Morgunblaðið - 11.10.1994, Page 6

Morgunblaðið - 11.10.1994, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Málflutningi í héraðsdómi lokið í meintu skattsvikamáli fyrrum tryggingayfirlæknis Verjandi segir jafn- ræðis ekki hafa gætt við meðferð málsins HELGI V. Jónsson, hrl., vetjandi Bjöms Önundarsonar, fyrrum tryggingayfirlæknis, sagði við mál- flutning sakamálsins vegna meintra skattsvika Bjöms í héraðsdómi Reykjavíkur í gær að Bjöm og aðr- ir læknar sem skattayfírvöld hafí tekið til rannsóknar vegna meints undandráttar á tekjum við örorku- mat hafi ekki fengið að njóta jafn- ræðis á við aðra borgara í landinu og hafí mál þeirra hlotið mun harka- legri meðferð en önnur sambærileg mál. í fyrsta skipti í sögunni hafi málum sem eingöngu snúist um ætluð brot á lögum um tekju- og eignarskatt, en ekki jafnframt t.d. brot á hegningarlögum, verið vísað til dómsmeðferðar en ekki afgreidd innan skattkerfísins. Veijandinn kvaðst telja meðferð málsins á rann- sóknarstigi andstæða lögum og rakti ágalla sem hann teldi að ættu að leiða til frávísunar málsins. Hann fór sérstaklega hörðum orðum um þátt ríkisskattstjóra í málinu og sagði að dóttur Bjöms Önundarson- ar hefði verið vikið úr starfí lögfræð- ings í virðisaukaskattsdeild Ríkis- skattstjóra vegna hinna ætluðu brota föður hennar á lögum um tekju- og eignarskatt. Þá sagði hann að Bjöm og fjölskylda hans hefðu setið undir stöðugum fjölmiðlaárás- um í á fjórða ár og hefði sú herferð byggst á upplýsingum frá opinber- um starfsmönnum sem brotið hefðu lögbundna þagnarskyldu sína. Sigríður Jósefsdóttir saksóknari fer með málið fyrir hönd ákæru- valdsins. í ákæra ríkissaksóknara er Birni Önundarsyni gefíð að sök að hafa vantalið samtals 15,8 millj- ónir króna á skattframtölum sínum á árunum 1989-1989 vegna tekna áranna 1988-1900. Um hafí verið að ræða tekjur af sjálfstæðri starf- semi við gerð örorkumata fyrir tryggingafélög samhliða starfí sínu hjá Tryggingastofnun ríkisins og þar með komist hjá því að greiða rúmlega 5,9 milljónir króna í tekju- skatt og útsvar. 15,8 milljónir vantaldar Tekjur ársins 1988 hafí verið vantaldar um 3,6 milljónir króna, sem leitt hafí til þess að ríkissjóður hafí það ár orðið af um 1.250 þús- und krónum í tekjuskatt og útsvar. Árið 1989 hafí tekjumar verið van- taldar um 5,1 milljón og álagðir skattar því orðið um 1,9 milljónum lægri en rétt var og árið 1990 hafí tekjur verið vantaldar um rúmar 7 milljónir króna og það ár hafí ríkið með hinum meintu brotum verið hlunnfarið um tæplega 2,8 milljónir króna í tekjuskatt og útsvar. Brot læknisins era talin varða við 107. grein laga um tekju- og eignarskatt þar sem veitt er heimild til að refsa manni sem skýrir rangt eða villandi frá einhveiju sem máli skiptir um skatta hans af ásetningi eða stór- Hefur þú kynnt þér Lífeyrissjóðinn Einingu? Hringdu í síma 689080 og fáðu upplýsingar KAUPÞING HF. - löggilt verðbréfafyrirtæki - kostlegu hirðuleysi með sektum sem nemi allt að tífaldri þeirri skattfjár- hæð sem undan er dregin. í málatil- búnaði ákæravaldsins er einnig vís- að til 6. málsgreinar 107. greinar þar sem segir að sé brot ítrekað eða sakir miklar varði brot, auk