Morgunblaðið - 26.11.1994, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
SJONARHORIM
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 41
Helstu augnsjúk-
dómar sem heija
á íslendinga
.
Góð sjón er af mörgum talin sjálfsögð, en hún er ekki sjálf-
gefín. Að heilsufari augna verður að huga vel. Þó augu
verði ekki fyrir sliti af notkun vilja sækja á þau sjúkdómar
sem í vissum tilfellum geta leitt til blindu segir Einar Stef-
ánsson prófessor í augnsjúkdómum í viðtali við Margréti
Þorvaldsdóttur um helstu augnsjúkdóma á íslandi.
HUGSIÐ vel um augun ykkar svo
þið missið ekki sjónina sagði gamlá
fólkið. Það taldi sig hafa skaðað sína
eigin sjón með því að rýna í lélegri
birtu. Einar var spurður hvort það
væri hættulegt sjóninni að lesa við
lítið ijós. Hann sagði að svo væri
ekki, orsakir væru aðrar, sumar
væru aldursbundnar og aðrar afieið-
ing augnsjúkdóma. Einn þessara
sjúkdóma er gláka.
Gláka var helsta orsök blindu
„Giákan var á fyrri hluta þessarar
alda og jafnvel langt aftur í aldir,
I aðal orsök blindu á íslandi," segir
Einar og vitnar þar í ritgerð Helga
Skúlasonar frá árinu 1923.
Eldra fólk óttaðist gláku. Hvers-
konar sjúkdómur er gláka?
„Gláka er augnsjúkdómur sem
getur valdið blindu og gerir það
venjulega ef hann er ekki meðhöndl-
aður,“ svaraði hann. „Glákan lýsir
sér með hækkuðum þrýstingi í auga
og hægfara rýrnum á sjóntauginni
og þar með á sjónsviðinu. Sjónsviðið
minnkar, dregst saman smátt og
smátt og fái það að ganga alla leið
veldur það algjörri blindu. Sam-
kvæmt ritgerð Helga Skúlasonar var
hún margfalt algengari hér á landi
en í öðrum löndum. Nú eru um
2.000-3.000 íslendingar með gláku
en aðeins 60 af þeim eru blindir af
sjúkdómnum."
Helstu orsakir gláku
- Hverjar eru helstu orsakir
gláku?
„Það er ekki vitað. Menn hafa
velt fyrir sér hvort það sé eitthvað
í erfðamynstri íslendinga eða í um-
hverfinu. Glákan er mjög arfbundin.
Þórður Sverrisson augniæknir hefur
staðið fyrir tvíburarannsóknum og
þar kemur fram að glákan er yfir-
leitt í báðum eineggja tvíburum eða
hvorugum. I samanburðarrannsókn
kom í ljós að mikil fylgni er á milli
tvíbura en lítil fylgni á milli maka
sem þykir benda ákveðið til að glák-
an sé erfðasjúkdómur en ekki um-
hverfissjúkdómur. Nú eru miklar
rannsóknir í gangi við leit að geni
eða genum sem valda gláku sem án
efa munu leiða til meiri skilnings á
gláku á næstu árum.“
- Nú hefur tekist að draga úr
glákublindu. Hvað er gert?
„Já, um 1950 var vitað um 250
glákublinda einstaklinga hér á landi.
Baráttan gegn glákunni hófst fyrir
alvöru á sjötta áratugnum, þegar
Guðmundur Bjömsson ritaði doktors-
ritgerð sína um gláku á íslandi. Þá
myndaðist fræðilegur grundvöllur
fyrir baráttunni gegn glákunni. Ann-
að stórt skref var stigið þegar augn-
og glákudeild var stofnuð hér árið
1970. Fram komu einnig ný lyf sem
reyndust mjög hjálpleg svo og nýjar
leysigeislaaðgerðir. Heilbrigðisþjón-
ustan jókst, það voru fleiri sem komu
til augnlæknis og glákan var upp-
götvuð fyrr hjá fólki en áður.“
„Þama voru í gangi forvarnir í
fyllstu merkingu þess orðs,“ segir
Einar, „bæði í leit að sjúkdómnum
og við meðhöndlun á gláku til að
fyrirbyggja blindu. Þær hafa borið
þann árangur að nú eru einungis um
60 einstaklingar blindir af gláku.
Þjóðin hefur nær tvöfaldast á síðustu
40 árum og fjöldi gamla fólksins
meira en tvöfaldast á sama tíma, en
við værum í sömu sporum og við
vorum árið 1950, með trúlega um
500-600 glákublinda einstaklinga,
ef ekki hefði verið unnið markvisst
að forvörnum."
Aðventukvöldj
með Heiða
Heiðar kemur alltaf á óvart
og öllum í gott skap.
