Morgunblaðið - 08.10.1994, Side 24

Morgunblaðið - 08.10.1994, Side 24
24 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Sagan heimtar sitt ÞAÐ VAR með full- um líkindum, að gamlir karlar hrykkju við, þegar sögð var í Morg- unblaðinu 4. september saga af Bjamareyja- sókn okkar íslendinga um tíðina og hvorki nefndur Þórarinn 01- geirsson né Bjarni Ingi- marsson. Þegar blaðamaður Morgunblaðsins hringdi til mín, og spurði hvaða íslending- ar hefðu orðið fyrstir til að veiða við Bjarna- reyjar, svaraði ég að bragði: — Guðmundur Markússon á Hannesi ráðherra og Sigurjón Ein- arsson á Garðari haustið 1930. Ég tók þetta í fljótræði svo, að blaðið ætlaði að taka saman eitt- hvað úr skýrslum, og þessa för Garðars og Ráðherrans eigum við fyrsta í skýrslum. En það er til önnur saga og meiri en þessi eini túr ofannefndra skipa 1930. Bjarnareyjaveiðar Þórarins frá ársbyijun 1930 Þórarinn Olgeirsson þarf ekki að kynna fyrir þeim, sem eitthvað vita í fiskveiðisögu okkar íslendinga. Hann fór sínar eigin götur, og ekki allar bókar sá afreksmaður. Við grípum þar niður í sögu hans, að Þórarinn (Belgaums-félagið) hefur látið byggja sér togarann Venus, 400 tonna, og kemur á hon- um nýjum í desemberlok 1929 til Hafnarfjarðar, og þaðan var togar- inn síðan gerður út. Um þetta leyti, eða um 1928, höfðu Englendingar hafíð sókn á Bjarnareyjarmið. Þórarinn vissi náttúrlega allt um þessa sókn Englend- inga, búinn að vera skipstjóri á enskum togara, og búsettur úti í Englandi allt frá 1915, kvæntur enskri konu, dóttur eins af mestu aflamönnunum í Grimsby. Þótt svo héti, að Venus væri gerður út frá Hafnarfirði, og skipshöfnin væri ís- lenzk, hafði Þórarinn ágætar aðstæður til að fara túra frá Grimsby án viðkomu á ísland, ef honum bauð svo við að horfa. Hann hafði ekki miklar áhyggjur af því, hann Þórarinn, þótt karlamir hans kæm- ust ekki heim til kvenna sinna eða útgerðarmenn fengju ekki viskíið sitt. Það var ekki fyrr en söluverð- mætistölumar lágu fyrir hjá Fiski- féiaginu, að mönnum varð ljóst, að eitthvað væri undarlegt um fiskiríið á Venusi, og Þórarinn myndi hafa brugðið sér á önnur mið en íslands- mið, sem aðrir íslenzkir togarar stunduðu eingöngu. ísfiskssala Þór- arins 1930 nam 12.150 sterlings- pundum en næstu skipa 8.700 stpd. Hið sama gerðist svo 1931, að Þór- arinn var með söluverðmæti rétt um 16 þús. stpd., en næsta skip með 11.700 stpd. í sögu sinni segir Þórarinn ekki annað um sókn sína á Venusi 1930-34 en að hann hafi farið þau ár „nokkmm sinnum til Bjama- reyja“. Bjarnareyjarsóknin hefur gefið Þórarni tækifæri til lengra úthaids á ísfisksveiðum bæði vor- og síð- Væri ekki ráð að koma sókn nýsköpunartogar- anna í söguform, spyr Ásgeir Jakobsson, svo mönnum skiljist, hversu lengi og mikið við höf- um stundað Bjamar- eyjasvæðið. sumars en hinum íslenzku togurun- um. Hann byijaði jafnan síðastur og hætti jafnan fyrstur saltfisks- veiðunum og fór ekki á síld. Þórarinn segir heldur ekki annað um sókn sína á King Sol, stærsta togara Englendinga, sem hann varð skipstjóri á 1936, en að hann hafi verið í hópi fyrstu Englendinga til að sækja á Svalbarðsmið. Þá segist hann einnig hafa sótt í Hvítahafið. Á King Sol voru jafnan með Þór- ami nokkrir íslendingar og sumir verið með honum allt frá byijun 1912 og til þess að Þórarinn hætti skipstjórn 1939. Veiðar Bjarna á Júpiter 1945 og 1946 Þá er það hann Bjami Ingimars- son, og í leiðinni Þorsteinn