Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 11 FRÉTTIR SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ÍSLANDS VÍSAÐ Á DYR Formaður sóknarnefndar Hallgrímskirku Austurbæjarskóli greiði kostnað vegna tónleikahalds legar ráðstafanir fyrr og furðulegt yfirkennari Austurbæjarskóla hafi stjórnleysi að hafa ekki tekið á í samtali við sig daginn fyrir tón- málinu innan skólans," sagði Jó- leikana staðfest að skólinn myndi hannes og hann tekur fram að greiða áðurnefndan kostnað sem Hafði ekki samband við skólameistara Neskaupstaður Ganga í Sjúkraliða- félagið ALLIR sjúkraliðar í Neskaupstað, 26 að tölu, hafa sagt sig úr Starfs- mannafélagi Neskaupstaðar og gengið í Sjúkraliðafélag íslands. Sjúkraliðar víðar á landsbyggðinni hafa rætt þann möguleika að ganga í Sjúkraliðafélagið, en mikill meiri- hluti þeirra er í starfsmannafélög- um. Jóhanna Sigríður Magnúsdóttir, sjúkraliði í Neskaupstað, segir að sjúkraliðar í Neskaupstað hafi dreg- ist aftur úr í launum og hafí ekki lengur hag af því að vera í Starfs- mannafélaginu. Sjúkraliðaverkfallið hefur lítil áhrif á landsbyggðinni vegna þess að mikill meirihluti sjúkraliða stend- ur utan félagsins. Sjúkraliðar á Höfn í Hornafirði og á Akranesi eru þó í félaginu. Nokkrir sjúkraliðar annars staðar eru í félaginu. T.d. er einn sjúkraliði í Neskaupstað í félaginu og _er hann í verkfalli. Úrsögn sjúkraliðanna í Neskaup- stað úr starfsmannafélagi staðarins tekur gildi um áramót. Þeir koma þá til með að ganga inn í kjarasamn- ing Sjúkraliðafélagsins. Hafa dregist aftur úr „Okkur finnst orðið tímabært að landsbyggðin gangi í Sjúkraliðafé- lagið. Félagið verður aldrei sterkt nema það gerist. Við höfum ekki lengur launalegan hag af því að standa utan félagsins. Hér áður fyrr voru sjúkraliðar í Neskaupstað með þeim launhæstu á landinu, en við höfum dregist aftur úr öðrum,“ sagði Jóhanna Sigríður. AÐEINS var farið fram á að greiddur yrði almennur rekstrar- kostnaður, s.s. rafmagn, hiti o.s.frv., og kostnaður vegna þrifa á Hallgrímskirkju eftir skólatón- leika Sinfóníuhljómsveitar íslands fyrir nemendur í Austurbæjar- skóla að sögn Jóhannesar Pálma- sonar formanns sóknanefndar kirkjunnar. Jóhannes segir að farið hafí verið fram að greiðsluna í sam- ræmi við fyrirliggjandi samþykkt sóknarnefndar um að kostnaður kirkjunnar vegna annarra sam- koma en helgihalds væri greiddur af viðkomandi aðila. Hann átelur að ekki hafi verið óskað eftir húsnæði fyrir tónleik- ana fyrr en hálfum sólarhring áður en átti að halda þá eða kl. 17 á miðvikudag. Halda hafi átt tón- leikana kl. 9 morguninn eftir og gert hafi verið ráð fyrir helgihaldi í kirkjunni í hádeginu. Fram kom í Morgunblaðinu á föstudag að aflýsa hafi þurft tónleikunum þar sem ekki hafi fengist húsnæði undir þá. Jóhannes sagðist hljóta að varpa fram þeirri spurningu hve- nær skólayfirvöld hafi vitað af tónleikunum. „Enginn segir mér að tónleikarnir hafi verið ákveðnir með dags fyrirvara. Því er hreint skipulagsleysi af hálfu Austurbæj- arskóla að hafa ekki gert nauðsyn- INGVAR Ásmundsson, skólameist- ari Iðnskólans í Reykjavík, segir í yfirlýsingu til Morgunblaðsins vegna fréttar um að Sinfóníuhljóm- sveit íslands hefði ekki fengið leyfi til að leika fyrir nemendur Austur- bæjarskólans, að skólastjóri Aust- urbæjarskóla hafi aldrei minnst á mál þetta við hann og ekki hafi heldur borist erindi um það. í yfirlýsingunni segir einnig: „Skólastjóri Austurbæjarskóla hefur aldrei minnst á þetta mál við undirritaðan og ekki hefur heldur borist erindi um það. Hljómsveitarsljóri Sinfóníu- hljómsveitar Islands ræddi við mig sl. miðvikudag um fyrirhugað tónleikahald og falaðist eftir and- dyri Vörðuskólahúss í þessu skyni. Ég Ijáði honum að ég gæti ekki orðið við því á skólatíma. Hann taldi íþróttasalinn sem er í sama húsi ekki koma til greina, þar væri aðstaða svo léleg til tón- Ieikahalds. Á fimmtudag (daginn sem tónleikarnir munu hafa verið fyrirhugaðir) hringdi aðstoðar- skólastjóri Áusturbæjarskóla til mín og ræddum við um annmarka þess að halda tónleika í íþrótta- salnum. Ég sagði honum að ég sæi ekki hvernig ég gæti leyft tónleikahald á kennslutíma vegna þeirrar truflunar sem það ylli á kennslu. Hann taldi aftur á móti öll tormerki á að flylja 200 stóla yfir í íþróttasalinn. Það er að sjálfsögðu ábyrgðarhluti að gera hátt á annan tug kennara og hundruð nemenda verklausa vegna tónleikahalds. Ekki hefur verið gerð nein til- raun til að sannfæra mig um að tónleikar í íþróttasal myndu ekki valda truflun á kennslu í húsinu. Mér þykir leitt að skólabörn og hljómsveit hafa komið í húsið er- indisleysu en ekki er við mig að sakast um þann misskilning. Iðnskólinn mun leggja sig fram um það framvegis sem hingað til að hafa gott samstarf við Austur- bæjarskóla.