Morgunblaðið - 11.10.1994, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 43
BREF TIL BLAÐSINS
Ökumenn dáleidd-
ir eða allsgáðir?
Frá Sveini Ólafssyni:
MIKIÐ vorkenni ég mönnum sem
ekki geta skoðað málefni í rökréttu
samhengi, og virðast sérhæfa sig í
hnútukasti og því, að reyna að
ófrægja viðleitni annarra til að vara
við almennri hættu á alvarlegum
meiðslum, jafnvel örkumlum og
fjárhagstjóni vegna gáleysis. Eitt
slíkt dæmi kom í lesandabréfi í blað-
inu í dag, 6. október, frá manni að
nafni Ásmundur Uni Guðmundsson
á Akranesi, í tilefni af einni af við-
vörunum mínum í bréfum til blaðs-
ins, er birtist 16. september sl. -
Hann hneykslast og óskapast yfir
því, að ég skuli leyfa mér að nota
augun (og bílspeglana - til hvers
eru þeir?) til að sjá viðbrögð, hegð-
un og sofandahátt ökumanna í
umferðinni, sem reynslan sannar
að bjóða hættunni heim, - þar sem
fjölda-árekstrar hafa orðið á bílum
í strollu, sem keyra of nærri hver
öðrum - ekki einn heldur tugir
slíkra afglapa-árekstra, eins og
þeir verðskulda að kallast. í raun-
inni eru viðbrögð þessa manns svo
neikvæð og óuppbyggileg, að þau
er alls ekki svara verð. - Og bág-
indi mannsins, að hafa þessa af-
stöðu til öryggismála, eru sannar-
lega aumkunarverð: að snúast nán-
ast til persónuárása á mann, sem
hann þekkir ekkert, í stað þess þá
að reyna frekar að hrekja það með
málefnarökum, sem honum kann
að sýnast rangt eða líta beri öðru-
vís( á.
Ég spyr, er það synd að láta í
sér heyra, þegar maður sér almennu
öryggi ógnað? - ekki bara af ein-
um, heldur af hópi manna, þegar
það virðist vera almennur hegðun-
argalli, sem er í ferðinni, þ.e. öku-
mannanna sjálfra. - Ég segi nei
og aftur nei! Þessi ágæti maður
getur núið mér um nasir, að vera
síkvartandi, hættulegur í umferð-
inni, að vera með nefið fast í andlit-
um næstu bílstjóra, og að sjá ekki
bjálkann í eigin auga! -
Neikvætt málskrúð
Svona lexíur eða öllu heldur að-
dróttanir og neikvætt málskrúð,
sýna ekkert annað en alveg sér-
stakan þvermóðskuhátt, sem ekki
verður skilinn á annan veg en þann,
að allir megi gera og hegða sér
hvernig sem er, skapa hættuástand,
sýna ruddaskap og óaðgæzlu í sam-
skiptum við aðra - sem umferðin
óhjákvæmilega er. - Þeir sem nefna
svo, að þeir sjái ávirðingarnar eða
hættuna, sem slíkt skapar, séu bara
nöldursseggir, - já, eins og mönn-
um með svona hugsunarhátt er trú-
andi til að kalla einfaldlega: „asn-
ar“.
Mér er nákvæmlega sama hvað
þessi góði maður segir í þessu efni.
- Svona skrif eru ekki röksemdir,
og hagga í engu því sem ijallað er
um. - Þau eru bara tilraun til út-
skita varðandi málefnið og viðkom-
andi persónu, og leitt er að þurfa
að segja það, en það er ekki í fyrsta
skipti, sem slíkt kemur úr þessari
átt, því fyrri munnsöfnuður þaðan
útaf svipuðum málum var þannig,
að varla verður líkt við annað en
frumskógarmennsku, enda því síð-
asta þar ekki svarað.
Að öðru leyti fer ég ekki út að
skrifast frekar á við þennan aðila
um þessi mál. - Það virðist ekki
bjóða öðru heim en því, sem kallast
„skammir“. - í slíku stend ég ekki,
en læt hinum almenna lesanda eftir
að dæma um hvort það, sem ég hef
brotið upp á, eigi rétt á sér eða ekki.