Eyjólfs- son. Það var enginn smávöllur á hon- um Bjama á Júpiter gamla við Bjamareyjar 1945 og 1946. Hann fór 3 túra 1945 á Bjarnareyjar og var aldrei iengur en fjóra daga að fylla skipið; allur fiskur hausaður og slægður til að koma sem mestu fyrir í skipinu, og kolum mokað uppúr koialestinni, þégar séð varð, Ásgeir Jakobsson að ekki þurfti á þeim að halda við veiðamar. Bjami seldi í Grimsby 4.200- 4.300 kits í túr, af „hausuðum og slægðum" fiski, og jafngildir það 430 tonnum af físki uppúr sjó. Þeir gátu fiskað í þessa daga, þótt opn- unin á trollinu væri ekki á borð við fótboltavöll. Árið 1946 fór Bjami á Júpiter aftur til veiðanna við Bjamareyjar, og þá einnig Þorsteinn Eyjólfsson á togaranum Venusi. Hann var engin fiskifæla, hann Þorsteinn Eyjólfsson. Tveimur ámm síðar, 1948, setti hann aflamet á nýsköp- unartogaranum Marzinum, þegar hann landaði í Bremerhaven 380 tonnum af hausuðum og slægðum físki, en það jafngildir 600 tonnum uppúr sjó. Þennan físk fékk Þor- steinn á 5‘/2 sólarhring. Þorsteinn fór 4 túra til Bjarnar- eyja 1946 og var með yfir 4 þús. kits í hveijum túr. Bjarni fór 5 Bjamareyjar-túra 1946 og afli hinn sami og fyrra árið, 4.000-4.300 kits í túr. Þeir Bjarni og Þorsteinn fýlltu jáfnan báðir skip sín á 4-5 dögum. 1 kit (10 stones kit) samsvarar 63,5 kg — og 63 kg af hausuðum og slægðum físki jafngildir 100 kg upp úr sjó. Það virðist svo í Morgun- blaðs-samantektinni 4. september, að aflinn við Bjamareyjar 1946 sé ekki umreiknaður í fisk uppúr sjó, því að hann er sagður 2.800 tonn. Það er hins vegar helzt að sjá að afli þessara tveggja skipa við Bjarnareyjar 1946 hafi verið um 4 þús. tonn uþpúr sjó. í yfirlitssöguformi blasir betur við sókn okkar um tíðina á Bjarnar- eyjar. Væri ekki ráð að koma sókn nýsköpunartogaranna í söguform og þannig skiljist mönnum bezt, hversu lengi og mikið við höfum stundað Bjarnareyjasvæðið? Ein heildar afla- tala sýnir ekki alla sóknina. Höfundur er rithöfundur. Samfundur fermingar- barna í Stóra- Núpskirkju ÞAÐ ER í annað skiptið sem nú er boðið til sérstaks samfundar ferm- ingarbarna Stóra-Núpsprestakalls, annan sunnudag í október í ár, eins konar dag endurnýjunar játningar og einnig til að huga sérstaklega að því sem játað var á fermingardegin- um. Þessi stund sem kallað er til er og tækifæri til að koma saman til samfundar og samfélags Guðs og manns. Fermingarundirbúningur . hefst þann sama dag í prestakallinu. Ferm- ingarbörn er fermast í Ólafsvalla- kirkju og Stóra-Núpskirkju árið 1995 taka á móti Biblíum sem söfn- uðirnir gefa þeim. Ég vil því sérstaklega hvetja ferm- ingarbörn liðinna ára til að fjölmenna og taka einhvern með sér til kirkj- unnar til að eiga uppbyggjandi stund við borð Drottins. Hún hefst kl. 14. Á næsta ári verður samfundur í Ólafsvallarkirkju á Skeiðum. Stóra-Núpskirkja er um 100 km frá Reykjavík, eilítið austar en fé- lagsheimilið Ámes. Kirkjuhúsið þykir fallegt og um margt sérstakt. Það er vandað hús, fyllt af táknmáli. Hér er því kjörinn sunnudagsbíltúr fyrir þá sem utan sóknanna búa og vilja hugsa sérstaklega að játningu sinni. Séra Axel Árnason sóknar- prestnr í Stóra-Núpsprestakalli. Vetrarstarf Langholtskirkju LANGHOLTSKIRKJA NÚ ER vetrarstarfíð hafíð í Lang- holtskirkju og hér fyrir neðan verður leitast við að veita grunnupplýsingar um starfíð. Helgihald og bænastundir Messun Messan er brennipunktur safnaðarlífsins. Messur eru alla sunnudaga