Morgunblaðið - 11.10.1994, Síða 39

Morgunblaðið - 11.10.1994, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJU DAGUR 11. OKTÓBER 1994 39 MIWWIIMGAR_ GUÐLAUGINGE- MANN-HANSEN + Guðlaug Jón- dóttir Inge- mann-Hansen var fædd á Brekkum í Holtum 8. júní 1914. Hún lést í Kaup- mannahöfn 19. ág- úst síðastliðinn. Út- för hennar fór fram í Kaupmannahöfn 27. ágúst. Foreldr- ar hennar voru hjónin Jónína Þor- steinsdóttir og Jón Jónsson. Þau fluttu að Sumarliðabæ þegar Guðlaug var tveggja ára og þar ólst hún upp. Guðlaug átti sex systkin og einn uppeldisbróður, Hilmar Bjarnason. Nú eru þijár systur á lffi og einn bróðir. árið 1939 fór Guðlaug til Kaupmanna- hafnar og þar kynntist hún eft- irlifandi manni sínum, Michael Ingemann-Hansen. Þau gengu í hjónaband 22. apríl 1944. Eignuðust þau tvo syni, Thorst- en 1944 og Anker Jon 1948. Barnabörnin eru fjögur. MIG langar að minnast Laugu frænku minnar með nokkrum orð- um. Lauga var uppeldissystir föður míns, Hilmars Bjarnasonar, en þau ólust upp á Sumarliðabæ í Holtum í Rangárvallasýslu, ásamt systkin- um sínum, Þorgerði Guðrúnu, Jó- hönnu og Aðalsteini Jónsbörnum. Sjálfur eyddi ég stórum hluta fyrstu sex til sjö æviáranna á Sum- arliðabæ hjá systkinunum Steina og Gerðu, sem þar héldu bú, en þá var Lauga frænka löngu flutt til Danmerkur. Lauga hafði ung hleypt heim- draganum og í Kaupmannahöfn fundið sinn lífsförunaut í Michael Ingemann-Hansen, ljúfum manni með létta lund og skemmtilegan húmor að hætti Dana. Þau Michael eignuðust tvo syni, Thorsten og Anker Jon,. sem báðir eru virtir læknar í Danmörku, Thorsten í Árósum, Anker í Kaupmannahöfn. Barnabörnin eru fjögur. Ég kynntist þeim heiðurshjónum Laugu og Michael fyrst þegar ég á 16. ári stundaði nám í sumar- skóla á Jótlandi. Um mitt sumar var tveggja vikna frí og þá gisti ég á heimili þeirra hjóna á Isa- fjordsgade 7 á Islands Brygge. Þau tóku mér unglingnum mjög vel og æ síðan hef ég gert mér far um að koma við á lsafjarðargötu núm- er 7 þegar leið mín hefur legið um „kóngs- ins Köben“. Mér hefur einhvem veginn fund- ist ég ekki geta komið við í Kaupmannahöfn án þess að heilsa upp á bestu vini mína í Danaveldi. Og það var ekki annað á Laugu og Michael að sjá en að þeim þætti jafnvel pínulítið vænt um þá tryggð sem ég gerði mér far um að sýna þeim. Að minnsta kosti voru móttökumar ávallt hlýjar og góðar; Michael bauð alltaf upp á bjór, sem oftar en ekki var vel þeginn, og Lauga tíndi til góðgæti eins og henni einni var lagið. Þau em ekki mörg heimilin í þessum heimi sem mér þótti betra að sækja heim en það á Isa- fjordsgade 7, 3. hæð. Besta heim- sóknin þangað átti sér stað fyrr á þessu ári, þegar við faðir minn fór- um í stutta ferð til Kaupmanna- hafnar. Við notuðum tækifærið, heimsóttum Laugu frænku, buðum þeim hjónum út að borða og áttum ógleymanlega kvöldstund saman. Þetta var stuttu eftir gullbrúðkaup Laugu og Michael, en mánuði fyrir áttræðisafmæli Laugu. Okkur