Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 10/10-16/10.
■ytf jaiíunjiLii
►FINNUR Ingólfsson hef-
ur verið kosinn formaður
þingflokks Framsóknar-
flokksins. Páll Pétursson,
fráfarandi formaður, gaf
ekki kost á sér, en hann
hefur verið formaður í tæpa
tvo áratugi. Jón Helgason,
alþingismaður Framsóknar-
flokksins, ætlar að hætta
þingmennsku í vor, en hann
hefur verið þingmaður í 21
ár.
<~
►HAGVIRKI-KLETTUR
óskaði eftir gjaldþrotaskipt-
um eftir að sýslumaðurinn
í Hafnarfirði innsiglaði fyr-
irtækið vegna vangoldinna
opinberra gjalda. Litlar
eignir eru til í búinu. Rúm-
lega 40 manns hafa unnið
hjá fyrirtækinu síðustu
misserin.
Gassprenging
á Siglufirði
HÚS á Siglufirði stórskemmdist í
sprengingu á Siglufírði. Talið er að
gaskútur hafí sprungið. Hurð og
gluggar tættust í sundur og viðbygg-
ing, þar sem kúturinn var, losnaði frá
húsinu. Einn maður var í húsinu þegar
sprengingin varð, en hann slapp
ómeiddur.
Kvóti tengdur
við stofnstærð
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði í stefnuræðu sinni á Alþingi að
til greina kæmi af hálfu íslendinga að
tengja þann kvóta sem íslendingum
kynni að verða úthlutaður í Barents-
hafí, við stofnstærð Barentshafs-
þorsksins. Davíð sagði að ísland myndi
krefjast kvóta í viðræðum við Norð-
menn um þetta mál.
Reykingar pilta
aukast
►OLYFJAGLÖS og
sprautunáiar fundust í
jarðvegsgám hjá Sorpu fyr-
ir skömmu. Þetta er ekki í
fyrsta skiptið sem sorp frá
heilbrigðisstofnunum finnst
í almennu sorpi.
►LOGI Ólafsson hefur ver-
ið ráðinn þjálfari íslands-
meistara IA í knattspymu.
Logi tekur við þjálfun af
Herði Helgasyni, sem þjálf-
að hefur ÍA síðasta árið.
►GUÐJÓN Magnússon,
skrifstofustjóri í heilbrigð-
isráðuneytinu, þáði þreföld
Iaun á árinu 1991. Auk
starfa hjá ráðuneytinu var
hann kennari í Gauteborg,
kenndi við Háskóla íslands
og gegndi formennsku þjá
Rauða krossi íslands.
REYKINGAR bama eru famar að auk-
ast á ný eftir að hafa minnkað stöðugt
í yfír 20 ár. Reykingar 15-16 ára pilta
hafa aukist mest. Þetta kemur fram í
allsheijarathugun sem héraðslæknar
og Krabbameinsfélagið hafa gert. Tób-
aksvamanefnd vill að brugðist verði
við með þvi að hækka verð á tóbaki
um 10% árlega næstu 5 ár. Andstaða
er við þessa tillögu innan fjármálaráðu-
neytisins vegna þess að hækkunin
myndi hafa umtalsverð áhrif á verð-
lagsvísitölur.
Ný stjórnmála-
samtök
JÓHANNA Sigurðardóttir, fyrrverandi
varaformaður Alþýðuflokksins, boðaði
stofnun nýrra stjómmálahreyfingar í
umræðum um stefnuræðu forsætisráð-
herra á Alþingi. Hún sagði það sitt
markmið að mynda breiðan samstarfs-
vettvang fyrir alla sem aðhylltust fram-
sækna jafnaðarstefnu.
