Morgunblaðið - 06.11.1994, Qupperneq 18
18 B SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER1994
MORGUNBLAÐIÐ
i AUGLYSINGAR
Framkvæmdastjóri
- Landfræðilegt upplýsingakerfi -
LÍSA, samtök um samræmd landfræðileg
upplýsingakerfi á íslandi, óskar að ráða
framkvæmdastjóra í hálft starf til að byrja
með, en gæti orið fullt starf síðar.
Samtökin eru vettvangur samstarfs á sviði
landfræðilegra gagnasafna og upplýsinga-
kerfa.
Starfið felst m.a. í að:
• Halda utan um rekstur félagsins,
félagaskrá og gefa út fréttabréf.
• Undirbúa fundi og ráðstefnur á
vegum félagsins.
• Safna, vista og vinna úr upplýs-
ingum m.a. erlendis frá og miðla
þeim út til félagsmanna.
• Sækja fundi og ráðstefnur fyrir
hönd félagsins.
Hæfniskröfur
Leitað er að einstaklingi með frumkvæði,
skipulagshæfileika og sem á auðvelt með
að starfa með öðrum. Æskilegt er að um-
sækjendur hafi einhverja reynslu af því að
vinna með landfræðileg upplýsingakerfi og
hafi a.m.k gott vald á einu Norðurlandamáli
auk ensku. Hákskólamenntun eða sambæri-
leg menntun er æskileg.
Nánari upplýsingar veita Auður Bjarnadóttir
og Torfi Markússon hjá Ráðgarði frá kl. 9-12.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs fyrir 16. nóvember nk.
RÁÐGARÐUR hf.
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRAÐGJÖF
NÓATÚN17105 REYKJAVÍK SÍMI616688
Náttúrufræðingar
Náttúrustofa Austurlands
í Neskaupstað
- staða forstöðumanns
í samræmi við lög nr. 60/1992 og reglugerð
nr. 384/1994 óskar stjórn Náttúrustofu Aust-
urlands eftir forstöðumanni.
Starfssvið: Forstöðumaður ber ábyrgð á
daglegum rekstri stofunnar, semur rekstr-
aráætlanir, mótar rannsóknastefnu og ræður
starfslið með samþykki stjórnar. Hann er í
fyrirsvari fyrir stofuna og annast samskipti
út á við. Gert er ráð fyrir að hluti starfsins
felist í rannsóknum.
Leitað er eftir náttúrufræðingi með háskóla-
próf eða sambærilega þekkingu. Starfið
krefst góðra skipulagshæfileika, sjálfstæðra
vinnubragða, frumkvæðis, samviskusemi,
lipurðar í samstarfi og umgengni við fólk.
Umsækjendur skulu vera vel máli farnir og
ritfærir.
í boði er fjölbreytt, krefjandi og áhugavert
starf við að byggja upp og skipuleggja nátt-
úrurannsóknir á Austurlandi og taka þátt í
að móta framtíðarstefnu stofunnar.
Neskaupstaður hefur öflugt og fjölbreytt at-
vinnnu- og menningarlíf og þar er boðið upp
á alia þjónustu. Má þar nefna grunnskóla,
tónskóla, verkmenntaskóla, Fjórðungs-
sjúkrahús, sundlaug, íþróttahús, íþróttavelli
og skíðamiðstöð.
Staðan er veitt til 5 ára. Viðkomandi þarf að
geta hafið störf fyrri hluta árs 1995.
Nánari upplýsingar um starfið og launakjör
veita formaður stjórnar, Hermann Níelsson,
í síma 97-11902, og trúnaðarmaður stjórnar,
Kristbjörn Egilsson, í símum 91-629822 og
91-12728.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntuns
og fyrri störf berist til Náttúrustofu Austur-
lands, Miðstræti 1, 740 Neskaupstað, eigi
síðar en 30. nóvember 1994.
Stjórn Náttúrustofu Austurlands.
Kvöld- og helgarstörf
íbókaverslun Málsog menningar
Mál og menning óskar að komast í samband
við fólk eldra en 25 ára sem gæti hugsað
sér hlutastörf við afgreiðslu á kvöldin og um
helgar.
Skilyrði er að umsækjendur hafi reynslu af
afgreiðslustörfum og hafi áhuga á að veita
viðskiptavinum okkar góða þjónustu.
Vinnutími getur verið sveigjanlegur en er að
jafnaði á kvöldin frá kl. 18-22 og um helgar
frá kl. 10-22.
Umsóknir sendist á skrifstofu Máls og menn-
ingar, Laugavegi 18, 101 Reykjavík.
Frá Háskóla íslands
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar 37%
hlutastöður í læknadeild Háskóla íslands
sbr. 3 mgr. 10. gr. laga nr. 77/1979:
Lektorsstaða í barnasjúkdómafræði.
Dósentsstaða í geislalæknisfræði.
Dósentsstaða í handlæknisfræði. Staðan er
bundin við við starfsaðstöðu á Borgarspítala.
Dósentsstaða í líffærameinafræði.
Dósentsstaða í sýklafræði.
Einnig er laus til umsóknar 50% dósents-
staða í lífeðlisfræði.
Gert er ráð fyrir að stöður þessar verði veitt-
ar til fimm ára frá 1. júlí 1995 að telja.
Umsækjendur um ofangreindar stöður skulu
láta fylgja umsóknum sínum rækilegar skýrsl-
ur um vísindastörf þau, er þeir hafa unnið,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil
og störf. Með umsóknum skulu send eintök
af vísindalegum ritum og ritgerðum umsækj-
enda, prentuðum og óprentuðum.
