Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kennarar krefjast veru- legra kauphækkana KENNARASAMBAND íslands og Hið íslenska kennaraíelag lögðu í gær fram sameiginlega kröfugerð á fundi með samninganefnd ríkis- ins. Elna K. Jónsdóttir, formaður HÍK, sagði að meginkröfur kenn- ara væru að leiðrétta grunnlaun kennara svo að þau dygðu fyrir framfærslu, en jafnframt að und- irbúa jarðveginn fyrir þær breyt- ingar sem boðaðar hafa verið á stöðu skólanna. Forystumenn kennarafélaganna vildu ekki veita upplýsingar um einstök atriði kröfugerðarinnar, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er m.a. farið fram á verulegar grunn- kaupshækkanír. Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, sagði að farið væri fram á breyt- ingar sem vörðuðu vinnutíma og fleira, auk þess sem farið væri fram á grunnkaupshækkanir. Hann sagði að erfitt væri að meta Morgunblaðið/RAX' LÉTT var yfir samninganefndum kennara og ríkisins við upphaf fyrsta viðræðufundar í gær. hvað kröfurnar þýddu miklar eiginlega að samningaborðinu við hækkanir í prósentum talið. ríkisvaldið. í báðum félögunum eru Samningar beggja félaganna kennarar sem kenna í grunn- og eru lausir um næstu áramót. Það framhaldsskóla, en meirihluti er nýmæli að félögin mæti sam- framhaldsskólakennara er í HÍK og meirihluti grunnskólakennara er í KÍ. Ekki fjallað um tilfærslu grunnskólanna Elna K. Jónsdóttir sagði að í komandi kjaraviðræðum yrði ekki íjailað sérstaklega um færslu grunnskólans til sveitarfélaganna. Mikil óvissa ríkti um hvernig á því málið yrði haldið. Alþingi ætti eft- ir að taka afstöðu til frumvarpa um þessa tilfærslu auk frumvarpa um grunnskóla og framhaldskóla. Elna sagði að í kjaraviðræðum væri ekki hægt að byggja á lögum sem ekki væri búið að samþykkja. Elna sagði að viðræður ríkisins og kennara um breytingar sem verða við tilfærslu grunnskólans til sveitarfélaganna, væru ákaflega skammt á veg komnar. Hún sagði að menntamálaráðherra hefði sýnt mjög lítið frumkvæði í þeim efnum. Nefnd um Vestfjarðaáætlun Tillaga um fyrstu lánsloforðin Islensk stúlka syng- ur með Pavarotti NÍU ár gömul íslensk stúlka, Sara Dís Hjaltested, syngur á morgun í barnakór með stór- söngvaranum Luciano Pavarotti í alþjóðlegri söngkeppni barna á Ítalíu. Sara Dís er fulltrúi ís- lands í keppninni. Keppnin vek- ur gífurlega athygli víða á meg- inlandi Evrópu. Sara Dís söng í gær lagið „ís- landsvísur11 eftir Valgeir Skag- fjörð í beinni útsendingu á sjón- varpsstöðinni Worldvision fyrir milljónir áhorfenda. Flutningur lagsins tókst ljómandi vel, en hún söng bæði á íslensku og ít- ölsku. Fyrir flutninginn spurði ítalski kynnirinn Söru Dís nokk- urra spurninga um ísland, sem hún svaraði sköruglega á ís- lensku. Allur ágóði af keppninni í ár fer til hjálparstarfs í Rúanda. í fyrra var ágóðanum varið til þjálparstarfs fyrir munaðarlaus börn í Brasilíu og náðist að byggja 10 hús, skóla og heilsu- gæslustöðvar, fyrir þá peninga sem söfnuðust. STARFSHÓPUR sem skipaður var til að fjalla um umsóknir sjávarút- vegsfyrirtækja á Vestijörðum um víkjandi lán frá Byggðastofnun samþykkti í fyrradag að gera til- lögur til stjórnar Byggðastofnunar um afgreiðslu á þremur umsókn- um. Að sögn Eyjólfs Sveinssonar, formanns starfshópsins, er gert ráð fyrir að fleiri tillögur verði lagðar fram síðar í samræmi við framvindu í sameiningarmálum sjávarútvegsfyrirtækja, en starfs- hópurinn stefnir að því að ljúka tillögugerð