Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 15
VIÐSKIPTI
Virðisaukaskattsskýrslur sýna meirí uppsveiflu en þjóðhagsspá gefur til kynna
Verslunarráð
8% veltwuúa atvinnugreina
UMSVIF í efnahagslífínu verða heldur meiri á
þessu ári en þjóðhagsspá frá því í september
gefur til kynna, að mati fjármálaráðuneytisins.
Þetta mat byggist á virðisaukaskattsskýrslum
sem sýna veltu einstakra atvinnugreina og
tölum um innflutning.
í nýju fréttabréfí fjármálaráðuneytisins
kemur fram að velta allra atvinnugreina fyrstu
átta mánuði ársins er rúmlega 8% meiri en á
sama tíma í fyrra á meðan almennt verðlag
hefur hækkað um 2-3%. Raunveruleg magn-
aukning er þó væntanlega minni þar eð hluta
þessarar aukningar má rekja til breikkunar á
virðisaukaskattsstofni um síðustu áramót.
Þegar litið er yfír lengri tíma sést að heildar-
velta atvinnugreina jókst á árinu 1991 en síð-
an tók við tímabil samdráttar fram á mitt ár
1993. Ef eingöngu er litið á neysluvörugreinar
sést að samdrátturinn náði fram á mitt ár
1994. Heildarveltan tók fyrr við sér eða um
mitt síðasta ár og gætti þar fyrst og fremst
áhrif aukinnar framleiðslu í sjávarútvegi. Þess-
ar tölur sýna að mati ráðuneytisins að efna-
hagslífíð hefur smám saman verið að taka við
sér og staðfesta þau umskipti sem hafa orðið
að undanförnu.
Heildarveltan jókst fram á mitt þetta ár en
síðan hefur heldur dregið úr. Raunaukning á
fyrsta virðisaukaskattstímabilinu, janúar til
febrúar, nam 4,5% miðað við fyrra ár, á öðru
tímabili 6,5%, á þriðja tímabili 10,5% en á fjórða
tímabili aðeins 2%. Munar þar mestu um minni
veltu í sjávarútvegi.
Velta í sjávarútvegi hefur aukist langmest
á þessu ári eða um 15% meðan verðlag sjáv-
arafurða hefur hækkað um nálægt 4%. í iðn-
aði hefur veltan aukist um nálægt 8,5% sem
fýrst og fremst kom fram á fýrri hluta ársins.
Töluverð aukning í viðhaldi fasteigna
Velta í byggingariðnaði hefur aukist lítillega
frá fyrra ári að raungildi. Þar hefur orðið tölu-
verð aukning í viðhaldi, t.d. húsamálum, meðan
mannvirkjagerð dregst saman. Þetta endur-
speglast í um 3,5% veltuaukningu í byggingar-
vöniverslun.
í bifreiðaverslun hefur orðið samdráttur
miðað við sama tíma í fyrra. Hins vegar voru
fleiri bifreiðar fluttar inn í september og októ-
ber frá því í fyrra. í almennri verslun hefur
velta aukist um 5,5% og gætir að mati fjár-
málaráðuneytisins vafalaust áhrifa lækkunar
virðisaukaskatts á matvælum auk almennra
eftirspurnaráhrifa í kjölfar aukins kaupmáttar.
Lát verður á hækkun á
hrávöruverði í vikulok
London. Reuter.
LÁT varð á hækkunum á verði
hrávöru í vikunni. Sumir búast við
að verð hækki bráðlega á ný, eink-
um ef fjárfestingarsjóðir leggja
meira fé í málma.
Þeir sem losuðu sig við hluta-
bréf í vikunni virtust þó heldur
vilja skuldabréf en hrávöru. Sumir
notuðu hagnað af hækkunum á
málmum til þess að greiða fyrir
tap á hlutabréfum.
Fulltrúi Alþjóðabankans taldi
nokkrar líkur á frekari skamm-
tímahækkunum á verði sumrar
hrávöru. Að hans sögn hefur verð
á hrísgijónum, sojabaunum og
korni sennilega náð hámarki, en
hann taldi að málmverð gæti
hækkað.