Ennfremur er óskað eftir greinargerð um
rannsóknir sem umsækjendur hyggjast
stunda, verði þeir ráðnir, og hvaða aðstaða
er nauðsynleg fyrir fyrirhugaðar rannsóknir.
Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðherra. Umsóknar-
frestur er til 6. desember 1994 og skal um-
sóknum skilað til starfsmannasviðs Háskóla
íslands, aðalbyggingu við Suðurgötu, 101
Reykjavík.
Staða sérfræðings innan læknadeildar
Háskóla íslands er laus til umsóknar. Gert
er ráð fyrir að stöðunni verði ráðstafað til
tveggja ára frá 1. apríl 1995.
Þeir, sem sitja eða hafa setið í sérfræðings-
stöðu, geta sótt um hana aftur á samkeppn-
isgrundvelli en eigi má veita sama aðila slíka
stöðu í meira en 4 ár.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi
og er læknism'enntun ekki skilyrði.
Umsókn fylgi starfsáætlun á sviði rannsókna
í læknisfræði. Jafnframt fylgi umsögn þess
kennara innan læknadeildar sem umsækj-
andi hyggst starfa með, þar sem fram komi
staðfesting um að starfsaðstaða sé fyrir
hendi og að annar kostnaður en laun sér-
fræðings verði greiddur af viðkomandi stofn-
un eða deild. Nánari upplýsingar veitir for-
seti læknadeildar.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilega skýrslu um vísindastörf sín, ritsmíð-
ar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og
störf.
Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðherra.
Umsóknarfrestur er til 6. desember og skulu
umsóknir sendar til starfsmannasviðs Há-
skóla íslands við Suðurgötu, 101 Reykjavík.
KÍSILIÐJAN VIÐ MÝVATN
NÝTING NATTÚRUAUÐLINDA I ÞÁGU PJÓÐAR
Framkvæmdastjóri
Kísiliðjan hf. í Mývatnssveit óskar eftir að
ráða framkvæmdastjóra.
Kísiliðjan hf. starfrækir verksmiðju, sem framleiðir síunar- og fylliefni
úr kísilgúr, aðallega til útflutnings. Sala og markaðssetning á útflutn-
ingsmörkuðum er í höndum Celite Corporation, stærsta framleið-
anda á kísilgúr í heiminum. Starfsmannafjöldi er 45-50. Afkoma
félagsins er góð og eiginfjárstaða er mjög traust. Aðaleigendur Kísil-
iðjunnar hf. eru Ríkissjóður íslands (51%) og bandaríska fyrirtækið
Celite Corporation (48,56%).
Starf framkvæmdastjóra er fjölþætt og er
aðallega fólgið í stefnumörkun, áætlanagerð
og framkvæmd markmiða vegna náma-
vinnslu og framleiðslu, ásamt stjórnun, fram-
kvæmd og ábyrgð á daglegum rekstri
félagsins.
Framkvæmdastjóri kemur fram fyrir hönd
félagsins og gætir hagsmuna þess út á við.
Búseta í Reykjahlíð er skilyrði.
Félagið leitar eftir aðila með haldgóða
reynslu í fyrirtækjastjórnun, sem er tilbúinn
að takast á við krefjandi stjórnunarstarf.
Viðskiptafræðimenntun eða sambærileg
menntun er æskileg.
Góð enskukunnátta er skilyrði.
Skriflegum umsóknum um starf framkvæmda-
stjóra, ásamt upplýsingum um starfsferil
og menntun, skal skila á íslensku og ensku
og merkja stjórn félagsins og berast Kísiliðj-
unni hf., 660 Reykjahlíð, fyrir laugardaginn
12. nóvember 1994.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri, sími
96-44190, og Pétur Torfason, stjórnarfor-
maður, sími 96-22543.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og þeim svarað.
Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra á Norðurlandi eystra
Forstöðumaður skammtímavistunar
Staða forstöðumanns nýrrar skammtíma-
vistunar sem starfa mun alla daga vikunnar
er laus til umsóknar. Forstöðumaður ber
ábyrgð á rekstrinum og þeirri þjónustu sem
veitt er. Hann þarf að hafa hæfileika og vilja
til að laga þjónustuna að breytilegum þörfum
neytendanna og skapa starfseminni þann
sveigjanleika sem frekast er unnt. Umsækj-
endur skulu hafa menntun þroskaþjálfa eða
aðra sambærilega menntun. Stjórnunar-
reynsla er æskileg. Ráðið verður í stöðuna
frá jan.-feb. 1995 og er umsóknarfrestur til
15. nóv. nk.
Nánari upplýsingar um stöðuna veitir fram-
kvæmdastjóri Svæðisskrifstofunnar í síma
96 26960 alla virka daga frá kl. 09.00-
12.00.
Þroskaþjálfar og aðrir með
sérmenntun á meðferðarsviði
í jan. 1995 tekur til starfa á Akureyri nýtt
sambýli fyrir fjölfatlaða. Sambýlið býður störf
fyrir þroskaþjálfa og/eða fólk með hliðstæða
sérþekkingu. Æskilegt er að umsækjendur
hafi reynslu af að starfa með fjölfötluðum.
Stöður starfsmanna án
sérmenntunar
Við sambýlið eru einnig lausar nokkrar stöð-
ur starfsmanna þar sem ekki er krafist ákveð-
inna starfsréttinda, m.a. á næturvakt.
Reynsla af störfum með fötluðum er æskileg.
Nánari upplýsingar um stöðurnar við sam-
býlið veitir forstöðumaður þess í síma
96 21755 f.h. alla virka daga. Umsóknar-
frestur er til 15. nóv. nk.
Skriflegar umsóknir um auglýstar stöður
sendist Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra,
Stórholti 1, Akureyri.
Framkvæmdastjóri.