Morgunblaðið - 06.11.1994, Side 16
16 B SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER1994
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUA! YSINGAR
Aukavinna
Óskum eftir þýðendum til að þýða úr þýsku.
Upplýsingar í símum 93-14030 og 93-14111
eða sendið nafn og síma til afgreiðslu Mbl.
fyrir 11. nóvember merkt: „A - 15720".
Karlakór Reykjavíkur
auglýsir eftir samstarfsaðilum við byggingu
og rekstur á menningarhúsi (tónlistarperlu)
við Skógarhlíð í Reykjavík. Grunnflötur húss-
ins er um 512 m2, kjallari 326 m2 og innri
svalir 77 m2. Aðalsalur hússins, sem er með
sviði fyrir söngfólk og hljóðfæraleikara, tekur
allt að 400 manns í sæti. Þegar er búið að
steypa upp kjallara, gólf og útveggi á húsinu.
Áhugasamir aðilar hafi samband við Bjarna
Reynarsson, formann kórsins, í síma 621362
e. kl. 17.00 virka daga.
Karlakór Reykjavíkur.
Dreifingarstjórí
Við erum að leita að frjóum,
duglegum einstakiingi
sem getur starfað sjálfstætt
Starfið er fólgið í skipulagningu og
stjórnun dreifingar til áskrifenda,
umboðsmanna og sölustaða.
Tölvuþekking nauðsynleg.
Efþú hefur áhuga á að starfa á spennandi
vinnustað í sókn þá hafðu samband við
Kristinn Albertsson eða Þórarin Stefánsson
á skrifstofu okkar að Vesturgötu 2, Reykjavík
fyrir miðvikudaginn 9. Nóvember.
Fra m kvæmdastjóri
Stjórn samtaka sunnlenskra sveitarfélaga,
SASS, óskar að ráða framkvæmdastjóra frá
1. janúar 1995.
Leitað er að einstaklingi með góða þekkingu
og/eða reynslu af sveitarstjórnarmálum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af
stjórnunarstörfum. Lögfræði- viðskipta-
fræði- eða sambærileg menntun æskileg.
Framkvæmdastjóri veitir forstöðu skrifstofu
samtakanna og annast m.a. fjármál, inn-
heimtu, bókhald og áætlanagerð fyrir SASS
og stofnanir tengdar samtökunum.
Framkvæmdastjóri vinnur að stefnumark-
andi málum í samráði við stjórn samtakanna
og hefur á hendi önnur þau störf sem stjórn-
in felur honum.
Ráðningarkjör miðast við kjarasamninga op-
inberra starfsmanna.
Ráðningartími miðast við kjörtímabil sveitar-
stjórna, með venjulegum uppsagnarfresti.
Skriflegum umsóknum með upplýsingum um
menntun og fyrri störf skal skilað á skrif-
stofu SASS, Eyrarvegi 8, 800 Selfossi, fyrir
16. nóvember 1994.
Nánari upplýsingar veita: Hjörtur Þórarins-
son, framkvæmdastjóri SASS, í síma 98-
21088/98-21350, og Ólafía Jakobsdóttir, for-
maður SASS, í síma 98-74840.
„Au pair“
Þýsk hjón, með tveggja ára dreng, óska eftir
„au pair“ stúlku, ekki yngri en 20 ára. Æskilegt
er að hafa lágmarkskunnáttu í þýsku og bíl-
próf. Ráðningartími 1 ár frá og með 2. jan. '95.
Upplýsingar gefur Unnur í síma 904995608331.
Sölumaður
Heildverslun í Reykjavík óskar eftir að ráða
mann til sölu- og lagerstarfa.
Umsóknir með uppl. um aldur, menntun og
fyrri störf sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 15.
nóv. merkt: „Sölumaður - 18020“.
Ritstjóri óskast
Héraðsfréttablaðið Borgfirðingur óskar að
ráða ritstjóra frá 1. janúar 1995.
Umsóknir berist til Ungmennasambands
Borgarfjarðar eða Verkalýðsfélags Borgar-
ness fyrir 21. nóvember.
Nánari upplýsingar um starfið gefa Ásdís
Helga Bjarnadóttir í síma 93-70068 og
Baldur Jónsson í síma 93-71185.
Framkvæmdastjóri
óskast
íþróttafélag á höfuðborgarsvæðinu óskar
eftir að ráða framkvæmdastjóra. Óskað er
eftir manni/konu sem getur unnið sjálfstætt.
Um er að ræða mjög krefjandi starf.
Svör sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 16. nóvem-
ber merkt: „í - 8151“.
Öllum umsóknum verður svarað.
