Morgunblaðið - 09.10.1994, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER1994 13
MITTERRAND heyr nú síðustu baráttuna, við krabbameinið.
hreyfingunni og er minna vitað um
þau en starf hans hjá Vichy-stjóm-
inni. Eftir stríð, er Mitterrand hafði
losað sig við Francisque-orðuna,
hlaut hann aðra viðurkenningu, Ró-
settuorðu andspyrnuhreyfíngarinn-
ar, sem aðeins 4.800 Frakkar hlutu.
Mitterrand ber Rósettuorðuna enn
við opinber tækifæri.
Þrátt fyrir að lítið sé vitað um
störf forsetans í andspyrnuhreyfíng-
unni, leikur ekki vafí á því að staða
hans var styrk. Á yfírborðinu var
hann orðum prýddur stuðningsmaður
Pétains og hjálparhella stríðsfanga
en undir niðri leyndist félagi í and-
spyrnuhreyfíngunni, sem vann með
samþykki de Gaulles. Hveijar svo
sem lyktir stríðsins yrðu, gæti hann
ekki tapað.
Þegar de Gaulie kom til Parísar í
ágúst 1944 var Mitterrand einn
þeirra sem hélt í ökkla hans þar sem
hann stóð í glugga ráðhússins í Par-
ís og mannfjöldinn fagnaði. De
Gaulle leit niður, sá Mitterrand og
sagði: „Þér ... enn einu sinni.“
Mitterrand tók sæti í bráðabirgða-
stjóm de Gaulles fyrstu tólf dagana
eftir að Þjóðverjar fóru frá völdum,
en hann var ekki í stjóminni sem tók
við. Er de Gaulle lét af völdum 1947
varð Mitterrand hins vegar yngsti
ráðherra Fjórða lýðveldisins.
Skuggalegur stj órnmálamaður
Á næstu ámm bar Mitterrand að
minnsta kosti fímm sinnum vitni í
málaferlum gegn félögum sínum úr
Vichy-stjórninni, þeim í hag. Þeirra
á meðal vom Jean Bouvyer og Jean-
Paul Martin og kom vitnisburður
Mitterrands þeim vel.
Eftir stríð gegndi Mitterrand alls
ellefu embættum á ellefu árum. í
Fjórða lýðveldinu var hann talinn
einn af skuggalegustu stjómmála-
mönnunum á þeim tíma. Hann var
dómsmálaráðherra 1955-56 þegar.
franskar hersveitir fengu leyfí til að
beita félaga í alsírsku frelsissamtök-
unum FLN pyntingum, en þeir börð-
ust fyrir sjálfstæði frá Frökkum.
Aðhylltist hann stefnu hægriöfga-
manna í málefnum hins franska Als-
írs og það var ekki fyrr en árið 1971,
er Mitterrand stofnaði Sósíalista-
flokkinn, að menn fóm að telja hann
vinstrisinna.
Þrátt fyrir fortíð Mitterrands, hef-
ur fjórtán ára forsetatíð hans m.a.
einkennst af lögsóknum gegn sam-
starfsmönnum nasista, sem framið
hafa glæpi gegn mannkyninu. Réttað
var í tveimur þeirra, máli Klaus
Barbie og Paul Touvier.
Nú er vitað að Mitterrand var
andvígur því að Barbie skyldi vera
rænt í Bólivíu og fluttur til Frakk-
lands, var raunar mótfallinn öllum
réttarhöldum yfír stríðsglæpamönn-
um, í nafni hins „sósíalíska friðar".
Hins vegar er ekki ljóst hvers vegna
hann reyndi ekki að koma í veg fyr-
ir þau, þó líklegt megi teljast að
hann hafí ekki viljað styggja gyð-
inga. Það tókst ekki, því þeir em
æfír vegna þess sem komið hefur í
ljós um fortíð forsetans.