feðgum þótti ótrúlegt til þess að hugsa að hún væri að verða átt- ræð, því hún leit mjög vel út og var eins hress andlega sem líkam- lega og hún hafði verið síðustu áratugina. Ekki gat okkur grunað að þetta yrði í síðasta skipti sem við nytum návista við okkar góðu vinkonu. En enginn veit hvenær kallið kemur og þótt sárt sé að sjá á eftir Laugu frænku yfir móðuna miklu er það þó huggun harmi gegn að hún fékk hvíldina strax og heilsan gaf sig. Það hefði verið erfiðara að þurfa að horfa upp á hana þjást. Lauga frænka var glæsileg kona, heiðarleg og góð, með glettnisglampa í augum. Hún var ein hlýjasta manneskja sem ég hef fyrir hitt og gaf gott fordæmi með sinni hógværð, lítillæti og aðstoð við þá sem minna mega sín. Ég votta vini mínum Michael, sonunum Thorsten og Anker og fjölskyldum þeirra, systkinum Laugu og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Guðlaugar Ingemann-Hansen. Hörður Hilmarsson. 1. deildarkeppnin jafnari en í fyrra - SKAK Deildakeppni SI, fyrri hluti, 7.-9. okt. FYRRI hlut- inn af deilda- keppni Skák- sambands ís- lands 1994-95 var tefldur um helgina. Tölu- verð félagaskipti að undanfömu reyndust ekki hafa teljandi áhrif á gang keppninnar. Stórmeistaram- ir Jóhann Hjartarson, Hannes Hlífar Stefáns- son, Jón L. Árnason og Helgi Áss Grétarsson tefldu fyrir Taflfélag Reykjavíkur sem hefur ömgga for- ystu, en þó ekki eins afgerandi og eftir fyrri hlutann 1993. Skákfélag Akureyrar er í öðm sæti rétt eins og í fyrra og er nokkuð bil í næstu sveit- ir. Skákfélag Hafnarfjarðar kom langmest á óvart með góðri frammi- stöðu og er í þriðja sæti, en Hafnfirð- ingamir voru fyrirfram álitnir líkleg- ustu fallkandídatarnir. Taflfélag Kópavogs, sem kom upp úr annarri deild í vor, stóð engan veginn undir væntingum. TK teflir fram næstum alveg nýju liði með Helga Ólafsson, stórmeistara, á fyrsta borði en er aðeins í sjötta sæti og í botnbarátt- unni með B-sveit TR og Skáksam- bandi Vestfjarða. Deildakeppninni vex stöðugt fisk- ur um hrygg enda er hún ein skemmtilegasta keppni ársins. Hún er orðin mun jafnari en á ámm áður og er enn eitt merki þess að breidd- in sé loksins að aukast til muna í íslensku skáklífi. Það er ekki bara í fyrstu deild sem harðsnúnir skák- menn sitja að tafli. í annarri og þriðju deild há öflugar sveitir harða baráttu og jafnvel í fjórðu deild er félag með tvo fyrrverandi íslandsmeistara inn- anborðs. Jón Kristinsson og Helgi Ólafsson, eldri, tefla fyrir Taflfélag Hólmavíkur, sem þykir afar sigur- stranglegt í deildinni. Staðan eftir fjórar umferðir af sjö í deildakeppninni: 1. deild: 1. Taflfélag Reykjavíkur 23 v. 2. Skákfélag Akureyrar 19‘A v. 3. SkákfélagHafnarfjarðar 17 v. 4. -5. Taflfélagið Hellir 15‘/2 v. 4.-5. Taflfélag Garðabæjar 15’/2 v. 6. Taflfélag Kópavogs 13'/2 v. 7. Tf. Reykjavíkur, B-sveit 12'/2 v. 8. Skáksamband Vestfiarða 11 'h v. 2. deild: 1. Tf. Reykjavíkur, D-sveit 19 v. 2. Tf. Vestmannaeyja 14l/z v. 3. Sf. Akureyrar, B-sveit 13'/2 v. 4. Taflfélag Akraness 12‘/2 v. 5. -6. Sb. Vestfiarða, B-sveit 11‘/2 v. 5.