Morgunblaðið - 06.11.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUÐAGUR 6. NÓVEMBER1994 B 17
ATVINNUAi X :/ YSINGAR
„Au-pair“ óskast
til Lúxemborgar, ekki yngri en 25 ára. Má
ekki reykja.
Upplýsingar í síma 611211.
Verslunarstarf
Við óskum eftir að ráða starfskraft til
almennra afgreiðslu-, lager- og verslunar-
starfa.
Upplýsingar á staðnum á morgun.
Borgarljós hf.,
Ármúla 15,
Reykjavík.
Leikskólinn í Grundarfirði
Leikskólakennara vantar á leikskólann Sól-
velli, Grundarfirði.
Einnig vantar leikskólastjóra í 50% starf frá
janúar til ágúst. Aðstoð við útvegun hús-
næðis og húsnæðishlunnindi.
Upplýsingar gefa leikskólastjórar í síma
93-86645.
Sveitarstjórinn í Grundarfirði.
Ráðningaþjónusta sjávarútvegsins
Yfirverkstjóri
Öflugt, framsækið fiskvinnslufyrirtæki á
Austurlandi, með 400 millj. kr. veltu '93,
60-80 starfsmenn og er einn af megin
burðarásum atvinnulífs á viðkomandi stað,
óskar að ráða yfirverkstjóra til starfa frá
janúarbyrjun '95.
Starfsvettvangur yfirverkstjóra:
1. Dagleg stjórnun botnfiskvinnslu ásamt
loðnu- og síldarfrystingu.
2. Ábyrgð á framlegðar-, hreinlætis- og
gæðamálum.
3. Framtíðarstefnumörkun með fram-
kvæmdastjóra.
í boði er: Framtíðarstarf fyrir dugmikinn, já-
kvæðan einstakling með menntun, þekkingu
og reynslu af vinnsluferli frystihúsa.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir
merktar: „YFIRVERKSTJÓRI F110“ til skrif-
stofu okkar fyrir 18. nóvember nk.
Með allar umsóknir og fyrirspurnir verður
farið sem trúnaðarmál.
EGJ
Egill Guöni Jónsson
Ráðningarþjónusta og ráðgjöf
Borgartúni 18 • 3. haBÖ • 105 Reykjavík • Slmi (91) - 61 66 61
Leikskólastjóri
Hraunkot, sem er tveggja deilda foreldrarek-
inn leikskóli í Hafnarfirði, vantar leikskóla-
stjóra í afleysingar, í að minnsta kosti 1 ár,
frá 1. janúar 1995. Aðaláherslan í uppeldis-
starfinu er tónlistar- og hreyfiuppeldi.
Nánari uppl. veitir leikskólastjóri í síma 53910.
Kælivirki
Kæliverkstæði á höfuðborgarsvæðinu óskar
eftir starfsmanni. Viðkomandi þarf að hafa
grunnþekkingu á sviði kælitækni og helst
einhverja starfsreynslu.
Menntun: Vélfræðingur eða vélvirki.
Umsóknum skal skilað til afgreiðslu Mbl. fyr-
ir 10. nóvember merkt „K-5230"
Framkvæmdastjóri
Lögfræðingafélag íslands auglýsir laust til
umsóknar starf framkvæmdastjóra félagsins.
Um er að ræða hlutastarf. Viðkomandi þarf
að hafa lokið embættisprófi í lögfræði og
geta starfað sjálfstætt.
Umsóknir merktar: „Framkvæmdastjóri -
15721“ berist afgreiðslu Mbl. fyrir kl. 16.00
föstudaginn 18. nóvember nk.
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Administration of occupational safety and health
Bíldshöföa 16 Pósthólf 12220 • 132 Reykjavík
Töivunarfræðingur
Vegagerðin óskar að ráða tölvunarfræðing
eða aðila með sambærilega menntun.
Starfið
Þjónusta við notendur einmenningstölva.
Uppsetning á tölvum og hugbúnaði, netteng-
ingar ásamt forritaþróun.
Leitað er að þjónustuliprum einstaklingi sem
á auðvelt með samskipti og sjálfstæð vinnu-
brögð. Þekking á Visuai Basic og Visual
C++ æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon
hjá Ráðgarði. Ath. Upplýsingar um starfið
eingöngu veittar hjá Ráðgarði.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: „Vegagerðin - tölvu-
deild“ fyrir 16. nóvember nk.
RÁÐGARÐUR hf.
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17105 REYKJAVÍK SÍMI616688
Hárgreiðslumeistari
- sveinn
óskast. Upplýsingar á staðnum frá kl. 10-17
mánudag og þriðjudag.
Hjá Stellu,
Hraunbæ 102.
