Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER1994 MORGUNBLAÐIÐ í tilfinningum íslend- inga til veru útlendra manna hér á landi hefur ýmist ríkt frost eða funi, en þó virðist allur þorri manna í dag orðinn vel sáttur við þá þróun er orðið hefur innan ís- lensks samfélags og fært hefur okkur fjöl- skrúðugra mannlíf, skrifa Ari Eyberg Sævarsson og Sindri Skúlason í þessari grein, sem byggð er á rannsóknum fjölmiðla- fræðinema á viðhorfum gagnvart fimm stærstu hópum innflytjenda er hingað hafa komið. I Islendingar hafa löngum viljað líta á sjálfa sig sem gestrisna þjóð er gott væri heim að sækja, en hversu langt hefur þessi gestrisni náð? Höfum við tekið jafn opnum örmum öllum þeim er hingað hafa viljað flytjast og setjast að til lang- frama eða hafa ákveðnir fordómar iitað afstöðu okkar til þessa fólks? Sé litið til baka og skoðuð þau við- horf, er birst hafa í umfjöllun blaða við komu innflytjendahópa, á hverj- um tíma, þá sjáum við að ekki hefur alltaf verið sama hvaðan viðkomandi hafa komið né heldur af hvaða kyn- þætti og litarhætti þeir hafa verið. Hafa ber þó í huga að tíðarandi og þjóðfélagsástand hafa spilað þarna inn í og mótað viðhorf manna í sam- ræmi við þá strauma, er hæst hefur borið í samfélaginu hveiju sinni. í lokaverkefni fjölmiðlafræðinema við Háskóla íslands, sem unnið var nú í vor, var meðal annars gerð rann- sókn á þeim viðhorfum er birst hafa í blöðum á hveijum tíma gagnvart fimm stærstu hópum innflytjenda er hingað hafa komið. Þeir hópar, sem um ræðir, eru Ungveijar er komu hingað 1956, hópur Júgóslava 1960, Víetnamar 1979, Pólveijar 1982 og loks annar hópur Víetnama sem hér settist að 1990 og 1991. Viðhorfum var skipt í fjóra flokka eftir afstöðu: Jákvæð, þar sem menn voru augljóslega hlynntir komu- mönnum. Hlutlaus, þar sem umfjöll- un tók hvorki afstöðu með þeim eða á móti. Neikvæð, þar sem skrif voru andsnúin flóttamönnum og loks við- horf er innihéldu dulda fordóma, en það eru skrif með neikvæðum undir- tón. Dæmi um slíkt var tii að mynda þegar fólk vildi gjarnan hjálpa flótta- mönnum en bara ekki með því að fá þá hingað. Hugtakið fordóma er FORDOMAR OG ÞJÓÐARSÁLIN VIÐHORF ÍSLENDINGA TILINNFLYTJENDA erfitt að skilgreina á einfaldan og skýran hátt, þar sem það grundvail- ast á tilfinningum. Með notkun þess er þó greinilega vísað til einhvers, sem talið er neikvætt, óæskilegt og jafnvel skaðlegt. I fordómum felst að fólk sé á móti einhveiju án þess að fyrir því séu nein gild rök. Ekki er unnt að kafa nánar í þessar skil- greiningar þar sem það væri efni í aðra grein. Þau viðhorf, er komu fram í blöð- um gagnvart ungversku flótta- mönnunum sem hingað komu, voru nokkuð vinsamleg. Umijöllun var öll á jákvæðum nótum eða þá hlutlaus, sem bendir tii að ró ísiendinga hafi ekki verið raskað þó að 52 flótta- menn hafi hlotið hæli hér á hjara veraldar. Þjóðarsálin gladdist yfir því að fá nú tækifæri til að leika hlutverk hins göfuglynda gestgjafa og geta þannig bætt að nokkru fyr- ir fornar syndir. Yfirvöld gættu þess reyndar að ekki kæmist hver sem er tii landsins og voru það fyrst og fremst stúlkur og menntamenn sem urðu þess „heiðurs