Morgunblaðið - 11.10.1994, Page 36

Morgunblaðið - 11.10.1994, Page 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SIGURÐUR GUÐMUNDSSON + Sigurður Guð- mundsson var fæddur að Görðum í Beruvík í Breiðu- víkurhreppi á Snæ- fellsnesi 18. apríl 1912. Hann lést í Landspítalanum um morguninn 26. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ólöf Kristjánsdóttir og Guðmundur Brynjólfsson er bjuggu að Görðum. Þau eignuðust sex börn og eru nú fjög- ur þeirra látin. Kris- tjón, Brynjólfur, Ólafur og svo nú Sigurður. Tvö þeirra eru á lífi, Jóhanna og Maríus. Eigin- kona Sigurðar var Friðbjörg Ólafsdóttir, f. 17. desember 1919, d. 22. mars síðastliðinn. Eignuðust þau eina dóttur, Ól- öfu Sigurðardóttur, gift Guð- mundi Einarssyni rafvirkja- meistara. Þau búa í Garðabæ og eiga þrjú börn, Sigurð, sem stundar nám við Háskóla Is- lands, Einar Gunnar rafvjrkja og Margréti Björgu nema. Útför ^ Sigurðar fer fram frá Fossvogs- kapellu í dag. ÞEGAR sólin er hæst og sendir hlýja geisla sína á lífið hér á jörð, fer ekki hjá því að mismunur verður míkill þegar ský dregur fyrir sólu og það haustar að. En það er eitt- hvað sem við fáum ekki við ráðið. Við minnumst hér elskulegra hjóna og vina okkar sem eru nú bæði búin að kveðja þennan heim á .þessu ári. Þar er höggvið mikið skarð fyrir ættingja og vini, ekki síst fyrir dóttur þeirra og barnabörn sem var þeim mjög náin. Þessi hjón voru alltaf kölluð með- al vina og ættingja Fríða og Siggi. Sigurður Guðmundsson var fæddur 18. apríl árið 1912 að Görðum í Beruvík í Breiðuvíkurhreppi á Snæ- fellsnesi. Hann ólst upp í Görðum í Beruvík en þar bjuggu foreldrar hans ásamt sex börnum þeirra. Jörðin Garðar var meðalgóð jörð. Þetta var fjáijörð ásamt útræði. Sig- urður vann að búinu en bræður hans fóru á vertíð á vetrum eins og þá var títt. Þannig var sameiginlega unnið að nýtingu jarðarinnar. Siggi var í Görðum þar til hann og æsku- vinkona hans hófu búskap. Fyrst í Nýjubúð í Beruvík en síðar losnaði jörðin Saxhóll og fengu þau hana til ábúðar. Kona Sigurðar var Friðbjörg Ólafsdóttir. Var hún fædd í Reykja- vík 17. desember 1919. Hún var tekin í fóstur af ömmu sinni og afa eftir að hún missti móð- ur sína þá tveggja ára. Hún ólst upp í Ytra- Einarslóni í Breiðuvík- úrhreppi á Snæfellsnesi þar sem amma hennar, Ásgerður Vigfúsdóttir, og Jón Ólafsson bóndi og skáld bjuggu. Siggi og Fríða fluttu um vor að Saxhóli þar sem þau unnu hörðum höndum að byggja upp sitt heimili. Þar var gestkvæmt þar sem jörðin liggur við þjóðbraut er farið var út á Hellissand. Þar þurfti unga fólkið að koma við og var þar alloft gist. Alltaf var nóg pláss og öllum tekið opnum örmum er þar áttu leið um. Þau bjuggu á Saxhóli í nokkur ár, en þá varð Siggi fyrir því að missa heilsuna og varð að fara suður á Vífilsstaði. Þar dvaldist hann um nokkurn tíma en náði að komast til sæmilegrar heilsu með hjálp konu sinnar og hjúkrun góðs fólks. Nú urðu kaflaskipti í lífi þeirra. Þau brugðu búi og fluttu alfarið til Reykjavíkur, þar sem Siggi þurfti að láta fylgjast með sér vegna sinna veikinda. Þau fengu íbúð í Laugar- nesi og var þar eins og áður mjög gestkvæmt og öllum veitt eins og efni stóðu til. Heilsan hjá Sigga kom smátt og smátt, þó varð hann að fara vel með sig. í nóvember 1947 fæddist þeim stúlka sem varð þeirra sólargeisli allt þeirra líf. Var hún. skírð Ólöf í höfuðið á föðurömmu sinni. Um þetta leyti