Morgunblaðið - 11.10.1994, Side 4

Morgunblaðið - 11.10.1994, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Dögg Pálsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, um námsleyfi sitt Greiðslur í sam- ræmi við reglur „ÞEGAR ég sótti um launað náms- leyfí til ráðherra leitaði ég til launa- skrifstofu fjármálaráðuneytisins og kannaði hvaða reglur giltu um slík leyfí. Greiðslur til mín voru í fullu samræmi við þessar reglur,“ sagði Dögg Pálsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, í samtali við Morgunblaðið. í Morgunpóstinum í gær er því haldið fram, að Dögg hafí verið ráð- in deildarstjóri hjá ráðuneytinu þegar hún hafði nýlokið laganámi. Þá hafí hún fengið laun í eitt ár, á meðan hún stundaði framhaldsnám í Banda- ríkjunum, búin hafí verið til ný deild- arstjórastaða fyrir hana eftir að hún kom heim og ráðuneytið hafí keypt af henni skýrslu um öldrunarmál á íslandi, sem hún hafí samið á launum á námstímanum erlendis. Loks segir í Morgunpóstinum að Dögg þurfí ekki að leita til skrifstofustjóra ráðu- neytisins til að fá uppáskrift fyrir utanlandsferðum, heldur leiti hún beint til föður síns, Páls Sigurðsson- ar ráðuneytisstjóra. Dögg er nú stödd í Finnlandi, en í samtali við Morgunblaðið í gær sagði hún að frétt Morgunpóstsins gæfi tilefni til athugasemda og leið- MORGUNBLAÐINU barst í gær ályktun frá Stjóm læknaráðs Land- spítalans sem er svohljóðandi: „í viðtali við Morgunblaðið hinn 7. október sl. lét dr. med Guðjón Magnússon, skrifstofustjóri, þau ummæli falla að sjúkrahúslæknar noti námsleyfi sín til að starfa að launuðum störfum erlendis samtímis því að þeim væru greiddir dagpening- ar auk óskertra launa. Stjóm læknar- áðs Landspítalans þykir miður að skrifstofustjóri heilbrigðisráðuneytis skuli hafa komist þannig að orði að svo líti út sem hér sé um venju frem- ur en undantekningar að ræða og vísar þessari alhæfíngu á bug. Stjórn læknaráðs Landspítalans þekkir ekki þess dæmi að læknar spítalans hafí notað dagpeningagreidd námsleyfí sín á þann hátt sem hér er gefíð í skyn. Skylt er geta þess hér að í gildandi kjarasamningum sjúkrahús- lækna eru skýr ákvæði um að taki læknir önnur laun í námsleyfi komi tilsvarandi frádráttur á dagpeninga- greiðslum. Enda þótt oft áður hafí verið skýrt frá eðli og tilhögun námsleyfa Kveikt í póstkassa í anddyri ELDUR kom upp í póstkassa í þriggja hæða ijölbýlishúsi við Flúða- sel síðdegis á sunnudag. Samkvæmt upplýsingum Slökkviliðsins í Reykja- vík náðu krakkar sem urðu eldsins varir að hringja á dyrabjöllum og láta vita um hann. Embla Ýr Guðmundsdóttir, 15 ára, sem býr í íbúð á efstu hæð, hringdi á slökkvilið. Hún var beðin um að kíkja niður og sjá í hverju eldurinn væri en komst ekki nema niður á næstu hæð vegna reyks og þurfti að snúa við talsvert skelkuð. Slökkviliðið kom fljótlega á stað- inn og gekk slökkvistarf mjög greið- lega. Fólk var inni í tveimur íbúðum af sex og var það beðið að halda sig inni í íbúðunum og opna ekki inn í þær. