Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 45 BRÉF TIL BLAÐSIIMS Kynferðislegt ofbeldi Frá Stefáni Edelstein: UM HELGINA kom sú frétt í fjöl- miðlum að 17 ára stúlka hefði verið rotuð og henni nauðgað af tveimur karlmönnum. Atburðurinn átti sér stað á Laugaveginum inn í húsa- sundi og leið nokkur tími þangað til stúlkan gat leitað ásjár hjá mið- bæjarlögreglu. Hvað er að gerast í Reykjavík eða raunar á íslandi yfirleitt? Er nauðg- un orðin vikulegur eða jafnvel dag- legur afburður? Er þetta litla samfé- lag orðið keppinautur erlendu stór- borganna f ofbeldis- og ódæðisverk- um? Er það orðið svo að kvenfólk getur ekki farið ferða sinna jafnvel um Laugaveginn að nóttu til á leið heim til sín án þess að eiga á hættu að vera nauðgað? Er það orðið eðli- legt að það þurfí að kenna konum sjálfsvöm á námskeiðum svo þær geti varið sig fyrir fólskulegum árásum misindismanna? Umræðan um þessa alvarlegu glæpi og aðra ofbeldisglæpi svo sem fólskulegar tilefnislausar árásir og líkamsmeiðingar er rétt að byrja. Toppurinn á ískjakanum er í þann veginn að koma í ljós. Við getum kvatt ísland friðsældar og hreinleika og verðum að takast á við öll þau vandamál sem milljónaþjóðirnar glíma við: Ofbeldi, fíkniefni, skipu- lagða glæpastarfsemi o.s.frv. Pjársvelti Stofnanir á boð við Kvennaat- hvarf, Stígamót o.fl. hafa séð dags- ins ljós og vinna ómetanlegt starf við erfið skilyrði. Eitt eiga þær allar sameiginlegt, þær búa við fjár- svelti. Það í sjálfu sér er skammar- blettur á þjóðinni, fyrst og fremst á íjárveitingavaldinu. Þessar stofn- anir þarf að styrkja mjög, bæði með opinberu fé og fijálsum framlögum. En margt fleira þarf til. Hvað með refsilöggjöfina? Hvað með dóm- skerfíð? Við erum langt á eftir í þessum málum miðað við nágranna- löndin. Eigum við e.t.v. eftir að lesa Áðventan Frá Einari Ingva Magnússyni: AÐVENTAN nálgast þegar bréf þetta er fært í letur. Tími undirbún- ings fyrir komu frelsarans í heim- inn. Nú er senn aðventa tvennum skilningi. Ann- ars vegar hinn vanalegi undir- búningur fyrir jólahátíðina, — minningin um komu Jesú Krists í heiminn fyrir um tvö þús- und árum. Hins vegar sú að- venta, þegar vér kristnir menn væntum endurkomu hans, eins og hann gaf fyrirheit um, þegar hann dvaldi hér á jörð á meðal lærisveina sinna. Það er því vel við hæfi þegar aðventan er að heijast, að leiða hugann að þeim orðum Páls postula, þegar hann sagði: „Lífinu sem ég lifi nú hér á jörð, lifi ég í trúnni á Guðs son, sem elskaði mig og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir mig.“ (Galatabréfið 2:20). Og áfram vitnar Páll með stórfenglegum orðum, hveijum líf hans er tileinkað, þegar hann skrif- ar til bræðranna í Filippí þessi orð sem sérhver kristinn maður ætti að hafa eftir á aðventunni og hljóða svo: „Því að lífið er mér Kristur og dauðinn ávinningur." (Filíppíbréfið 1:21) Mættu hve flestir taka undir þau heilnæmu orð. Geymum þau vel í hjörtum vorum á meðan vér bíðum endurkomu Drottins. EINARINGVIMAGNÚSSON, Heiðargerði 35, Reykjavík. að nokkrum vikum eða mánuðum liðnum, ef þessir nauðgarar á Laugavéginum nást á annað borð, áð þeir hafi hlotið dórh, e.t.v. skil- orðsbundinn að hluta, 6 til 8 mán- uði? Hvar er réttlætiskenndin og sið- gæðið þegar slíkir dómar eru felldir? Það þarf að þyngja þessa dóma verulega og nýta sér þær lagaheim- ildir sem fyrir hendi eru. Nauðgun er stórglæpur í Bandaríkjunum er framleitt mikið af ofbeldismyndum, _ mynd- böndum og tölvuleikjum. í sama landi er þó litið á glæpi á borð við nauðganir mjög alvarlegum augum. Þar eru dómar mun harðari og menn sitja mun lengur inni fyrir slíka glæpi. Nauðgun er stórglæpur og eru fórnarlömb nauðgara oft að reyna að vinna úr sínum vandamálum árum saman og örugglega er í mörgum tilfellum aldrei hægt að sættast við það mannréttindabrot sem hefur átt sér stað. Ég vona að umræðan um þessi voðaverk haldi áfram af ennþá meiri krafti en hingað til. Einnig að stofn- anir sem vinna með fórnarlömb of- beldismanna fái brautargengi í þessu samfélagi bæði frá opinberum aðilum og frá almenningi. Að síð- ustu vona ég að löggjafinn og dóm- skerfið taki á þessum málum á líkan hátt og gert er í löndunum í kring- um okkur. STEFÁN EDELSTEIN, skólastjóri. B B u LÁRUS I hómópati Lárus hómópati er þekktastur fyrir náttúru- lækningar sínar. Hann beitti óhefðbundnum aðferðum svo lærðir læknar urðu honum andsnúnir. Hann var elskaður af alþýðu en litinn hornauga af yfirvöldum. Lárus lagði áherslu á margt sem nú þykir sjálfsagt; hreinlæti, útiveru, hreyf- ingu og hollt mataræði. Falleg bók um sigra og ósigra ógleymanlegs Guðrún P. Helcadóttir er landsþekkt fyrir rit- störf sín. Hún ritar sögu Lárusar af þekk- ingu og innsæi, enda dótturdóttir hómó- patans. Gu&rún er I fyrrverandi skóla- stjóri Kvennaskólans I í Reykjavík. skerpla Suðurlamlsbraut 10 108 Rcykjavík >^j Slmi 91-681225 Fax 91-681224 ^ Tröllvaxinn vinningur framundan! Þrefaldur fyrsti vinningur á laugardag. Landsleikurinn okkar!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.