Morgunblaðið - 11.10.1994, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.10.1994, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 FRÉTTIR Lena eignast 11 hvolpa TÍKIN Lena, sem er 5 ára Gold- en Retriever og ættbókarfærð, hefur í nógu að snúast þessa dagana því hún eignaðist 11 hvolpa fyrir 7 vikum. Að sögn Njarðar Helgasonar, eiganda Lenu, mun þetta vera eitt stærsta got hjá tveimur hrein- ræktuðum Golden Retriever- hundum. Móðir Lenu var úr 11 hvolpa goti og virðist frjósemin erfast til Lenu. Faðir hvolpanna heitir Nollar Baldur Örn, en hann er nýkominn í ræktun hér- lendis. Landssamtökin Þroskahjálp Skorað á Alþingi að tryggja mann- réttindi fatlaðra FULLTRÚAFUNDUR Landssam- takann.a Þroskahjálpar sem hald- inn var í lok september samþykkti ályktun þess efnis að skora á Al- þingi að tryggja mannréttindi fatl- aðra þegar mannréttindaákvæði Margir eiga erfitt með að trúa verðinu á Peugeot 405 íslensku stjórnarskrárinnar verða endurskoðuð. Yfirskrift fundarins var mann- réttindi, réttindagæsla, réttarör- yggi og var ályktað um mannrétt- indamál, skólamál, húsnæðismál og málefni Kópavogshælis. Fund- inn sóttu um 100 manns en hann var öllum opinn. Fyrirlesarar komu úr röðum alþingismanna, lögfræð- inga, foreldra og fagfólks og vöktu fyrirlestrar fulltrúa átaks félags þroskaheftra mesta athygli. Sú krafa samtakanna Þroska- hjálpar var áréttuð að stjórnvöld beiti sér strax fyrir úrlausnum í búsetumálum mikið fatlaðra. Jafn- framt var á fundinum gerð sú krafa að þeim stæðu til boða sér- hannaðar einstaklingsíbúðir þar sem veitt væri sólarhringsþjónusta sniðin eftir þörfum hvers og eins. I skólamálum lýsti fundurinn yfir áhyggjum sínum vegna þess að ekki væri kveðið skýrt á um rétt fatlaðra barna til sérkennslu og sértæks stuðnings í drögum að frumvarpi um grunnskóla og einn- ig að það uppfyllti ekki þær vænt- ingar foreldra fatlaðra barna um einn skóla fyrir alla. Taldi fundur- inn því rétt að endurskoða einstak- ar greinar frumvarpsdraganna í því skyni að tryggja rétt fatlaðra barna til náms í heimaskóla með afgerandi hætti. Að lokum lýsti fundurinn yfir ánægju sinni með þá ákvörðun stjórnarnefndar Ríkisspítalanna að búa íbúum Kópavogshælis sama- stað annars staðar. Brattabrekka Þrennt á sjúkrahús ÞRENNT var flutt á Borgarspítala eftir árekstur í Bröttubrekku skömmu eftir kl. 1 aðfararnótt laugardags. Tveir fólksbílar skullu saman á blindhæð með þeim afleiðingum að bílstjórarnir og farþegi í öðrum bílnum slösuðust töluvert. Þre- menningarnir voru fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Akranesi og stuttu síðar var einn þeirra fluttur með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar á Borgarspítala. Hann var með höfuðáverka en ekki talinn í lífshættu. Meiðsl hinna voru minni og voru þeir fluttir til Reykjavíkur í sjúkrabíl um nóttina. Bílamir voru fluttir burt með kranabíl. Slysið átti sér stað Borgarfjarðar- meginn, um 3,2 km frá þjóðvegin- um. Sorp brennur hjá Sorpu ELDUR kom ugp í sorpi á urðunar- stað Sorpu í Álfsnesi snemma á laugardagsmorgun. Slökkviliðs- menn frá Reykjavík voru um fjóra klukkutíma að ráða niðurlögum eldsins. Fjöldi slökkvi- og vatnsbíla tók þátt í slökkvistarfinu og eins var notast við stórvirkar vinnuvél- ar, sem óku jarðveg yfir glæðurn- ar. Talsverður reykur myndaðist, m.a. logaði í dekkjum. Að sögn slökkviliðs var erfitt að ráða niður- lögum eldsins. ísland er sérstætt land með sérstætt umhverfi. íslendingar þurfa því Öðruvísi bíla. Bila sem bera þá um misjafna vegi af sama fótvissa öryggi og íslenski hesturinn. Bíla með mjúka langa fjöðrun, og sæti sem aldrei þreyta. TogmikJar vélar i brekkurnar og sparneytni sem engir ná sem Frakkar. Ríkulegan Staöalhúnaó s.s. vökvastýri, veltistýri, fjarstýrðar samlæsingar, upphituð og hæðarstiJIanleg sæti og svo margt fleira. Þaö er von aó fólk nuddi augun eftir aö hafa skoöaö 1995 árgeröina af Peugeot 405 og lítur svo á veröiö. En þér er óhætt aö trúa þessu: Peugeot 405 GLX: kr. 1.470.000 PEUGEOT Nýbýlavegi 2, Kópavogi, sími 42600. I < < < I I ' : i í i i I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.