fyrir lok desember. Eyjólfur sagði að þar sem nöfn umsækjenda hefðu ekki verið birt hefði verið ákveðið að birta ekki jafnóðum nöfn þeirra umsækjenda sem starfshópurinn gerði tillögu um að fengju afgreiðslu á umsókn- um sínum. Hins vegar væri gert ráð fyrir að upplýst yrði um nöfn umsækjenda og efni tillagna starfshópsins þegar hann hefði lok- ið störfum. Mikil gerjun Nefndin fékk 17 umsóknir þar sem 25 fyrirtæki voru nefnd. „í raun og veru kom á óvart hve áhuginn var mikill og hve menn voru opnir fyrir sameiningu. Við finnum að það er mikil geijun, en það er hins vegar langt frá því að þau mál séu öll komin í höfn. Það verður því spennandi að sjá hvort það tekst á næstu vikum að lenda þessu þannig að það styrki svæð- ið,“ sagði Eyjólfur. Sjúkraliðar krefjast áfram samræmingar við hækkanir hjúkrunarfræðinga Búist við tilboði frá sjúkraliðum VERULEGAR líkur eru á að sjúkraliðar leggi fram tilboð í kjaradeilu þeirra við ríkið á samn- ingafundi í dag eða á morgun. Kristín Á. Guðmundsdóttir, for- maður Sjúkraliðafélagsins, segir greinilegt að samninganefnd ríkis- ins ætli sér ekki að veita sjúkralið- um umbeðnar upplýsingar og því kunni svo að fara að sjúkraliðar kjósi að leggja fram nýjar tillögur til að koma samningaviðræðum á hreyfmgu. „Það eru fullar líkur á því að við förum að ræða við þá um eitt- hvað uppsett frá okkar hendi. Við höfum verið að gefa þeim mögu- Ieika á að setja þetta á einhvern hátt upp, en það virðist ekki vera leiðin,“ sagði Kristín þegar hún var spurð hvort von væri á nýju tilboði frá sjúkraliðum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur ríkissáttasemjari lagt mjög hart að sjúkraliðum að koma með nýtt tilboð inn í kjara- viðræðurnar. Samninganefnd sjúkraliða hefur verið treg til þess og haldið fast í þá kröfu að gerður verði samanburður á kjörum sjúk- raliða og annarra heilbrigðisstétta. Samninganefnd ríkisins hefur hafnað því að skortur á upplýsing- um tefji fyrir samningaviðræðum. Samninganefndin hafi gert sam- anburð á kjörum sjúkraliða og annarra stétta. Tölurnar bendi ekki til þess að sjúkraliðar hafi setið eftir í launum. Tölur samninga- nefndarinnar sýna að kaup sjúkra- liða hefur hækkað um 106% frá janúar 1987 til apríl 1994 og kaup hjúkrunarfræðinga um 111,7% á sama tíma. Kristín sagðist ekki vita hvaða forsendur lægju að baki þessum samanburði og benti auk þess á að inn í þessar tölur vanti hluta af kjarabótum hjúkrunar- fræðinga sem komu til fram- kvæmda 1. september og 1. janúar 1995. Kristín sagði að sjúkraliðar teldu líkur á að fá umbeðnar upplýs- ingar, um samanburð á launum hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, í svari við fyrirspurn frá Ólafi Ragnari Grímssyni, en fyrirspurnin var lögð fram á Alþingi í vikunni. Hún sagði hins vegar ekki víst að sjúkraliðar gætu beðið eftir þessu svari til að koma hreyfíngu á samn- ingaviðræður. Ágreiningi um kröfugerðina eytt í framhaldi af frétt Morgun- blaðsins í gær óskaði samninga- nefnd ríkisins eftir því við ríkis- sáttasemjara að hann kannaði hvort breyting hefði orðið á kröfu- gerð Sjúkraliðafélagsins. Viðræður hans við sjúkraliða leiddu I ljós að svo var ekki. Kristín sagði að í upphafi kjaraviðræðnanna hefðu sjúkraliðar lagt fram kröfu um 6% launahækkun. Eftir að hjúkrunar- fræðingar og fleiri heilbrigðisstétt- ir náðu samningum hefði verið lögð fram ný krafa um að launabil sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga ykist ekki. Það væri meginkrafa sjúkraliða. 