Nánar um stöðu hrávöru í vik-
unni: __
OLÍA: Samtök olíusöluríkja,
OPEC, hafa gert nýjan samning
um óbreyttan hámarkskvóta fram-
leiðslunnar til ársloka 1995. Viðm-
iðunarverð Norðursjávarolíu
hækkaði þó um aðeins 50 sent í
vikunni í rúmlega 17 dollara tunn-
an. Sérfræðingar telja að stefna
OPEC kunni að leiða til sölutregðu
1995 ef veturinn verður kaldur í
Norður-Ameríku og olíuútflutn-
ingsbanni Sameinuðu þjóðanna á
írak verður ekki aflétt bráðlega.
KOPAR: Hefur hingað til hæk-
akð stöðugt, en í vikunni varð hlé
á um 75% hækkun frá því kopar-
verð var í lágmarki 1993. Seldist
á um 2,845 dollara tonnið á föstu-
dag miðað við 2,861 dollara í síð-
ustu viku, sem var hæsta verð í
fjögur ár.
AL: Fór yfir 2,000 dollara tonn-
ið á þriðjudaginn í fyrsta skipti
síðan 1990, en hafði lækkað niður
fyrir 1,950 dollara í gær.
BLÝ og ZINK: Hækkuðu eftir
lækkun, en ekki eins rosalega og
á undanförnum vikum. Blý lækk-
aði niður fyrir 700 dollara tonnið
og zinc í innan við 1,200 dollara,
en höfðu komizt yfir þessa múra
í síðustu viku.
NIKKEL: Verðið breyttist lítið
og var um 7,800 dollarar tonnið.
GÓÐMÁLMAR :Gullverð 'svo að
segja óbreytt. Verð á silfri, platínu
og palladíni hélzt stöðugt.
KAFFI: Lækkaði niður fyrir
3,000 dollara tonnið þar sem dreg-
ið hefur úr áhyggjum um tjón á
uppskerunni í Brasilíu af völdum
frosta og þurrka. Slíkar áhyggjur
ollu því verðið hækkaði úr um
1,000 dollurum í 4,140 dollara i
september, sem var hæsta verð í
níu ár.
KÓKÓ: Stóð í stað. Uppskeran
á Fílabeinsströndinni virðist allgóð
samkvæmt síðustu upplýsingum,
en hún hefur verið lengi að berast.
SYKUR: Stendur vel í svipinn
og staðan hefur ekki verið betri
síðan 1990.
Verðið í London rúmlega 400
dollarar tonnið. Góð kaup á sykri
frá Kína og Norður-Afríku styrktu
markaðinn.
Vísar
sragnrýni
FÍS á bug
„ÞESSI ummæli bera vott um laga-
lega vanþekkingu og eru greinilega
sögð án þess að viðkomandi hafi
kynnt sér efni kvörtunar okkar,“
segir Jónas Fr. Jónsson, lögfræð-
ingur Verslunarráðs íslands um
gagnrýni Félags íslenskra stór-
kaupmanna (FIS) á málsmeðferð
Verslunarráðs á kvörtun um álagn-
ingu vörugjalds til Eftirlitsstofnun-
ar EFTA (ESA).
Bæði Verslunarráð og FÍS gagn-
rýndu álagningu vörugjalds á ýmsa
vöruflokka í stað tolla þegar samn-
ingurinn um Evrópskt efnahags-
svæði (EES) var gerður og leituðu
umsagnar ESA um málið. Hún mun
væntanlega liggja fyrir endanlega
fýrir áramót, en stofnunin hefur
nú þegar gert athugasemd við
framkvæmd á innheimtu á vöru-
gjaldinu við fjármálaráðuneytið.
Stefán Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri FÍS, gagnrýndi máls-
meðferð ESA í Morgunblaðinu í
gær, en sagði einnig að bréf Versl-
unarráðs kynni að hafa spillt fyrir
í málinu, þar sem kvörtun ráðsins
hafí verið almennari en kæra FÍS,
sem vildi gera vörugjöld á ljós-
myndavörur að prófmáli.