fluttust þau í Skeijafjörð, þar sem Siggi var svo heppinn að fá starf sem vallarvörður á Melavelli. Það var vinur hans Baidur Jóns- son sem réð hann. Störfuðu þeir saman um 35 ára tímabil ásamt fleiri góðum félögum. Siggi starfaði við Melavöllinn þar til hann var lagður niður, en þá vann hann á Laugar- dalsvelli í nokkur ár þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Siggi minntist oft á Baldur Jónsson sem þann mann sem hjálpaði honum er erfiðleikar steðjuðu að og var hann vinur í raun. Einnig minntist hann oft á Grétar Jónsson sem einn af t Hjartkær systir okkar, ELÍN KARÍTAS THORARENSEN. Hagamel42, sem andaðist 30. september, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 12. október kl. 13.30. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í formá- lanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Hildur Thorarensen, Ólafur Thorarensen, Aðalsteinn Thorarensen. Minningarkort Styrktarfélags Krabbameinssjúkra barna fást í Garðsapóteki og Rey kjavíku rapóteki. H Styrktarfélag krabbamelnsBjúkra barna Blað allra landsmanna! - kjarni málsins! þessum sómamönnum er hann um- gekkst í lífi sínu. Siggi og Fríða bjuggu í nokkur ár í Skeijafirði en svo keyptu þau íbúð á Lynghaga 12 og þar undu þau sér mjög vel. Eftir að Siggi lét af störfum vegna aldurs fluttust þau hjónin í Garðabæ til þess að vera nær dóttur sinni og fjölskyldu sem þar býr. Leið varla sá dagur að dóttir þeirra eða fjöl- skylda vitjaði þeirra ekki. Oft skruppum við hjónin til þess að heimsækja þessi elskulegu hjón sem tóku alltaf á móti okkur með brosi á vör. Þau nutu þess að fá gesti inn á sitt heimili. Við hjónin munum alltaf minnast þeirra með þakklæti fyrir það er þau gerðu fyrir son okkar er hann varð oft að fara til Reykjavíkur til lækn- inga eftir slys sem hann lenti í. Einn- ig var heimili þeirra alltaf opið fyrir honum er hann fór síðar í nám til Reykjavíkur. Eftir að Siggi missti yndislega konu sína, sem var honum stoð og stytta í gegnum árin, fluttist hann að Hrafnistu í Hafnarfirði. Dvaldi hann þar um nokkurn tíma, þar til hann var fluttur á Landspítalann þar sem hann lést fáum dögum síðar. Við vottum dóttur þeirra og íjöl- skyldu hennar okkar dýpstu samúð. Upp til himins ligpr leið, lífsins eftir runnið skeið, þar sem dýrðar ljósin ljóma, lofgjörð tunpr guði róma, öll er horfin angursneyð. Þar er yndi, þar er friður, þar er lífsins fagurt skjól þar er engin þraut né kliður, þar skín drottins náðarsól. (Jón Olafsson frá Einarslóni.) Matthías og Friðbjörg (Lína). Eg ætla fyrir hönd okkar afabam- anna, að kveðja hann afa, Sigurð Guðmundsson, með nokkrum orðum. Það er ekki langt síðan hún amma okkar, Friðbjörg Ólafsdóttir, lést, og nú er hann afi farinn til hennar. Ég held að honum leiðist það ekki. Því þau voru alveg einstök, þau voru mjög samrýnd og nutu þess alltaf að vera saman. Aldrei heyrði maður þau rífast eða deila, þau voru sam- mála í öllu. Nú sameinast þau aftur hjá Guði en verða ávallt með okkur krökkunum í minningunni. Hann afi var alltaf svo góður við okkur, hann vildi allt fyrir okkur gera og reyndi að styrkja okkur eins og hann gat og hvetja okkur til dáða. Hann ýtti alltaf á það að við værum nú dugleg að læra og kenndi okkur góða siði, eins og að vera góð við mömmu og pabba. Þegar við vorum litlir, vorum við svo heppnir að fá að vera flestar ef ekki allar helgar hjá afa og ömmu á Lynghaganum og á laugardags- morgnum fórum við með honum upp á Melavöll og vorum þar í fótbolta og að leika okkur allar helgar. Þar var mikið líf og gaman að vera. Afi var sjómaður að vestan, hraustur og duglegur ungur maður, þau amma byijuðu að búa saman fyrir vestan, en fluttu síðan til Reykjavíkur þegar afi fékk berkla og þurfti að liggja á Vífilsstaðaspít- ala. Eftir það fór hann síðan að vinna á Melavellinum og vann þar í u.