-6. Tf. Reykjavíkur, C-sveit 11V2 v. 7. Ungmennasamb. Eyjafiarðar7‘/2 v. 8. Ungmennas. A-Húnvetninga 6 v. 3. deild: Skákfélag Keflavíkur 15 v. 2. Tf. Kópavogs, B-sveit 15 v. 3. Sf. Akureyrar, C-sveit 14 v. 4. Skákfélag Selfoss 13'/2 v. 5. Tf. Reykjavíkur, G-sveit 10 v. 6. -8. Ums. Eyjafjarðar, B-sveit 9'/2 v. 6.-8. Tf. Reykjavíkur, F-sveit 9'/2 v. 6.-8. Tf. Hellir, B-sveit 9'/2 v. 4. deild, A-riðiIl: 1. Tf Garðabæjar, B-sveit 11'/2 v. 2. Tf Reykjavíkur, E-sveit 10 v. 3. Sf. Keflavíkur, B-sveit 7'/2 v. 4. Tf. Akraness, B-sveit 7 v. 4. deild, B-riðill: 1. Taflfélag Hólmavíkur 15 v. 2. Tf. Vestmannaeyja, B-sveit 11 v. 3. Tf. Reykjavíkur, H-sveit 6 v. 4. Tf. Garðabæjar, C-sveit 4 v. 4. deild, C-riðiIl á Akureyri: 1. Skáksamband Austurlands 15 v. 2. Sf. Akureyrar, D-sveit 13 v. 3. Taflfélag Húsavíkur 4'/2 v. 4. Sf. Akureyrar, E-sveit 3V2 v. í vor tefla sigurvegaramir í riðíun- um þremur í fjórðu deild til úrslita, ásamt TR, E-sveit, sem sigraði TV, B-sveit, 4 ‘/2-1 ‘/2, í aukakeppni um fjórða úrslitasætið. Vegna allra félagaskiptanna þurftu fyrrum samheijar oft að ber- ast á banaspjótum. Strax í fyrstu umferð sló í brýnu á milli þeirra Gylfa Þórhallssonar og Jóns Garðars Viðarssonar sem til margra ára voru vopnabræður í Skákfélagi Akur- eyrar: Hvitt: Gylfi Þórhallsson, SA Svart: Jón Garðar Viðarsson, TK Sikileyjarvörn l.e4 - c5, 2. Rf3 - e6, 3. d4 - cxd4, 4. Rxd4 - a6, 5. a3 Þessi rólegi leikur sneiðir hjá al- faraleiðum í Paulsen-afbrigðinu í Sikileyjarvöm. Hann hindrar svart í að leppa hvítan riddara á c3 með Bb4. 5. - Rf6, 6. Rc3 - Dc7, 7. Be2 - Rc6, 8. Be3 - b5, 9. 0-0 - Bb7, 10. Khl!? - Rxd4, 11. Dxd4 - d5 Gylfi hefur flýtt sér hægt í bytjun- inni og svartur reynir að notfæra sér það með því að tefla hvasst. 12. exd5 - Rxd5,13. Rxd5 - Bxd5, 14. Hfdl - Bd6 Það væri glapræði að seilast í peðið á c2 án þess að hafa lokið litte- skipaninni á kóngsvæng. Eftir 14. - Dxc2?! 15. Bf3 - Hd8, 16. Hacl - Df5, 17. Db6 er svartur í miklum vandræðum. Nú gæti Gylfi sjálfur tekið peð, en eftir 15. Dxg7 - Be5, 16. Dg5 - Bxb2 er staðan tvísýn. 15. Hacl - Be5, 16. Db4 - Hb8, 17. f4 - Bf6? Þetta er afar skiljanlegur leikur því það virðist sem næsti leikur hvíts sé ekki mögulegur. Hins vegar lítur 17. - Bd6!, 18. Dd4 - 0-0, illa út vegna 19. c4. En þá á svartur lag- lega leið til að jafna taflið: 19. - bxc4!, 20. Bxc4 - Bxc4, 21. Hxc4 - Da5!, því 22. Dxd6? gengur ekki vegna 22. - Hbd8,. abcde f g h Hótar bæði 19. - Bxg2 og 19. - a5. Hvitur verður því að fóma skipta- mun, en fómin reynist mun hættu- legri en Jón Garðar hefur órað fyrir. 19. Hxd5H - exd5? Betri varnarmöguleikar vom fólgnir í 19. - Dxd5 en eftir 20. Hdl - Df5, 21. Bd3 - Dh5, 22. Hd2! getur svartur ekki lokið liðsskipan sinni og hvítur hótar bæði 23. f5 og 23. a4. 