“ að mestu væri vegna þrifa. Eftir það hafi hann ekkert heyrt frá honum en frétt að skólastjóri hafi leitað til sóknarprests. En hann væri ekki rétti aðilinn til að tala við í þessu máli. Börn ávallt velkomin Jóhannes sagðist að sjálfsögðu vera þeirrar skoðunar að kynna ætti Sinfóníuhljómsveitina. „Hún er afburðar góð og ekki síst á að kynna hana fyrir ungum unnend- um tónlistar og alveg kjörið á þennan hátt. Það var alveg sjálf- sagt að leyfa þeim að koma í Hallgrímskirkju. Aldrei var neinn ágreiningur með það. Við fórum aðeins fram á að skólinn greiddi þann kostnað sem kirkjan hefur af svona tón- leikahaldi. Við megum ekki gleyma því að auðvitað verður að þrífa 1.600 fm hús eftir 400 ágæta tónleikagesti. Kirkjan getur ekki staðið einhliða straum af þeim kostnaði. Fyrir því liggur sam- þykkt sóknarnefndar Hallgríms- kirkju að þeir sem fá kirkjuna til afnota til annars en kirkjulegs starfs greiði hreinan kostnað kirkj- unnnar og annað ekki. Að bera þessu við er stjórnleysi skólans og ég vísa því alfarið til föðurhús- anna. Börnin er velkomin og hafa ávallt verið velkomin í Hallgríms- kirkju," sagði Jóhannes. Barna- og unglingaskák Disney-mótið hefst í dag SKÁK Skákmiðstödin Faxafcni 12 DISNEY-MÓTIÐ Fyrir 14 ára og yngri. Hefst í dag. Þátttökugjald er kr. 400 í DAG verða tefldar fyrstu þijár umferðirnar á Disney-mótinu í Skákmiðstöðinni, Faxafeni 12. Þeir sem fá tvo vinninga og meira kom- ast í úrslitin á morgun. Skráning hefur gengið vel og þeir sem hafa skráð sig eiga að mæta kl. 13.30, en þeir sem það hafa ekki gert þurfa að mæta hálftíma fyrr, kl. 13.00. Allir þátttakendur fá afhent- an miða í Disney-bíó 1. desember og hann eV jafnframt happdrættis- miði. Glæsilegustu verðlaun, sem veitt- hafa verið á mótum barna og ungl- inga hér á landi, standa til boða í þessari íslensku forkeppni Euro- Disney-skákmótsins. Keppnin fer fram nú um helgina í skákmiðstöð- inni Faxafeni 12, Reykjavík. Teflt verður í íjórum flokkum og sigur- vegarar í þeim fá allir ferð með Flugleiðum á Euro-Disney-mótið, sem haldið verður í Disney-landi í París 17-18. desember. Auk þess verður einn þátttakandi dreginn út til að fara með, óháð frammistöðu. Mörg minni verðlaun og happ- drættisvinningar verða einnig í boði, þar á meðal Disney-mynd- bandsspóla með íslensku tali, miðar á jólamynd SAM-bíóanna og Disn- ey-blöð og bækur frá Vöku-Helga- felli. Mótið hér heima verður sjö um- ferðir og tefldar verða hálftíma skákir. Þeir sem hljóta tvo vinninga úr fyrstu þremur skákunum fyrri daginn halda áfram daginn eftir. Slíkt kerfi býður einmitt upp á óvænt úrslit. Teflt verður í þessum fjórum flokkum: Drenglr færfdir 1980 og 81. Drengir fæddir 1982 og síðar. Stúlkur fæddar 1980 og 81. Stúlkur fæddar 1982 og síðar. Allir þátttakendur verða sjálf- krafa með í happdrætti þar sem aðalverðlaunin eru ferð til Parísar með sigurvegurunum. Skáksam- band íslands sér um framkvæmd mótsins í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur, Flugleiðir, Vöku- Helgafell og SAM-bíóin. vandann Reflectix er 8 mm þykk endurgeislandi einangrun í rúllum. 7 lög en 2 ytri alúminíum-lög endurgeisla hitann. Breiddir: 61 og 122 mm. Rúllulengdir: 15, 38 og 76m. háaloft, bak við ofna, í fjós, hesthús, á rör, á veggi, tjaldbotna, sessur, svefnpoka o.m.fl. Skæri, heftibyssa og límband einu verkfærin. r BYOQINOAVÖRUVERSLUN Þ. ÞORGRIMSSON & CO Alltaf tll á Imamr Ármúla 29, sími 38640 Reykjavík 9 :Ú:Ú:Ú: 8S ■ * .úXwíí:- Aðventutilboð á öllum áætlunarleiðum íslandsflugs Einn borgar fullt og hinn ferðast frítt Bókið saman - ferðist saman Flateyri Þingeyri Bíldudalur Hólmavík Tálknafjörður . Gjögur sigWfjörður Patrcksfjörður Vestmannaeyjar ? Egilsstaðir llf' Seyðisfjörður Norðíjörður Eskitjörður Reyðarfjörður iQM MMIfíCCI Uf* Reykjavíkurflugvöllur, 101 Reykjavík lOLfUwUOrLUU Sími: 91-616060, Fax: 91-623537 ÞÚ GETUR VALIÐ Umboðsmenn um allt land
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.