kl. 11.00. Fyrsta sunnu- dag í mánuði er fjölskylduguðsþjón- usta, síðasta sunnudag í mánuði er hámessa með altarisgöngu. Aftansöngur: Aftansöngur (vesp- er) er sunginn alla virka daga kl. 18.00. Aftansöngur er tækifæri til hvíldar og íhugunar eftir eril dags- ins. Aftansöngurinn er bænastund þar sem er sungið gregórskt tón og lesnir ritningarlestrar. Á eftir er molakaffí í safnaðarheimilinu. Kyrrðarbæn: Á þriðjudögum kl. 17:00 er kyrrðarbæn (kristin íhugun) í kirkjúnni. Kyrrðarbæn er hljóðlátt samtal við Guð. Kyrrðarbæn fer þannig fram að þátttakendur signa sig, það er lesið er upp úr Biblíunni og síðan er þögnin kynnt. Þá er set- ið saman í þögn í 30 mínútur. Að endingu er stutt bæn. Barna og æskulýðsstarf Sunnudagaskólinn: Sunnudaga- skólinn er ki. 11.00. í sunnudagaskó- lanum er stuðst við efnið „Litlir læri- sveinar" og þar eru sagðar sögur, sungið, leikið og skemmtilegir gestir koma í heimsókn. Barnapössun á messutíma: Boðið verður upp á pössun fyrir yngstu bömin á messutíma í samstarfi við skátafélagið Skjöldunga. Níu til tólf ára starf stúlkna: í vetur verður þetta starf í höndum KFUK. Hópurinn hittist á mánudög- um kl. 17.00 í húsi KFUK við Holta- veg. í vetur verður settur á svið söng- leikur byggður á sög- unni um Jónas í hvaln- um í Gamla testament- inu. Níu til tólf ára starf stráka: í vetur verður þetta starf í höndum KFUM. Hópurinn hittist á miðyikudögum kl. 18.00. í starfinu verða stundaðar íþróttir, sagð- ar sögur, sungið, lesnar hugleiðingar o.fl. Þá verður farið í áhuga,- verðar heimsóknir og góðir gestir Iíta inn. Fermingarfræðsla: Fermingar- fræðslan er á mánudögum og mið- vikudögum kl. 16.00. Leitast er við að vekja áhuga barnanná á kristinni trú og fjallað um tengsl trúarinnar við samfélagið. Sr. Sigurður Haukur Guðjónsson annast fræðsluna. Æskulýðsfélag: Unglingastarf kirkjunhar verður unnið í nánu sam- starfí við félagsmiðstöðina Þrótt- heima og skátafélagið Skjöldunga. í október fer fram kynning á starfínu og í nóvember verða æskulýðsfundir í safnaðarheimilinu kl. 20.00. Um er að ræða námskeið þar sem fjallað verður um sjálfsmynd unglinga, sið- ferðilega ábyrgð ofl. Þá mun Æsku- lýðsfélagið annast kertasöiu fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar á aðvent- unni. Hápunktur starfsins verður jazz-messa í Langholtskirkju 18. des- ember. Barna- og unglingastarf kirkjunn- ar er unnið í samstarfi við skóla og dagvistarstofnair í sókninni. Starf fyrir fólk á öllum aldri Ungbarnamorgnar: I samstarfí við Ungbamaeftirlitið verða Ungbama- morgnar á mánudögum kl. 10.00- Bama- og unglingastarf Langholtskirkju er unn- ið, segir Haukur Ingi Jónasson, í samstarfí við skóla og dagvistar- stofnanir í sókninni. 12.00. I starfinu er miðað að því að skapa vettvang fyrir heimavinnandi foreldra með ungbörn til að hittast og kynnast. Annan hvern mánudag verða fræðsluerindi um bijóstagjöf, uppeldismál og trúariíf ungbarna ofl. Mömmumorgnar: Mömmumorgn- ar em á miðvikudögum kl. 10.00- 12.00. í starfínu hittast mæður úr hverfínu og ræða allt milli himins og jarðar. Oðru hveiju er boðið upp á erindi og námskeið. Sögustund í samstarfí við Sólheimasafn er fyrir börn á sama tíma. Dagmæðramorgnar: Dagmæðra- morgnar eru síðasta föstudag í mán- uði kl. 10.00-12.00. Þetta er vett- vangur fyrir dagmæður í sókninni til að hittast og hlúa í sameiningu að mikilvægu starfi sínu. Biblíuleshringur: Biblian er nægt- arbrunnur