20. Bf3 - Hb7, 21. Hel+ - Kd8, 22. Hdl - Hd7, 23. c4! - Glæsilegpr lokahnykkur. Eftir 23. - bxc4, 24. Db8+ - Dc8, 25. Bb6+ - Ke7, 26. Hel+ verður svartur máL. 23. - Kc8, 24. cxd5 - a5, 25. Bg4! - Hhd8, 26. dxc6 og svartur gafst upp. Margeir Pétursson Gylfi Þórhallsson skólar/námskeið nudd ■ Nám í nuddi hjá Nuddstofu Reykjavíkur Nám í svæfiamerftferð alls 280 kennslustundir (4 hlutar). Akureyri: 2. hluti 9.-13. nóv. ’94. 3. hluti 1- 5. febr. ’95 4. hluti 3.- 7. maí ’95. Reykjavík: 1. hluti 19.-23. okt. ’94. 2. hluti 2.- 6. nóv. ’94. 3. hluti 8.-12. febr. ’95. 4. hluti 10.-14. maí '95. Grunnnámskeið í slökunarnuddi (20 kennslust.). Nuddstofa Reykjavíkur. Uppl. og innritun í símum 96-24517 og 91-79736. tölvur ■ Tölvunámskeið - Windows 3.1. - Word 6.0 fyrir Windows og Macin- tosh. - WordPerfect 6.0 fyrir Windows. - Excel 5.0 fyrir Windows og Macin- tosh. - PageMaker 5.0 fyrir Windows/Mac- intosh. - Access 2.0 fyrir Windows. - Paradox fyrir Windows. - PowerPoint 4.0 fyrir Windows/Mac- intosh. - Tölvubókhald. - Novell námskeið fyrir netstjóra. - Word og Excel uppfærsla og fram- hald. - Unglinganám. - Windows forritun. Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar kennslubækur fylgja öllum námskeiðum. Upplýsingar og skráning í síma 616699. Tölvuskóli Reykiavíkur 'v.-.v.v.v.ví ■ Borgartúni 28. sími 616699 STJÓRNUNARFÉLAGS ISLANDS OG NÝHERJA 69 77 69 <33> 62 1 □ 66 NÝHERJI ■ Tölvuskóli í fararbroddi öll hagnýt tölvunámskeið. Fáðu senda nýju námsskrána. ýmlslegt ■ Ættfræðinámskeið 5-7 vikna hefjast eftir miðjan sept. Frá- bær rannsóknaraðstaða. Tek saman ættir og hef á annað hundrað ættfræði- og æviskrárrita til sölu. Ættfræðiþjónustan, Brautarh. 4, s. 27100 / 22275. Hlemmi 5,2. hæð, 105 Reykjavík. Opið alla virka daga frá kl. 10—15. Sími: 91-629750. Myndsendir 91-629752. Rafpóstur: brefask@ismenntis. Sendum f póstkröfu um allt land. ■ Sjálfstyrking - lífefli - Gestalt Vertu þinnar gæfu smiður. 7 vikna námskeið að hefjast. Sálfræðiþjónusta, Gunnars Gunnarss., sími 641803. MATREIÐSLUSKÓUNN UKKAR ■ Námskeið í matargerð Indversk matargerð 18. okt. Smurbrauð 24. okt. Sælgæti með kaffinu 25. okt. Kökuskreytingar 3. nóv. ftölsk matargerð 7.-8. nóv. Upplýsingar í síma 653850 myndmennt 1 ■ Myndlistarnámskeið Leiðbeini við ýmsar greinar myndlistar. Einnig úr efnisafgöngum. Innritun hafin í síma 611614. Björg ísaksdóttir. ■ Bréfaskólanámskeið: Grunnteikn- ing, Líkamsteikning, Litameðferð og Listmálun, Skrautskrift, Innanhússarki- tektúr, Híbýlafræði, Garðhúsagerð og Teikning og föndur. Fáið sent kynningar- rit skólans án kostnaðar. Pantanir og upplýsingar í sím- um 627644 og 668333 eða póst- hólf 1464, 121 Reykjavík. I starfsmenntun Læriö vélritun Vélritun er undirstaöa tölvuvinnslu. Kennum fingrasetningu sem er grunnurinn aö því að fólk geti nýtt sér ritvél eða tölvu. Einnig kenndar uppsetningar. Morgun- og kvöld- námskeið byrja 17. október. Innritun I símum 28040 og 36112. Vélritunarskólinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.