Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Öll tryggingafélög geta brunatryggt húsnæði frá og með áramótum Flestir enn með tryggingu á sama stað Öll tryggingafélög hafa sömu gjaidskrá og er iðgjald í Reykjavík 140 kr. fyrir hverja milljón sem tryggð er. Ofan á bætast 320 kr. í skatta. Brynja Tomer heyrði hljóðið í taslmönnum tryggingafélaga. EIGENDUR íbúðarhúsnæðis hafa þijá virka daga til að segja upp brunatrygg- ingum sínum hjá Húsa- tryggingum Reykjavíkur, HR, eða Vátryggingafélagi íslands, VÍS, sem hingað til hafa annast allar bruna- tryggingar. VÍS hefur tryggt á landsbyggðinni og HR í Reykjavík og reyndar er fresturinn þegar útr- unninn hjá mörgum viðskiptamönn- um VÍS, þar sem gjalddagi var 15. október. Ný lög um brunavarnir ganga í gildi um áramót, en þar sem upp- sagnarfrestur er 1 mánuður, þarf að segja trygginum upp fyrir 30. nóv- ember, sé ætlunin að skipta um tryggingafélag. VÍS og HR halda áfram að brunatryggja hús og koma önnur félög því til viðbótar sem val- kostur. Þessi nýju lög um brunavam- ir leystu af hólmi 40 ára gömul lög og voru sett í kjölfar EES-samnings- ins, sem m.a. kveður á um að ekki megi vera einokun í rekstri þessara trygginga. Hjá Húsatryggingum Reykjavíkur var rætt við Eyþór Fannberg sem segir að til þessa hafi ekki orðið umtalsverðar tilfærslur á bruna- tryggingum frá félaginu. Hilmar Pálsson-'framkvæmdstjóri hjá VÍS segist álíta að um 4.000 brunatrygg- ingar á íbúðarhúsnæði færist frá VIS til annarra félaga. Ódýrast í Reykjavík Iðgjöld eru iægst í Reykjavík, 140 krónur fyrir hveija milljón sem tryggð er, en fara til dæmis upp í 260 krónur á Stöðvarfirði. Fer ið- gjald meðal annars eftir því hvort hús eru kynt með olíu eða heitu vatni og hvemig brunavörnum er háttað á hveijum stað. Tiyggingafélög hyggjast halda óbreyttu iðgjaldi og það verður hið sama alls staðar, þrátt fyrir sam- keppnina. Rætt var við menn hjá VIS, Sjóvá-Almennum, Trygging- amiðstöðinni, Skandía og Tryggingu hf. Viðskiptamönnum félaganna hef- ur verið sent bréf með upplýsingum um breytingar á brunatryggingum, þar sem þeir hafa verið hvattir til láta flytja brunatryggingar sínar. Spurt var hvort sérstök kjör eða afsláttur væri boðinn til að laða til sín viðskiptavini með brunatrygging- ar, en talsmönnum allra félaga bar saman um að iðgjöld væru svo lág að ekki væri raunhæft að veita af- slátt eða vildarkjör. Tíminn yrði að leiða í ljós hvort hægt yrði að gera það í framtíðinni. Deilt um skattheimtu Reyndar sagði Þórður Þórðarson, framkvæmdastjóri vátryggingasviðs hjá Skandía, að í undirbúningi væri að lækka iðgjöld hjá þeim sem hefðu fleiri tiyggingar hjá félaginu og einn- ig þeim sem hefðu góðar eldvamir á heimili sínu. Það yrði þó ekki gert í ár. Hjá öllum félögum sögðust menn fagna samkeppni, en varðandi svo- kallað umsýslugjald, sem talsverðar deilur hafa spunnist um, sögðu marg- ir að lagagrunnur mætti vera traust- ari. Umsýslugjald er 25 kr. fyrir hveija milljón sem tryggð er, en ofan á ið- gjald bætist einnig viðlagatrygging, sem kostar 250 kr. fyrir hveija millj- ón sem tryggð er og brunavarnarið- gjald, sem er 45 kr. fyrir hveija milljón. Viðlagatrygging bætir t.d. tjón vegna náttúruhamfara, en brunavarnariðgjald rennur til bruna- varna í hveiju sveitarfélagi. Að sögn Daggar Pálsdóttur, skrif- stofustjóra í heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu rennur um- sýslugjald til Fasteignamats ríkisins, en um er að ræða 35 milljónir króna á ári. Samkvæmt nýjum lögum um brunatryggingar annast Fasteigna- mat ríkisins brunabótamat ásamt dómkvöddum matsmönnum. Einnig á það að annast varðveislu allra upp- lýsinga um brunabótamat fasteigna og setja á stofn landsskrá fasteigna þar sem m.a. verða upplýsingar um BLAÐINU hefur borist athugasemd frá Express-litmyndum