Leit að blóraböggli
„Það virðist sem Stefán Guðjóns-
son sé að leita sér að blóraböggli
og kenni þá annað hvort Verslunar-
ráði eða málsmeðferð ESA um nið-
urstöðu sem hann er ósáttur við,“
sagði Jónas. „Hins vegar verða
menn að hafa það í huga að þegar
þeir leita með flókið lögfræðilegt
mál til alþjóðlegra eftirlitsaðila geta
þeir ekki búist við því að fá öllum
kröfum framgengt. Það hefur náðst
töluverður árangur með kvörtuninni
til ESA og nú ættu menn frekar
að sameina kraftana og sannfæra
íslensk stjórnvöld um að álagning
vörugjaldanna komi hreinlega niður
á neytendum í formi hærra vöru-
verðs.“
Driffjöður Sony
hættir störfum
Tímamót við afsögn Akio Morita
sem gerði Walkman frægan
Tokyo. Reuter.
AKIO Morita, hinn þekkti stjómar-
formaður Sony, hefur látð af störf-
um, tæpu ári eftir að hann fékk
heilablóðfall. Þegar Morita var for-
stjóri Sony á gullaldarskeiði fyrir-
tækisins 1971 til 1989 var hann
aðaldriffjöðurin á bak við mörg
nýstárleg tæki, allt frá fyrsta segul-
bandstækinu til Walkmantækisins
alkunna.
Eftir brautryðjendastörf á vett-
vangi myndbandstækja og geisla-
diska’hafði Morita forgöngu um að
Sóny haslaði sér völl í hugbúnaðar-
viðskiptum og keypti hljómplötuúg-
áfuna CBS 1988 og Columbia-kvik-
myndafélagið í Hollywood 1989.
Síðan Morita fékk heilablóðfallið
í fyrra hefur hann verið í hjólastól
og óvinnufær. Stjórn Sony sam-
þykkti lau.snarbeiðni hans í gær,
en hann baðst lausnar á miðvikudag
í síðustu viku, einum degi áður en
Sony tilkynnti 265.2 milljarða jena
afskriftir í sambandi við kaupin á
Columbia 1989.
Sérfræðingar telja að samband
kunni að vera þarna á milli. Vegna
afskriftanna er fyrirtækið er rekið
með tapi eftir 279.96 milljarða jena
hagnað. Þær þykja staðfesta að
Sony hafi keypt Columbia (fyrir 3.4
milljarða dollara) til að hasla sér
völl í Hollywood í óljósri von um
að dularfull „samvirkni“ rafeinda-
hugbúnaðar og kvikmynda mundi
magna verðmæti kvikmyndafélags-
ins.
Lækkað verð hlutabréfa
Afskriftimar urðu til þess að
verð hlutabréfa í Sony lækkaði fjóra
daga í röð í kauphöllinni í Tokyo.
Þau lækkuðu um 13.4% þar til á
fimmtudag, en hækkuðu aftur í gær
um 130 jen í 5,160.
Forsvarsmenn Sony neita því að
samband sé á milli verðlækkunar-
innar og lausnarbeiðni Morita og
segja að hann hafí tekið ákvörðun
sína til þess að draga úr áhrifum
sem það kunni að hafa haft erlend-
is að stjórnarformaður fyrirtækisins
hefur verið óvinnufær.
Nýr maður verður ekki skipaður
í stöðuna, sem er valdaminni en í
bandarískum og evrópskum fyrir-
tækjum, en Morita mun styðja
Norio Ohga forstjóra sem „stofn-
anda og heiðursformann."
FISKASÝNING
í Dýraríkinu í dag, laugardag, 26. nóvember
frá klukkan 10.00-17.00.
...fyrir dýravini!
stórir Discusar, Pleco bláskjár, Pleco angelicus, Pleco
royal, Red tail kattfískur, Channa, Ornatipinnis og yfir 50 aðrar tegund-
' '' ' '?
ir ieiðbeina um fóðrun fiska. Kjörið tækifæri fyrir þá sem
vilja vera vissir um að þeir séu að fóðra rétt.
Sýningartilbod: Fiskabúr með öllu, 20% afsláttur
Við Grensásveg - sími 68 66 68