Sagan leiðrétt
Ljóst er að ætlun Mitterrands með
uppljóstmnum um fortíð sína er ein-
faldlega sú að koma í veg fyrir að
andstæðingar hans nái að setja sam-
an eigin útgáfu af henni eftir að
hann er fallinn frá. Hann vill sjálfur
draga upp myndina af hollustunni
við Pétain og vinskap sinn við lög-
reglustjórann Bousquet, sem hann
hefur miklar efasemdir um, eftir á
að hyggja. Hann minnir hins vegar
á að margir hafí stutt Vichy-stjómina
og að hún hafí ekki eingöngu byggst
á gyðingahatri. Undir lok ferilsins
óttast Mitterrand að rangt verði far-
ið með staðreyndir um Vichy. Áður
en hann heyrir sögunni til, vill hann
leiðrétta hana.
Byggt á The Sunday Telegraph.
STEINAR WAAGE
íf á kr:
3.995
Stærð: 23-41
Litur: Brúnn
Ath: Loðfóðraðir með
grófum göngusóla.
Okkar áríega IHHHHHHHBhbhhhbhhHHHÍ
BORÐDÚKA ÚTSALA
■■BHHHBHHHm hefst mánudag BH
Straufríir matar- og kaffidúkar, allar stærðir
Kínverskir handunnir dúkar — Handheklaðir borðdúkar —
Blúndudúkar — Flauelsdúkar — Jóladúkar smáir og stórir
Smádúkar og borðrenningar
Borðteppi m/kögri, margar stærðir
20—40% afsláttur.
nri
rK)
'3
Hverfisqötu 74. sími 25270
ÍRSK GUiÐISVFIFLA í DAG OG KVÖfD!
Austurstræti 12 og Kaffi Reykjavík.
Hagstætt feröatilboð!
írarnir eru komnir til Reykjavíkur
The Merry Plowbojs
þjóðlagaflokkurinn vinsœli verður íAusturstrœti 12 í dag
og á Kaffi Reykjavík í kvöld.
Þeir eru orðnir fjölmargir íslensku írlandsfararnir sem eiga góðar minningar um The Merry Plowboys á Fox 's kránni
í Dublin. Rífandi stemmning, söngur, dans og gleði eins og best gerist á írska vísu. Nú gefst þeim tækifæri til að rifja
þessi kynni upp og aðrir fá ósvikna tilfinningu fyrir því hvað bíður þeirra í Dublin. Með í för þjóðlagaflokksins er
einstakur látbragðsleikari. Saman við þessi herlegheit fléttast síðan skemmtileg kynning á írlandi.
I dag mun þessi glaðbeitti hópur mæta á aðal-
skrifstofu Samvinnuferða - Landsýnar,
Austurstræti 12, í ferðaveislu okkarsem
mun standa frá kl. 14-16. Söngur, grín
og gaman. Kók handa öllum! Kl. 21 hefst
síðan hin bráðskemmtilega dagskrá þjóðlaga-
hópsins í Kaffi Reykjavík.
-5^
ÍSLAND8FLUG
O ATLAN* 'TH"
«UROOAIW.':M
SamvliiiiiilBrilir-Laiids ýa
Reyk|uvík: Austurstmti 12 • S. 91 • 691010 • Innanlandsterðlr S. 91 • 6910 70 • Simbrél 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 •
Hótel Sðgu við Hagatoro • S. 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 - 62 24 60 Hatnart|ðrtur Bæjarhrauni 14 • S. 91 - 65 11 55 • Simbrét 91 - 655355
Kellavlk: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Slmbréf 92-13 490 Akranes: Breiðargðtu 1 • S. 93 -1 33 86 • Slmbréf 93 -111 95
Akurejrrt: Ráðhústorgl 1 • S. 96 - 27200 • Slmbréf 96 • 1 10 35 Vattn—eyjer Vestmannabraut 38 • S. 98 • 112 71 • Slmbréf 98 • 1 27 92
Ekki dregur úr gleðinni að þeir sem fyrstir
koma á samkomur íranna fá sérlega
hagstætt ferðatilboð til Dublinar!
POSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐ G R EIÐ S L U A FS L ATT U R
STEINAR WAAGE f
SKÓVERSLUN
SÍMI 18519
Toppskórinn
VEITUSUNDI ■ SÍMI: 21212
VIÐ INGÓIFSTORG
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
SÍMI 689212