Morgunblaðið - 08.10.1994, Page 52

Morgunblaðið - 08.10.1994, Page 52
3»EJS# M NETBÚNAÐUR 7 EINAR J. SKÚLASON HF SÍMI*691100, SMBtáF69mi!tóSTttóLF3olo / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Roskinn maður slapp ómeiddur er öflug1 gassprenging olli miklu tjóni í húsi á Siglufirði í gær Aldrei verið uppnæm- ur fyrir smámunum ÖFLUG gassprenging sem varð í húsinu við Þormóðsgötu 21 á Siglufirði á tólfta tímanum í gær olli miklu tjóni. Húsið er nýuppgert. Viðbygging sprakk frá húsinu og er hún afar illa útleikin, allt sprungið sem sprungið gat. Þar er anddyri, stigauppgangur og geymslur. Páll Pálsson, 75 ára gamall fyrrverandi skipstjóri, býr einn í húsinu og var hann nýkominn heim úr verslunarferð þegar sprengingin varð. Hann sakaði ekki en „læknirinn vildi endilega drífa mig í smáskoðun eftir þetta,“ sagði hann við Morgunblaðið síðdegis í gær en þá var hann að skoða verksummerki í húsi sínu sem bæði var án hita og rafmagns eftir sprenginguna. Fær að vera á fæðingardeildinni Leki virðist hafa komið að kós- angaskút sem Páll átti og hafði í geymslu á jarðhæð hússins, í við- byggingunni. „Ég var hér inni í búr- inu að setja inn í ísskápinn þegar þessi ógurlega sprenging varð,“ sagði Páll sem skömmu áður hafði komið heim og gengið um inngang- inn skammt þar frá sem sprengingin varð en hann býr á efri hæð húss- ins. A neðri hæðinni er íbúð sem sonur hans á. „Ég má ekkert hreyfa hér við neinu fyrir en þeir koma frá tryggingunum," sagði hann, „en ég fæ að vera hjá henni Gunnu Siggu minni uppi á fæðingardeild," var svarið þegar hann var spurður hvað um hann yrði eftir sprenginguna en þar bjóst hann við að hafa næturstað fram yfir helgi. íbúðin á neðri hæðinni slapp án teljandi skemmda en sömu sögu er ekki að segja um íbúð Páls á efri hæðinni þar sem allt er á tjá og tundri. Sýnu verst úti varð þó við- byggingin enda var gaskúturinn geymdur þar. Við sprenginguna sprakk geymsluveggur til móts við útidyrnar í tætlur, en útidyrahurðin þeyttist um 60 metra yfir götuna og tættist í sundur. „Mér sýnist að þvottavélin sé það eina sem ekki hefur eyðilagst," sagði Páll þegar hann sýndi ummerki eftir sprenging- una. Ekki uppnæmur fyrir smámunum Páll er fæddur árið 1919 og hefur átt heima í húsinu við Þormóðsgötu frá 23 ára aldri. „Ég var á sínum tíma tekinn upp í húsaleigu, ég leigði héma og heimasætunni þótti vissara að taka mig upp í húsaleiguna. Þetta óhapp héma breytir engu, það raskar ekki neinu. Það var einu sinn með mér kvenkokkur til sjós og hún sagði að ég hlyti að vera taugalaus. Eg veit það nú svo sem ekki en ég hef aldrei verið uppnæmur fyrir smá- munum. Maður hefur svo sem reynt sitt af hvom tagi um árin,“ sagði síldarskipstjórinn fyrrverandi. „Þetta var alveg svakalegur hvell- Morgunblaðið/Rúnar Þór PÁLL Pálsson við geymsluvegg sem gjöreyðilagðist. Páll var nýkominn inn um dymar á móts við geymsluvegginn þegar óhappið varð, en hann var staddur á efri hæð hússins í búrinu að setja vörur í isskápinn og sakaði ekki. ur, hér skalf allt og nötraði, hlutir duttu niður úr hillum og myndir