þ.b. 40 ár eða allt þar til hann varð að fara á eftirlaun, þó fékk hann að vinna lengur en gengur og gerist, fyrir tilstuðlan vinar síns Baldurs Jónssonar vallarstjóra. Afa fannst leiðinlegt að þurfa að hætta á Melavellinum, enda var þar alltaf líf og flör og hann eignaðist ijölmarga vini og kunningja þar, sem hringdu og heimsóttu hann reglulega þrátt fyrir að vera tugum ára yngri en hann. Leit hann á marga þeirra sem syni sína. Það er á hreinu að kynslóðabilinu var ekki fyrir að fara hjá honum afa og er nú ekki langt síðan við strák- arnir sátum heila kvöldstund og drukkum öl með honum og skemmt- um okkur hið besta, hann virtist ekki vera árinu eldri en við. Mamma okkar, Ólöf Sigurðardóttir, og við krakkarnir voru augasteinarnir hans afa og það sem hann lifði fyrir. Þeg- ar hann heyrði um veikindin hennar mömmu, varð það honum um megn og nú er hann farinn til ömmu, þar sem þau munu fylgjast með okkur og styrkja, þar til við komum til þeirra. Við þökkum fyrir allar þær stundir sem við áttum með honum afa og þær deyja ekki, líkt og segir í Hávamálum. Deyr fé, deyja frændr, deyr sjalfr it sama; en orðstírr deyr aldregi, hveim er sér góðan getr. Sigurður Guðmundsson. Sigurður Guðmundsson vinur minn og samstarfsmaður í yfir 35 ár er látinn. Við byijuðum svo til samtímis á Melavellinum 1950. Hann hafði ungur maður fengið bijóst- himnubólgu og berkla upp úr því, sem títt var á þeim tíma. Það hefur verið mikið áfall fyrir hann, ungan og hraustan, en hann tók þessu mjög skynsamlega, sætti sig við orðinn hlut, þó þungur væri, en oft leið honum illa þó hann bæri það ekki á torg. Hann hafði fengið bata, þó aldr- ei væri hann heill. Sigurður vann öll sín störf af mik- illi samviskusemi og trúmennsku, vann sér vináttu og traust hundruð manna og kvenna með hjálpfýsi og einlægri framkomu, enda kunni íþróttafólk yfirleitt að meta hann. Það gat nú stundum þykknað í mín- um manni, en fáa hefi ég þekkt sem hafa kunnað að stilla skap sitt sem hann. Var það helst þegar honum eða öðrum var sýnd ruddamennska eða óréttlæti, það þoldi hann ekki. Sjálfur var hann afar dagfarsprúður maður, hann hafði yndi af skák og brids. Rætur Sigurðar lágu undir Jökli vestur, kallaði sig Sandara en var frá Saxhóli. Eftir kynni mín af Sig- urði og bræðrum hans, Kristjáni og Maríusi, er ég þakklátur forsjóninni að hafa leitt okkur saman. Orðum þessara drengja var hægt að treysta og þeir undir Jökli mega ver hreykn- ir ef þeir eiga marga slíka. Þrátt fyrir allt var vinur minn gæfumaður. Hann eignaðist snemma lífsförunaut, Friðbjörgu Ólafsdóttur (hún lést nú í vor) sem annaðist hann í veikindum og umfram allt gat honum dóttur sem varð augasteinn þeirra beggja. Ekki varð fögnuðurinn minni þegar Lóló giftist þeim góða dreng Guðmundi Einarssyni, sem bæði Fríðu og Sigga þótti mjög vænt um, enda hefur hann reynst þeim frábærlega vel. Þá var gleðin mikil þegar barnabörnin komu, Sigurður, Einar og Björg, öll hafa þau reynst þeim afa