10 milljónir í verkfallssjóð Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, heimsótti sjúkraliða í gær og færði þeim eina milljón í verkfallssjóð. Þar með hafa félaginu borist um tíu milljón- ir í verkfallssjóð, þar af sjö milljón- ir úr verkfallssjóði BSRB. Kristín sagði að byijað væri að greiða úr sjóðnum. Hún sagði óvíst hvort þessi upphæð dygði. Það færi eftir því hvað margar umsóknir bærust frá sjúkraliðum. Ríkisspítalar í mál við sjúkraliða MÁL, sem fjármálaráðherra listana hefur einnig verið deilt höfðar fyrir hönd ríkisins gegn á Borgarspítala og er talið að Sjúkraliðafélagi íslands, var niðurstaða Félagsdóms skapi þingfest í Félagsdómi í gær. fordæmi um hvernig haldið Málið varðar undanþágulista á verður á málinu þar. nokkrum deildum Ríkisspítal- Málsaðilar eiga að skila anna, en spítalarnir og Sjúkra- greinargerð í málinu á þriðju- liðafélagið hafa deilt um dag og það verður síðan flutt hvernig beri að túlka þá. Um á fimmtudag. rr INNLENT Gjöld Visa hækka um áramót NOKKRAR breytingar verða á gjaldskrá Visa sem taka gildi um næstu áramót. Helstu breytingarnar eru hækkun á árgjöldum og útskriftargjaldi með Gíró, breyting á vanskila- gjöldum og ný gjöld vegna neyðarþjónustu við útvegun nýrra korta í stað glataðra erlendis. Gjaldskrár greiðslu- kortafyrirtækjanna hafa ekki hækkað í fjögur ár. Gunnar Bæringsson framkvæmda- stjóri Eurocard sagði að engar ákvarðanir hefðu verið teknar um gjaldskrárhækkanir hjá Eurocard. Hjá Visa hækka árgjöld al- mennra korta um 50 krónur og verða þau 1.800 krónur. Árgjöld Farkorta hækka um 150 kr. og verða þau 3.950 kr., árgjöld Gullkorta hækka um 500 kr. og verða þau 7.500 kr. og árgjöld Gull-viðskipta- korta hækka um 1.500 kr. og verða þau 8.500 kr. Útskrift- argjöld ef greitt er með Gíró- seðli hækka um 25 kr. og verða þau 160 krónur, en út- skriftargjöldin verða óbreytt ef um beingreiðslur á banka- reikninga er að ræða, eða 60 kr. Ný gjöld vegna neyðarþjón- ustu erlendis eru 1.500 kr. fyrir útborgun neyðarfjár, en 2.500 kr. ef um útvegun neyð- arkorts er að ræða. Lag með Bong gefið út í sjö löndum LAGIÐ Do you remember? með hljómsveitinni. Bong, sem skipuð er Eyþóri Ámalds og Móeiði Júníusdóttur, hefur verið gefið út á saftiplötu í Danmörku, Svíþjóð og Noregi og á geisladiski í fimm mis- munandi útgáfum í Þýska- landi, Hollandi, Lúxemborg og Belgíu fyrir milligöngu Stein- ars Bergs. Lagið kom út hér heima í febrúar sl. Að sögn Eyþórs er áætlað að safnplatan seljist á Norður- löndum í um 200 þúsund ein- tökum. Hann segir að á safn- plötunni sé Bong í góðum fé- lagsskap helstu danshljóm- sveita í Evrópu og það að fljóta svona með inn á meira en 100 þúsund heimili sé eins og að veifa risanafnspjaldi framan í heiminn. Lagið Do you remember? er á nýútkomnum geisladiski Bong sem heitir Release og segir Eyþór næsta skrefið að kynna efni disksins fyrir þess- um evrópsku útgefendum með frekara samstarf í huga. Aðspurður að því hvað þetta þýddi fyrir Bong sagði Eyþór að þau Móeiður væru ekkert búin að sigra heiminn, en þetta væri skref í rétta átt. Bruggari tekinn LÖGREGLAN í Vestmanna- eyjum gerði í gær upptæk bruggtæki og 12 lítra af landa í húsi í Vestmannaeyjum, en grunsemdir höfðu vaknað um að þar færi fram bruggstarf- semi. Að sögn lögreglunnar var einn maður tekinn til yfir- heyrslu vegna málsins sem er enn í rannsókn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.