nið- ur af veggjum," sagði Magnús Jóns- son, nágranni Páls. Brak úr húsinu þeyttist yfir að vegg Gagnfræðaskól- ans en þar stóð yfir fundur kennara. „Það nötraði allt og skalf í skólanum og menn gerðu hlé á þinginu meðan ósköpin dundu yfír enda vissu menn ekki hvað gekk á,“ sagði Magnús. Formaður Alþýðusambands Austurlands um kjaramálaumræður á þingi ASA Hef aldrei heyrt jafn- harðan tón í mönnum SIGURÐUR Ingvarsson, formaður Alþýðusambands Austurlands, segist aldr- ei áður hafa heyrt jafnharðan tón í mönnum í umræðum um kjaramál eins og fram hafí komið á þingi Alþýðusambands Austurlands við fyrri umræðu um kjaramál sem fram fór í gær, en þingið sækja yfir 50 fulltrúar verkalýðs- félaga alls staðar af Austurlandi. Hann segist ekki sjá fram á annað en það stefni í'átök á vinnumarkaði eftir áramót þegar samningar verða lausir. Síðari umræða um kjaramál fer fram í dag en þinginu lýkur á morgun. LI gagnrýnir túlkun á námsleyfum lækna Morgunblaðið/Júlíus Vinurinn fór beint að kaupa hjálm GÍSLI Mikael Jónsson, 9 ára, slapp ótrúlega vel þegar hann hjólaði í veg fyrir bíl í Hafnar- firði sl. þriðjudag. Hann og vinur hans voru að hjóla niður Garða- veg og voru á fullri ferð. Vinur- inn náði að stoppa þegar þeir komu niður að Hraunbrún en Gísli ekki og hann hjólaði í veg fyrir bíl sem kom eftir Hraun- brúninni. Hann lenti á vélarhlíf bílsins, kastaðist síðan á fram- rúðuna og þaðan í götuna. Hann missti meðvitund og rankaði ekki við sér fyrr en í sjúkrabíln- um á leið á spítala. Þar þurfti að sauma nokkur spor í hökuna á honum og sköflunginn og festa þijár tennur af fjórum sem losn- uðu. Þá fjórðu þurfti því miður að taka úr honum í gær og fær hann stiftönn í staðinn fyrir hana. Blaðamaður hitti Gísla og móður hans, Báru Ragnarsdótt- ur, hjá tannlækninum í gær. Gísli var með hjálminn með sér, sem bjargaði honum þegar hann flaug í götuna. Hann segir að vinir sínir séu alls ekki allir með hjálma þegar þeir séu að hjóla. Þeim finnst nefnilega mildu flottara að vera bara með der- húfur. Bára segir að Gísli megi þakka fyrir að eiga svona leiðin- lega mömmu sem hafi skikkað hann til að vera alltaf með hjálm. Gísli segir að vinur hans, sem var með honum þegar slysið varð, hafi ekki verið með hjálm. Hann fór hins vegar með for- eldrum sínum strax sama dag og keyptu þau hjálm handa hon- um. SVERRIR Bergmann, formaður Læknafélags íslands, hefur fyrir hönd stjómar félagsins ritað Sig- hvati Björgvinssyni hvassyrt bréf, þar sem gagnrýndir eru þeir samn- ingar sem heilbrigðisráðuneytið og/eða landlæknisembættið hafa gert við embættislækna, að því er viðkemur greiðslum fyrir ónýtt rétt- indi til námsferða. „I samningum Læknafélags ís- lands um námsferðir er gengið út frá að læknar séu í vinnu meðan á náms- ferð stendur. Þeir tapa því engum launum eða launatengdum rétti við að fara í námsferðir en hafa heldur ekki af þeim neinn launalegan hagn- að,“ segir í bréfí stjórnar Læknafé: lags Islands til heilbrigðisráðherra. í bréfínu segir m.a.: „Fái læknir í námsleyfí laun erlendis koma þau til frádráttar. Læknar gefa síðan skýrslu um námsferð sína þegar þeir koma aftur heim.