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðs var fólkið aldrei í hættu. Mikill reykur var í anddyri og stigagangi og urðu einhveijar skemmdir. Talið er að um íkveikju hafí verið að ræða. réttinga af sinni hálfu. „Ég lauk lagaprófi árið 1980 og fór í eins árs framhaldsnám til Svíþjóðar. Árið 1981 hóf ég störf sem fulltrúi í heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneyt- inu. Árið 1983 skipaði heilbrigðisráð- herra mig í stöðu deildarstjóra í ráðu- neytinu, eftir að sú staða hafði verið auglýst laus til umsóknar. Árið 1985 sótti ég um til ráðherra að hann veitti mér heimild til að fara í náms- leyfí á grundvelli heimildar í kjara: samningum og var það samþykkt. í námsleyfí mínu fékk ég greidd föst laun í 3'/2 mánuð og 60% fastra launa fram til 15. ágúst 1986. Þessar greiðslur voru í samræmi við þær reglur, sem launaskrifstofa fjármála- ráðuneytisins gaf upp að giltu í tilvik- um sem þessum. Þess má þó geta, að hluti greiðslnanna átti rót að relq'a til orlofsuppgjörs og þóknunar fyrir sjúkrahúslækna, þykir rétt að áretta eftirfárandi; Samkvæmt lögum er læknum skylt að viðhalda og auka þekkingu sína og færni. Þetta er gert með þátttöku í námskeiðum, endurmenntun og hæfíngu og á ann- an hátt. Sem betur fer er það metn- aður allra lækna sem starfa við Land- spítalann og aðrar stofnanir að halda þessi ákvæði í heiðri og sambönd þeirra og spítalans við erlenda kol- lega og sjúkrahússtofnanir eru með þeim ágætum að auðvelt hefur verið að komast á námskeið, hæfíngar- kennslu hverskonar, auk þátttöku í daglegri starfsemi og læknaþingum. Ósjaldan er einnig um þátttöku í vís- indastarfsemi hinna ýmsu stofnana að ræða. Allt þetta notfæra læknar sér óspart og í raun verulega umfram það sem þau námsleyfí sem felast í kjarasamningum sjúkrahúslækna leyfa og þá á eigin kostnaði. Stjóm læknaráðs Landspítalans harmar að með ummælum Guðjóns Magnússonar um launuð störf lækna í námsleyfum skuli vakin upp raka- laus og ómaklega tortryggni í garð sjúkrahúslækna. GUÐMUNDUR Bjamason fyrrver- andi heilbrigðisráðherra segist ekki hafa gert samning um að Guðjón Magnússon skrifstofustjóri ráðu- neytisins fengi greitt uppsafnað námsleyfí umfram kjarasamninga lækna. Guðmundur rakti á Alþingi í gær bréfaskipti milli Guðjóns Magnússon- ar og sín í tengslum við ráðningu Guðjóns sem skrifstofustjóra heil- brigðisráðuneytisins árið 1990. I umsóknarbréfi óskaði Guðjón, sem þá var aðstoðarlandlæknir, eftir að fá að gegna áfram varafor- mennsku í Alþjóðasambandi Rauða- krossfélaganna. Einnig bað hann um að fá áfram laun samkvæmt kjara- samningi Læknafélagsins og að gegna áfram hlutastarfí sem dósent við læknadeild HÍ. Þá vakti Guðjón athygli á því í bréfínu, að hann hefði skýrslu á ensku um öldrunarmál á íslandi. Mér var síðar falið að þýða skýrsluna á íslensku og fyrir þá vinnu fékk ég greitt sérstaklega. Þar sem ég er stödd í Finnlandi get ég að svo stöddu ekki gefið upplýsingar um hve há sú greiðsla var. I námi mínu naut ég styrkjar frá Alþjóðaheil- brigðismálastofnuninni, sem nægði fyrir skólagjöldum, auk þess sem ég fékk styrk úr Thor Thors sjóðnum, sem mig minnir að hafi verið um eitt þúsund dollarar í einni greiðslu.