varðandi framköllunarþjónustu hjá Myndbroti. Fyrir nokkru birtist frétt á neytend- asíðu Morgunblaðsins um framköllun á allt að 38 myndum, sem kostaði 599 kr. hjá Myndbroti. Eigendur Express-litmynda benda á að þar kosti framköllun á 24 mynda filmu 1.162 kr. og innifalin sé ný filma. brunabótamöt. Dögg segir að um- sýslugjald verði notað til að standa straum af kostnaði vegna nýmats, uppfærslu og vinnu við viðhald á skrá Fasteignamats ríkisins og því að brunabótamat sé ávallt í samræmi við verðmæti fasteignar. Hingað til hefur kostað nokkur þúsund krónur að fá fasteign metna í fyrsta sinn, en nú verður það gert endurgjalds- laust. Nú eru sólpallar tryggðir I nýju lagafrumvarpi um bruna- tryggingar eru ýmsar viðbætur. Til dæmis verða tekin af öll tvímæli um það að sólpallar við hús eru tryggð- ir, svo framarlega sem vátrygginga- félagi hefur verið tilkynnt um smíði þeirra og eigendur hússins hafa beð- ið um endurmat. Þá verða sjónvarps- loftnet tryggð, lyftur, eldvarnarbún- aður, botnplata og undirstaða húss. Einnig er skýrt kveðið á um að kostn- að vegna hreinsunar á húseign eftir bruna ber tryggingafélagi að greiða og sömuleiðis kostnað við að ryðja burt brunarústum. „Við afgreiðum viðskiptavini okkar á 60 mínútum ef óskað er, það er ekki 3-7 daga bið hjá Ex- press-litmyndum,“ og fram kemur að verð lækkar um 38 kr. fyrir hveija ónýta mynd á filmu sem framkölluð er og mynd er dekkt eða lýst ef viðskiptavinur er ekki ánægð- ur með hana. Sú þjónusta er endur- gjaldslaus. Námskeið í gerðjóla- konfekts Jólakonfektnámskeiðin í Mat- reiðsluskólanum okkar eru hafin. Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari kennir undirstöðuatriði og aðferðir við gerð jólakonfekts. í sýnikennslueldhúsinu er byijað á að kenna aðferðir og tækni við gerð jólakonfekts, en síðan fara þátttakendur í verklegt eldhús skólans og búa til eigið konfekt undir leiðsögn Hilmars. Allt hráefni er innifalið í námskeiðsgjaldi og fara þátt- takendur heim með konfektið, sem þeir búa til á námskeið- inu. > Kransa- helgi í Blómaborg Hveragerði - Jólaundirbún- ingur er í algleymingi í Blómaborg í Hveragerði, enda langt síðan farið var að hugsa fyrir jólunum þar á bæ. Laug- ardaginn 26. nóvember og sunnudaginn 27. nóvember kl. 14-18, býður skreytinga- fólk viðskiptavinum ókeypis aðstoð við að laga gamla að- ventukransa eða búa til nýja. Allt efni, t.d. mosi, greni, könglar, kúlur, borðar, leir, kerti, fæst á staðnum. Athugasemd frá Express-litmyndum AFMÆLISTILBOÐ 24. nóvember - 1. desember Á jÁRLÍNUM, SPRENGiSANDI Nauta- eða lambagrillsteik og glas af á abeins Barnabox á 195 kr. (m/jóladagatali 320 kr.) ÁJARLiNUM, KRINOLUNNI Hamborgari og glas af á abeins Jarlinn (mŒ BRÆÐURNIR Hans og Guðbergur Már Guðmundssynir hafa staðið í ströngu að undanförnu við að innrétta nýja veitingastað- inn Bogann, sem nú er að opna í Hafnarfirði. Nýr veitingastaður í Hafnarfirði NÝR veitingastaður var opnaður í Hafnarfirði í gærkvöldi á ann- arri hæð í nýju verslunarmið- stöðinni Miðbæ, Fjarðargötu 13-15, en Miðbærverður form- lega tekin í notkun í dag kl. 10.00. Veitingastaðurinn hefur hlot- ið nafnið Boginn og er innréttað- ur í rómverskum stíl. Sæti eru fyrir 70 manns. Eigendur eru þau Hans Guðmundsson, Unndís Ólafsdóttir, Guðbergur Már Guðmundsson og Sigrún Bryndis Hansdóttir. Á daginn verður Boginn rekinn sem alhliða veit- ingastaður og kaffihús, en á kvöldin er meiningin að yfir- bragðið verði mun fínna auk þess sem boðið verður upp á kráar- stemmningu, að sögn eigenda. „Þá má ekki gleyma útsýninu, sem er stórglæsilegt yfir Hafnar- fjarðarhöfn." Opið verður á virk- um dögum til kl. 1.00 og um helg- ar til kl. 3.00 og í bígerð er að bjóða upp á lifandi tónlist, að minnsta kosti um helgar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.