Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994
FYRSTI SUNNUDAGUR I AÐVENTU
Nýtt altari vígt
við hátíðar-
messu í
Neskirkju
NÆSTKOMANDI sunnudag, 27.
nóvember, verður að venju að-
ventuhátíð í Neskirkju og má segja
að allan daginn frá morgni til
kvölds verði eitthvað um að vera
í helgi- og samkomuhaldi.
Bömin hittast í kirkjunni eins
og venjulega klukkan ellefu, en
stundu áður að minnsta kosti
mæta ýmis þeirra til að lita og
föndra í safnaðarheimilinu. Söngv-
ar, sögur, fræðsla og helgileikur
verða meðal efnis þennan morgun.
Nýtt altari vígt
Klukkan 14 hefst hátíðarmessa
í kirkjunni. Þá verður nýtt altari
vígt. Formaður sóknarnefndar,
Guðmundur Magnússon prófessor
mun flytja stólræðu. Sóknarprest-
amir þjóna fyrir altari, kór kirkj-
unnar syngur undir stjóm organ-
istans Reynis Jónassonar, Lovísa
Fjeldsteð leikur á selló og Inga
Backmann syngur einsöng.
Klukkan 17 hefst aðventusam-
koma í kirkjunni. Pétur Guðmund-
arson flytur ávarp. Ræðumaður
verður dr. Gunnlaugur A. Jónsson.
Kór Melaskóla syngur undir stjóm
Helgu Gunnarsdóttur og kirkjukór
Neskirkju flytur þrjú lög.
Steingrímur Þórhallsson
(píanó), Snorri Heimisson (flauta),
Stefán R. Höskuldsson (flauta) og
Sigurgeir Agnarsson (selló) flytja
tónverkið, Lag fyrir ljúfan svefn,
eftir Steingrím.
Þá mun Finnur Bjarnason
syngja einsöng við undirleik Reyn-
is Jónassonar. Að auki verður or-
gelleikur og almennur söngur.
Lokaorð flytur séra Guðmundur
Óskar Ólafsson.
Kirkjudagur og
aðventuhátíð
Grensáskirkju
MESSA og aðventuhátíð verður í
nýju kirkjubyggingunni í Grensás-
sókn sunnudaginn 27. nóvember
kl. 14. Sóknarpresturinn, sr. Hall-
dór S. Gröndal og sr. Kjartan Öm
Sigurbjömsson, annast helgihald-
ið. Formaður sóknamefndar, Ás-
geir Hallsson, flytur ávarp.
Kirkjukór Grensáskirkju,
barnakór og kammerkór ungs
fólks, einnir úr Grensáskirkju,
annast söng, en strengjasveit
Grensáskirkju, ásamt Bemharði
Wilkinson og Hallfríði Ólafsdóttur
flautuleikurum, aðstoða. Stjórn-
endur em Ámi Aribjarnarson og
Margrét Pálmadóttir.
Arkitekt og kirkjusmiðir
til viðtals
Að lokinni messu gefst fólki
tækifæri að skoða nýbygginguna,
ræða við arkitektinn Jósef Reynis,
kirkjusmiðina og sóknarnefndar-
menn. Síðan verður gengið í
safnaðarheimilið, en þar heldur
aðventuhátíðin áfram og gestir
geta fengið veitingar í boði sókn-
amefndarinnar.
Aðventusam-
koma í Breið-
holtskirkju
HIN árlega aðventusamkoma
Breiðholtssafnaðar verður haldin
í Breiðholtskirkju í Mjódd á morg-
un, fyrsta sunnudag í aðventu, kl.
20.30.
Að venju verður fjölbreytt dag-
skrá: Kór Breiðholtskirkju flytur
aðventu- og jólasöngva undir
stjórn Daníels Jónassonar. Erna
Guðmundsdóttir syngur einsöng.
Barnakór Breiðholtskirkju syngur
undir stjóm Árnýjar Albertsdótt-
ur. Ferminbarbörn flytja helgileik
og Halia Jónsdóttir kennari flytur
aðventuhugleiðingu. Samkomunni
lýkur með helgistund við kertaljós.
Að samkomunni Iokinni verður
kaffisala í safnaðarheimilinu á
vegum Kvenfélags Breiðholts, en
félagið hefur alla tíð stutt safnað-
arstarfið og kirkjubygginguna af
miklum dugnaði og raunsnarskap.
Má í því sambandi geta þess að
félagið hefur látið útbúa jólakort
sem seld verða á næstu vikum til
styrktar kirkjunni. Einnig munu
fermingarbörn selja friðarkerti til
ágóða fyrir Hjálparstofnun kirkj-
unnar og Kristniboðsalmanakið til
styrktar starfi Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga.
