síð- ustu sex mánuði af 12. Árleg hlut- fallstala kostnaðar miðað við há- markslán og hámarkslánstíma er 7,75%. Lífeyrissjóður verslunarmanna Til að eiga kost á hámarksláni hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna þarf að hafa greitt í lífeyrissjóð í þijú ár miðað við fullt starf. Þar af er gerð krafa um að greitt hafi verið í þenn- an sjóð í sex mánuði. Hægt er að halda Iáninu þótt hætt sé að greiða iðgjöld. Árleg hlutfallstala kostnaðar miðað við hámarkslán í hámarksláns- tíma er 6,62% ef afborganir eru greiddar á skrifstofu eða á reikning í viðskiptabanka sjóðsins. Kostnaður er hins vegar 6,7% ef greitt er með greiðsluseðli í öðrum banka. Lífeyrissjóður lækna Hjá Lífeyrissjóði lækna fengust þær upplýsingar að greiða þyrfti ið- gjöld í þrjú ár til að fá hámarkslán, sem er 2.000.000 krónur. Árleg hlut- fallstala kostnaðar miðað við há- markslán og hámarkslánstíma er 6,78%. Bónus lækkar geislaspil- arana BÓNUS lækkaði í gær Philips geislaspilara um 1.200 krónur. Um er að ræða geislaspilara sem einnig fást hjá Heimilis- tækjum. Á fimmtudag voru geislaspilararnir hjá Bónus á 14.700 krónur en hjá Heimilis- tækjum á 14.900. Hjá Heimil- istækjum hafa umræddir geislaspilarar verið að lækka að undanförnu og að sögn Rafns Johnson framkvæmda- stjóra er ástæðan sú að ný tegund mun brátt taka við af þessari. í gær lækkuðu hinsvegar forsvarsmenn í Bónus geisla- spilara sína úr 14.700 í 13.500 krónur. Ekki var búið að taka af- stöðu til þess hjá Heimilistækj- um hvort um frekari lækkun yrði að ræða á umræddum geislaspilurum. Rafn sagði fyrirtækið ekki vera í verðstríði við Bónus en benti á að mjög hörð sam- keppni undanfarin ár hefði leitt til mikillar lækkunar á rafmagnstækjum og tók sem dæmi að 28 tommu sjónvarps- tæki sem voru fyrir nokkru á um hundrað þúsund eru nú fáanleg á innan við sextíu þúsund. Bakaðar kartcflur með fyllingu í Hagkaup Farið er að selja bakaðar kart- öflur með fýllingu í sælkera- borði Hagkaups í Kringlunni. Um er að ræða kartöflurétti frá fyrirtækinu Jakkar og brauð sem er í Skeifunni. Hver fyllt kartafla er heil máltíð og er í Hagkaup hægt að fá nokkrar heitar tegundir og tvær kaldar. Bökuð kartafla með fyllingu kostar í Hagkaup 369 krónur. Morgunblaðið/Júlíus Nýjar bleiur FYRIR tveimur vikum hóf Bónus innflutning á banda- rískum bleium, svokölluðum Drypers bleium. Pakkinn kost- ar 1.299 krónur og eru í pökk- unum 80 og 60 bleiur eftir stærð. Flísfatnaður frá Árskógsströnd 1 Kolaportinu Á Árskógsströnd eru þijár kon- ur sem hafa undanfarið ár starf- rækt saumastofu í tilrauna- skyni. Það eru þær Hildur Mar- ínósdóttir, Bryndís Friðriksdótt- ir o g Lilja Stefánsdóttir. Sauma- stofan er til húsa á efri hæð fiskverkunarhúss sem þau hjón- in Hildur og Gylfi eiga. Saumakonumar fengu styrk úr Atvinnutryggingasjóði sem samsvarar hálfum atvinnuleys- isbótum í nokkra mánuði. Starf- semin hefur gengið vel þetta tæpa ár og draumurinn er að saumatofan geti útvegað fáein störf í framtíðinni. Á næstunni er ráðgert að sofna hlutafélag um reksturinn. Fatnaðurinn sem þær sauma er svokallaður flísfatnaður sem er úr 100% pólíester, mjög hlýr,iéttur og mjúkur klæðnaður fyrir alla fjölskylduna og er tal- inn sérstaklega hentugur til úti- vistar. Saumastofan hefur líka tekið að sér að sauma fyrir hópa og íþróttafélög. T.d. keypti skíðafélag á Siglufirði galla á skíðahópinn sem fór frá þeim á Andrésar Andar leikana í fyrra. Um helgina ætla saumkon- urnar að kynna höfuðborgarbú- um flísfatnaðinn í Koiaportinu. I « « c t € '. I € - «

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.