Morgunblaðið - 06.11.1994, Page 4
4 B SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KIENZO
raumn
Dregið verður í Kenzo spurningaleiknum
í þætti Önnu Bjarkar á Bylgjunni FM 98,9 á milli kl. 12 og 16
föstudaginn 11. nóvember.
KENZO
P A R I S
Vorum að taka upp mikið úrval af
drögtum í mörgurn litum.
Stærðir 36-52.
Auk þess stakir jakkar í
rauðu og svörtu.
Opið á laugardögum frá kl. 10-14
Sofasett, Iiomsoiar
hvíldai'slólui',
borðstolúhiisgögn,
dýnur og hjónaruni
-
Hofum gersl
umboðsaðilar fyrír
þessi vönduðu
húsgögn og bjóðum
þig velkomin að sjá
úrvalið.
EKORNES'
jtuscby
Frábær árangur
íslenzkra frí-
merkjasafnara
Frímerkl
NORDIA 94
í MBL. 26. okt. sl. er sagt frá
því, að íslenzkir frímerkjasafnar-
ar hafi staðið sig frábærlega vel
á samnorrænu frímerkjasýning-
unni NORDIA 94, sem haldin var
í Árósum í Danmörku 21.-23.
okt. sl. Var þetta í fyrsta skipti,
sem Danir stóðu fyrir NORDIU-
sýningu, en svo sem kunnugt er
hafa tvær slíkar sýningar verið
haldnar hér á landi, 1984 og
1991. Þriðja sýningin í þessum
hópi mun svo verða haldin hér-
lendis árið 1996.
Sakir takmarkaðs rýmis í Mbl.
verður að mestu að vísa til þess,
sem segir í áðurnefndri frásögn í
blaðinu. Þó vil ég hér minnast á
nokkur atriði.
Eins og þar segir fór svo, að
íslenzkt safn varð stigahæst á
sýningunni með 95 stigum. Var
það hið einstæða safn Indriða
Pálssonar af bréfum, umslögum
og frímerkjum, sem sýna íslenzka
póstþjónustu frá 1836 til 1902.
Hefur íslenzkt frímerkjasafn aldr-
ei náð lengra á norrænni frí-
merkjasýningu til þessa, og kom
það hvorki mér né öðrum, sem til
þekkja, á óvart. Ég fullyrði, að
aldrei áður hafi verið sett saman
jafngott og fallegt íslenzkt frí-
merkjasafn. Er ég í engum vafa
um, að það á eftir að hljóta jafn
góðar viðtökur á alþjóðasýningu
og það fékk nú, ef höfundur þess
leggur leið sína þangað með þetta
einstæða efni.
íslenzkir unglingar áttu einnig
eftirtektaverðan hlut að NORDIU
94. í unglingadeild voru 25 söfn,
og áttu unglingar okkar tæpan
þriðjung þeirra eða átta söfn.
Einn þeirra, Gunnar Garðarsson,
náði þeim frábæra árangri að
verða hæstur með mótífsafn sitt,
Ránfuglar í útrýmingarhættu, og
hlaut fyrir gyllt silfur. Umboðs-
maður NORDIU 94 hér á landi,
Sigurður R. Pétursson, tók það
sérstaklega fram á fundi í Félagi
frímerkjasafnara, þar sem hann
gerði grein fyrir sýningunni, að
unglingasöfn okkar hefðu vakið
verulega athygli, bæði dómara og
gesta, og borið af fyrir skemmti-
legt og vandað yfirbragð; bæru
þau vitni þess, að íslenzkir ung-
lingar nytu góðrar tilsagnar við
úrvinnslu og uppsetningu sýn-
ingarefnis. Eru þetta vissulega
ánægjulegar fréttir og ástæða til
að halda þeim á loft og óska jafn-
framt þessum ungu mönnum til
hamingju.
