Morgunblaðið - 11.10.1994, Page 16

Morgunblaðið - 11.10.1994, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Málefnasamningur meirihluta bæjarsljórnar Egilsstaða kynntur Skiptar skoðanir um val á nýju brúarstæði yfir Eyvindará Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir RAFN Haraldsson formaður bæjarráðs, Þuríður Backman for- seti bæjarsljórnar og Helgi Halldórsson bæjarstjóri í ræðustól. Egilsstöðum - Bæjarstjórn Egils- staðabæjar stóð fyrir borgarafundi þar sem málefnasamningur meiri- hlutans var kynntur og málefni sveitarfélagsins rædd. Meirihluti bæjarstjórnar er myndaður af Sjálfstæðisflokki og Alþýðubanda- lagi. Allmargir bæjarbúar mættu til fundarins til að heyra hug bæjar- stjómar um val á nýju brúarstæði yfir Eyvindará. Hugmyndir Vega- gerðar ríkisins taka mið af aðal- skipulagi bæjarins um nýja brú á sama stað, en bæjarstjóm hafði óskað eftir kostnaðarútreikningum og upplýsingum öðmm ef brúar- stæði væri flutt á svokallað Mels- horn. Bæjarstjórn vill kanna kosti og galla við núverandi brúarstæði eða flutning þess. Miklar umræður urðu um þetta málefni og ljóst er að skoðanir manna em skiptar. Ákvörðun verður tekin 18. okt. Þuríður Backman forseti bæjar- stjómar sagði að þau gögn sem bæjarstjórn hefði óskað eftir, yrðu tekin fyrir á fundi 18. okt, og vænt- anlega liggur fyrir ákvörðun eftir þann fund. Meðal þeirra sem tóku til máls um brúarstæðið var Sigur- jón Bjarnason fyrrverandi bæjar- fulltrúi sem kvaðst meðmæltur brú- arstæði við Melshom. Kostir væru þeir að greiðari samgöngur yrðu við nágrenni þjónustumiðstöðvar sem jafnframt bætir hagþeirra sem þar búa. Bærinn er nánast með þjóðvegi á alla kanta sem þrengir að vexti hans. Auk þess sem núver- andi vegarstæði yfir Eyvindará tak- markar aðgengi að útivistarsvæði bæjarins. Guðmundur Magnússon er fyrrverandi sveitarstjóri Egils- staðahrepps og sagði hann frá svip- uðum umræðum um brúarstæðið fyrir 12 áram. Hann væri andvígur færslu brúarstæðis og það væm fleiri, því skýr boð komu frá bæjar- fulltrúum EYamsóknarflokks sama efnis. Vígdís Sveinbjömsdóttir bæj- arfulltrúi og bóndi á Egilsstöðum sagði að ný brú á Melshom og veg- ur þar að tæki ræktað land af Egils- staðabýlinu. Það væri í þriðja sinn á fáum ámm sem ræktað land þeirra er tekið eignamámi og nú væri svo komið að erfitt væri að reka landbúnað í þessu nábýli við bæjarfélagið. Bjami Björgvinsson sagði umferðarþunga ekki vera vandamál, því bæri að beina um- ferðinni áfram í gegnum bæinn. Sveitarfélagið er þjónustubær og mörg fyrirtæki byggja afkomu sina á þjónustu við ferðámenn. Einar Rafn Haraldsson formaður bæjarráðs kynnti málefnasamning meirihlutans. Þar kemur m.a. fram að til stendur að endurskoða starfs- svið starfsmanna og stofnana bæjarfélagsins. Aðalskipulag verð- ur endurskoðað með tilliti til ákvörðunar um nýtt brúarstæði á Eyvindará og skipulagningu útvist- arsvæðis í Egilsstaðaskógi verði lokið sumarið 1995. Ný sundlaug sem er í