Morgunblaðið - 06.11.1994, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 B 27
VALGEIR
EINARSSON
*+■ Valgeir Einarsson fæddist
' á Kappeyri í Fáskrúðsfirði
29. mars 1922. Hann lést á
sjúkrahúsinu á Neskaupstað
20. september síðastliðinn.
Foreldrar hans voru Kristjana
Björg Eiríksdóttir, f. 26. júní
1880 á Vallamesi við Reyðar-
fjörð, d. 12. júlí 1937, og Einar
Stefánsson, f. 5. febrúar 1882
á Gestsstöðum í Fáskrúðsfirði,
d. 16. nóvember 1957. Systkini
Valgeirs era: Kristín (látin),
Eiríkur (látin), Björgvin, Er-
lendur (látin), Dagmar, Hólm-
fríður (dó ung) og Einar Guðni
(látinn). Valgeir kvæntist 1950
Herborgu Magnúsdóttur, f. 8.
apríl 1924 í Dölum í Fáskrúðs-
firði. Bjuggu þau allan sinn
búskap á Höfðahúsum í Fá-
skrúðsfirði. Börn þeirra era:
Björg, f. 1950, gift Magnúsi
Elí Bárðarsyni og eiga þau
fjögur börn og eitt barnabarn;
Krisljana Hólmfríður, f. 1954,
gift Eyþóri Guðmundssyni og
eiga þau tvö börn; og Magnús,
f. 1959. Útför Valgeirs var
gerð frá Kolfreyjustaðar-
kirkju 29. september.
OKKUR langar að minnast afa
okkar, Valgeirs Einarssonar frá
Höfðahúsum.
Afi og amma byijuðu búskap á
Höfðahúsum árið 1950, amma býr
þar enn ásamt Magnúsi syni
þeirra. Með búskapnum stundaði
afi aðra vinnu og þá einkum
tengda sjávarútvegi.
Afi var mikill verkmaður og
gekk greiðlega í öll sín verk. Hann
stundaði búskapinn af natni og
hafði gaman af skepnum. Hann
var líka vinur vina sinna og hjálp-
aði þeim sem með þurftu.
Afi var rólegur og yfirvegaður
að eðlisfari og kom það sérstak-
lega fram í veikindum hans. Afi
og amma tóku alltaf á móti okkur
af góðvild og hlýju. Það var gott
að vera í návist þeirra og njóta
með þeim náttúrunnar sem var
þeim svo kær.
Við þökkum þér, afi, fyrir árin
sem við fengum að njóta með þér.
Guð varðveiti minningu þína og
veiti ömmu styrk.
Ég veit, minn ljúfur. lifir
lausnarinn himnum á,
hann ræður öllu yfir,
einn heitir Jesús sá,
sigrarinn dauðans sanni
sjálfur á krossi dó
og mér svo aumum manni
eilíft líf víst til bjó.
Jesús er mér í minni
mig á hans vald ég gef,
hvort ér er úti eða inni
MARKUS A.
EINARSSON
+ Markús Ármann Einarsson
' veðurfræðingur fæddist í
Reykjavík 5. mars 1939. Hann
lést á Landspítalanum 20.
október síðastliðinn og fór
útför hans fram frá Víðistaða-
kirkju 28. október.
MEÐ Markúsi Á. Einarssyni er
genginn einstakur félagi, langt um
aldur fram.
Leiðir okkar lágu saman í starfi
bæði í Framsóknarflokknum og
hjá Ríkisútvarpinu. Markús var
þægilegur og elskulegur maður
og gott að leita til hans í hvívetna.
Arið 1987 kynntist ég honum
betur, en þá hófst mikið og lær-
dómsríkt samstarf okkar í út-
varpsráði þar sem við vorum bæði
fulltrúar Framsóknarflokksins eitt
kjörtímabil. Ég kom þá ásamt fleiri
fulltrúum ný inn í ráðið og margt
þurftum við að kynna okkur og
læra. Markús var þar fyrir, hafði
verið vara- og aðalmaður um ára-
bil og setið í útvarpslaganefnd sem
formaður. Það var því ekki í kot
vísað að eiga Markús að þegar
erfið mál voru til umfjöllunar og
afgreiðslu í ráðinu. Það var fastur
liður að leita í smiðju til hans. Ráð
hans voru ávallt vel ígrunduð og
holl. Markús var góður sáttasemj-
ari og virtur meðal samstarfs-
manna sinna. Hann gat þó verið
fastur fyrir ef því var að skipta.
Listunnandi var hann mikill.