íslendingar voru ekki hinir
einu, sem sýndu íslenzkt frí-
merkjaefni á sýningunni. Danskir
safnarar áttu þarna einnig dijúg-
an hlut. Orla Nielsen fékk 80 stig
og gyllt silfur fyrir safn sitt ís-
land 1847-1912 (að undanskild-
um í GILDI frímerkjum). Ole
Svinth sýndi safn af íslenzkum
frímerkjum, stimpluðum erlendis,
og hlaut fyrir 73 stig og silfur.
Eigil Rasmussen fékk 72 stig og
silfur fyrir safnið ísland 1873-
1930 með afbrigðum og póstsend-
ingum. Torben Jensen hlaut einn-
ig silfur og 71 stig fyrir safn sitt
af frímerkjum Kristjáns konungs
X. Tveir safnarar frá Svíþjóð áttu
þarna sýningarefni, sem við
þekkjum einnig nokkuð vel til.
Stig Österberg sýndi safn sitt af
Tveimur kóngum og fékk fyrir
81 stig og gyllt silfur. Leif Nils-
-son hlaut 78 stig og stórt silfur
fyrir safnið Brezkur og amerískur
SÍÐUSTU frímerki ársins.
herpóstur á íslandi í annarri
heimsstyrjöldinni.
Samkvæmt umsögn umboðs-
manns NORDIU 94 hér á landi,
fór sýningin mjög vel fram og var
hinum dönsku gestgjöfum til mik-
ils sóma. Alls munu sýningargest-
ir hafa orðið 10.800. Má það heita
góð aðsókn.
Ný frímerki 9. nóvember
Síðustu frímerki póststjórnar-
innar á þessu ári koma út 9. þ.m.
Fyrst er það frímerki að verðgildi
100 krónur. Tilefni þess er 50 ára
afmæli Alþjóðaflugmálastofn-
unarinnar, ICAO (International
Civil Aviation Organization). Var
grundvöllur þeirrar stofnunar
lagður 7. desember 1944, þegar
fulltrúar 52 ríkja undirrituðu ýtar-
legan sáttmála um alþjóðaflug-
mál. Þessi sáttmáli mun vera
fyrsta alþjóðlega skjal sinnar teg-
undar, sem Lýðveldið Ísland átti
þátt í að móta. Þessi stofnun er
ein af sérstofnunum Sameinuðu
þjóðanna. Á miðju þessu ári voru
aðildarríkin orði 183. Aðalstöðvar
ICAO eru í Montreal í Kanada.
Stofnunin hefur í hálfa öld haft
umsjón með tæknilegri samræm-
ingu allra þátta flugmála og hefur
unnið það afrek að tryggja alþjóð-
legar flugsamgöngur um allan
heim þennan tíma.
Tryggvi T. Tryggvason hefur
hannað þetta frímerki. Eftir mynd-
um að dæma lízt mér vel á þetta
frímerki, en á því má sjá Boeing
747 flugvél Flugleiða svífa um
loftin blá undir merki Alþjóðaflug-
málastofnunarinnar.
Tvö jólafrímerki koma einnig
út þennan sama dag, en hönnuður
þeirra er Magnús Kjartansson list-
málari og grafiklistamaður. Mynd-
efnið, sem hann hefur valið frí-
merkjunum, er, eins og segir í til-
kynningu Pósts og síma, „hin svíf-
andi kærleiksbylgja jólahátíðar-
innar er umfaðmar menn og
skepnur kl. 6 á íslensku aðfanga-
dagskvöldi." Myndefnið er sér- i
kennilegt, og ekki mun af veita
að reyna að skýra það út fyrir
almenningi, enda í fljótu bragði
erfitt að tengja það jólunum. En
það er svo margt í nútímalist, sem
er þannig úr garði gert, að venju-
legt fólk á erfítt með að átta sig
á listinni. Svo hefur vissulega á
stundum orðið með jólafrímerki
okkar á liðnum árum. Ég hef orð-
ið var við verulega gagnrýni á
þessi frímerki, enda verður því
ekki neitað, að oft hefur betur
tekizt til en að þessu sinni.
Jón Aðalsteinn Jónsson