Morgunblaðið - 06.11.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER1994 B 13
ROKKSVEIT Utangarðsmenn með aðstoðarfólk
i i Noregi sumarið 1981.
Stuð rlfjað
upp
UTANGARÐSMENN voru helsta rokksveit landsins á
sínum mektarárum og ruddu brautina fyrir krafmikið
íslenskt rokk. Sveitin leystist upp snemma árs 1981, í
kiölfar mikillar tónleikaferðar um Evrópu, en tónleikar
úr þeirri ferð verða gefnir
vikunni.
Utangarðsmenn sendu
frá sér eina breið-
skífu, sjötommur og safn-
plötu, en aldrei tókst full-
komlega að fanga kraftinn
í sveitinni á tónleikum á
plast. í áðurnefndri Evr-
ópureisu þótti sveitin venju
fremur fjörleg á sviði, enda
ýmislegt að gerjast innan
hennar sem skilaði sér í
meira hamsleysi innan svið
og utan. Það þótti því mik-
ill happafengur þegar í ljós
kom að til voru með Utan-
garðsmönnum upptökur
frá þeirri ferð, teknar upp
út á vegum Smekkleysu í
í klúbb í Stokkhólmi. Að
sögn Utangarðsmannanna
Bubba Morthens og Mike
og Danny Pollock voru
þetta eftirminnilegir tón-
leikar fyrir margt, ekki síst
fyrir það að deginum eyddi
sveitin á lögreglustöð. Þeir
segja að allir hafi því verið
orðnir vel spenntir og æstir
þega þeir komust á svið,
enda segja þeir að þetta
sé tvímælalaust besta
breiðskífa Utangarðs-
manna, með hráum hljóm
og botnlausri keyrslu.
Tims Hardins
minnst
TIM Hardin var merkur tón-
listarmaður bandarískur
sem naut mikilla virðingar
á sjöunda áratugnum. Hann
lést um aldur fram úr of
stórum heróínskammti
1980 og varð mörgum
harmdauði, þar á meðal
Rúnari Júlíussyni sem gaf
út um hann minningarplötu.
Sú minningarplata, sem
jafnan er talin með
bestu verkum Rúnars, var
gefin út endurunnin á
geisladisk fyrir skemmstu.
Rúnar Júlíusson segir að
hann hafi kynnst tónlist
Tims Hardins þegar hann
var í Trúbroti og alltaf
kunnað vel að meta hana.
Þegar Hardin hafi fallið frá
hafí honum fundist hann
eiga honum skuld upp að
inna og því varð platan til.
„Ég gekk með þess hug-
mynd nokkum tíma, en svo
kom ég mér upp hljóðveri
heima og þá lá vel við að
gera þetta," segir Rúnar og
bætir við að kannski hafi
Mlnnlng Rúnar Júlíusson.
hann mest verið að gefa
þessa plötu út fyrir sjálfan
sig. „Það stóð svolítið í mér
að vera að gefa hana út
aftur á geisladisk, en lögin
eru góð og það skiptir ekki
svo miklu máli þó það taki
einhvern tíma að selja upp
í kostnað."
Endanleg mynd
FIRE félagsskapurinn hefur
verið iðinn við innflutning á
erlendum rokksveitum, ekki
síður en tónleika félagssveit-
anna, þar á meðal Stillupp-
steypu og Curvers. Minna
hefur þó verið um þeint sam-
starf sveitanna á sviðinu, en
þegar þær tvær sveitir rugl-
uðu saman reytum sínum
varð afraksturinn sjötomma.
*
Aðurnefnd sjötomma,
sem á eru tvö lög, kom
út í síðustu viku. Lögin á
henni voru samin á siðasta
ári þegar Stilluppsteypa og
Curver hituðu upp í samein-
ingu fyrir Dog Faced Her-
mans. „Þá sömdum við sex
lög,“ segir Birgir „Curver“
Thoroddsen, „og völdum
síðan tvö uppáhaldslög úr
fyrir útgáfu. Þau tókum við
svo upp í janúar sl. og síðan
biðum við bara eftir að eiga
fyrir útgáfunni." Sveitirnar
tvær kynntu plötuna í Und-
irheimum FB í síðustu viku,
en léku ekki saman, enda
segir Curver að ekki standi
til að leika þessi lög á tón-
leikum framar; útgáfan sé
endanleg mynd þeirra.
Fönkuð danstónlist
POPPARINN smávaxni Jason Kay vakti mikla athygli
fyrir frábæra frumraun sína á síðasta ári undir nafninu
Jamiroquai. Fyrir stuttu kom út önnur breiðskífa hans,
sem stendur hinni ekkert að baki.