byggingu verður tekin í notkun fyrir 17. júní 1995. Gerð verði heildaráætlun um uppbygg- ingu íþróttamannvirkja og ráðið hefur verið í starf æskulýðs- og íþróttafulltrúa. Atvinnumálaráð mótar stefnu um eflingu og ný- sköpun atvinnulífsins og ráðinn verði atvinnuráðgjafi, sem m.a. vinnur að skipulegri leit að nýjum atvinnutækifærum. Gerð verði upp- byggingaráætlun fyrir húsnæði grunnskólans. Umræður um mál- efnasamning voru nokkrar og var m.a. fjallað um göngustíga og hjól- reiðabrautir, skipulag og vöxt byggðar, frágang opinna svæða og fegrun bæjarins, nýtt safnahús, samstarf menntaskóla og atvinnu- lífs. „Það er lítið kjöt á beinunum,“ sagði Broddi Bjamason fulltrúi minnihluta um málefnasamning- inn. Það færi lítið fyrir kosningalof- orðum sem gefin voru. Sveinn Jóns- son fulltrúi meirihluta og formaður atvinnumálaráðs ítrekaði efnisatriði málefnasamnings og þau uppbygg- ingarmál sem unnin yrðu á sviði atvinnumála. Bæjarfélagið stendur vel fjárhagslega og þakkaði hann fyrrverandi meirihluta fyrir að skila góðu búi, því nú væri lag til að bæjarfélagið geti stuðlað að aukinni atvinnu og framkvæmdum á krepputímum. Helgi Halldórsson bæjarstjóri flutti skýrslu um fjár- hagsstöðu bæjarins og framkvæmd- ir sumarsins. í máli hans kom fram að áætlanir standast og lausafjár- staða væri mjög góð. Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson Ný hafnarvog byggð á Hvammstanga Á HVAMMSTANGA er hafin smíði nýrrar hafnarvogar. Hún mun koma í stað gamallar og úreltrar vogar sem er áratuga gömul. Nýja vogin er tölvuvog og getur vegið allt að 100 tonn. Hún verður trúlega Iöggilt fyrir allt að 50 tonnum. Áætlaður kostnaður er um 8 milljónir króna. HVERN MÁNUD! Komið í verslun okkar í Skútuvogi 1 (næsta hús viö IKEA) 03 fáið ókeypis eintak! PÓSTVAL Skútuvogi 1, sími 68 44 22 o Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16. UNION F=OAM PIPU- EINANGRUN í sjálflímandi rúllum, plötum og hólkum. Þ. ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29 - REYKJAVÍK - SÍMI 38640 U i. 3 e C E ‘ ~ no <SZ ,S C m <f> <o ® .5 & «o z x v> vs a. Afritimah stiidvar írá kr. 25.000,- ^BGÐEIND— Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081 Trespass LJlpur frá kr. 3900 B amafataverslunin Bláskjár Suðuriaiidsbraut 52 68 S7* l 70 00 *¥ ' StórtvOfd* - Andsftatvk! 3....... S*»{>49ÓÍW 14 a &**$»*•$ t fc8 5 %-í 2CO0 64» 4*> 6880 | 6805 W I BANKAR OG SPARISJOÐIR y&na&Mfe**** Ínumís A&átq&u f 0 Sím **« ftíttQas*; isíafxH Aku/^etdt 4 fíúóum So» Í$l9ftö9 Awsturnti $ 4» Au*t«rvog> 10 S*N Áwiturvwgi 1$ Vth 20 Hvftf n » n 50 o>a M m %-6 6fc0o 58-fc fc5 «0 2 56 00 n oo 2 n 80 <8*7 U 01 <1» 7 12 04 48>M500 «>3 <5 «5 • % UttvHteftndn Eyrari - f** UiwMmmN 'mntii ftaktvte ■ f*» ..... ... UttxH&Atiki ítítrm ; • f*JI .......... ■ fiu. . . •’F** ........ ■ F** lAnðtpan*, íttjnúmiÆ ■ S' Sniðnar að þínum þörfum GULU S í Ð U R N A R .í símaskránni PÓSTUR OG SÍMI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.