Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 26.11.1994, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Doktor í sálfræði HALLDÓR Kr. Júlíus- son, sálfræðingur, varði doktorsritgerð í þróunarsálfræði við ríkisháskóla Alabama í Birmingham í Bandaríkjunum 23. nóvember sl. Ritgerðin nefnist: „Social Interactions and Social Support in Divorced and Married Families with 6-12 Year Old Children“ og byggist á rannsókn á 271 bandarískri mið- stéttarfjölskyldu. Meginviðfangsefní rannsóknarinnar eru dagleg'félagsleg samskipti í fjöl- skyldum giftra foreldra og fjöl- skyldum einstæðra fráskilinna mæðra með börn á skólaaldri. Það kom á óvart að félagsleg sam- skipti barna við foreldra reyndust sambærileg í fjölskyldum ein- stæðra mæðra og fjölskyldum giftra foreldra, en samskipti barna við einstæða móður voru jafn mik- il og samskipti bama við báða foreldra saman í fjölskyldum giftra foreldra. Engin langtímaáhrif vegna skilnaðar komu fram í vitsmunaþroska eða félagslegri hegðun barna einstæðra, frá- skilinna mæðra. Leið- beinandi var dr. Shar- on L. Ramey, prófess- or við ríkisháskóla Alabama í Birming- ham og forstjóri Civit- an International Rese- arch Center í sömu borg. Halldór Kr. Júlíus- son fæddist í Reykja- vík 2. desember 1948, sonur Kristínar Símon- ardóttur ræstingarkonu og Júlíusar Halldórssonar vélstjóra. Halldór útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík 1969 og lauk magister- prófi í sálfræði frá Kaupmanna- hafnarháskóla 1982. Halldór var forstöðumaður Sólheima í Gríms- nesi frá 1983-1989 og hefur verið framkvæmdastjóri Sólheima frá 1993. Halldór er giftur Ólínu Guð- mundsdóttir hjúkrunarfræðingi og eiga þau þijár dætur. Dr. Halldór Kr. Júlíusson Tannverndarráð ráðleggur foreldrum að gefa börnum sínum /Q jóladagatöl K J án sælgætis Rannsóknarráð Islands heldur ársfund sinn miðvikudaginn 30. nóvember 1994 í aðalsal Háskólabíós. Ársfundurinn markar einnig starfsskil Vísindaráös og Rannsóknaráðs ríkisins. Fundurinn verður settur stundvíslega kl. 13.30 að viðstöddum forseta íslands. Dagskrá: 13:00 Afhending ársskýrslu og gagna. 13:30 Setning ársfundar - próf. Sigmundur Guðbjarnason, formaður Rannsóknarráðs íslands. 13:35 Ávarp menntamálaráðherra - Ólafs G. Einarssonar. 13:50 Átímamótum: Frá vísindaráði - dr. Jóhannes Nordal, fv. formaður. Frá Rannsóknaráði ríkisins - Pétur Stefánsson, fv. formaður. Til Rannsóknaráðs íslands - próf. Sigmundur Guðbjarnason, formaður. í breyttu alþjóðaumhverfi - dr. Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri. 15:00 Forseti íslands afhendir Hvatningarverðlaun Rannsóknarráðs íslands 1994. 15.15 KAFFIHLÉ. 15:40 „Að treysta stoðirnar“: - Menningin - próf. Vésteinn Ólason, bókmenntafræðingur. - Mannauðurinn - próf. Bogi Andersen, læknir. - Nýting hafsins - Ólafur Halldórsson, fiskifræðingur/framkvæmdastjóri. - Atvinnuvegirnir - Friðrik Pálsson, forstjóri SH. 17:00 Fundarslit. Fundurinn er öllum opinn. blabib - kjarni málsins! Sjábu hlutina í víbara samhengi! IDAG VELVAKANDI Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Ekki búið vel að börnunum EMMA Þorsteinsdóttir hringdi til Velvakanda og sagði að