Jamiroquai hefur helgað
sig fönkaðri danstón-
list og sannaði á frumraun-
inni að hefur á þeirri gerð
tónlistar fullt vald, enda
Líflegur Jason
Jamiroquai Kay.
hefur honum oft verið líkt
við Stevie Wonder. Sumir
höfðu þó orð á því að frum-
raunin væri full laus í reip-
unum, lögin hafí sum hver
berið of teygð með spuna-
köflum. Á nýrri plötu kapp-
ans, sem heitir The Retum
of the Space Cowboy, rek-
ur hann af sér allt slyðru-
orð, því hún er öllu mark-
vissari og kraftmeiri en
fyrri platan, og engin þurrð
á hugmyndum, því platan
er vel yfir klukkustund á
lengd. Sum laganna hafa
heyrst nokkuð í útvarpi og
happafengur því þau eru
vel til þess fallin að styttá
mönnum stundir í skamm-
deginu; upp full með léttum
andblæ og lipurri snarstefj-
un.
DÆGURTÓNLIST
Hvab er varib í Skotana?
vinna þessa plötu með
EIN helsta rokksveit
landsins er SSSól, sem
hefur haldið velli í á átt-
unda ár. Sveitinni gekk
allt í haginn í sumar, en
gaf sér tíma í haust til
að hljóðrita breiðskífu.
SSSól fékk til liðs við
sig skoska útgáfu-
stjóra, Ian Morrow og
Sandy Jones, sem Sólar-
menn hafa áður unnið með
með góðum árangri og
Helgi
Björns-
son
söngvari
sveitar-
innar
segir að
eftir Árno fyrr’,
Motthlosson kynni
þeirra fé-
laga af Skotunum hafi
einmitt ráðið mestu um
að þeir voru fengnir til
starfans núna. „Það var
sérstaklega gaman að
þeim, því við höfðum
meiri tíma til að undirbúa
hana og við vorum allir
betur samtaka fyrir vik-
ið,“ segir Helgi og bætir
við að í raun hafi sveitín
verið að velta því fyrir sér
að gefa út þlötu í sumar
og því verið búin að leggja
grunninn að breiðskífu
snemma á árinu. Ýmis-
legt varð til þess að þeirri
breiðskífu var slegið á
frest en leiða má getur
að þvf að SSSóIhafi ein-
faldlega haft yfrið nóg
að gera, og Helgi tekur
undir það að mikið hafi
verið spilað í sumar og
vissulega sé ánægjulegt
að fá meðbyr, „menn
verða alltaf öruggari með
sig þegur vel gengur“.
Helgi segir að þegar
ákvörðun var svo tekin
um að taka upp i haust
hafí það gefíð prýðis
tækifæri til að vinna lögin
enn frekar, leysa allt sem
leysa þurfti áður en farið
var inn í hljóðver. „Við
vildum hafa plötuna hráa
og lifandi og tókum þann-
ig nánast öll Iþjóðfæri upp
samtímis og það stóð,
þannig að þá var bara
eftir fínpússning og söng-
ur. Við tókum þvi plötuna
upp og hijóðblönduðum
hana á tveimur vikum,
settum upp góðan anda í
stúdíóinu, keyptum okkur
bjórkassa, kveiktum á
kertum og fylltum allt af
blómum.“
Helgi segir að tónlist
sveitarinnar sé að þróast,
ekki síst fyrir það að
hann sé farinn að semja
meira einn, en minna er
um að hljómsveitin semji
öll saman. Hann segir að
nýi bassaleikarinn sé
kominn vel inn í sveitina
og þetta sé að hans mati
besta útgáfa af SSSól til
þessa. „An þess að lasta
þá sem verið hafa í sveit-
inni áður, er þetta besta
útgáfa SSSól sem ég hef
verið með í, sú lang þétt-
asta.“
Megas
FÁIR tónlistarmenn hafa
vakið annað eins umtal og
jafnvel deilur með sinni
fyrstu breíðskífu og Magnús
Þór Jónsson, sem sendi frá
sér fyrstu breiðskífuna undir
nafninu Megas árið 1972. Sú
hefur verið ófáanleg í fjölda
ára, en var endurútgefin út
á geisladisk fyrir stuttu.
Megas hljóðritaði plötuna
að mestu í Noregi, en
hann hafði þá um langt skeið
fengist við
laga- og
textasmíð-
ar. Platan
vakti
mikla at-
hygli þeg-
ar hún
kom út og
ekki síður
deilur,
enda þótti
mörgum
MAgnúsf-
ara ómjúk-
um hönd-
um um
sitthvað
sem áður
var talið
hafið yfir gagnrýni eða spé.
Upplag plötunnar var ekki
stórt og hún seldist snemma
upp og hefur ekki fengist síð-
an, utan að hún var í frægum
safnkassa, Megas allur, sem
kom út fyrir nokkrum árum
og seldist snimmhendis upp.
Það er því mikill fengur að
endurútgáfunni, enda lykil-
plata í íslenskri rokksögu.