Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Anna Guðný Bergþór Guðmundsdóttir Pálsson Tónleikar í Keflavík- urkirkju BERGÞÓR Pálsson söngvari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari halda tónleika í Keflavíkurkirkju í dag, laugar- daginn 26. nóvember, og hefj- ast þeir kl. 17. Á efnisskránni eru íslensk og erlend sönglög. Þessa viku hafa þau Bergþór og Anna Guðný heimsótt alla skóla í Keflavík, Njarðvík og Höfnum og sungið og leikið fyrir nemendur og kennara. Er þetta liður í dagskrá sem Jónas Ingimundarson píanóleikari hefur skipulagt og nefnist „Tónlist fyrir alla“.. Höggmynda- sýning Guð- björns Gunn- arssonar GUÐBJÖRN Gunnarsson, Bubbi, opnar í dag höggmynda- sýningu í nýrri vinnustofu sinni á Hringbraut 119 (JL-húsinu). Þetta er önnur einkasýning Bubba í Reykjavík, en í fyrra hélt hann sýningu í Listhúsinu í Laugardal. Einnig var hann með sumarsýningu í Hótel Borgarnesi sl. sumar. Bubbi er fæddur í Reykjavík 1948. Hann nam myndlist í Reykjavík og Notthingham. Hann hefur einnig fengist við leikmyndagerð, hannaði m.a. leikmyndina við Litlu hryllings- búðina 1984. Síðastliðinn vetur dvaldist Bubbi í listamiðstöð í Skotlandi og eru öll verkin á sýningunni unnin þar. Átta verkanna eru unnin með blandaðri tækni, þar sem hann notar stein, járn og timbur jöfnum höndum. Einnig eru fimm bronsverk. Meginþemað í verkum Bubba er sem fyrr andstæður íslenskr- ar náttúru í deiglu tímans; jarð- lögin, eldur og ís tvinna sögu landnáms. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-18. Henni lýkur 6. des- ember. Jóhannes sýnir í Sjálfs- bjargarhúsinu NÚ stendur yfir málverkasýn- ing Jóhannesar Hermannssonar í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, þar sem hann hefur verið búsettur undanfarin ár vegna mikillar fötlunar. Jóhannes er 29 ára gamall og ungur fór hann að vinna á sjó, en þurfti að hætta vegna alvarlegra veikinda sem gerðu hann óvinnufæran. Jóhann byrjaði fljótlega að mála og var hann afkastamikill. Hann hefur haldið eina sýningu, í íþrótta- og félagsheimili Tálknafjarðar síðsumars 1992. Á sýningunni í Sjálfsbjargar- húsinu eru aðallega akrýlmynd- ir og blýantsteikningar auk nokkurra kritarmynda. Verkin bera mikinn keim af atvinnu hans á sjónum, enda ber sýning- in heitið: „Skipamálarinn Jói“. Sýningin verður opin í dag, 26. nóv., 30. nóv. og 1. des, milli kl. 13.30 og 16 og er hún öllum opin. Minnmgardagskrá í Þjóðleikhúsinu til styrktar krabbameinssjúkum börnum MINNIN GARDAGSKRA um Fróða Finnsson verður í Þjóð- leikhúsinu í dag. Hefst dagskrá- in klukkan 14.00 og er tileinkuð öllum krabbameinssjúkum börnum. Það eru listamenn og starfsfólk Þjóðleikhússins, ásamt vinum og velunnurum Fróða, sem standa að dag- skránni en allur ágóði rennur til Styrktarfélags krabbameins- sjúkra barna. Fróði Finnsson lést 30. september síðastliðinn á tuttug- asta aldursári en hann var einkabarn Eddu Þórarinsdótt- ur, leikkonu og formanns Fé- lags íslenskra leikara, og Finns ■ Torfa Stefánssonar, tónskálds. Á dagskránni koma fjölmarg- ir iistamenn fram og verður Hilmir Snær Guðnason, leikari, fulltrúi Fróða og stiklar á stóru í sögu hans. Dagskráin hefst á því að flutt verður tónlist úr Gauragangi. Hilmir Snær býður fólk velkom- ið og segir sögu Fróða. Egill Ólafsson syngur við undirleik Jónasar Þóris. Róbert Arnfinns- son les ljóðið „Jörð“ eftir Þor- stein Valdimarsson. Elín Ósk Óskarsdóttir flytur „Bæn“ úr „Valdi örlaganna" eftir Verdi, ásamt karlakór. Þá verður aftur atriði úr Gauragangi og því næst syngur Sverrir Guðjónsson og Hilmir Snær heldur áfram