hún fylgdi oft sex ára sonarsyni sínum í Austurbæjarskóla á morgnana. Hún vildi vekja athygli á því að það væri sama hvernig viðraði, skólinn væri ekki opnaður fyrir börnin fyrr en á þeirri mínútu sem kennsla byij- aði. í frostunum um dag- inn var þeim ekki hleypt inn fyrr en á síðustu mín- útu, og það sem verra var einnig í rokinu og rigning- unni sem var ekki alls fyr- ir löngu. Þá máttu þessi greyhíma úti í slagviðrinu, blaut og hrakin. Vörður stóð við dymar og sagði aðspurður að hann hefði ekki heimild til að hleypa börnunum inn fyrr en kennari væri kominn. Þetta er að sjálfsögðu ekki nógu gott. Frábær þjónusta ANNA hringdi til að þakka frábæra þjónustu sem hún fékk í versluninni Tóna- flóði við Háaleitisbraut. Hún var að leita að ákveðnu lagi sem hún hafði heyrt í útvarpi en vissi engin deili á. Af- greiðslumaðurinn gaf sér góðan tíma til að hafa upp á þessu lagi og tókst það og fyrir það vill hún þakka. Framköllunar- þjónusta Pennans VIÐSKIPTAVINUR framköllunarþjónustu Pennans hringdi og vildi lýsa yfír ánægju sinni með þjónustuna og verðlagið á framköllun. Sagðist hann hafa verið með átta filmur í fóram sínum sem hann hefði ekki geta framkallað fyrr en nú vegna of mikils verðlags. Sagði hann það einnig gott framtak að hægt væri að fá filmurnar sendar heim og þá ekki síst í ljósi þess að margir ættu ekki heimangengt. Tapað/fundið Peysa fannst HANDPRJÓNUÐ tvflit peysa með norsku mynstri á 3-4ra ára fannst við Framnesvegi 59 fyrir u.þ.b. mánuði. Upplýs- ingar í síma 622142. Barnaútigalli fannst BARNAÚTIGALLI fannst á Laufásvegi. Uppl. er hægt að fá hjá Ernu í síma 10499. Farsi „l/íð ViljunucÁ lögfrjciinQurinn/ okJcor ólcemi, kökurUL-" SKÁK Umsjón Margcir Pétursson ÞESSI staða kom upp ^ á unglingameistaramóti fs- lands um daginn. Pétur Veigar Pétursson frá Húsavík var með hvítt, en Guðjón Valgarðsson, níu ára, var með svart og átti leik. Hvítur hafði drepið á peð svarts með drottning- unni og hún er úr leik á drottningarvæng. « b c d • t 22. - Rxf3! (miklu betra en 22. - Rxh3 því nú hótar svartur máti) 23. Hxf3 - Hxf3, 24. gxf3 - Dxf3+, 25. Kgl - Df2+, 26. Khl - Hf3 (teflir upp á mát) 27. Dfl? (Alger örvænting, en eftir 27. Dc8+ - Kh7, 28. Dxe6 - Dh4 er svartur einn- ig með unnið tafl. Nú gæti Guðjón farið út í gjörannið endatafl, en vill frekar máta.) 27. - De3!, 28. Dgl - Hxh3+, 29. Kg2 - Hg3+? (hann gat mátað strax. Það á ekki að pína andstæðing- inn að óþörfu) 30. Kh2 - Hh3+, 31. Kg2 - Df3 mát. Guðjón, sem aðeins er níu ára, vakti fyrst athygli þegar hann sigraði á mótinu í Háskólabíói sem bar heitið „Leitin að Bobby Fischer". Þetta er fyrsta en örugglega ekki síð- asta skák hans sem birtist í skákhorninu. Disney-mótið fyr- ir 14 ára og yngri fer fram í dag í Skákmið- stöðinni við Faxafen. Víkveiji skrifar... VÍKVERJI hélt sig skrifa heldur meinleysislega frásögn af því fyrir nokkru, að hans máltilfinning segði honum að það væri rangt að kalla gula kynstofninn „mongólíta", og hann tæki orðið „mongóla“ fram yfir. Heimir Pálsson, deildarstjóri Námsgagnastofnunar er greinilega ekki sömu skoðunar, því í bréfi til blaðsins í gær, fer hann nokkuð dómhörðum orðum um þessi