Morgunblaðið - 06.11.1994, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 B 11
MÁLVERKAUPPBOÐ
gerð. Menningarmaður gerir sér að
sjálfsðgðu grein fyrir, að hann lifir
í heimi þar sem allt er háð stöðugum
breytingum. Það er ekki heldur
neinn ágreiningur um það, að réttar
breytingar eru af hinu góða. Málið
snýst um það, að allir þessu ofdýrk-
uðu gáfumenn vildu snöggar, rót-
tækar breytingar og þeim fylgdu
alls staðar fjöldamorð og kúgun.
Menningarmaður missir hins vegar
aldrei sjónar af mannúð og siðferði-
legum gildum.
Eftir sjötíu ára tímabil marxism-
ans hafa margir góðir menn séð
ástæðu til þess að staldra við, og
sumir hreinlátir menn hafa talið það
nauðsynlegt að fara í rækilegt þrifa-
bað. En íslensku allaballarnir okkar
blessaðir, þeir þykjast ekki hafa
þörf fyrir neitt slíkt. Þeir láta það
yfirleitt nægja að klóra sér hér og
hvar.
Ég hef hafnað öllum aðalstraum-
um tuttugustu aldar í bókum mínum.
Ég hef alls ekki aðhyllst ameríska
drauminn. Ég hef jafnvel haft
ákveðnar efasemdir um sænsku vel-
ferðina og ég hef verið, að ég held,
einarður baráttumaður gegn marx-
isma. En ég hugga mig við að svo
virðist sem mínar hugmyndir verði
fremur samstíga tuttugustu og
fyrstu öldinni. Núna eru þúsundir
rithöfunda úti um allan heim að
leggja grundvöll að hinni nýju öld.
Allur veruleiki okkar er á hreyfingu.
Við verðum sífellt að endurskoða
hugmyndir okkar og þekkingu. Nú
er það mat mitt, að upp séu að renna
tímar mikillar nýsköpunar og það
er von mín, ef til vill græn von, að
bækur mínar, kannski ekki síst þessi
fimm kver sem ég nefni Heimsmynd-
ir, séu innlegg í þá sköpun. Þessi
fimm rit snúast um hugtakið veru-
leiki, og ég gef mér þær forsendur
að menn komist næst grundvallar-
veruleika í uppruna hlutanna. Á
nýrri öld verður rúm, að ég vona,
fyrir siðmenntað frelsi en ekki frelsi
rándýrsins. Á nýrri öld kemur fram
nýtt gildismat, þar sem samhjálp og
vernd verða meira metin en sam-
keppni og hagvöxtur sem byggjast
á því að menga himin, haf og jörð.
Erkióvinurinn fyrir ofan
dyr Alþingishússinss
Fyrst íslendingar eru kristin þjóð,
hvað er þá nautið að gera efst á
framhlið Alþingishússins?
Já, satt segirðu. Það má velta því
fyrir sér hvað erkióvinurinn sé að
gera í sjálfu skjaldamerki Islendinga!
Getur það verið að kristnar hug-
myndir og heiðnar séu skyldari á
vissan hátt en menn hafa haldið?
Ég er fyrst og fremst að. tala um
Gamla testamentið.
Já. Hvernig í ósköpunum stendur
á því að nautið er í skjaldarmerki
okkar? Nautið táknaði óvininn.
Nautið var sá guð sem guð ísraels
barðist fyrst og fremst gegn. Það
er athyglisvert að heiðin viðhorf
hafa aðallega tíðkast í konungsrík-
inu ísrael. Það er sagt um Jeróbóam
konung, að hann hafi reist tvö guða-
líkneski nyrst og syðst í ríki sínu.
Spámennirnir sem börðust gegn
þessari villutrú, nefndu þau í lítils-
virðingarskyni gullkálfa. En um
langan aldur dýrkuðu konungar,
aðall og allur almenningur í Israel,
nautið. Það gerðu menn einnig í
konungsríkinu Júdeu. Enn er nautið
í skjaldarmerki ísraels, eins og í
skjaldarmerkinu sem við horfum á
yfir dyrum Alþingishússins.
Afstaða mannsins 'til þessarar
nytsömu skepnu, kýrinnar, er öll hin
furðulegasta. Ég held að fátt sýni
mannlega fráfræði betur en afstaða
mannsins til nautsins gegnum tíðina.
Spámennirnir felldu að lokum gamla
guðinn, nautið. Mesti ógnvaldur
manna á forsögulegum öldum var í
fyrstu dýrkaður en varð svo að lúta
í lægra haldi fyrir vopnum og tækni
mannsins. Gamli guðinn var grátt
leikinn. Hann var vanaður og gerður
að þræl, uxa. Sem vanaður þræll
með klafa um
háls, dró hann
um aldaraðir
plóginn í sáð-
landinu, sljór
og meinleysis-
legur. Áðrir
settu nautpen-
inginn í fang-
elsi og menn
éta þessa
fanga sína
einkum um
helgar og á
hátíðisdögum.
