Morgunblaðið - 06.11.1994, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
Árni í Excalibur-
veggnum í Buoux.
SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER1994 B 15
difrar
inum í
íSuð-
kk-
li á Suð-
Spáni í
úar. Þeir
la þetta
t vetrar-
kuri.
bara á gripum sem eru í berginu. Tilgangur
öryggisfestinga, sem öryggislína er fest í, er
þá einungis að koma í veg fyrir að klifrarinn
hrapi til jarðar missi hann takið. Þegar hann
nær lokahandfestu festir hann línuna í sérstaka
öryggisfestingu. Síðan læfur hann slaka sér
niður. Félagi hans, sem staddur er neðan við
klettinn, er með línuna í línubremsutæki. Því
næst er tekist á við næstu leið. Þegar klifraran-
um tekst að klífa leiðina án þess að hafa próf-
að hana áður, kallast það „on sight,“ og er það
besti árangurinn. Ef honum mistekst, og hann
verður að setjast í öryggisfestingar, er það
kallað að „bleikpunkta." En reyni hann aftur
frá byijun og nær á leiðarenda í einni lotu,
kallast það „rauðpunktur". Þegar reyndur er
rauðpunktur er algengt að klifrarinn sé að
reyna sig við efstu mörk getu sinnar. Þá liggur
oft að baki mikil vinna og miklar æfingar við
einstaka hreyfingar í leiðinni. Algengt er að
þessi vinnsla taki yfir nokkra mánuði með hlé-
um.
Fjölspannaklifur eru leiðir sem liggja upp
stóra klettaveggi. Eru þá tveir eða fleiri saman
í hóp og þegar sá sem fer fyrstur er komin
að enda spannarinnar festir hann sig. Næsti
maður kemur á eftir og tekur út öryggisfesting-
ar en síðan tekur hann við að leiða næstu spönn.
Stundum eru leiðirnar svo langar að maður
þarf að bíða af sér nóttina og sofa á sillum eða
hengirúmum.
Þegar leið er farinn í fyrsta skipti er henni
gefið nafn og einnig erfiðleikagráða til saman-
burðar við aðrar leiðir. Til eru nokkur gráðu-
kerfi, en í dag eru frönsku gráðurnar algengast-
ar, enda hefur mesta gróska í sportklifri verið
í Frakklandi undanfarin ár. Það nær frá einum
upp í níu, sem er hæsta gráðan í dag. Við
hvern tölustaf bætist síðan bókstafur frá a-c
og án eða með +. Dæmi: 6a, 6a+, 6b, 6b+,
6c, 6c+. En hvað þarf til þess að geta klifrað
klettaleiðir? Þokkalegur vöðva-, fingrastyrkur
og jafnvægi koma sér vel. En mikilvægasti
vöðvinn er heilinn því útsjónarsemi er nauðsyn-
leg til að geta reiknað út hvemig best er að
nýta hand- og fótfestur. Ekki sakar að með
fylgi hæfilegt hugrekki og ákveðni. Oftar en
ekki lætur hugrekkið í minni pokann fyrir vöðv-
unum. Upp að 6a dugir þokalegur líkamsburð-
ur og reglulegar klifuræfingar eru óþarfar.
Vilji maður hins vegar hækka sig á erfiðleika-
skalanum verður að stunda reglulegar æfingar.
Er þá nauðsynlegt að sækja í innanhúss æfinga-
veggi yfir veturinn. Til þess þarf mikla þolin-
mæði hér á íslandi því oft er þreytandi að geta
ekki spreitt sig á alvöru klettum allan veturinn.
Það var þess vegna sem við félagarnir tókum
i)á ákvörðun, haustið ’93, að dvelja samfellt í
Björn í mikl-
um átökum í
Frankenj-
ura, sem er
klifursvæði
fyrir norðan
Nunberg í
Þýskalandi.
Stefán í slút-
andi klifur-
leið fyrir of-
an bæinn
Volx í Suður-
Frakklandi.
sjö mánuði í Evrópu. í upphafi ferðar vom fest
kaup á bifreið í Luxembourg. Góður bíll er
nauðsynlegur á ferðalagi sem þessu, til að forð-
ast langar göngur að klifursvæðunum, því þau
eru yfirleit á afskektum stöðum. Síðan var
haldið til Suður-Frakklands, og var ætlunin að
dvelja þar megnið af tímanum. A þessum slóð-
um er eitt mesta úrval af klifursvæðum á einum
stað í Evrópu. Við tókum á leigu litla íbúð I
bænum Pertuis, sem er klukkutíma akstur frá
hafnarborginni Marseille. Þarna suður frá er
óteljandi fjöldi af kalksteinsklettaborgum með
fleiri þúsund leiðum. Kalksteinninn er afar
holóttur, með köntum, misfellum og rönum og
hentar því einkar vel til klifurs. Við heimsóttum
líka klifursvæði í öðrum löndum. Um hávetur-
inn fórum við til Spánar á klifursvæði þar sem
heitir Sella og er í fjöllunum við baðstrandarbæ-
inn Benidorm. Um vorið var haldið til Arco við
Gardavatn á Ítalíu og síðan til Osp í Slóveníu.
Ferðinni lauk síðan í Frankenjura í Þýska-
landi. En best er að láta myndir úr ferðinni
tala sínu máli.
Bingó - Andespil
Félagið Dannebrog heldur sitt árlega matarbingó
í dag, sunnudaginn 6. nóvember, kl. 20.30 í Risinu,
Hverfisgötu 105. Húsið opnað kl. 20.00.
Stjórnin
Fullkomin staðsetning í lengd
og breidd og lórantölum
Nýr VALSAT 02L. GPS
ÍMlklS. VAl.SAT 02L GPS g
I pmu 4 7ff10,702^1
I - XV Ö0 ... 4 U
£10 0 ill.
0 0 0 0 0 0 © ® W
(B1 O £1 ■wiHMdH .Jiiná? •*»■**» L i'%
5 tungla móttaka. 50 minnispunktar. Stefna og hraði.
Skyndistaðsetning. Tenging fyrir allar gerðir plottera.
Innstimplun minna í lórantölum. Kompásleiðrétting og fl.
Verð kr. 71,500 án vsk.
SÍNUS HF.
Rafeinda-, siglinga- og fiskileitartæki
GRANDAGARÐI 1A • SÍMI 28220 • BOX 813
Slaðu 111!
Þekking - þróun - þjónusta
TOLVA 06 PRENTARIFRA
KR. 137.900,-
ekki spurning!
Ótrúlegt verð á Digital
tölvum og HP DeskJet
bleksprautuprenturum.
Tilboðsverð á tölvu og
prentara frá kr. 137.900.
Prentarasnúra og 500 blaða
pappírspakki fylgir með.
Z
■*c
5
= ORTOLVUTÆKNII=
Höfundur eru félagar í íslenska
Alpaklúbbnum.