með sögu Fróða. „Mér finnst það vera fallegt," lag og ljóð eftir Fróða, er næst á dag; skránni, í flutningi Egils Ólafs- sonar og strengjakvartetts. Kvartettinn skipa Gréta Guðna- dóttir, Guðrún Th. Sigurðar- dóttir, Helga Þórarinsdóttir og Zbigniew Dubik. Halldóra Björnsdóttir og Benedikt Erlingsson flylja ljóð- ið „Unglinginn í skóginum" eft- ir Halldór Laxness. Gunnlaugur Egilsson og Ásta Sigríður Fjeldsted dansa rússneskan dans. Örn Árnason spaugar, við undirleik Jónasar Þóris. Atriði úr Gauragangi verður á fjölun- um og Sverrir Guðjónsson syng- ur. Helga Bachmann les úr „Hulduljóðum“ eftir Jónas Hall- grímsson og því næst verður flutt tónlist úr Hárinu. Hilmir Snær heldur áfram sögu Fróða og „Riddaralag" eftir Fróða verður flutt af strengjakvartett. Herdís Þor- valdsdóttir flytur Ijóðið „Kyssti mig sól“ eftir Guðmund Böð- varsson og atriði úr Gauragangi verður flutt. Kristján Jóhanns- son syngur við undirleik Láru Rafnsdóttur. Arnar Jónsson flytur tvö ljóð eftir Ara Jósefs- son. Hilmir Snær lýkur frásögn sinni af Fróða. Hljómsveitin Kolrassa krókríðandi flytur tvö Iög og Hilmir Snær kveður. Nýjar bækur Kvæði 94 eftir Kristján Karlsson KVÆÐI 94 er áttunda ljóðabók Kristjáns Karlssonar. Bókin skiptist í tvo aðalkafla, sem nefnast Minnir kvæði á skip? og Ein gönguferð enn yfir ásinn, auk millikafla, sem er eitt kvæði: Ur bréfi til Elísabetar. í kynningu _ útgef- anda segir: „í fáum orðum má segja, að upphafskaflinn fjalli um skáldskapinn sjálf- an sem virk en óper- sónuleg fyrirbæri raunveruleikans,'þriðji kafli geymi ákaflega persónulegar myndhverfingar þess að eldast og þá er miðkaflinn öxull, sem tengir þessa flokka. Þannig verður eðli- legt að skoða bókina í heild sem dæmi um kenningu höfundarins, sem hann hefur oft látið í ljósi með ýmsu móti, að kvæði hljóti fyrst og fremst að lýsa sjálfu sér, til þess að hægt sé að taka mark á því, sem það segir um aðra hluti.“ Ennfremur segir að frumleg myndvísi og tónlist kvæðanna sé ekki síður fjölbreytt en f fyrri bókum skálds- ins. Útgefandi er Hið íslenska bók- menntafélag. Bókin er 47 bls. prentuð í Steinholti hf. Hún kostar 1.938 krónur. Kristján Karlsson Opið hús hjá Margréti OPIÐ hús verður hjá Margréti Guð- mundsdóttur, myndlistarmanni, á Tjarnarbraut 27, Hafnarfirði, laug- ardaginn 26. nóv. nk. kl. 14-18. Margrét vinnur í grafík, vatnsliti og olíu. Hún hefur nú flutt vinnu- stofu sína í bílskúrinn við Tjarnar- brautina. Á þessu ári hefur Margrét sýnt grafík í Finnlandi, Hafnarborg og Portinu, Hafnarfirði. Einnig hefur hún fengist við skjálist og hafa vídeómyndir hennar verið sýndar í Finn- landi, Danmörku og hér heima. Það verður heitt á könnunni Margrét og eru allir vel- Guðmundsdóttir komnir í opið hús. iÉll Jll ■r *• ■ -vl mm >\ i §m r W- L v §11 mm “ i. ’ ' ÍreBajll w* WmgjSí LISTAMENN Þjóðleikhússins, vinir og vandamenn Fróða Finnssonar, sem standa að minningardagskránni. Aðventu- tónleikar Lúðrasveitar- innar Svans LÚÐRASVEITIN Svanur mun halda sína árlegu aðventutónleika í Langholtskirkju á morgun sunnu- dag kl. 17. A efnisskránni eru meðal ann- ars Messíasarforleikur eftir Hánd- el, Mars út Tannháuser eftir Wagner, jólalög og margt fleira. Stjórnandi er Haraldur Árni Haraldsson. Peð á viðsjárverðu skákborði BOKMENNTIR Skáldsaga SNIGLAVEISLAN eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Útgef- andi: Vaka/Helgafell. Prentun: Norbok. 