Morgunblaðið - 11.10.1994, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 11.10.1994, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ * Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri VIB Ohjákvæmilegt að hækka skamm tíma vexti SIGURÐUR B. Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfamarkaðs Is- landsbanka, segir að vegna hækk- andi vaxta á alþjóðlegum markaði, óvissu um verðbólgu vegna ógerðra kjarasamninga og loks hugsanlega vegna aukinna umsvifa í þjóðarbú- skapnum verði ekki hjá því komist að hækka vexti á skammtímamark- aði á næstunni. Þetta kom fram á ráðstefnu íslandsbanka í gær um efnhagshorfur og áhættustjórn. „Slík hækkun er nauðsynleg til að varðveita tiltrú manna á efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnar en kjöl- festa hennar er stöðugleiki og fast meðalgengi krónunnar. Af þeim ástæðum er það alls ekki veikleika- merki á efnahagsstefnunni að skammtímavextir hækki um sinn í ljósi vaxtahækkana á alþjóðlegum markaði og nokkurrar óvissu hér innanlands. Þvert á móti bæri slík hækkun vaxta vott um styrka stjórn hér innanlands og væri í sama dúr og vaxtahækkanir bandaríska seðla- bankans um heil tvö prósent frá því í febrúar á þessu ári og vaxtahækk- un breska seðlabankans nú fyrir mánaðaroótin." Þá vakti Sigurður einnig athygli á því að viðskipti á gjaldeyrismark- aði yrðu algjörlega fijáls um næstu áramót og gengi krónunnar myndi þá ráðast í viðskiptum á markaði. „Við þessar aðstæður eru vextir á skammtímamarkaði nánast eina stjórntækið í peningamálum sem unnt er að beita til að viðhalda jafn- vægi í efnahagslífmu. Af þessum ástæðum er nú mikilvægara en nokkru sinni fyrr að fjármál ríkissjóðs séu tekin föstum tökum eins og gert hefur verið síðustu misserin. En það er líka mikilvægt að hyggja að heild- areftirspurn í þjóðarbúskapnum." Engin von um frekari lækkun langlímavaxta Sigurður sýndi á ráðstefnunni fram á að skammtímavextir hér á landi væru aðeins í Hollandi, Banda- ríkjunum og Þýskalandi iægri en á íslandi og jafnvel væru vextir hér lægri en í Japan. „íslendingar eru því staddir í sömu klemmu og Þjóðverjar hafa verið í á þessu ári og raunar fleiri þjóðir á meginlandi Evrópu. Við þurfum í reynd lægri vexti þegar til lengri tíma er litið til þess að örva fjárfest- ingu og auka hagvöxt. En sú vaxta- hækkun sem riðið hefur yfir heims- byggðina alla frá því í febrúar sl. hefur gert að engu þá von að lang- tímavextir geti lækkað meira hér á íslandi um sinn. Það er að mínu viti ósannfærandi að langtímavextir á íslandi geti verið lægri en á markaði í nálægum löndum jafnvel þótt hér sé um fulla verðtryggingu að ræða. Hvort langtímavextir eiga fyrir höndum á næstu misserum er svo annað mál og erfiðara við að eiga.“ Y// Jra comPAa Ú TttlVUP Einfaldlega aco SÍMI: 91-627333 • FAX: 91-628622 l , ■ SKIPHOLTI 17 • 105 REYKJAVÍK I/) //TTI '■ass Verslunar lagerhillur Þungavöm„rekkar" Stálhillur /SUT/Cil/ iád Greina„rekkar" Milligólf Iðnaðarvinnuborð Plastskúffur Þéttjhjólaskápar ÆgFBfgi \ V Stál fataskápar og hólf ♦ ,ri/ Ál og stálhillur Calminor) Lyftí- og léttítæki ísoldhf. Protema Tpffnil Umbods-& heildverslun Faxafen 10,108 Reykjavík Sími: 811091, Fax: 30170 Fagleg ráðgjöf. Hagstætt verð. Leitið tilboða. VINNSLA á hurðarefni úr furu fyrir Bandaríkjamarkað hefur verið dágóð búbót fyrir trésmiðju Byko í Njarðvík. Byko þreifar fyrir sér á Bandaríkjamarkaði Flytur út vörur úr rússneskri furu BYKO hf. hefur á undanförnum mánuðum flutt út hurðarkarma og hurðarlista úr valinni furu til Banda- ríkjanna. Timbrið er keypt frá Rúss- landi og Skandinavíu en síðan unnið í verksmiðju Byko í Njarðvík. Þaðan fer fullunnin vara til verslunarkeðju í Chicago sem jafnframt framleiðir hurðir. Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri Byko, sagði í samtali við Morgun- blaðið að allt þetta ár hefði farið um einn gámur á mánuði til Banda- ríkjanna og pantanir lægju fyrir fram að áramótum. „Þetta hefur verið ágætt búsílag þótt gengisþróun dollars hafi verið okkur óhagstæð. Hér er um spennandi þróunarverk- efni að ræða sem vonandi vindur smátt og smátt upp á sig.“ Stefnt að áframhaldandi útflutningi á næsta ári Aðspurður um hvernig íslensk framleiðsla úr innfluttri furu gæti verið samkeppnisfær í Bandaríkjun- um benti Jón Helgi á að búið væri Olía að loka stórum furuskógum fyrir skógarhöggi í Bandaríkjunum. „Þeir skógar sem eru nýttir eru aðallega nokkuð vestarlega í Bandaríkjunum, á Montanasvæð- inu, þannig að fjarlægðin milli þeirra og okkar markaðar er svipuð og fjarlægðin til íslands. Við höfum einnig aðgang að hráefni sem er öðruvísi en fáanlegt er í Bandaríkj- unum og það skapar okkur nokkra sérstöðu. Við stefnum að því að halda áfram útflutningi á næsta ári því hann fell- ur ágætlega að okkar starfsemi. Glugga- og hurðamarkaðurinn hér á landi hefur ekki verið mjög burðug- ur að undanförnu og því höfum við verið að leita leiða til þess að nýta þá möguleika sem við höfum. Einnig erum við byijaðir að framleiða lím- trésplötur úr furu fyrir innanlands- markað sem notaðar eru í borð, sól- bekki o.fl. Þessar plötur hafa verið fluttar inn fram að þessu og við höfum vonir um að geta hafið út- flutning á þeim.“ Rólegt á mörkuðum þrátt fyrir spennu London. Reuter. VERÐ á hráolíu hækkaði um 31 sent í gær vegna spennunnar við Persa- flóa og tunnan seldist á 17.23 dollara. Verðið komst hæst í 17.32 dollara þegar fyrstu fréttir bárust um liðs- safnað Iraka á föstudag, en lækkaði síðar um daginn vegna spákaup- mennsku. Verðið hafði verið á upp- leið áður en fréttin barst og „hún hefði haft meiri áhrif ef verðið hefði verið á niðurleið“ að sögn verðbréfa- sala í London. Ólíklegt er talið að verðið hækki meir nema því aðeins að olíubirgðum Kúveits verði ógnað. „Við sáum hvers herafli Bandamanna var megnugur 1990 þegar hann stóð andspænis miklu öflugra herliði,“ sagði sérfræðingur í London. Þá hækkaði verð á olíu í 40.00 dollara um tíma, en það lækkaði í aðeins 16.00 dollara í ársbyijun 1991, þegar í ljós kom að írakar gætu ekki skert mikla framleiðslu- getu Saudi-Araba. Þegar afköst Kúveita og íraka drógust saman juku OPEC-ríki framleiðslu sína og nam aukningin rúmlega einni milljón tunna á dag á fjórða ársfjórðungi 1990. Lítil líkindi eru talin til þess nú að veruleg röskun verði á hráolíu- framleiðslu Kúveita, sem er 2.00 milljónir tunna á dag - en írakar þykja óútreiknanlegir. „Þótt olíu- mannvirki Kúveita séu vel varin,“ sagði í nýlegri markaðsskýrslu, „yrði aðeins ein eldflaugaárás á kúveizka olíuhreinsunarstöð til þess að verðið mundi ijúka upp úr öllu valdi.“ Mengun Kodak greiðir 8 milljóna dala sekt New York. Reuter. FYRIRTÆKIÐ Eastman Kodak Co. hefur samþykkt að greiða átta millj- óna dollara sekt og mun veija mörg- um milljónum dollara til þess að gera við og endurbæta holræsi í iðn- görðum sínum i Rochester, New Yorkríki. Sektin er sú fyrsta samkvæmt alríkislögum um eftirlit með holræs- um. Kodak mun standa fyrir sex umhverfisáætlunum til þess að greiða þijá milljónir dollara af sekt- inni. Áætlanirnar verða að minnsta kosti 12 milljóna dollara virði og munu draga úr hættulegum úrgangi í iðngörðum Kodaks.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.