Kirkjudagur og
aðventuhátíð í
Bústaðakirkju
FYRSTI sunnudagur í aðventu er
kirkjudagur í Bústaðakirkju og þá
er einnig minnst vígsludags kirkj-
unnar sem var þennan dag árið
1971.
Fyrsta sunnudag í aðventu ber
nú upp á 27. nóvember. Barna-
guðsþjónusta verður kl. 11 árdegis
og hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Sr.
Pálmi Matthíasson messar. Bjöllu-
kór Bústaðakirkju leikur í mess-
unni. Eftir guðsþjónustu verður
kaffisala í safnaðarheimilinu.
Aðventuhátíð verður um kvöldið
og hefst hún kl. 20.30. Ræðumað-
ur kvöldsins verður Ólafur Ragn-
arsson bókaútgefandi. Að venju
verður vandað til tónlistarflutn-
ings. Bamakór kirkjunnar syngur
ásamt yngri bjöllukór undir stjórn
Erlu Þórólfsdóttur. Gréta Bents-
dóttir syngur einsöng. Hanna
Björk Guðjónsdóttir og Ingunn
Ósk Sturludóttir syngja tvísöng.
Kirkjukórinn, ásamt 20 manna
hljómsveit úr Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar, syngur innlend og er-
lend jólalög. Stjóm og útsetningar
em í höndum Guðna Þ. Guðmunds-
sonar organista. í lokin verður
kveikt á kertum.
Aðventusam-
vera í Kópa-
vogskirkju
KÁRSNESSÓKN heldur árlegu
aðventuhátíð fyrsta sunnudag í
aðventu þann 27. nóvember kl. 16.
Efnisskráin verður fjölbreytt að
vanda, m.a. syngur Kór Kópavogs-
kirkju og leiðir safnaðarsöng und-
ir stjóm Arnar Falkners organista.
Ragnheiður Guðmundsdóttir flyt-
ur hugleiðingu og börn úr TTT-
starfi Kópavogskirkju syngja.
Monika Abendroth leikur á hörpu
og kvartett Kópavogskirkju syng-
ur. Ræðumaður er íris Marelsdótt-
ir formaður Hjálparsveitar skáta
í Kópavogi. Þá mun Skólakór
Kársness syngja undir stjóm Þór-
unnar Bjömsdóttur kórstjóra og
við undirleik Moniku Abendroth á
hörpu. Aðventuhátíðinni lýkur
með ritningarlestri, bæn, blessun
og almennum söng.
Kaffisala þjónustudeildar Kárs-
nessóknar verður í Safnaðar-
heimilinu Borgum að lokinni að-
ventusamvem.
Upphaf að-
ventu í Garða-
kirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu
verður í Garðakirkju aðventuguðs-
þjónusta kl. 14. Þetta er jafnframt
kirkjudagur Kvenfélags Garða-
bæjar. Formaður félagsins, frú
Særún Sigurgeirsdóttir, mun
tendra fyrsta ljósið í aðventukert-
astjaka sem kvenfélagið gaf kirkj-
unni.
Brynhildur Sigurðardóttir
djáknanemi prédikar og konur
annast ritningarlestur og bæna-
gjörð. Anna Pálína Ámadóttir
mun syngja við undirleik Gunnars
Gunnarssonar og Kór Garðakirkju
syngur undir stjórn Ferenc Ut-
assy. Benedikt Bjömsson formað-
ur sóknamefndar flytur ávarp og
bæn.
Við þessa athöfn mun þess einn-
ig minnst að á þessu ári era 100
ár liðin frá láti sr. Helga Hálf-
dánarsonar lektors og sálma-
skálds, en hann var prestur í Görð-
um á síðustu öld. Sálmar hans
verða sungnir.
Að lokinni kirkjuathöfn mun
Kvenfélag Garðabæjar selja kaffi-
veitingar í samkomuhúsinu í
Garðaholti.
Kirkjudagur
Árbæjarsafn-
aðar
HINN árlegi kirkjudagurÁrbæjar-
safnaðar verður haldinn í Árbæjar-
kirkju sunnudaginn 27. nóvember
sem er 1. sunnudagur í aðventu.
Dagskrá kirkjudagsins verður
með hefðbundnum hætti. Kl. 11
um morguninn verður barnaguðs-
þjónusta í Árbæjarkirkju þar sem
foreldrar, afar og ömmur em boð-
in velkomin með bömunum. Þess
má geta að böm úr tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar munu
koma í stundina með hljóðfæri sin
og spila nokkur lög og 6 ára böm
úr Barnakór Árbæjarsóknar
syngja. Kl. 14 verður síðan guðs-
þjónusta fyrir alla fjölskylduna í
kirkjunni. Sérstaklega er vænst
þátttöku fermingarbama og for-
eldra þeirra í guðsþjónustunni.