174 bls. HINN ríkmannlegi heimur Gils Thordersens er öruggur; málverkin á sínum stað, antíkhúsgögnin líka, bækur bundnar í leður í fallegum bókahillum. Hann er viðskiptamóg- úll á íslenska vísu og fáir standa honum á sporði — ef einhver. Enda er hann eini íslendingurinn sem er í hinum heimsfræga matarklúbbi Les Amis d’Été. Þrisvar sinnum á ári fær hann húshjálpina sína, hana Aðalbjörgu, til að elda samkvæmt kenjum klúbbsins veislumáltíð með humri og sniglum og önd og búðingi og ostum, með tilheyrandi vínmeð- læti. Á meðan undirbúningur máltíð- arinnar stendur yfir er annar maður í öðru húsi að lesa bók fyrir litla dóttur sína. Hann er órólegur; fínnst heimurinn tvísýnn og veltir fyrir sér afstæði allra hluta og manna. Það er Örn Bergsson sem á erindi við Gils; er að manna sig upp í að heimsækja hann. Að föður sínum látn- um hefur Örn fengið persónuleg bréf hans í hendur. í þeim eru upp- lýsingar sem varða Vissa. þætti í lífi Gils og Örn finnur sig knú- inn til.að ræða við karl- inn. Upplýsingar sem færa ekki aðeins þeirra ólíku heima nær hvor öðrum, heldur kippa grundvellinum undan óskráðum leikreglum stétta og samfélags. Eða eins og segir: „Ekkert skiptir lengur máli og við orðin að peðum í skák þar sem hvít- ir reitir og svartir hafa riðlast og kóngur og drottning eru týnd.“ Það er síðan kvöldstund þessara manna og samtal sem spannar sög- una. Sögusviðið er hið fágaða heim- ili Gils og á meðan mennirnir skipt- ast á upplýsingum er setið að snæð- ingi. Það kemur í ljós að þrátt fyrir heimsborgaralegt heimili og smekk nær sjónarhorn Gils aðeins yfir í næsta hús. Nærsýni hans á tilveruna er með ólíkindum, en persónusköpunin er það góð að hann er fullkom- lega trúverðugur. Heimur hans er Erni ekki eins framandi. Hann hefur dálítið betri athyglisgáfu og býr ekki við það böl að þurfa að vera í samkeppni við einn eða neinn. Kvöldstund þeirra fé- laganna er alveg sér- lega skemmtileg lesn- ing. Þeir verða stöðugt kenndari; karlinn veð- rast sífellt meira upp vegna aðdáuriar Arnar á heimilinu, missir ger- samlega stjórn á hógværð sinni og ferðin niður í heimilisbúrið í kjallar- anum er óborganleg. Hann blandar líka Erni í einkastyijöld sína við Jónatan í næsta húsi. Karlinn er uppátækjasamur, mikill hrekkjalóm- ur og kann margar skemmtilegar sögur. Hann lofar því þó ekki að þær séu sannar. En þótt kvöldstundin sé skemmti- leg eru bréfín órædd. Bréfin sem geta breytt tilveru beggja mann- anna. Þegar Örn loks dregur þau upp úr pússi sínu geta viðbrögð gamla mannsins orðið hvernig sem er. í rauninni geta þau splundrað þeirri þröngu veröld sem hann hefur lifað í, öllum fullkomleikanum sem hann er ekki einu sinni sjálfur upp- hafsmaður að; hann getur litið svo á að líf hans hafi verið tóm blekk- ing. En hann getur líka afneitað upplýsingunum sem þau hafa að geyma. Hann getur látið eins og hann hafi aldrei séð þau. Hann á val. Sniglaveislan er vel og lipurlega skrifuð saga um samskipti tveggja manna, sem þekkjast ekki neitt, í eina kvöldstund. Höfundur er sér- lega glúrinn á hvaða upplýsingar þeir kæra sig um að gefa við fyrstu kynni. Val þeirra er ólíkt. Upplýs- ingar annars þeirra fela í sér það sem lítur vel út, allt sem gerir honum kleift að halda fjarlægð; ytri veru- leiki. Upplýsingar hins eru af öðrum toga; hann á sér drauma og vonir sem eru fjarri þeim umbúnaði um lífið sem hann horfir á í þessu húsi. Drauma sem eru fyrirgefnir á staðn- um. Innri veruleikinn skiptir hann meira máli. Mynd hvors einstaklings um sig er dregin skýrum dráttum, frásögnin er lifandi og full af glettni og óhætt er að segja að Sniglaveisl- an komi á óvart. Súsanna Svavarsdóttir Ólafur Jóhann Ólafsson i b l í I L I I I I I I I L i §
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.