“ Laun erlendis til frádráttar dagpeningum í 14. kafla kjarasamnings sjúkra- húslækna (lausráðinna), sem fjallar um endurmenntun segir orðrétt: „14.3 Kostnaður við námsferðir: Sérfræðingar skulu fá greiddan ferða- og dvalarkostnað á námsferð- um þessum skv. reglum þeim, sem gilda um greiðslu ferðakostnaðar fastráðinna ríkisstarfsmanna á hveijum tíma. Nú fær sérfræðingur laun erlendis, og koma þau þá til frádráttar greiðslum þessum." Ákvæði í kjarasamningum fastráð- inna lækna eru hliðstæð. Samkvæmt yfírlýsingu frá Lækn- aráði Borgarspítalans er læknum þar óheimilt að taka laun erlendis í námsleyfum. ■ Laun erlendis/26 ■ Læknaráð Borgarspítala/12 „Fólk vill ekki og mun væntan- lega ekki sætta sig við þá tekju- skiptingu sem orðin er í þjóðfélag- inu. Það er alveg ljóst,“ sagði Sig- urður. Hann sagði að misréttið færi vaxandi ár frá ári og hitt væri ekki síður mikilvægt að það hefði verið gert sýnilegt. Fjölmiðl- arnir hefðu hjálpað til þess. Það væri mikil reiðL ríkjandi. Forystu- menn verkalýðsfélaga rektu mörg dæmi þess úr sínum heimabyggð- um að fólk væri að missa ofan af sér húsnæðið þrátt fyrir að það hefði atvinnu og væri reglusamt. Hvernig væri þá komið fyrir þeim sem væru atvinnulausir? Þetta sýndi ástandið í hnotskurn og „hvemig er búið að byggja þetta þannig upp að menn geta ekki hækkað laun án þess að það komi í höfuðið á þeim strax aftur eins og með lánskjaravísitölunni," sagði Sigurður. Nóg til skiptanna Sigurður sagði að einnig væri rætt um framfærslukostnaðinn í landinu sem væri mjög mismunandi eftir landshlutum. Mönnum fyndist nær að byrja að jafna þann mun heldur en atkvæðavægið. Þingfull- trúar væru allir sammála um að það væri nóg til skiptanna þannig að allir ættu að geta lifað mann- sæmandi lífí í þessu landi, en það þyrfti að breyta tekjuskiptingunni. „Menn tala hér í sama dúr hvar í stjórnmálaflokki sem þeir eru,“ sagði Sigurður. Aðspurður sagðist hann telja að niðurstaða á þinginu yrði sú að krefjast þess að lánskjaravísitalan yrði afnumin og kaupmáttur auk- inn verulega. „Við erum ekki að tala sérstaklega um kauphækkanir hvað krónutölu varðar heldur vem- lega kaupmáttaraukningu og sér- tækar aðgerðir fyrir þá sem verst standa. Við teljum að það sé komið að því að það megi gera sérstakar aðgerðir fyrir launafólk alveg eins og fyrir fyrirtækin í landinu,“ sagði Sigurður. Þarf að umbylta vísitölukerfi Hann sagði að það væri ekki hægt lengur að tengja saman laun og lánskjör með beinum hætti. Það væri búið að skerða launin um tugi prósenta á nokkrum árum og það gengi ekki á sama tíma að verð- tryggja lánsfjármagnið. Reynslan um langt árabil væri sú að það stæði ekkert eftir af umsaminni launa- hækkun vegna þess að skuldir heimilanna hækkuðu fýrir utan þensluáhrifin og hækkanir annars staðar. Ef það ætti að verða mögu- legt að hækka hin lægra launuðu í þjóðfélaginu yrði því að umbylta þessu kerfí. Síðari umræða um kjaramál á þingi ASA fer fram í dag en þinginu lýkur á morgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.