Rekstur mötuneytis
Stór stofnun í borginni óskar eftir starfs-
krafti til að standa fyrir rekstri mötuneytis
starfsfólks og veitingasölu til almennings.
Um er að ræða sameiginlegt eldhús, en að-
skildar veitingastofur, sem eru fyrir 80-100
manns hvor. Fullkomin aðstaða er til staðar,
en viðkomandi þyrfti að geta hafið störf fljótt.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar.
Umsóknarfrestur er til 11. nóv. nk.
Guðnt TÓNSSON
RÁÐCJör ö RÁÐN I NICARNÓN USTA
TIARNARGÖTU M, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
Frá Háskóla íslands
í námsbraut í hjúkrunarfræði er laus staða
lektors í hjúkrunarfræði með áherslu á
hjúkrun fullorðinna sjúklinga á almennum
legudeildum sjúkrahúsa. Staðan veitist frá
1. janúar 1995 til þriggja ára.
Umsækjendur um ofangreinda stöðu skulu
láta fylgja umsóknum sínum rækilega skýrslu
um hjúkrunar- og vísindastörf þau er þeir
hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og
námsferil.
Með umsóknum skulu send eintök af vísinda-
legum ritum og ritgerðum umsækjenda,
óbirtum og birtum. Ennfremur er óskað eftir
greinargerð um rannsóknir, sem umsækjandi
hyggst stunda verði honum veitt staðan.
Frekari upplýsingar veitir Sóley Bender, for-
maður stjórnar námsbrautar í hjúkrunar-
fræði, í síma 694980.
Laun skv. kjarasamningum Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðherra.
Umóknir skulu sendar starfsmannasviði
Háskóla íslands, aðalbygginu við Suðurgötu,
fyrir 6. desember nk.
REKSTRAR- OG VIÐSKIPTANAM
s
Endurmenntunarstofnunar Háskóla Islands
þriggja missera nám með starfí hefst á vormisseri 1995
Endurmenntunarstofnun býður fólki með reynslu í rekstri og stjórnun upp á hagnýtt
og heildstætt nám í helstu viðskiptagreinum. Námið hafa nú þegar stundað á þriðja
hundrað stjómendur úr einkafyrirtækjum og stofnunum. Nemendur em flestir fólk
með viðamikla stjómunarreynslu sem gera miklar kröfur,ujn hagnýtt gildi og fræði-
lega undirstöðu námsisn. Ávallt komast færri að en vilja. Tveggja missera
framhalds-nám með sama sniði stendur til boða annað hvert ár.
Inntökuskilyrði: Teknir eru inn 32 nemendur. Forgang hafa þeir sem lokið hafa
háskólanámi, en einnig er tekið inn fólk með stúdentspróf eða sambærilega menntun
sem hefur töluverða reynslu í rekstri og stjómun.
Helstu þættir námsins: Rekstrarhagfræði, reikningshald og skattskil, fjármálastjóm,
stjórnun og skipulag, starfsmannastjómun, upplýsingatækni í rekstri og stjómun,
framleiðslustjómun, markaðs- og sölufræði, réttaneglur og viðskiptaréttur,
þjóðhagfræði, haglýsing og stefnumótun.
Kennslutími er 120 klst. á hverju misseri auk heimavinnu. Námið er alls 360 klst.
sem samsvarar 18 einingum á háskólastigi. Nemendur taka próf og fá prófskírteini að
námi loknu.
Stjórn námsins skipa þrír háskólakennarar, þeir Logi Jónsson, dósent, fulltrúi
Endurmenntunarstoftiunar HÍ, Stefán Svavarsson, dósent, fulltrúi viðskipta- og
hagfræðideildar HÍ, og Pétur Maack, prófessor, fulltrúi verkfræðideildar HÍ.
Kennarar m.a.:
Bjami Þór Óskarsson, hdl. og adjúnkt HÍ.
Gísli S. Arason, rekstrarráðgjafi og lektor HÍ.
Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, stundakennari HÍ.
Magnús Pálsson, viðskiptafræðingur og rekstrarráðgjafi.
Páll Jensson, prófessor, verkfræðideild HÍ.
Stefán Svavarsson, dósent, viðskiptadeild HÍ.
Þórður S. Óskarsson, vinnusálfræðingur Sinnu hf.
Næsti hópur hefur nám í febrúar 1995.
Verð fyrir hvert misseri er 69.000 kr.
Nánari upplýsingar um námið, ásamt umsóknareyðublöðum (sem sendist inn fyrir
15. nóvember 1994) fást hjá:
Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands
Tæknigarði, Dunhaga 5,107 Reykjavík,
símar: 694923, 694924 og 694925. Fax 694080.