sektar, varðhaldi eða fangelsi allt að 6 áram. Hefur greitt um 9 millj. í skatt og álag Fram kom að vegna málsins hefði Bjöm Önundarson sætt endur- ákvörðun skatta fyrrgreindra ára. Niðurstaða þar orðið sú að krefja hann um rúmlega 9 milljónir króna í vangoldin gjöld að meðtöldu álagi og hefði Bjöm greitt þá fjárhæð alla. Frá sektarfjárhæð beri að draga álag sem Björn hafí þegar greitt til ríkissjóðs. Sigríður Jósefsdóttir saksóknari sagði að tii þess að geta með óyggj- andi hætti aflað tæmandi upplýs- inga um þau örorkumöt sem Bjöm hefði unnið að árin 1988-1990 hefði rannsóknin þurft ná aftur til ársins 1979 þar sem líkamstjónamálum væri haldið opnum í allt að 10 ár hjá tryggingafélögum. Rannsóknin hefði hins vegar takmarkast við árið 1986 og sagði Sigríður að því væru niðurstaðan um 15,8 milljón króna undandrátt ekki endilega tæmandi og m.a. væri óljóst hvort upplýsingar um þær 1.273 þúsund króna tekjur sem Bjöm taldi fram vegna vinnu við örorkumat þessi ár kæmu fram í niðurstöðum rann- sóknarinnar. Saksóknari sagði að fram hefði komið hjá Birni að hann teldi sig eiga rétt á að draga frá tekjum vegna örorkumats ýmsan kostnað en allar upplýsingar um þann kostn- að væru ófullnægjandi enda hefði Bjöm ekki haldið bókhald eins og honum hefði borið að gera. Sak- sóknari kvaðst telja vafasamt að hægt væri að láta ákæravaldið bera hallann af því að bókhald hefði ekki verið fært. Bókhaldsvanræksla hefði þær afleiðingar að ýmis atriði væru óljósari en ella í málinu. Sigríður Jósefsdöttir sagði að fjöl- miðlaumfjöllun um mál Björns og annarra tryggingalækna hefði verið gríðarleg en hafnaði því að áhrif þeirrar umfjöllunar bæri að virða Birni til refsilækkunar. Brot hans hafi orðið til þess að auka skatt- byrði annarra borgara, þau hafí verið stórfelld og til þess fallin að spara honum umtalsverðan hágnað á kostnað samfélagsins. Hún vísaði sérstaklega í niðurstöðu Hæstarétt- ar í hliðstæðu máli læknis sem ákærður var fyrir að draga undan 15,5 milljónir króna frá skatti vegna örorkumats og hefði verið dæmdur til að greiða 3 milljónir króna í sekt og hefði auk þess verið dæmdur í 3 mánaða varðhald skilorðsbundið til 2 ára. Formgallar leiði til frávísunar Helgi V. Jónsson hrl., veijandi Björns Önundarsonar, sagði að skjólstæðingur sinn legði áherslu á að fá fram niðurstöðu í þessu máli en lögmaðurinn sagði að engu að síður væru svo miklir formgallar á meðferð málsins að þeir ættu að leiða til þess að málinu yrði vísað frá dómi. Teldi dómurinn hins vegar ekki efni til frávísunar krafðist hann sýknu en ella vægustu refsingar sem lög leyfa. Lögmaðurinn sagði Bimi Önund- arsyni og öðram þeim læknum sem skattkerfíð hefði tekið fyrir vegna örorkumata hefði verið synjað um að njóta þess jafnræðis sem tryggt eigi að vera að menn njóti gagnvart lögum. í málum þeirra hafi í fyrsta skipti verið vísað til dómsmeðferðar meint- um brotum sem eingöngu varði lög um tekju- og eignarskatt. í öðrum ákæramálum hafi ávallt verið jafn- framt um að ræða brot á öðrum lögum, s.s. hegningarlögum, en hlið- stæð mál hafí ávallt áður verið leidd til lykta innan skattkerfísins, án atbeina lögreglu og dómstóla. Helgi V. Jónsson sagði að lögum