Morgunblaðið - 11.10.1994, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 27
AÐSENDAR GREINAR
Hófadynur í
heilbrigðis-
ráðuneytinu
TILEFNI þessarar greinar eru
furðufregnir um „uppsafnaðan rétt
embættislækna til námsferða".
Þrisvar sinnum hefir Morgunblaðið
birt fréttir af þessu máli en því
meir sem um það verður kunnugt
veldur það meiri furðu og hneyksl-
an. í dag„ 2. október, birtir blaðið
fregn um málið á 4. síðu. Ekki ætl-
aði ég að trúa mínum eigin augum
því að mér fannst skína ósvífni og
siðleysi útúr þessu greinarkorni.
Verða nú rök færð fyrir hneykslan
minni.
Námsleyfi lækna
Læknafélag íslands hefur í kjara-
samningum sínum lagt áherslu á
viðhaldsmenntun lækna, sem oft
verður að sækja erlendis. Þá er að
sjálfsögðu átt við þá lækna, sem
lækningar stunda en varla embættis-
lækna. Um störf embættislæknanna
hlýtur að gilda eitt og hið sama og
þeirra sem í stjórnsýslunni vinna.
Auk þess sem embættislæknar sitja
í vinnu sinni ráðstefnur hérlendis
sem erlendis og fylgjast þannig með
þróun í heilbrigðisþjónustu.
Eðli máls samkvæmt er viðhalds-
menntun lækna svokölluð símenntun
sem á því að fara fram með jöfnu
millibili. Það er því fjarri lagi að
Ef milljónir hafa verið
greiddar til þiggja
lækna, án heimilda
í lögum eða kjarasamn-
ingum, er, að mati
Brynleifs H. Stein-
grímssonar, eðlilegt
að krafa verði gerð
um endurgreiðslu
í ríkissjóð.
hægt sé að geyma þennan rétt ti)
náms árum saman eða í áratug eins
og dæmi mun um.
Það er í rauninni óþarft að taka
það fram að tilgangur vinnuveitand-
ans, þ.e. ríkisins í þessu tilfelli, er
sá að bæta þann vinnukraft, lækn-
ana og þjónustu þeirra við almenn-
ing.
Fari læknir ekki til náms á hann
engan rétt á greiðslum, hvorki í
launum, dagpeningum né ferða-
kostnaði. í kjarasamningi sjúkra-
húsa- og heilsugæslulækna er að
finna ákvæðin um námsleyfi. Spurn-
ingin er hvort þessir samningar eigi
við um embættislækna þá sem hér
um ræðir.
Fordæmin eru verst
Ráðuneytisstjórinn Páll Sigurðs-
son lýsir því yfir í Mbl, í dag, 2.
október, að dæmi um það að læknum
séu greidd námsleyfi, laun, dagpen-
ingar og ferðakostnaður langt aftur
í tímann séu fleiri en hvað varðar
fyrrverandi tryggingalækna og nú-
verandi skrifstofustjóra heilbrigðis-
ráðuneytisins. Það er eins og hann
vilji með því réttlæta þær greiðslur
sem áður eru nefndar. Með öðrum
orðum fordæmin réttlæta.
En sagan er ekki öll sögð. I grein-
arkorninu í dag segir: „í þessum til-
vikum hafa menn ekki átt þess kost
að taka fríin.“ Hver trúir nú þessari
fullyrðingu? Ekki gerir undirritaður
það. Þetta er greinilega ætlað þeim
sem ekki þekkja til málavaxta,
sauðsvörtum almúganum, sem er þó
ekki eins sauðsvartur og sumir
hyggja. Og svo kemur rúsínan í
pylsuendanum:
„Páll kvaðst sammála fjármála-
ráðherra um að leysa ætti slíka
samninga innan þess fjárlaga-
raamma, sem gilti á hveijum tíma.
Það hefði verið gert.“
Hver trúir nú þessari
fullyrðingu? Ekki geri
ég það.
Eins og alþjóð er
kunnugt, er heilbrigðis-
þjónustan rekin með
miklum halla og rekst-
urinn því ekki innan
ramma fjárlaga eða eins
og segir ofan fjárlaga-
rammans. Auk þess er
þessi svokallaði fjár-
lagarammi mótaður af
sundurliðuðum
rekstrarreikningi sem
er um leið áætluð heim-
ild til kostnaðar á hveij-
um rekstrarlið. Þetta
Brynleifur H.
Steingrímsson
hljóta þeir í ráðuneyt-
inu að vita. Eins hljóta
þeir að vita að milljóna
greiðslu til einstakl-
inga innir enginn opin-
ber aðili af hendi án
fjárlagaheimildar eða
samkvæmt kjarasamn-
ingi.
Það er hörmulegt að
verða vitni að slíkum
málatilbúnaði hjá hátt-
settum embættis-
manni.
Lokaorð
Hér hefur verið reif-
að mál sem er í eðli
sínu mjög alvarlegt.
Málið snertir hinn almenna lækni
í landinu þó að hann eigi enga hlut-
deild í því. Hér er um hreint innan-
hússvandamál heilbrigðisráðuneytis-
ins að ræða.
Ef það reynist rétt að milljónir
hafi verið greiddar til þriggja lækna
án þess að fyrir því sé heimild í lög-
um eða kjarasamningum, hlýtur sú
spurning að vakna hver beri ábyrgð
á þessum gjörningi? Hver eru viður-
lögin? Gæslumenn ríkissjóðs hljóta
að fjalla um mál af þessu tagi.
Eðlilegt þætti undirrituðum sam-
kvæmt ofangreindu að krafa verði
gerð um endurgreiðslu í ríkissjóð.
Höfundur er læknir á Selfossi.
A Bylgjunni frá 1.
Kartöfluuppskeran er mikil í ár. Um leið og við hvetjum landsmenn
til að borða þessa hollu, bragðgóðu og ódýru fæðu bjóðum
við þeim að taka þátt í lukkupotti Ágætis.
Þátttökuseðlar leiksins eru á Ágætis kartöflupokum.
Það eina sem þátttakendur þurfa að gera er að
klippa miðann af pokanum og setja hann í
Ágætis póstkassa eða senda til Bylgjunnar,
Lynghálsi 5, frá 1. til 29. október.
Dregið verður úr lukkupottinum á hverjum
virkum degi á Bylgjunni. Þrjú hundruð
heppnir þátttakendur fá 1000 kr. úttektarmiða
á Hard Rock Cafe. Og sá allra heppnasti fær
nýjan Renault Twingo frá Bílaumboðinu hf. að verðmæti kr. 838.000.-,
sem dreginn verður út laugardaginn 5. nóvember í beinni útsendingu á Bylgjunni
Renault
fOFA GUORÚNAR ÖNNU HF.