Sjálfsmorð eða
aftaka í Sviss
YFIR fímmtíu manns fundust látnir
eftir þrjá eldsvoða, sem urðu í Sviss
og Kanada aðfaramótt þriðjudags og
miðvikudags. Var allt fólkið í sértrúar-
söfnuði, Reglu sólmusterisins, sem laut
stjóm Kanadamanns, Luc Jouret, en
lýsti sjálfum sér sem Kristi endurbom-
um. 48 létust á tveimur stöðum í Sviss
en fímm í Kanada. Var fólkið margt í
kuflum með plastpoka yfír höfðinu og
höfðu sumir verið skotnir áður en
kveikt var í með íkveikjubúnaði. Flest
benti til, að um hópsjálfsmorð hefði
verið að ræða en nú hallast sumir að
því, að einhveijir hafí beinlínis verið
teknir af lífi. Ekki hefur verið skorið
úr um hvort Jouret er meðal hinna
Iátnu en fyrrverandi safnaðarfélagi
segir, að svo sé áreiðanlega ekki, hann
hafí komið sér undan með fjármuni
safnaðarins.
Blair beið ósigur
í Blackpool
TONY Blair, leiðtogi breska Verka-
mannaflokksins, beið verulegan ósigur
á þingi flokksins í Blackpool í vikunni
þegar samþykkt var
að halda umdeildu
þjóðnýtingarákvæði
inni í stefnuskránni.
Var um að ræða svo-
kailað ákvæði 4 en
þar er kveðið á um
víðtæka þjóðnýt-
ingu. Atkvæðamun-
urinn var þó innan
við eitt prósent og
reyndi Blair að bera
sig vel og sagði, að þetta sýndi að flokk-
urinn væri á réttri leið. John Major
forsætisráðherra hefur líklega grátið
þessa niðurstöðu þurrum tárum en þing
Ihaldsflokksins hefst í Boumemouth í
næstu viku.
►MIKILL jarðskjálfti reið
yfir norðan- og austenvert
Japan og Kúrileyjar sl.
þriðjudag. Er vitað um tíu
dauðsföll og þar af níu á
Kúrileyjum. Var sbjálfta-
styrkurinn 8,2 á Richter og
er því Hklega um að ræða
öflugasta skjálfta á jörðinni
á þessu ári. Mestar skpmmd-
ir urðu á Hokkaido en þar
er stijálsbýlast í Japan.
►RÚSSAR og Norðmenn
veiddu á síðasta ári 50.000
tonn af þorski í Barentshafi
umfram kvóta. Er það fimm
sinnum meira en íslenskir
togarar veiddu. Vegna
þessa heyrast þær raddir
nú í Noregi, að líklega séu
þessar tvær þjóðir ekki þær
réttu til að hafa uppi stór
orð um fiskvemd og skyn-
samlega nýtingu.
► JOSEPH Michel Francois,
lögreglustjóri á Haftí, flýði
yfir til Dómíníska lýðveldis-
ins í vikunni og hafði áður
sent fjölskyldu sína þangað.
Samverkamenn herforingj-
anna óttast mjög hefnd al-
mennings í Iandinu og raun-
ar er talið, að Francois hafi
skipulagt valdarán hersins.
►ÞRÓUNARRÍKIN snerust
gegn iðnríkjunum á fundi
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í
Madrid um síðustu helgi og
olli því aðallega óánægja
með mikla aðstoð við Rúss-
land og sovétlýðveldin fyrr-
verandi. Finnst þróunar-
ríkjunum sem þau hafi
gleymst og áhersla iðnríkj-
anna sé nú öll á ríkin í Aust-
ur-Evrópu.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
SKIPVERJAR vora í óða önn að koma bílunum 40 kyrfilega fyrir á þilfarinu.
Skilst að
ísland sé
ætlað Is-
lendingum
RÚSSNESKUR togari, Vajgatsj
frá Múrmansk, lét úr höfn
síðastliðið föstudagskvöld en
innanborðs voru 56 karlmenn
og þijár konur, sem verið höfðu
strandaglópar í Hafnarfirði um
tíu daga skeið. Þegar blaða-
mann og Ijósmyndara Morgun-
blaðsins bar að var áhöfnin í
óða önn að undirbúa brottför.