og venju samkvæmt önnuðust skatt- stjórar sjálfir rannsóknir skattsvika- mála en skattrannsóknastjóri ann- aðist rannsóknir meiriháttar mála. Eftir rannsókn taki ríkisskattstjóri mál til meðferðar og leggi á gjald- anda álag sem megi kæra til ríkis- skattstjóra og síðan til yfirskatta- nefndar. Fyrst eftir að endanlegur úrskurður yfírskattanefndar liggi fyrir sé heimilt að vísa málum til opinberrar rannsóknar og dóms- meðferðar. Gegn þessari reglu hafí verið brotið við meðferð máls Bjöms Önundarsonar og kollega hans því svo virðist sem opinber lögreg- lurannsókn á þeirra máium hafí hafist meðan málið var enn til með- ferðar hjá skattayfírvöldum og skattayfírvöld hafí haldið afskiptum af málinu áfram eftir að rannsókn lögreglu hófst þrátt fyrir skýrar lagareglur um það að eftir að opin- ber meðferð vegna meints skatta- lagabrots sé hafín eigi dómstólar einir forræði málsins hvað varðar ákvörðun skattstofna, vangoldinna gjalda, sekta og annarra viðurlaga. Fyrst eftir 18. janúar í ár, þegar úrskurður yfírskattanefndar lá fyrir, hefði verið heimilt að taka ákvörðun um framhaldsmeðferð fyrir dómi en það hefði ríkisskattstjóri hins vegar gert í blóra við lög þegar á árinu 1992. Vikið úr starfi vegna rannsóknar á málum föður Helgi V. Jónsson sagði að fram- ferð ríkisskattstjóra í öllu þessu máli hefði verið með ólíkindum og tók sem dæmi að meðan rannsókn málsins stóð yfir hefði dóttur Bjöms Önundarsonar verið vikið fyrirvara- laust úr starfi lögfræðings við virðis- aukaskattsdeild embættisins eftir að hún hafði starfað þar í tvo daga. Ástæðan hafí verið sú að meint brot föður hennar gegn lögum um tekju- og eignarskatt höfðu verið tekin til rannsóknar. í öllum samskiptum við Ríkisskattstjóraembættið í þessu máli hefði engin leið verið að koma að rökum í sambandi við málstað Bjöms Önundarsonar. Lögmaðurinn sagði að annmarkar á meðferð málsins væra slíkir að rík- issaksóknara bæri að afturkalla ákæra í málinu en ella bæri að vísa málinu sjálfkrafa frá dómi. Málsmeð- ferðin væri ekki lögum samkvæmt og útilokað væri að leggja blessun yfír það löglausa, tvöfalda kerfí um álagningu opinberra gjalda sem starfað hefði verið eftir í málinu þar sem óljós skil hefðu verið á milli áætlunar opinberra gjalda á stjóm- sýslustigi og opinberrar rannsóknar samkvæmt ákvæðum laga um með- ferð opinberra mála. Helgi sagði eitt einkenni máls- meðferðarinnar vera það að í engu hefði verið sinnt um þá lagaskyldu að rannsaka einnig það sem Björn Önundarson kynni að hafa sér til málsbóta, t.d. varðandi þann kostn- að sem hann hefði borið vegna gerð- ar örorkumata, svo sem vegna vél- ritunar-, skrifstofu- og innheimtu- kostnaðar. Þannig væri niðurstaða skattyfírvalda sú að gera ætti Birni að greiða skatt vegna þóknunar til verktaka fyrir vélritun; þóknunar sem ekki hefði rannið til hans en hann aðeins haft milligöngu um að koma á framfæri, án þess að gerður hefði verið nægjanlegur reki að því að kanna sannleiksgildi fullyrðinga Bjöms um að unnt væri að fínna gögn sem styddu þann kostnað. Vangoldnir skattar aldrei meiri en 5,2 millj. Helgi V. Jónsson sagði að ef far- ið væri yfír gögn málsins án þess að dreginn væri frá nokkur