Orð í tíma töluð
í raun þarf ég ekkert að bíða
eftir einhveijum dómi um það, því
viðbröð þeirra gagnvart mér, sem
hafa vit á þessum málum og og
fást við þau og eru því marktækir,
eru þau, að þetta séu orð í tíma
töluð, og að full þörf sé á að benda
á þá slæmu ágalla, sem er í hegðun
margra ökumanna - og jafnvel
fleiri - á íslandi, sem t.d. útlendir
menn eru gjörsamlega gáttaðir á.
- Virðist nær, að svona maður
notaði hæfileika sína til að leggja
þessum umbótamálum lið, en að
vera með skítkast í þá, sem vilja
stuðla að bættu ástandi, sem er
öllum til góðs. Þessi góði maður á
Akranesi getur því skrifað eins og
hann vill áfram um þessi mál fyrir
mér, ef það er í neikvæðum dúr,
án þess að ég geri mér það ómak
að standa í orðaskaki við hann, þó
mér hafi hér þótt tekið svo rök-
semdalaust á þessu máli - og jafn-
framt ókurteislega og ruddalega, -
að ég hafi ekki talið annað fært en
að svara fyrir mig.
SVEINN ÓLFAFSSON,
Furugrund 70, Kópavogi.
Sex daga veðurspár
Frá Páli Bergþórssyni:
ÞAÐ HRÆRIR streng í bijósti
gamals veðurvita að Stöð 2 skuli
hafa sýnt það framtak að fá ungan
veðurfræðing í Toulouse í Frakk-
landi til að semja sex daga veður-
spár sem er sjónvarpað á þriðju-
dagskvöldum. Évrópuveðurstofan í
Reading í Englandi hefur lengi gert
daglegar tilraunir með tíu daga
spár, og framfarirnar hafa verið
miklar. Fleiri veðurstofur hafa síðan
fylgt í kjölfarið. Vissulega sýnir það
sig að sannleiksgildi spánna minnk-
ar smátt og smátt eftir því sem
lengra líður fram í tímann, en þó
er mesta furða hvað 5-6 daga spár
Haraldar Ólafssonar hafa oft gefið
góðar vísbendingar. Engin ástæða
er til að halda þessum upplýsingum
leyndum fyrir íslenskum hlustend-
um, því að þeir eru best hæfir að
meta sjálfir hvaða gagn má af þeim
hafa. En alltaf er meira vitað í dag
en í gær og ef vel ætti að vera
þyrfti auðvitað að sjónvarpa sex
daga spánum á hverju kvöldi, eða
lesa þær í útvarp, til dæmis með
fyrstu spá eftir skikkanlega fóta-
ferð, klukkan 7.30.
PÁLL BERGÞÓRSSON,
veðurfræðingur.
Framleiðum áprentaða tau-burð-
arpoka. Lágmarkspöntun 30 stk.
Bolir, húfur og svuntur.
Húfu og tauprent,
s sími 91-887911
£
94029
Excel námskeið
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 • © 68 80 90
Takið eftir!
Sunny sjálfskiptur
með öllum þessum
búnaði sem hér er
talinn á kr. 1.395.000.-
1 1600 ventla vél
2 Tölvustýrð bein innspýting
3 Sjálfskipting
4 Vökva- og veltistýri
5 Fjögurra dyra
6 Rafdrifnar rúður
7 Samlœsing
8 Höfuðpúðar í aftursæti
p Sunny með
öllu þessu á
kr. 1.395.000.-
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
Ingvar 26
Helgason hf. 27
Sævarhöfða 2
Sími 674000
/
Islensk ryðvörn og
hljóðeinangrun
6 ára ryðvarnarábyrgð
Styrktarbitar í hurðum
Hægt að leggja
aftursœti niður
Fjarstýrt bensínlok
Fjarstýrt skottlok
Fjölstillanleg sæti
Heilkoppar
Barnalæsing
Þurrkur á framljósum
Uði á framljósum
Þjófalœsing á
farangursrými
/
Utihitamœlir
3 ára ábyrgð
Upphituð sæti
/
Utvarp og segulband
4 Hátalarar
1 árs frítt pjónustueftirlit
Snúningshraðamælir