tilskrif Víkveija, sem Víkveiji ætlar ekki að svara efnislega, heldur aðeins að leirétta þær rangfærslur sem fram koma í bréfi deildarstjórans. xxx AÐ ER einu sinni svo, að Vík- veiji getur ekki fallist á, að það sé í kot vísað, að notast við heimildarit eins og Alfræðiorðabók- ina. Það gerir Víkveiji oft og iðu- lega og telur hana til hinna ágæt- ustu heimildarita. En þar sem Heimir segir m.a. í bréfi sínu til blaðsins í gær: „Eina heimildarrit sem blaðamanninum hugsaðist að fletta upp í er Alfræðiorðabókin. Þar hefur verið valinn sá kostur að tengja annað orðið við erfðasjúk- dóminn, þó aðeins í samsetningunni „mongólítagervi“,“ getur Víkveiji ekki látið hjá líða að benda deildar- stjóranum á að þama fer hann með rangt mál. XXX A ABLS. 520 í Alfræðiorðabókinni stendur orðrétt, meðal skýr- inga á „mongólítagervi“: „Meðalævi mongóIíta(leturbreyting Víkveija) er stutt“. Jafnframt vill Víkveiji svona rétt skjóta því að, þar sem hann starfar samkvæmt mati deild- arstjórans eftir „siðareglum lastar- ans“, benda Heimi á, að „eina heim- ildarrit sem blaðamanninum hugs- aðist ..." hljómar mjög ambögulega í eyrum Víkveija. Víkveiji hefði talið eðlilegra, að deildarstjórinn hefði notað ákveðinn greini á eftir „eina“, auk þess sem Víkveija finnst það hljóma, sem uppskrúfað deildarstjóramál, að segja, að ekki sé talað um skrifa: „hugsaðist". Hvað er athugavert við hið ágæta orð: „hugkvæmdist"? xxx AUK ÞESS er það líka rangt hjá Heimi þessum, að eina heimildarritið, sem Víkveija hug- kvæmdist að fletta upp í, hafí verið Alfræðiorðabókin. Önnur bók, ágæt að mati Víkveija, ber titilinn Ensk- íslensk orðabók, og kom út hjá sama forlagi og hin fyrmefnda, hjá Emi og Örlygi, bara ári síðar, 1991. Víkveiji fletti upp í þeirri bók, og á bls. 661, er fyrsta skýringin sem gefin er á nafnorðinu „Mongolian" þessi: „mongólska". Önnur skýring er gefín: „mongóli, maður af hinum mongólska kynstofni". Þriðja skýr- ing er loks þessi: „Mongólíumaður, Mongólíubúi". Mongoloid er hins vegar sagður bæði vera maður af hinum mongólska kynstofni og mongólíti. xxx OKS VILL Víkverji benda Heimi Pálssyni á þá sjálfsögðu og eðlilegu vinnureglu, sem a.m.k. Morgunblaðið uppáleggur blaða- mönnum sínum að ástunda - þ.e. að gera mönnum ekki upp skoðan- ir, eða leggja mönnum ósögð orð í munn. Víkveiji sagði aldrei: „Telur hann alla aðra málnotkun til marks um ótrúlega fávisku." Margur held- ur mig sig! xxx ÓÐKUNNINGI Víkveija, sagði Víkveija frá heimsókn hans á Fæðingardeildina, þar sem hann heimsótti dóttur sína, nýorðna móð- ur. Hún sagði sínar farir ekki slétt- ar, því hún hafi verið nýkomin inn á sjúkrastofu, eftir fæðingu, og hafi hún beðið þess, að verða færð- ur maturinn. Leið og beið og enginn kom kvöldmaturinn. Loks kom starfsstúlka deildarinnar og spurði móðurina ungu, hvort hún ætlaði ekki að borða, hveiju hún játti. Starfstúlkan sagði henni þá, að þá yrði hún að fara fram úr og sækja sér matinn! Þetta þótti góðkunn- ingjanum fullmikið af því góða, og spurði Víkveija hvort ekki mætti nú færa sængurkonunum í rúmið svona fyrstu klukkustundirnar eftir fæðingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.