Já, gamli guð-
inn er illa leik-
inn en samt
ekki alveg
dauður. Hann
lifir enn með
menning-
arþjóðum bæði í austri og vestri en
undir öðru nafni. Samt fær hann að
halda þremur höfuðeinkennum sín-
um, hornum, klaufum og hala. Það
voru að sjálfsögðu spámennirnir sem
börðust gegn trúnni á nautið og allri
annarri hjáguðadýrkun. Þeir gerðu
nautið að andstæðu guðs. Spánveij-
ar líta ennþá á nautaat sem stríð
milli myrkurs og ljóss, og þegar
hjálparvana skepnan er pínd til
dauða, hrópa stórhrifnir Spánveijar
enn í dag „Lifi guð“.
Allir hafa lesið um það í Gamla
testamenntinu að sjálfur Elía varð
að flýja burt vegna deilna um afstöð-
una til nautsins við þá frægu konu
Jessebel drottningu. Milli þeirra var
fullur fjandskapur. Spámaðurinn
varð að fara í langa útlegð og stríð
hans virtist tapað. í útlegðinni birt-
ist guð honum, ekki í brennandi
runna, ekki í stormi eða jarðskjálfta.
Hann birtist honum sem lágvær innri
rödd og Elía skildi að hinn sanni guð
getur aldrei beðið ósigur. Hvað sem
öllum víxlsporum manna líður, bylt-
ingum, stríði og margslunginni hug-
myndafræði, þá verður guð alitaf til
sem lágvær rödd í hjarta mannsins.
Hann heyrir þessa rödd ef hann
kann að hlusta og hversu hljóðlát
sem hún er þá er þa,ð aðeins hún
ein sem að lokum getur sigrað. Sá
sem heyrði þessa rödd fékk mátt til
að rísa upp gegn valdhöfum og fals-
guðum sem kröfðust mannfórna og
frömdu grimmdarverk á mönnum,
dýrum og allri sköpun guðs. Guð var
guð miskunnar og réttlætis. Og guð
var ekki aðeins guð ísraels heldur
guð allra þjóða. Þessi skilningur Elía
var einnig skilningur hinna hebresku
spámanna sem komu á eftir honum.
Blessuð kýrin
Kýrin var alltaf kölluð „blessuð"
hjá sveltandi íslenskum almenningi
sem vann það afrek að lifa fjögurra
alda ísaldarskeið við sult og seyru.
Hvað skyldi hafa bjargað þjóðinni á
þessum hörmungatímum annað en
konan og kýrin? Það var bandalag
þeirra tveggja sem gerir það að verk-
um að við getum verið að tala hér
saman í dag, íslendingar á íslandi
sem tölum, saman íslensku. Það var
konan sem bjargaði öllu því sam
hægt var að bjarga og hennar afrek
eru ótrúleg. Ég reyni af veikum til-
burðum að lýsa þessu í Ijóðum, í
ljóðabók sem heitir Land minna
mæðra. En ég held að það séu ljóð
sem hafa yfirleitt ekki náð eyrum
manna, og það er að sjálfsögðu
þeirra mál.
• Bókin er 473 blaðsíður að stærð.
Útgefándi er Hans Kristján Árnason.
Verð: 3.420 krónur.
GUNNAR Dal ræðir heimsmynd sína
við Hans Kristján Árnason.
GALLERÍ BORG HELDUR MÁLVERKAUPPBOÐ
Á HÓTEL SÖGU í KVÖLD KL. 20.30.
MEÐAL ANNARS VERÐA BOÐIN VERK EFTIR:
KJARVAL, JÓN STEFÁNSSON, JÚLÍÖNU SVEINSDÓTTUR,
JÓN ENGILBERTS, NÍNU TRYGGVADÓTTUR, SVAVAR
GUÐNASON, KRISTÍNU JÓNSDÓTTUR, ÞORVALD
SKÚLASON, ERRO OG MUGG.
ÓVENJU GLÆSILEGT UPPBOÐ.
VERKIN SÝND í DAG KL. 12-18.
v/Austurvöll, sími 24211
Hagstæðustu
ársins!
RENAULT
Bílaumboðið hf.
Krókhálsi 1 • Simi 876633 • 110 Reykjavík
Verðið á Renault 19 RN
árgerð 1995
er aðeins kr. 1195.000,-
INNIFALIÐ:
Hörkuskemmtileg og sparneytin 1400 vél,
vökvastýri, rafdrifnar rúðuvindur, fjarstýrðar
samlæsingar, útvarp/segulband með fjarstýringu,
styrktarbitar í hurðum, bílbeltastrekkjarar,
málmlitur, ryðvörn, skráning ..
Follegurfjölshyldubíll á fínu verði.
Eitt blab
fyriralla!
fHorgMnMíitoÍíi
- kjarni málsins!