og ömmu frábærlega vel og veitt þeim margar gleðistundir. Þökk sé þeim. Vináttu Fríðu og Sigga við mig og fjölskyldu mína þakka ég. Sú vin- átta var okkur öllum mikils virði. Sigurður var því 82 ára þegar hann kvaddi þennan heim. Við vinnu- félagarnir frá gamla góða Melavellin- um kveðjum þennan hugljúfa dreng og þökkum liðnar stundir. Hann ávann sér traust og vináttu okkar allra sem með honum unnu. Ólöfu, Guðmundi og börnum þeirra sendi ég samúðarkveðjur. Megi allar góðar vættir fylgja þeim um ókomin ár. Baldur Jónsson. EIRÍKUR KRISTINSSON + Eiríkur Krist- insson fæddist úð Miðsitju í Blönduhlíð í Skaga- firði 24. maí 1916, og ólst þar upp í föðurgarði. Hann lést á heimili sínu á Akureyri 4. októ- ber. Foreldrar hans voru hjónin Krist- inn Jóhannsson bóndi á Miðsitju í Blönduhlíð í Skaga- firði, f. 1886, d. 1941, og Aldís Sveinsdóttir, f. Ertidrvkkjur Glæsileg kaíli- hlaðborð lidlegir salir og mjög gtk) l)jóiuista. Upplýsingar í$íma22322 1890, d. 1977, ættuð úr Lýtingsstaða- hreppi, dóttir Sveins Eiríkssonar kennara þar. Bræð- ur Eiríks voru Hjörleifur, f. 1918, bóndi á Gilsbakka í Austurdal í Skaga- firði, d. 1993, Sveinn, f. 1925, sagnfræðingur í Reykjavík, Þor- björn, f. 1921, bú- settur á Akureyri, og Jökull, f. 1935, einnig búsettur á Akureyri. Fyrri kona Eiríks var Stefania Siguijónsdóttir, f. 11. maí 1918. Þau skildu. Börn þeirra voru: Kolbrún, f. 12. ágúst 1944, bankaritari í Reykjavík, og Kristinn, f. 18. febrúar 1946, afgreiðslumaður í Reykjavík, d. 1991. Seinni kona hans var Sesselja Þor- steinsdóttir, f. 5. maí 1924. For- eldrar hennar voru Þorsteinn Eianrsson bóndi í Tungukoti í Austurdal í Skagafirði, f. 1902, d. 1979, og kona hans Ingibjörg Sigurjónsdóttir, f. 1899, látin. Börn þeirra: Olöf Margrét, f. 1954, búsett í Reykjavík; Birg- ir, f. 1955, iðnverkamaður í Reykjavík; Hólmfríður Ingi- björg, f. 1958, sjúkraliði á Ak- ureyri; og Einar Vilhjálmur, f. 1966, einnig búsettur á Akur- eyri. Útför Eiríks fer fram frá Akureyrarkirkju í dag. EIRÍKUR vann í vegavinnu á sumr- um á menntaskólaárum sínum. Hann útskrifaðist frá MA 1937 með einhverri alhæstu einkunn, sem nokkru sinni hefir verið gefin þar úr máladeild. Á háskólaárum sínum kenndi hann í Gagnfræðaskóla Austurbæjar árin 1937-1942, og auk þess stundaði hann einka- kennslu með háskólanáminu. Hann útskrifaðist vorið 1944 með ein- hverri allra hæstu einkunn, sem hefir verið gefin í íslenskum fræð- um frá upphafi. Að námi loknu varð hann aðstoð- arritstjóri fyrirhugaðrar orðabókar Háskólans um hríð, en varð svo kennari í Gagnfræðaskóla ísafjarð- ar og síðar 1961-1972 við Grunn- skólann á Skagaströnd, en 1972 flutti hann sig til Akureyrar og rak þar einkakennslu til starfsloka. Þá vann hann um hríð við ritun Skag- firskra æviskráa, II.-IV. bindis, sem og V. bindis. Hann bjó fjölda bóka undir prentun og skrifaði dagbók í hálfa öld. Eiríkur var glæsimenni á velli, vörpulegur, íturvaxinn og kvikur í hreyfingum, andlitið fagurt, með hrafnsvart hár og dökkbrún skarp- leg og greindarleg augu. Hann var hrífandi skemmtilegur í samræðum, enda fjölfróður, hagmæltur og mál- snjall. Ég votta ættingjum hans, tengdafólki og vinum dýpstu samúð mína í sorg þeirra og söknuði og bið hinum látna allrar blessunar á æðri tilverustigum. Blessuð sé minning Eiríks Kristinssonar. Hafþór Guðmundsson, dr. jur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.