“ Staðan ekki búin til Dögg sagði að staða deildarstjóra í alþjóða- og lögfræðideild hafí ekki verið búin til fyrir sig. „Þegar ég sneri heim eftir tveggja ára dvöl vestanhafs hafði Almar Grímsson, deildarstjóri, sem fór með alþjóða- mál, nýlega hætt störfum í ráðuneyt- TVEIR bílar lentu hvor framan á öðrum á brúnni yfír Jökulsá á Breiða- merkursandi síðdegis á laugardag. Ökumaður annars bílsins var fluttur með þyrlu á slysadeild Borgarspítal- ans. Loka þurfti veginum í hálfan annan tíma vegna slyssins. Báðir bílamir vom íjarlægðir með kranabíl. Brúin er hálfgerð blindhæð vegna sér námsleyfí samkvæmt kjarasamn- ingum. Guðjón var settur í starf skrif- stofustjóra nokkru síðar og þá skrif- aði Guðmundur Bjarnason honum bréf um setningu hans í starfíð. Þar kemur fram að fallist var á skilyrði Guðjóns varðandi kjarasamning og aukastörf sem hann vildi gegna. „Um áunninn námsleyfísrétt vegna starfa yðar sem aðstoðarlandlæknir fer samkvæmt samningum," segir síðan að lokum í bréfínu. Ferðakostnaður ekki mál ráðherra Guðmundur sagði að Guðjóni hafði fljótlega boðist tímabundin prófess- orsstaða við háskóla í Gautaborg. Þar sem Guðjón hefði þá verið að vinna að mörgum mikilvægum störf- inu. Það þótti eðlileg skipan mála að ég tæki við þeim málaflokki, auk lögfræðilegra verkefna í ráðuneytinu og að sá sem leysti mig af í öldrunar- málum héldi áfram með þau verk- efni. Ég var síðan skipuð einn fjög- urra skrifstofustjóra ráðuneytisins árið 1990, af þáverandi heilbrigðis- ráðherra." Hvað varðar þá staðhæfíngu Morgunpóstsins, sem höfð er eftir heimildum innan ráðuneytisins, að Dögg leiti beint til ráðuneytisstjór- ans, föður síns, vegna staðfestinga á utanlandsferðum, þá sagði Dögg að sú regla gilti í ráðuneytinu að sérhverjum starfsmanni bæri að leita samþykkis ráðuneytisstjóra fyrir ut- anferðum. „Það nær því engri átt að reyna að halda því fram, að um mig gildi sérreglur í þessu sam- bandi,“ sagði hún. Dögg bætti því við, að hún hefði starfað í heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu á annan áratug, undir yfírstjórn fímm ráðherra. „Eg hef ekki merkt að litið væri svo á að ég væri í starfi mínu undir sér- stökum vemdarvæng ráðuneytis- stjóra eða að störf mín væm þannig vaxin að ég þyrfti á því að halda.“ þess hve kúpt hún er og vegna þess að lægð er í veginn beggja megin við. Timburgólf er í henni og erfitt að hemla á henni ef bílar koma inn á hana á einhverri ferð í bleytu. Ökumaðurinn sem fluttur var Borg- arspítalann er ekki talinn í lífshættu. Hjón, sem voru í hinum bílnum reynd- ust vera með minniháttar meiðsl. um fyrir ráðuneytið sagðist Guð- mundur hafa talið það mikilvægt að Guðjón sinnti starfí sínu þar áfram en jafnframt væri það mikill heiður fyrir Guðjón og íslenska heilbrigðis- þjónustu að hann þægi starfið í Gautaborg. „Við gerðum um það samkomulag hvernig að því yrði staðið, hvemig það myndi falla að störfum hans í ráðuneytinu og hvernig hægt væri að sinna þessum störfum báðum samtímis. Auðvitað kann það að vera umdeilanlegt að ráða menn til þess að gegna tveimur stöðum á sama tíma,“ sagði Guðmundur. Hann sagði það síðan ekki vera á verksviði ráðherra að fara yfír ferða- kostnaðarreikninga heldur yfirmanna embættisins. Það hlyti síðan að vera hlutverk ríkisféhirðis og launadeildar að gera við þá athugasemdir. Mennta- málaráð- herra hef- ur úthlutað 12,4 millj. Menntamálaráðuneytið hefur sent frá sér upplýsingar um ráðstöfunarfé ráðherra, sem á þessu ári er 18 millj- ónir króna. Ráðherra hefur þegar ráðstafað tæpum 12,4 milljónum, en í yfírliti ráðuneytisins er ekki tíundað