Morgunblaðið - 08.10.1994, Side 40

Morgunblaðið - 08.10.1994, Side 40
40 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Kæri pennavinur. Af hveiju viltu Það stuðlar að Hvernig hefurðu það? Þegar þau skrifa einhverjum í auknum skilningi sjá svona skrift, þá langar þau til öðru landi sem þú milli menningar- að ráðast á okkur. þekkir ekki einu svæða. sinni? BREF TTL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavik • Sími 691100 • Símbréf 691329 Þakkir til Guðrún- ar Helgadóttur Frá Sveini Ólafssyni: UNDANFARNAR vikur hefur frú Guðrún Helgadóttir skáldkona lesið laust fyrir klukkan 10 á morgnana í Ríkisútvarpinu á Rás 1, tvær bamasögur, sem ég og kona mín höfum hlustað á með mikilli athygli, og lagt allt kapp á að missa aldrei af — jafnvel þó annað væri í boði. — Síðari sögunni, sem nefnist „Sænginni yfir minni“, lauk nú á þessum morgni. Fyrri sagan hét að mig minnir „Sitjum saman öll í hring". Sögumar fjalla báðar um sömu ijöl- skylduna. Ég get ekki stillt mig um að biðja Morgun- blaðið að færa frú Guð- rúnu alúðarþakkir, bæði fyrir einstaklega falleg- ar sögur, og þá ekki síð- ur fyrir alveg sérlega skemmtilegan upplestur, sem var svo til fyrirmyndar, að aðrir mættu gjama taka mið af f almennu málf- ari og flutningi einmitt í Ríkisútvarp- inu og víðar. Fallega skrifaðar sögur Ég vil bæta því við, að þessar sögur em sérlega fallega skrifaðar og orðaval og frásagnarmáti svo að af ber og til fyrirmyndar er nú, á tímum oft óvandaðs málfars og fram- burðar. — Persónurnar em ljóslifandi og lýsingarnar einstaklega vel gerðar og raunvemlegar. Maður sér fyrir sér eins og spegilmynd af þjóðlífinu í gegnum samlíf fólksins í íslenzku sjávarþorpi og í svo raunverulegum búningi, að líkt er eins og maður væri að horfa á lifandi myndasýn- ingu. Samband náins samlífs þriggja kynslóða — upp á gamla mátann f þjóðlegum anda — kemur þarna sér- lega fallega og skemmtilega fram, og gefur sögunum þannig þjóðlegt gildi, því þessir hlutir hafa mikið breyzt til hins lakara og slíkt samlíf að miklu horfið á síðari áratugum. Jákvæð uppeldisáhrif Þá eru uppeldisáhrif- in og hugsunarháttur- inn, sem þessar sögur flytja, svo jákvæð og raunhæf, að af ber. Um leið era lýsingar skemmtilega krassandi og gjörsamlega lausar við alla vellu, en barns- leg einlægni og gott siðferði og raunhæf líf- sviðhorf skína fram úr persónunum, um leið og sjá má líka sorgar- leiki misheppnaðs líf- emis og bresta. Ekki sízt tekst skáldkonunni vel upp við að lýsa ein- lægni og hugsunum bamanna. Og eftir- minnilegur var endirinn á sögunni núna, þar sem litla „Abba hin“ lætur sömu orð falla og hún hefur oft gert áður í sögunum, eitthvað f þessa átt: „Þið sjáið bara, að það er alveg satt, að það borgar sig að vera góð- ur.“ Kærar þakkir til frú Guðrúnar fyrir þessar ánægjulegu stundir, og um leið þakkir til Ríkisútvarpsins fyrir val á svo góðu efni í þennan þátt. — Mætti meira í þessum sama jákvæða og uppbyggilega dúr fá að heyrast „á vængjum ljósvakans" áfram. Það er ungu kynslóðinni og þjóðinni allri til góðs, að fá svona myndir til að bera saman við það líf, sem er lifað í dag, og þá um leið að geta á grundvelli þess skoðað og metið verðgildi hlutanna í lífinu í slíku ljósi. SVEINN ÓLAFSSON, Furugrund 70, Kópavogi. BRÉFRITARI vill þakka Guðrúnu Helga- dóttur fyrir upplestur úr barnabókum sínum. Um gjafmildi Islendinga Frá Jóni Ögmundi Þormóðssyni: MUNAR þig og vinnufélaga þína um að gefa 300 kr. konu sem fyrir nokkru var sem oftar stödd erlendis en átti einungis andvirði 700 kr. í reiðufé? Flestir munu svara spurn- ingunni neitandi enda em íslending- ar gjafmild þjóð sem lætur fé en ekki afsakanir af hendi rakna í slíku tilviki. Hins vegar koma fæstir því, í verk að fara út í banka og spyija um númer á bankareikningi Sophiu Hansen og fylla þar út sérstakan greiðsluseðil. Af þessum ástæðum var meðal starfsliðs iðnaðar- og við- skiptaráðuneytanna hugað að ein- faldari leið og árangurinn varð söfn- unarlisti sem vonandi verður notaður sem fyrirmynd á sem flestum vinnu- stöðum til styrktar Sophiu Hansen og öðrum góðum málefnum. Efst á blaðinu stóð „í ... mánuði 1994“. Síðan kom fyrirsögnin: Framlög til styrktar Sophiu Hansen og þar næst undirfyrirsögnin: („Margt smátt gerir eitt stórt“.) Textinn hljóðaði: „Við undirrituð, starfsmenn ..., leggjum hér með fram 300 kr. hver til styrktar Sophiu Hansen. Féð verður lagt inn á söfnunar- reikning Sophiu Hansen nr. 5402 í Miklubrautarútibúi Landsbanka ís- lands (0119-26). Listi þessi um árangur söfnunar- innar, ásamt kvittun fyrir innborg- un, verður hengdur upp í... Ábyrgð á skilum ber ... I iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt- inunum lögðu sex af hveijum tíu fram fé en ekki náðist til allmargra meðan söfnunin fór fram. Vonandi næst ekki síðri árangur á sem flest- um öðmm vinnustöðum. Listinn hef- ur þegar verið látinn ganga til fjár- málaráðuneytisins þar sem söfnun fer nú fram og verður látinn ganga víðar. Fyrir nokkmm áratugum spurði maður nokkur: „Hvað varðar mig um þjóðarhag?" Vonandi hugsa sem fæstir nú: „Hvað varðar mig um hennar hag?“ JÓN ÖGMUNDUR ÞORMÓÐSSON, Laugarásvegi 29, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.