Heiðar fcr á kosluni;
kynnir undurfagra tónlist af
geisladiskum með fremstu
listamönnum heimsins, og
fjallar um allt milli himins og
jarðar í gamni og alvöru.
Frumsýning á Hóíel Örk
Hveragerði,
sunnudaginn 27. nóv.
(fyrsti sunnudagur í aðventu)
Húsið opnað kl. 20
45LÓM ©ÁVEXTIR
HAFNARSTRÆTI 4, SÍMAR 12717 og 23317
Verslunin Blóm & Ávextir í Reykjavík
sýnir og selur aðventukransa, jólastjörnur, jólaskraut og
fleiri muni sem tengjast jólunum, í anddyri hótelsins.
Jólaglögg og margvíslegt góðgæti á borðum.
M HÓl’EL Œ3K
V—HVERAGERÐI. Sími 98-34700. Bréfsími 98-34775
PaÞadís ráH kandan við ksaðina
Morgunblaðið/Kristinn
MIKILL árangnr hefur náðst í baráttunni gegn glákunni. Fólk
yfir fertugt ætti að fara reglulega í glákumælingu, segir Einar
Stefánsson prófessor í augnsjúkdómum.
Gláka er til hjá fólki
á öllum aldri
- Sækir gláka fremur á eldra
fólk en yngra?
„Já, gláka er til hjá fólki á öllum
aldri, allt frá nýfæddum börnum til
elstu einstaklinga. En hún er lang
algengust á efri árum. Gláka er sjald-
gæf fyrir fertugt en fer stigvaxandi
eftir það. Segja má að það séu að
jafnaði um tveir af hundraði þjóð-
arinnar sem hafa gláku, en þegar
verið er að tala um áttrætt fólk þá
er það einn af hveijum tíu.“ Einar
bætir þvi við, að margir augnsjúk-
dómar séu annað hvort öldrunarsjúk-
dómar eða hrörnunarsjúkdómar.
Hann segir að þegar litið sé til
baka til áranna 1950 og 1970 þegar
menn urðu að horfast í augu við
þetta mikla heilbrigðisvandamál og
leitað leiða að leysa það, hafí Lions
hreyfingin komið sem bjargvættur
sem opnaði leiðir. Lions hreyfíngin
hafí átt mjög stóran þátt í að góður
árangur náðist með sínu snjalla átaki
í sölu á „rauðu íjöðrinni" árið 1970.
Hinn góða árangur megi greinilega
sjá nú 20 árum síðar. A þessum árum
gerðist það einnig að tæknin auðveld-
aði leit að sjúkdómnum og sjúkdóms-
greining batnaði. Þessi árangur gegn
glákunni byggist fyrst og fremst á
því að finna sjúkdóminn á frumstigi.
Flestir þurfa á gleraugum að halda
um og eftir fertugt og koma þá til
augnlæknis og er þá jafnframt leitað
að giáku, þannig hafa flest tilfelli
fundist.
Gleraugu án augnskoðunar
geta verið varhugaverð
„Á síðustu árum hefur orðið breyt-
ing sem við höfum áhyggjur af.“
segir Einar. „Nú er hægt að kaupa
gleraugu yfír búðarborðið sem í
sjátfu sér er í lagi. Gallinn er sá að
fólk kaupir gleraugu án þess að fara
í augnskoðun og við höfum undanfar-
ið séð í 6-8 tilvikum fólk með langt
gengna gláku.“ Hann segir að slík
þróun svipi meira til áranna 1930-40
þegar augnlæknar voru fáir. Séu
augu ekki skoðuð reglulega sé hætt-
an á að fólk gangi með ógreinda
gláku án meðferðar ár eftir ár. Hann
segir einnig að hjá augnlæknum
hafi komið fram vissar áhyggjur um
þeir geti misst niður hinn mikla
árangur sem náðst hefur i barátt-
unni gegn þessum alvarlega augn-
sjúkdómi.
Nauðsynlegt að fara í
glákumælingu ef gláka er í
ættinni
Einar hvetur fólk sem komið er
yfir fertugt að fara í glákumælingu,
sérstaklega ef gláka er í ættinni.
Hvað notkun eigin augna varðar að
öðru leyti þá bendir hann á að augu
slitni ekki við notkun, þau verður að
vernda fyrir slysum og áverkum en
þau eru ekki viðkvæm fyrir notkun.
Verslunin er opin
í dag frá kl. 70:00 til 16:00
Hvers vegna að...
... þegar þú hefur efni á því besta?
IBM 4076 litaprentarinn
frá LEXM^RK kostar aðeins:
<s>
NÝHERJI
SKAFTAHLlO 24 - SlMI 69 77 00
Alliaf skrefi á undan