hvert hver styrkur rennur. í yfírliti ráðuneytisins segir, að ýmsir styrkir til einstaklinga og sam- taka á þessu ári nemi tæpum fjórum milljónum, undir liðnum „vísinda- og fræðistörf" hafí verið úthlutað styrkjum til einstaklinga og samtaka að upphæð rúmar .2,5 milljónir króna og undir liðnum „listir framlög" hafi einstaklingar og samtök fengið styrki að upphæð tæpar 4 milljónir. Þá nemi ýmis framlög til safna 1,9 milljónum. Samtals hafí því verið út- hlutað 12.380 þúsundum á þessu ári. í upplýsingum ráðuneytisins segir, að ráðstöfun þessa fjár sé ákveðin á grundvelli athugunar, sem embættis- menn ráðuneytisins geri á umsóknum um styrki og leggi fyrir ráðherra. „Að sjálfsögðu berast ráðherra beint ýmis erindi sem fá venjulega athugun í ráðuneytinu. Um geðþóttaákvarðanir ráðherra er því ekki að ræða þegar ráðstafað er safnliðum ráðuneytisin,“ segir í upplýsingunum. ------» » ♦----- Fullyrð- ingum um beljukjöt mótmælt FORRÁÐAMENN Fjarðarkaupa og Kjötbankans hafa sent frá sér yfír- lýsingu til að.mótmæla þeim ummæl- um Oskars Magnússonar, forstjóra Hagkaups, í samtali við Morgunblað- ið, að samkeppnisaðilar fyrirtækisins selji „beljukjöt" öfugt við Hagkaup sem skýri af hveiju verð hjá Hag- kaupum sé hærra. Krefjast fyrirtæk- in afsökunarbeiðni frá Oskari. í yfir- lýsingunni segir: „Fyrir skömmu kom í ljós í verð- könnun að nautahakk var yfír 50 prósentum dýrara í Hagkaupi en Fjarðarkaupum. í sömu könnun kom í ljós að innkaupakarfan var dýrust í Hagkaupi en sex verslanir voru ódýrari, þar með talin Bónus, Fjarð- arkaup, Kjöt og fískur, Garðakaup og 10 til 11. í tilefni af þessari könnun lét Ósk- ar Magnússon, forstjóri Hagkaupa, hafa eftir sér í viðtali við Morgun- blaðið fullyrðingar sem ekki er hægt að láta ósvarað. Hann sagði m.a. að „hinir" seldu „beljukjöt" en ekki hann. Hann sagði að „hinir“ blönd- uðu próteini og vatni í kjötið en ekki hann. í ljósi þessara ummæla vilja for- ráðamenn Fjarðarkaupa og Kjöt- bankans, sem vinnur allt nautahakk fyrir Fjarðarkaup, láta koma fram: I Fjarðarkaupum eru seldar tvær tegundir nautahakks: 1. flokkur sem unninn er úr ungneytakjöti og er hakkið sem tekið var i umræddri verðkönnun, og svo 2. flokkur sem unninn er úr aðeins feitara kjöti. í Fjarðarkaupum er ekki selt kjöt sem unnið er úr „beljukjöti" og ekki próteinbætt eða vatnsblandað hakk og hefur ekki verið. Að halda slíku fram er ekkert annað en rógur af verstu tegund og við skorum á Ósk- ar Magnússon að biðjast afsökunar á þessum ummælum. Hins vegar mætti spyrja Óskar að því hvert sé innihald „nautgripa- hakksins" sem selt er undir vöru- merkinu „Góður kostur“ í verslunum Hagkaupa - og reynir nú á neyt- endablaðamenn að kynna sér það.“ Læknaráð Land- spítalans harmar ummæli Guðjóns Mcrgunblaðið/Sævar Sigurðsson BÍLARNIR skemmdust mikið og þurfti að fjar- lægja þá með kranabíl. Ökumaður annars bíls- ins var fluttur mikið slasaður með þyrlu á Borgarspítalann. Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Slys við Jökulsá á Breiðamerkursandi Brúin eins og blindhæð Guðmundur Bjamason fyrrverandi heilbrigðisráðherra Samdi ekki um greiðsl- ur umfram samninga til þessa ekki átt þess kost að nýta * * I í > \ i I I I I : : I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.