aðnjótandi" að hafna hér. Júgóslövunum, sem komu hingað fjórum árum síðar, var rétt eins og Ungveijunum vel tekið. Reyndar virtust þessir einstaklingar, er til- búnir voru til að heyja lífsbaráttuna hér á norðurhjaranum, fá heldur minni athygli almennings, en það má merkja á því að lítið var um þá fjallað í blöðum. Viðhorfin, er þar komu fram, báru hlutleysisreglunni fagurt vitni enda umijöllun öll í þeim anda. En við komu Víetnama árið 1979 var eins og að á menn rynnu tvær grímur og önnur heldur ófrýnileg. Margir töldu það skyldu sína að koma nauðstöddum flóttamönnum tii hjálpar í neyð og sumir litu einn- ig á komu þeirra hingað til lands, sem ferskan blæ framandi menning- ar, er myndi auðga okkar eigin og bera með sér alþjóðlegra andrúms- loft, er yki okkur víðsýni og efldi okkur þar með að þroska og viti. Aðrir virtust bera þann ugg í bijósti að hreinieika íslenskrar þjóðar væri stefnt í voða og að menningararf- leifð okkar væri ógnað og hún gæti beðið skaða af sem ekki yrði bætt- ur. Gott dæmi um þennan hugsunar- hátt er eftirfarandi tilvitnun úr grein, sem að vísu er ekki frá þess- um tíma heldur mun yngri, en lýsir vel því sem um er rætt. „Við eigum að forðast með öilu viti og þreki, kjafti og klóm hvers konar kynblöndun við óskylda kyn- þætti og íhlutun útlendinga í landi voru og í mótun þjóðar vorrar. Aldr- ei hefur hugtakið „ísland fyrir Is- lendinga'* haft eins áríðandi þýðingu og nú.“ Af þessu má sjá að ekki voru all- ir tilbúnir til að bregða sér í hlut- verk hins miskunnsama Samveija og sýna þann náungakærleik sem mörgum hefði þótt sjálfsagður vegna aðstæðna flóttamannanna. Þjóðin fékk hálfgerðan magakrampa er það rann upp fyrir henni að kannski værum við íslendingar ekki jafn for- dómalausir og við höfðum viljað telja sjálfum okkur trú um. Mikill meiri- hluti þeirra skrifa, er birtust á síðum dagblaðanna, fól þó í sér annaðhvort jákvæð eða hlutlaus viðhorf, eða 75,8 prósent. Hlutfall neikvæðrar umfjöllunar verður samt að teljast fremur hátt en það var 18,8 prósent og til duldra fordóma töldust 5,4 prósent. Til samans standa þessir tveir síðari liðir, sem varð nú vart við í fyrsta sinn þegar horft er til hópanna fimm í tímaröð, fyrir 24,2 prósentum heildarumijöllunar. Með tilliti til þess hversu mikla athygli Víetnamarnir vöktu skyldi maður ætla að koma pólskra flótta- manna 1982 hefði átt að leiða af sér miklar umræður á síðum prent- miðlanna. Sú varð þó ekki raunin nema síður væri. Landinn virtist hreint ekki uppveðraður yfir hinni nýju viðbót í íslenska mannlífsflóru því lítil umfjöllun átti sér stað { blöð- um. Fjöldi tilvika, er þeir voru nefnd- ir, var hvorki meira né minna en fimmtánfalt minni heldur en í tiiviki Víetnamanna. Þau viðhorf er birtust í garð Pólveijanna voru að lang- Skipting viðhorfa eftir liðum 100% 80 60 40 20 0 Fréttir Lesenda- dálkar tL« Almenn viðtöl Viötöl viö Götuvjðtö| Innsendar Kjallara- L jð nybua greinar greinar Skipting viðhorfa til hópanna .. Ungverjar Júgóslavar Víetnamar Pólverjar Víetnamar 1956 1960 1979 1982 1990/1991 100% f 80 — 60 — 40 20 0 I I I \í f <

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.