og fróðleg lesning. Á þriðjudögum kl. 18.30 gefst áhuga- sömu fólki kostur á að lesa í hópi valda kafla úr Biblíunni undir leið- sögn. Guðfræðinámskeið: Á mánudög- um og fímmtudögum kl. 14.30- 16.00 er námskeið í samvinnu við Menntaskólann við Sund þar sem fjallað er um valin stef guðfræðinn- ar. Kennsluna annast Haukur Ingi Jónasson. Námskeiðið er öllum opið. f prófum er boðið upp á lesaðstöðu i safnaðarheimilinu fyrir menntskæl- inga. Kvenfélagið: Kvenfélag Lang- holtssóknar heldur fundi sína fyrsta þriðjudagskvöld í mánuði kl. 20.30. Kirkjustarf aldraðra Kirkjustarf aldraðra: Á miðviku- dögum kl. 13.00-17.00 er opið hús fyrir aldraða í sókninni. Á þessum samverum er boðið upp á dagblaða- lestur, spilamennsku, kaffiveitingar, ritningarlestur og bæn. Vinafundir: Vinafundir eru á fímmtudögum kl. 14.00-16.00. Þar er farið í mjög áhugavert námsefnið sem unnið var að beiðni Ellimálaráðs Reykjavíkurprófastdæma. Öldrunarþjónusta: Að auki býður kirkjan öldruðum í sókninni upp á fót- og hársnyrtingu og heimsóknar- þjónustu þeim sem þess óska. Óskum um húsvitjanir má koma til sóknar- prests. Tónlistarstarf Kór Langholtskirkju: Kór Lang- holtskirkju er einn af þekktari kórum landsins. Kórinn syngur við messur og heldur einnig margvíslega tón- leika. Jólasöngvar kórsins eru á að- ventu og á vordögum mun kórinn flytja Jóhannesarpassíu J.S. Bach. Stjórnandi er Jón Stefánsson. Kórskóli Langholtskirkju: í kór- skólanum er leitast við að ala böm frá átta ára aldri upp í að syngja í kórum. Kennsla fer fram á þriðjudög- um og fimmtudögum kl. 17.00- 19.00. Um kennsluna sjá Signý Sæ- mundsdóttir, Helga Björg Svansdótt- ir og Jón Stefánsson. Kór kórskóla Langholtskirkju: Bamakór er starfræktur í tengslum við kórskólann. Kórinn heldur tón- leika og syngur við helgihald í kirkj- unni. Stjórnandi er Jón Stefánsson. Annað starf í kirkjunni Mannréttindahópur: Annað hvert sunnudagskvöld kl. 20.30 hittist mannréttindahópur Langholtskirkju. Hópurinn er Amnesty-hópur en að auki eru lesnar valdar greinar um pólítíska siðfræði og mannréttinda- mál. Námskeið - máltíðin: Á haust- misseri á þriðjudögum kl. 19.00- 23.00 mun Langholtskirkja í sam- starfí við félagið Augnablik standa fyrir námskeiði. Þema námskeiðsins er máltíðin. Fjölskylduvernd: Fjölskylduvernd er hópur sem hittist á þriðjudögum kl. 20.30 og hefur á stefnuskrá sinni að hlúa að fjölskyldunni sem grun- neiningu í samfélaginu og vekja at- hygli á óréttmætri íhlutun stjórn- valda í málefnum fjölskyldunnar. Áfengismál: Hjáguðinn Bakkus tekur sinn toll. Til að hamla gegn ítökum hans em AA-fundir, Al-Anon fundir og Al-Ateen fundir í safnaðar- heimili kirkjunnar. Sóknarprestur Starfandi sóknarprestur í vetur er sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Sóknarprestur sinnir öllu því sem lýtur að prestþjónsutu og er með viðtalstíma á þriðjudögum, miðviku- dögum og föstudögum kl. 10.00- 12.00. Lokaorð Allar nánari upplýsingar má fá í kirkjunni kl. 10.00-12.00 og 14.00- 16.00 á virkum dögum. Næstu daga verður Grallari - handbók Lang- holtssafnaðar, sendur til allra heimila í sókninni. Þar er að finna nánari upplýsingar um starfið. Af ofansögðu má sjá að safnaðarlíf í Langholtsöfn- uði er í blóma og þar ættu allir að geta fundið kirkjulegt starf við sitt hæfí. Langholtskirkja er lifandi kirkja! Höfundur er starfsmaður Langholtskirkju.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.