Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 25
KRISTJANA Samper
opnar sýningu í Spari-
sjóði Reykjavíkur við
Álfabakka á sunnudag.
Kristjana
Samper
sýnir í
SPRON
í ÚTIBÚI Sparisjóðs Reykja-
víkur og nágrennis við Álfa-
bakka 14 í Mjódd verður opnuð
sýning á verkum Kristjönu
Samper sunnudaginn 27. nóv-
ember kl. 14.
Kristjana stundaði nám við
Myndlistaskólann í Reykjavík
á árunum 1962-63, í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
á árunum 1974-79 og í Uni-
versity of Arizona á árunum
1980-81.
Kristjana hefur áður sýnt
verk sín bæði hér heima og
erlendis.
Sýning Kristjönu í SPRON,
Álfabakká, mun standa til 18.
mars nk. og verður opin frá
kl. 9.15 til 16 alla virka daga,
þ.e. á opnunartíma útibúsins.
Leiðsögn um
sögusýninguna
Leiðin til
lýðveldis
SÖGU SÝNINGU Þjóðminja-
safns íslands og Þjóðskjala-
safns íslands í gamla Morgun-
blaðshúsinu í Aðalstræti 6
verður framhaldið til jóla. Á
morgun, sunnudag 27. nóvem-
ber, kl. 15 veita sérfræðingar
leiðsögn um hana.
Á sýningu þessari, sem er
framlag safnanna beggja til
hátíðahalda á afmælisári lýð-
veldis á íslandi, er rakin saga
sjálfstæðisbaráttunnar frá
hugsjónastarfi Baldvins Ein-
arssonar og Pjölnismanna
fram til stofnunar lýðveldis á
Þingvöllum 17. júní 1944.
Skjöl, munir og myndir eru
sýnd í 17 afmörkuðum efnis-
þáttum á tveimur hæðum
hússins. Á fyrstu hæð þess er
safnbúð Þjóðminjasafnsins þar
sem til sölu eru ýmsar gjafa-
vörur, bækur og kort.
Sýningin og verslunin er
. opin þriðjudaga, fimmtudaga,
laugardaga og sunnudaga frá
kl. 12-17.
Skúlptúr-
sýningum
að ljúka
TVEIMUR sýningum í Lista-
safni Kópavogs - Gerðarsafni
lýkur nú um helgina.
í vestursal safnsins sýnir
Anna Sigríður Siguijónsdóttir
25 höggmyndir úr járni og
steini. Verkin eru flest unnin
á þessu ári og því síðasta.
í austursal Gerðarsafns
sýnir Anna Eyjólfsdóttir verk,
sem unnin eru úr horðatrjám.
Sýningamar eru opnar frá
kl. 13-18 og lýkur þeim báðum
á sunnudagskvöld.
LISTIR
Blásarakvintettinn í
Listasafni Kópavogs
BLÁSARAKVINTETT
Reykjavíkur heldur tónleika í
Listasafni Kópavogs —
Gerðarsafni sunnudaginn 27.
nóvember kl. 16. Tónleikarnir
koma í kjölfar skólatónleika í
þessari viku, þar sem öllum
grunnskólanemendum í Kópa-
vogi hefur verið boðið að
hlusta á tónlist og þeim sýnd
hljóðfærin sem notuð eru.
Blásarakvintettinn mun flytja
tónlist eftir Hándel, Mozart,
Hindemith, Berió og Gers-
hwin. Kvintettinn skipa: Bern-
harður Wilkinson á flautu,
Daði Kolbeinsson á óbó, Einar
Jóhannesson á klarinett, Jósef
Ognibene á horn og Hafsteinn
Guðmundsson á fagot.
Laugardag og sunnudag
Útisería,
40 ljósa
m/spennubreyti
margir litir
Aðventuskreyting
með 4 kertum
risu ulu lrr qqq
kr. 999 Kr* 999
Innisería,
20 ljósa
margir litir
kr. 299
Lærið réttu handtökin af fagfólki.