Morgunblaðið - 11.10.1994, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1994 47
JÓSAFAT Hinriksson með hverfisteinana tvo, sem settir hafa verið upp á sjóminjasafni hans við
Súðarvog. Til vinstri er Hellisfjarðarsteinninn, sem vegur 700 kíló og Mjóafjarðarsteinninn til
hægri, en hann vegur 1.000 kíló.
Sambíóin sýna teikni-
myndina Hefðarkettirnir
SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga
hina klassísku teiknimynd Walt
Disney „The Aristocats“ eða Hefð-
arkettirnir eins og hún kallast á
íslensku.
Myndin var fyrst sýnd árið 1970
og hefur æ síðan notið geysilegra
yinsælda um allan heim. Margir
íslendingar ættu því að þekkja
kettina góðu en fjöldi ára er liðinn
frá því þeir sáust síðast á bíótjöld-
um hérlendis. Nú geta ungir ís-
lendingar í dag tekið þátt í þessum
töfraheimi Disneys og séð hina
einu sönnu hefðarketti í bíó.
Myndin segir frá gamalli hefð-
arfrú sem ákveður að arfleiða kett-
ina sína að miklum auðæfum eftir
dauða sinn. Komi hins vegar eitt-
hvað fyrir þá skal hinn trausti
bryti heimilisins hljóta arfinn.
Þetta heyrir brytinn og ákveður
nú að erfingjunum skuli komið
fyrir kattarnef. Hann fer með kett-
ina í poka og ætlar sér að drekkja
þeim en óvænt koma tveir hundar
kisunum til bjargar. Þær slást svo
í för með götukettinum Thomas
og lenda í ýmsum ævintýrum.
Brytinn er hins vegar ekki af baki
dottinn og nú verða kisurnar að
treysta á hjálp vina sinna í barátt-
unni við vonda kallinn.
Jósafat og
hverfi-
steinamir
HVERFISTEINNINN úr hval-
verkunarstöð Ellefsens á Ask-
nesi í Mjóafirði hefur nú verið
settur upp á Sjóminjasafni J.
Hinrikssonar í Reykjavík. Ell-
efsen var Norðmaður og hóf
hann fyrst hvalveiðar og verkun
hér á landi frá Sólbakka við
Önundarfjörð, en flutti sig svo
að Asknesi í Mjóafirði árið 1893
og vann þar hval í 20 ár. Hverfi-
steinninn er leifar úr vinnslu-
stöð hans, sem mun hafa verið
ein sú stærsta í heimi, en hann
var notaður til að brýna hval-
skurðarhnífana eða „flensurn-
ar“. Steinninn er í stærra lagi,
því hann er rúmlega 1,2 metrar
í þvermál, 36 sentimetrar á
þykkt og vegur liðlega þúsund
kíló. I safni Jósafats Hinriksson-
ar er einnig hverfisteinn úr
hvalstöð Bulls í Hellisfirði og
er hann heldur minni. A næst-
unni á Jósafat einnig von á
svinghjóli, tveggja tonna þungu,
úr Hellisfjarðarstöðinni og verð-
ur það einnig sett upp í sjóminja-
safninu.
I vefslunurn BYKO og Byggt og Búið
bjóðast stór og smá heimilistæki
á hagstæðu verði.
Happdrætti
Hjartaverndar
d
DROGUM 14. OKT.
Þú geturgreitt miðann
þinn með greiðslukorti
SÍMI813947 EK
At*- . •:
Nýja bensínið frá
Olís minnkar
myndun útfellinga
Nýja HreintSystem 3 bensínið frá Olís dregur úr
myndun útfellinga í inntaksventlum, en það leiðir til
meiri bensínsparnaðar. Þegar nýja HreintSystem 3
bensínið er notað, verða minni útfellingar á inntaks-
ventlum miðað við notkun á öðru
bensíni án íblöndunarefna.
Mg 250
150
100
Nýja HreintSystem 3
bensínið
Bensín án
íblöndunarefna
Meöalmagn útfelllnga í inntaksventlum í
fimm mismunqndi pörum evrópskra bíla eftir
12.000 km akstur.
Meiri kraftur, hreinni útblástur, minni eyðsla.
Sjá nánarí kynningarbæklingi Olís um HreintSystem 3.
vNmíhmmUmi
kæliskápur
ME 140
Kælir: 131 lítrar
Frystir: 7 Iftrar
Hæö: 85 cm
Breidd: 50 cm
Dýpt: 56 cm
KR. 29.200,-
CESEEBBl^
GUFUGLEYPIR
D 60 SE W
Afköst 302 M3/klst.
KR. 7.300,-
UNDIRBORÐSOFN
HM 10 W
Blástursofn
5 stillingar
Grill og blástursgrill
KR. 39.700,-
€EMEEBB®
HELLUBORÐ
IP 04 R W
4 steyptar hellur
. KR 14.900,-
Skiptiborð 41000, 641919
osmm
Hólf og gólf, afgreiösla 641919
Verslun, Dalshrauni 15, Hafnarfirði:
ermrm
Almenn afgreiðsla 54411, 52870
Almenn afgrelösla 629400
Grænt simanúmer BYKO:
Almenn afgreiösla 689400, 689403
Grænt númer 996410
ARISTON
Falleg, sterk og vönduð
(tölsk heimilistæki
FÓLK í FRÉTTUM