Skipverja dreif að með alls kyns
hluti sem þeim höfðu áskotnast;
plastfötur, vélarhluta og verið
var að hífa síðustu bílana um
borð. Þrír úr áhöfninni gáfu sér
þó tima til að spjalla lítillega.
Nikolaj hefur verið á ferða-
lagi með skipsfélögum sínum
síðan í vor. „Við lögðum úr höfn
í Múrmansk 26. maí en nú er
túrnum að ljúka. Við erum við
það að iosna. Við áttum enga
olíu en nú erum við búnir að fá
hana og okkur því ekkert að
vanbúnaði,“ segir Nikolaj og
kveður. Áður en hann fetar sig
upp landganginn bendir hann á
farkostinn og segir „hann er 25
ára. Ekki veitti af að mála
hann“. Og það eru orð að sönnu
því togarinn er ryðrauður hvert
sem litið er og sennilega er túr-
inn sá síðasti.
Einn skipsfélaga Nikolajs,
Alexander, kallaður Sjúra, tek-
ur við. „Við ætluðum bara að
stoppa í þijá daga en áttum í
erfiðleikum með að fá peninga
í bankanum." Er hann er spurð-
ur hvað áhöfnin hafi tekið til
bragðs á meðan segir hann:
„Við höfum notað tímann til að
hvílast. Okkur líkar vel á ís-
landi, fellur vel við Reykjavík.
Áhöfnin hefur líka verið að
kaupa bíla. Ætli við höfum ekki
keypt um 40,“ segir Sjúra sem
hlakkar til að fara heim og taka
sér frí eftir fjögurra mánaða
túr.
Síðastur viðmælenda er Vlad,
22 ára. „Langar þig að vita
hvað við Rússarnir höfum haft
fyrir stafni,“ spyr hann og klór-
ar sér í kollinum undir húf-
unni. „Við biðum eftir pening-
um frá útgerðarfyrirtækinu.
Þess á milli löbbuðum við um á
skipinu. Skruppum í land og
VLAD býr sig undir að hífa þann seinni um borð.
NIKOLAJ kastar kveðju.
skoðuðum bíla,“ segir Vlad og
tekur óvænta stefnu. „Annars
myndi mig langa til þess að
flytjast hingað og fá mér vinnu.
En mér skilst að það sé ekki
gott fyrir Rússa, að ísland sé
ætlað íslendingum. Þó er fólkið
mjög gott. Ég kynntist ungum
manni sem gaf mér heimilisfang
og símanúmer og ég mátti
hringja í hann hvenær sem var,
ef mig vantaði eitthvað, kannski
skrifa ég honum ... Einnig er
fólk mjög hjálpsamt í versl-
unum, sem ég á ekki að venjast
heima fyrir. En fyrir mann með
mín fjárráð er óhemjudýrt að
versla hér. Mér skilst að kosti
2.631 rúblu að kaupa einn
Bandaríkjadal, þannig var það
að minnsta kosti fyrir viku. Það
getur verið að hlutirnir séu
ódýrari í Rússlandi en gæðin
eru ekki mikil. Alls staðar ann-
ars staðar, í Bandaríkjunum,
Kanada, íslandi, Frakklandi,
Spáni, er hægt að finna gæða-
vöru,“ segir Vlad sem keypti sér
tvo bíla. Annar þeirra stendur
á bryggjunni og talið berst að
honum. „Ég keypti hann á 50
dollara. Hann er óökufær en ég )
get notað hurðimar, hjólbarð-
ana og rúðumar, fyrir hinn bíl-
inn.“ Að því búnu hugsar hann '
sig um og bætir við „tvær vikur
em langur tími, ég vildi að til
hefðu verið nógir peningar".
Áhöfnin hefur komið við í
Kanada, Noregi og Danmörku,
auk íslands, segir Vlad en tekið
er að kólna á bryggjunni.
„Heima í Múrmansk er byijað
að snjóa,“ segir hann. „Ætli við !
séum ekki tæpa viku að sigla
heim ef við fáum gott veður. |
En ef vont er í sjóinn gæti sigl-
ingin tekið tæpar tvær vikur.“