Að lokinni guðsþjónustu kl. 15
verður síðan kaffisala Kvenfélags
Árbæjarsóknar í safnaðarheimili
kirkjunnar, hafa konur í kvenfé-
laginu bakað veislukökur fyrir
þennan dag. Auk kaffisölunnar
verður efnt til skyndihappdrættis
með íjölmörgum vinningum. Ágóði
af happdrættinu rennur í líknar-
sjóð Kvenfélags Árbæjarsóknar
sem úthlutar úr honum fyrir jólin
til þeirra sem eiga um sárt að
binda. Er fólk hvatt til að kaupa
miða í þessu happdrætti og styrkja
þannig gott málefni.
Sigurbjörn Ein-
arsson á að-
ventukvöldi í
Dómkirkjunni
KIRKJKUNEFND kvenna stendur
að vanda fyrir aðventukvöldi
fyrsta sunnudag í aðventu kl.
20.30. Ræðumaður kvöldsins er
dr. Sigurbjöm Einarsson biskup.
Kór Vesturbæjarskólans syngur
með Dómkórnum Quempassöng,
söng fjárhirðanna, af ýmsum stöð-
um í kirkjunni og báðir kórarnir
syngja þekkta og nýja söngva.
Stjórnendur kóranna eru Sesselja
Kristjánsdóttir og Marteinn H.
Friðriksson sem einnig leikur á
orgel kirkjunnar. Stúlkur úr æsku-
lýðsstarfmu flytja að lokum helgi-
leik.
Að morgninum kl. 11 er að
venju messa, þar sem sr. Jakob
Hjálmarsson messar og sömuleiðis
er bænaguðsþjónusta kl. 14.
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl.
11 og í Vesturbæjarskóla kl. 13.
Börn úr tónlistarskólum koma
í heimsókn alla laugardaga að-
ventunnar kl. 17.30 og kl. 18 á
laugardögum verður kyrrðar-
stund, í fyrsta sinn í dag, 26. nóv-
ember, fram að jólum.
Aðventuhátíð í
Langholtskirkju
AÐ VENJU er efnt til veglegrar
hátíðar í Langholtskirkju fyrsta
sunnudag í aðventu, 27. nóvem-
ber.
Kl. 11 er hinum eldri boðið til
messu, hinum yngri til sunnudaga-
skólans. Tónleikar Lúðrasveitar-
innar Svans heijast kl. 17 undir
stjórn Haraldar Á. Haraldssonar.
Hátíðardagskráin hefst svo kl. 20
og setur Guðmundur E. Pálsson
formaður sóknarnefndar hátíðina.
Nemendur úr Kórskóla Langholts-
kirkju flytja Lúsíuleik undir stjóm
kennara sinna, Helgu Bjargar
Svansdóttur tónmenntakennara
og Signýjar. Sæmundsdóttur
ópemsöngkonu.
Æskulýðsfélagar Langholts-
kirkju flytja leikritið Söguna um
fóðurinn. Æskulýðsfulltrúi kirkj-
unnar, Haukur Jónasson, ásamt
aðstoðarfólki sínu, leiðir hópinn.
Ræðumaður kvöldsins er Ólafur
G. Einarsson menntamálaráð-
herra. Kór Langholtskirkju flytur
aðventu- og jólalög undir stjórn
Jóns Stefánssonar. Helgistund í
umsjón sóknarprests, sr. Sigurðar
Hauks Guðjónssonar, og almennur
söngur. Að lokinni dagskrá er
kaffísala Kvenfélags Langholts-
sóknar.
Æskulýðsfélagar bjóða kerti
Hjálparstofnunar kirkjunnar til
sölu.
Aðventusam-
koma í Fella-
og Hólakirkju
AÐ KVELDI fyrsta sunnudags í
aðventu, 27. nóvember, kl. 20
verður að vanda aðventusamkoma
í Fella- og Hólakirkju.
Eins og undanfarin ár verður
dagskráin fjölbreytt og til hennar
vandað. Hugvekju flytur Halla
Jónsdóttir hugmyndasagnfræð-
ingur. Kirkjukór Fella- og Hóla-
kirkju syngur, einnig mun bama-
kór kirkjunnar syngja. Stjómandi
er Lenka Mátéová organisti. Þá
mun kvennakór syngja undir
stjóm Ragnheiðar Guðmundsdótt-
ur. Kristín Sigurðardóttir syngur
einsöng. Þá má nefna upplestur
og prestamir leggja sitt af mörk-
um með flutningi Guðs orðs og
bæn. Og vitanlega verður mikill
almennur söngur. í lok athafnar
tendra allir jólaljós.
Á eftir gefst kirkjugestum kost-
ur á léttum veitingum.
