Morgunblaðið - 26.11.1994, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 9
FRÉTTIR
Hjúkrunarforstjóri Hrafnistu segir
sjúkraliða þjarma að heimilinu
17 beiðnir af
153 hafafengist
afgreiddar
RAGNHEIÐUR Stephensen,
hjúkrunarforstjóri dvalarheimilis-
ins Hrafnistu í Hafnarfirði, segir
að lélegar undirtektir sjúkraliða
við beiðnum um undanþágur hafi
haft það í för með sér að rekstur
heimilisins sé undir öryggismörk-
um. Hún segir að á þeim hálfa
mánuði sem verkfall sjúkraliða
nefur staðið hafi verið sendar 153
beiðnir um undanþágur en aðeins
17 þeirra hafi verið afgreiddar.
Ragnheiður telur sjúkraliða vera
að þjarma að Hrafnistu, en Kristín
Á. Guðmundsdóttir, formaður
Sjúkraliðafélags íslands, hafnar
því að verið sé að leggja Hrafnistu
í einelti.
Heimilisfriður rofinn
„Þær litlu undanþágur sem við
höfum fengið virðast vera veittar
bæði ómarkvisst og teknar eftir
geðþótta. Það er ekkert hlustað á
okkar rök. Undanþágunefndin tel-
ur sig hafa það gott eftirlit á
deildunum hér að hún geti metið
ástandið, en það eina eftirlit sem
við höfum orðið vör við eru verk-
fallsverðir, og þeir virðast ekkert
vera sammála hjúkrunarfræðing-
unum. Við álítum að verkfallsverð-
ir eigi einungis að líta eftir eftir
verkfallsbrotum og þeir eigi ekki
að vara að meta hjúkrunarþörf
heimilisfólksins. Við skiljum því
ekki hvaða upplýsingar und-
anþágunefndin hefur um ástand
heimilisfólks hér,“ sagði Ragnheið-
ur í samtali við Morgunblaðið.
Hún sagði ástandið á Hrafnistu
slæmt þar sem nánast engar
undanþágur hefðu fengist og þá í
lágmarki og eftir geðþótta.
„Þetta er heimili og því finnst
okkur að það liggi við að heimilis-
friður hafi verið rofinn. Það sem
hefur bjargað okkur er að ættingj-
ar hafa verið mjög duglegir við að
koma hérna og hjálpa aðstandend-
um sínum, en það er auðvitað mjög
misjafnt hve mikið fólk.getur kom-
ið. Okkur finnst að það sé verið
að þjarma áð okkur, en okkur er
kunnugt um að við fáum lélegri
afgreiðslu varðandi undanþágu-
beiðnir en aðrir,“ sagði Ragnheiður.
Ekki um einelti að ræða
Kristín Á. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélags íslands,
sagðist algjörlega hafna því að
verið væri að leggja Hrafnistu í
einelti. Sagðist hún ætla að kanna
hvernig staða mála þar væri, en
hún sagði það rétt að verkfalls-
verðir hefðu metið stöðuna á
Hrafnistu, enda störfuðu þeir þar
og þekktu til mála. Helga Steinars-
dóttir, formaður undanþágunefnd-
ar, sagði að alltaf hefði verið sótt
um fulla mönnun á Hrafnistu og
slíkt gengi ekki í verkfalli. Þá sagði
hún það hafa komið berlega í ljós
í verkfallinu að búið hafi verið að
sníða sjúkrastofnunum svo þröng-
an stakk hvað mannahald snertir
að vandræðaástand skapaðist um
leið einn starfsmann vantaði á
vakt.
Hef flutt lækningastofu mína
á Háteigsveg 1, Reykjavík.
Steingrímur Davíðsson,
húðsjúkdómalæknir.
Tímapantanir virka daga
frákl. 10-16, sími 622121.
NÝKOMIÐ FRÁ ÍTALÍU
Ný sendfng af sófasettum
og rókókóstólum frá CÍG
Tegund Barbara 3+1+1 tau.
Hagstætt verð - Mikið úrval
OPIÐ í DAG TIL KL. 16.00.
SUNNUDAG kl. 14.00-16.00.
HÚSGAGNAVERSLUN
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 654 100
Hártoppa- og
dömu og herra
Danskur hárkollumeistari, Finn Waldorf, í heimsókn
Hárprýði, sérversiun með gervihár, er nú 20 ára. Af því tilefni
flytjum við í stærra og betra húsnæði í Bongarkringlunni.
Þar verður mjög góð aðstaða fyrir dömur og sérstök,
aðskilin deild fyrir herra.
f tilefni opnunarinnar
verður Finn Waldorf frá
Kaupmannahöfn,
hönnuöur hárhluta og
ráðgjafi, með kynningar
og ráðgjöf dagana- ■
25.—28. nóv.
Finn Waldorf mun sýna
það nýjasta í gervihári
fyrir dömur og herra
og leiðbeina
viðskiptavinum okkar.
Almenn kynning
fös 25/11, kl. 16-19.
Við getum
leiðbeint,
aðstoðað og bent
á hjálpartæki eða
lausnir fyrir dömur
og herra, sem líða
fyrir hárleysi.
Hafið samband og
fáið upplýsingar
um þá möguleika
sem fyrir hendi eru.
HárprýSi kynnir:
"Great Lengths"
allra nýjusfu aðferð
fil að lengja og
a ar.
"Great Lengths"
hárlenging og/eða
hárþykking verður
sýnd í
Borgarkringlunni
laugardaginn
26. nóvember
nk. Þar qeta qestir
og gangandi séS
með eigin augum
hvernig þessi
frábæra
hárlengingarqðferð
virkar.
» Greiðsluskilmálar,
sem henta öllum.
FATAPRÝÐI
Sérverslun
BORGARKRINGLUNN1103 REYKJAVÍK. S. 91-32347.
NU BREYTUM VIÐ=
HY STJÓRNMALAHREYFIN6
boðar til opins fundar á Hótel íslandi
á morgun, sunnudaginn 27. nóvember,
kl. 14:00 - 16:00. Húsið opnar kl.13:30.
AÐALRÆÐUMAÐUR:
Jóhanna Sigurðardóttir,
alþingismaður.
Ávörp, hljóðfæraleikur, söngur, upplestur o.fl.
M/ETUM...
...og myndum breiðan samstarfsvettvang fyrir alla þá
sem aðhyllastframsækna jafnaðarstefnu
á grundvelli lýðræðis, valddreifingar,
félagshyggju, jafnréttis, mannúðar og mannréttinda.
UNDIRBÚNINGSNEFND
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!