Heimakynningar
Prjónafatnaður
Sölufólk óskast til að kynna prjónafatnað í
heimahúsum, t.d. í saumaklúbbum o.fl. Góð-
ir tekjumöguleikar, prósentur.
Upplýsingar gefur Anna og útlitið í síma
872270.
MIÐSTÖÐ
FOLKS I ATVINNULEIT
Breiðholtskirkju, Mjódd, sími 870880.
A dagskrá:
„Atvinnuleysið, atlaga að heilsu
okkar!“
Fjarvistir og vinnuharka á íslandi?
Óiafur Óiafsson, iandlæknir, Sigurbjörn
Sveinsson, formaður Félags íslenzkra
heimilislækna, og Ásta Möller, formaður
Félags íslenzkra hjúkrunarfræðinga, á
Opnu húsi Miðstöðvarinnar í safnaðar-
heimili Hallgrímskirkju fimmtudaginn 9.
nóvember kl. 20-22. Mætið!
Ókeypis skráning í íþróttatíma á dagtíma í
Miðstöðinni.
Miðstöðin er vettvangur sem fólk getur nýtt
sér og leitað til. Þar er boðið upp á ráðgjöf
og liðsinni.
Miðstöðin er opin alla jafna á venjulegum
vinnutíma.
ÍSLANDSBANKI
Tölvunarfræðingur
íslandsbanki hf. leitar að
tölvunarf ræðingi til starfa í
tölvu- og upplýsingadeild bankans.
Tölvu- og upplýsingadeild sér um þróun
margvíslegra upplýsingakerfa fyrir banka,
sem er í fararbroddi í nýsköpun í bankaþjón-
ustu. Deildin sér einnig um fræðslu vegna
þessara kerfa; OPEN/VMS, UNIX, NOVELL,
WINDOWS 3 og MS-DOS. Helstu hugbúnað-
arverkefni eru ORACLE, VISUAL og BASIC.
Umsækjandi þarf að hafa góða skipulags-
hæfileika og eiga gott með að umgangast
samstarfsmenn og viðskiptavini deildarinnar.
Hann þarf auk þess að vera jafnvígur á hóp-
vinnu og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Bankinn býður upp á góða vinnuaðstöðu,
öflugt félagslíf, frekari menntun á þessu sviði
og góðan starfsanda. Hér er því um líflegt
og skemmtilegt starf að ræða hjá traustum
vinnuveitanda.
Nánari upplýsingar veitir Haukur Oddsson,
tölvu- og upplýsingadeild, í síma 608000.
Umsóknir berist Guðmundi Eiríkssyni,
starfsmannaþjónustu íslandsbanka,
Ármúla 7, fyrir 25. nóvember nk.
KENNARASAMBAND
fSLANDS
Starfsmaður við
orlofshús
Orlofssjóður Kennarasambands íslands aug-
lýsir eftir starfsmanni við viðhald og eftirlit
orlofshúsa félagsins í Ásabyggð á Flúðum í
Hrunamannahreppi. Æskilegt er að viðkom-
andi sé búsettur á Flúðum eða nágrenni þar
sem húsnæði fylgir ekki starfinu.
Umsóknarfrestur er til 18. nóvember nk.
Skriflegar umsóknir sendist stjórn orlofs-
sjóðs Kennarasambands íslands, Laufásvegi
81, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita: Hilmar Ingólfsson,
sími 91-656720, og Valgeir Gestsson, sími
91-624080.
Stjórn orlofssjóðs
Kennarasambands íslands.
Frá Háskóla Islands
Sérfræðingur við Rannsóknarsetrið í Vest-
mannaeyjum. Staða sérfræðings hjá sjávar-
útvegsstofnun Háskóla íslands með aðsetur
í Vestmannaeyjum er laus til umsóknar.
Áætlað er að ráða í stöðuna til þriggja ára.
Sérfræðingnum er ætlað að hafa daglega
yfirumsjón með starfsemi samstarfsnefndar
Háskóla íslands og Vestmannaeyjabæjar auk
þess að stunda sjálfstæðar rannsóknir á sínu
sviði. Viðkomandi þarf að hafa lokið fram-
haldsnámi (meistara- eða doktorsprófi) í sjáv-
arlíffræði eða öðrum greinum sem tengjast
sjávarútvegi.
Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðherra.
Nánari upplýsingar veitir Örn D. Jónsson,
forstöðunriaður sjávarútvegsstofnunar, í
síma 694724.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember (fram-
lengdur umsóknarfrestur) og skal umsóknum
skilað til starfsmannasviðs Háskóla íslands,
aðalbygginguviðSuðurgötu, 101 Reykjavík.