Hann naut þess að hlusta á klass-
ísk verk bæði í útvarpinu og ekki
síður í sjónvarpi og ræddi um sýn-
ingar og uppfærslur sem voru í
Leiðrétting
ÞAU leiðu mistök urðu í inngangi
minningargreinar um Guðrúnu
Auðunsdóttur í laugardagsblaðinu
að dánardægur eiginmanns hennar
var ekki á réttum stað í textanum.
Ólafur Sveinsson fæddist 30. októ-
ber árið 1908 og lést 27. ágúst
1986. Dánardægrið misritaðist fyrir
aftan nafn tengdasonar hjónanna.
Hann er hins vegar enn á lífi. Morg-
unblaðið biðst velvirðingar á mis-
tökunum.
dagskránni af þekkingu og
næmni.
Fagþekking hans í veðurfræð-
inni kom sér einnig vel þegar
veðurfregnir og veðurfregnatímar
í Útvarpinu voru til umfjöllunar,
en breytingar á þeim voru lengi
til umræðu hjá okkur.
Þegar hann sat í ráðinu sem
formaður kom fram hversu góður
stjórnandi hann var, sanngjarn og
réttsýnn. Hann var mikill Ríkisút-
varpsmaður og vildi hag þess sem
mestan. Ég og aðrir framsóknar-
menn leituðum jafnan til hans ef
útvarpsmálin voru til umræðu. Á
yfirstandandi kjörtímabili þegar
ég var orðin eini fulltrúi flokksins
í Útvarpsráði var gott að eiga
Markús að og ræddum við oft
málin lengi.
Markúsar er sárt saknað, en
minningin um góðan félaga lifír.
Með þakklæti í huga fyrir ómetan-
lega samfylgd kveð ég Markús
Á. Einarsson. Eiginkonu hans
Hönnu og börnum þeirra bið ég
guðs blessunar.
Ásta R. Jóhannesdóttir.
Skilafrest-
ur vegna
minningar
greina
Eigi minningargrein að birtast
á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fýrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-,
föstudags- og laugardagsblað
þarf greinin að berast fýrir
hádegi tveimur virkum dögum
fyrir birtingardag. Berist grein
eftir að skilafrestur er útrunn-
inn eða eftir að útför hefur
farið fram, er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi.
eins þá ég vaki og sef.
Hann er mín hjálp og hreysti
hann er mitt rétta líf
honum af hjarta ég treysti
hann mýkir dauðans kíf.
Herborg Anna og fjöl-
skylda, Bárður Valgeir,
Herborg Eydís, Einar
Elí, Eyrún Björg og
Guðmundur Heiðar.
Skemmtifundur
Félag harmonikuunnenda heldur skemmtifund í dag kl. 15.00 í
Templarahöllinni við Eiríksgötu. Fundurinn er tileinkaður Svavari
Benediktssyni, tónskáldi. Hljómsveit undir stjórn Sigurgeirs
Björgvinssonar ásamt söngvurunum Hjördísi Geirs og
Birgi Ottóssyni flytja lög eftir Svavar. Margir aðrir góðir spilarar.
Allir velkomnir. Skemmtinefndin.
Við kynnum 0KI faxtæki... qki
við allra hæfi á sérstöku kynningarverði um þessar mundir. Tæknt tii tjáskípta
M Tæknival
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 - Fax (91) 680664
Almannarómur segir að erfiðara sé að kaupa nýja íbúð en gamla. Ármannsfell hefur afsannað það.
Ármannsfell - býður upp á nýjar, ódýrar og vandaðar fbúðir sem afhendast fullbúnar.
Ármannsfell - kappkostar að aðstoða fólk við að eignast sfna fyrstu Ibuð.
Ármannsfell - býður upp á fjármögnun sem hentar sórstaklega fyrir þá sem eru að kaupa sína fyrstu Ibúð.
Ármannsfell - veitir allar upplýsingar og persónulega ráðgjöf sem sniðin er að þörfum hvers kaupanda.
Þú færð allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Funahöfða 19 eða f sfma 873599.
Ármannsfell hf. QP
...er nær en þig grunar
lijiJ IlíífL JÍJÍII) ddJ jjj!
£i iíl, SABUÆU
Við undirritun kaupsamnings 200.000 kr.
Með húsbréfum 4.212.000 kr.
lin seljanda 1.000.000 kr.
Við afhendingu 1.088.000 kr.
-j/sJ iJíij'iJ. JúiJiJ £15,7 ni‘
2 iíh iDíiajJjJi)
: Við undirritun kaupsamnings
■
■ Með húsbréfum
lin seljanda
| Við afhendingu
200.000 kr.
4.602.000 kr.
1.000.000 kr.
1.278.000 kr.