Hátíðisdagur í
Víðistaðasókn
ALLT frá því að kapella Víðistaða-
sóknar í Hrafnistu var vígð fyrsta
sunnudag í aðventu 1977 hefur
sá dagur verið sérstakur hátíðis-
dagur í söfnuðinum. Svo verður
eins í ár.
Barnaguðsþjónusta verður að
venju kl. 11, en kl. 14 verður hátíð-
arguðsþjónusta. Að henni lokinni
mun Systrafélag Víðistaðasóknar
sjá um að þeir sem þess-óska geti
notið þess að fá sér aðventukaffi
og þá verður einnig jólabasar fé-
lagsins. Menn geta að sjálfsögðu
fengið sér kaffísopa að lokinni
aðventusamkomu sem hefst kl.
20.30.
Þar verður að venju fjölbreytt
dagskrá, þar sem herra Sigurður
Sigurðarson vígslubiskup flytur
ræðu kvöldsins. Kór Víðistaða-
sóknar syngur undir stjóm organ-
istans, Ulriks Ólafsonar, en hann
mun einnig, ásamt Szymon Kuran,
flytja sónötu eftir Vivaldi. Einnig
mun Guðbjörg Arnardóttir túlka í
dansi helgan texta og Lúsía ásamt
þernum sínum kemur í heimsókn.
Aðventuhátíð í
Seltjarnarnes-
kirkju
FYRSTI sunnudagur í aðventu
verður haldinn hátíðlegur í Sel-
tjarnarneskirkju eins og undanfar-
in ár. Hátíðin hefst með guðsþjón-
ustu kl. 11, en þá ganga ferming-
arbörnin inn í kirkjuna með kerta-
ljós og kveikt verður á fyrsta kert-
inu á aðventukransinum.
Um kvöldið verður síðan að-
ventuhátíð, þar sem kirkjukórinn
syngur kafla úr Jólaóratóríu eftir
Saint-Saens og bamakórinn syng-
ur jólalög undir stjóm organistans
Vlera Gulazslovu. Þá kemur
gospelkórinn, sem Vlera stjómar
í heimsókn og syngur nokkur lög
en gospelkórinn vakti mikla at-
hygli í messu sem haldin var á
Eiðistorgi í kirkjuvikunni í haust.
Selkórinn mun líka syngja kafla
úr sálumessu eftir Gabríel Fauré,
en aðalræðumaður kvöldsins verð-
ur Haraldur Ólafsson lektor við
Háskóla íslands.
Aðventuhátíðinni lýkur með
helgistund, þar sem kertaljós verða
tendmð og undirbúningur jólanna
verður formlega helgaður. Að
stundinni í kirkjunni lokinni býður
uppbúið veisluborð í safnaðarheim-
ilinu, en þar gefst fólki tækifæri
til að styrkja orgelsjóðinn.
Aðventusam-
koma í Digra-
neskirkju
FYRSTA aðventusamkoman í
Digraneskirkju verður sunnudag-
inn 27. nóvember kl. 20.30.
Þegar aðventuljósið hefur verið
tendrað syngur Kór Digranes-
kirkju undir stjóm Smára Olason-
ar, Salóme Þorkelsdóttir forseti
Alþingis flytur ræðu, Kór Snæ-
landsskóla syngur jólalög undir
stjóm Soffíu Vagnsdóttur, Ingi-
mar Erlendur Sigurðsson skáld
flytur eigin ljóð, Gunnar Kvaran
leikur á selló, Guðrún Lóa Jóns-
dóttir, sópran, og Sigríður Sævars-
dóttir, alt, syngja einsöng við und-
irleik Smára Olasonar.
Þorbjörg Daníelsdóttir, formað-
ur sóknarnefndar, setur samko-
muna og endað verður með helgi-
stund með almennum söng.
Aðventuhátíð í
Grafarvogs-
kirkju
HIN árlega aðventuhátíð Grafar-
vogskirkju verður haldin næst-
komandi sunnudag kl. -20.30. Eins
og ávallt áður verður dagskrá
kvöldsins fjölbreytt og vönduð.
Kirkjukórinn mun flytja að-
ventulög undir stjóm Bjama Þórs
Jónatanssonar, organista. Barna-
kórinn syngur með kirkjukórnum
en stjórnandi hans er Áslaug Berg-
steinsdóttir. Einsöngvari í þetta
sinn er óperusöngkonan Ingibjörg
Marteinsdóttir. Wilma Young, tón-
listarkennari við Tónlistarskóla
Grafarvogs, leikur einleik á fiðlu
og nemar út Tónlistarskólanum
leika.
Aðventuhátíðin hefst með inn-
göngu fermingarbama sem tendra
aðventuljósin og flytja helgileik.
Hátíðinni lýkur með því að kirkju-
gestir munu leggja leið sína upp
í aðalsal Grafarvogskirkju og
syngja við kertaljós sálminn: Bjart
er yfir Betlehem.