kostnað- ur til lækkunar skattstofni yrði nið- urstaðan sú að vangoldinn tekju- skattur og útsvar Björns Önundar- sonar hefði að hámarki numið 5,2 milljónum króna. Þá ætti dómurinn eftir að meta hvað væri sanngjamt og eðlilegt að meta til frádráttar vegna kostnaðar Björns við starf- semina í samræmi við fyrirliggjandi gögn í málinu en Bjöm teldi sig eiga rétt á því í samræmi við kjara- samning Læknafélags Reykjavíkur að litið yrði svo á að helmingur greiðslna til hans teldust til launa en helmingur til kostnaðar. Þrátt fyrir að Björn hefði ekki sætt sig við úrskurði skattyfírvalda um mál hans hefði hann greitt í samræmi við þá niðurstöðu og ættu öll þau viðurlög sem hann hefði þegar innt af hendi að koma til frá- dráttar sektum. Helgi sagði að í framkvæmd hefðu sektir í skattamálum verið mjög vægar og einungis fáum mál- um hefði verið vísað til dómsmeð- ferðar heldur hefðu skattyfirvöld jafnan talið nægilegt að beita 25% álagi á vantaldar tekjur. Sú venja hefði hins vegar ekki verið látin gilda um mál læknanna íjögurra. Þrír þeirra hefðu kosið að halda ekki uppi vömum, en sætta sig þess í stað við óeðlileg málalok. Björn einn hefði kosið að leita efnislegrar niðurstöðu í málinu. Helgi V. Jónsson sagði að Björn Önundarsson ætti sér ýmsar máls- bætur sem ættu að leiða til refsi- lækkunar. Bjöm hefði tekið í upp- hafí þá ákvörðun að stuðla að því að upplýsa málið að fullu og greiða það sem honum bæri miðað við eðli- lega málsmeðferð. Hann hefði sjálf- ur aflað gagna sem upplýst hefðu um heildartekjur hans við gerð ör- orkumats en þær upplýsingar hefðu leitt til hækkunar á fjárhæð máls- ins. Þá hefði hann greitt strax í samræmi við úrskurð yfirskatta- nefndar þótt hann hefði verið ósam- mála niðurstöðunni. Þá yrði ekki séð þegar tekið væri tillit til kostnað- arfrádráttar að Bjöm hefði hagnast veralega á hinu meinta undanskoti. Bjöm væri 67 ára gamall og hefði starfað sem opinber starfsmaður í 38 ár. Fjölmiðlaaðkast brot á Mannréttindasáttmála Undanfarin 4 ár hefði hann og fjölskylda hans orðið fyrir veralegu aðkasti vegna meðferðar fjölmiðla á málinu. Þótt saksóknari teldi þá umfjöllun ekki eiga að hafa áhrif á refsingu kvaðst Helgi ósammála því enda væri öll umfjöllunin runnin undan rifjum opinberra starfsmanna sem hefðu brotið þagnarskyldu sína og veitt upplýsingar um málið. Lög- maðurinn sagði refsikenndar afleið- ingar brota Björns komnar fram í ríkum mæli. Hann hefði vikið úr embætti og væri nú atvinnulaus. Til þess bæri að taka tillit ásamt atlögu fjölmiðla að fjölskyldu Björns sem Helgi kvaðst telja andstæða ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu. Að teknu tilliti til þess sem Bjöm hefði þegar greitt mætti segja að skattar hans til ríkisins séu að fullu greiddir ásamt viðurlögum. Hins vegar hefði málið orðið ríkinu óþarflega dýrt í rekstri vegna þess háttar að rannsaka málið samtímis á tveimur vígstöðvum og vegna þess háttarlags væri rétt að fella allan sakarkostnað á ríkissjóð. Að loknum málflutningi var málið tekið til dóms og má vænta niður- stöðu Hjartar O. Aðalsteinssonar héraðsdómara og meðdómenda hans á næstu vikum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.